Morgunblaðið - 13.05.2001, Side 60
60 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
HK DV
Ó.H.T RÚV
strik.is
Sýnd kl. 5.30 og 8. Vit nr. 224.
Sýnd kl. 2 og 3.50.
Vit nr. 203.
Sýnd kl. 2 og
3,50.
Ísl tal Vit nr. 183.
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 207
Sýnd kl. 1.50.
Ísl. tal. Vit nr. 169
Sýnd kl. 10.30. B.i.16.
Vit nr. 201
Kvikmyndir.com
Óeðlilega
snjöll!
Sýnd kl. 5.40, 8,
10.20. B.i.16 ára. Vit nr. 228
Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10. b.i. 16 ára. Vit nr. 223Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.55, 8 og 10.20. . Vit nr. 233
Joel Silver framleiðandi Matrix er hér á ferðinni með
dúndur spennumynd með topp húmor. Stefnir í að verða
stærsta Steven Seagal myndin frá upphafi í USA.
Frábær tónlist í
flutningi DMX!
Sýnd kl. 8.10 og
10.20. Vit nr 220. B.i.14.
Hausverk.is
Sýnd kl. 2 og 4
Íslenskt tal. Vit nr 213.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl tal Vit nr. 231
Hún þurfti bara
mánuð til að
breyta lífi hans
að eilífu"
Keanu Reeves (Matrix) og Charlize Theron
(Cider House Rules, Men of Honor)
í rómantískri gamanmynd um mann sem hélt hann hefði allt.
www.sambioin.is
SWEET NOVEMBER
KEANU REEVES CHARLIZE THERON
Nýjasta myndin um Pokemon er
komin til Íslands!
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 8.
GSE DV
ÓFE Sýn
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. eftir Þorfinn Guðnason.
HK DV
Yfir 5 vikur á
topp 20
Strik.is
Ó.H.T Rás2
SV Mbl
Lalli Johnslli
Yfir 6000 áhorfendur
Sýnd kl. 6 og 8.30.
Sýnd kl. 10.30.
HK DV
Kvikmyndir.com
strik.is
strik.is
Ó.H.T RÚV
Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 5.45. B.i.16 ára.
THE GIFT
Besta myndin
í bænum
ÓJ Stöð 2.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Hann var maðurinn sem hóf
partýið.
En öll partý
taka enda.
byggð á sannsögulegum heimildum
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
FRUMSÝNING
FRÆGÐIN er tvíeggjuð fyrirþær hljómsveitir sem haldasig á jaðri vinsældarokks þvíef þeim gengur ekki nógu vel
fá þær ekki færi á að starfa að tónlist
eingöngu og gefa út og ef þeim geng-
ur of vel er hætt við því að virðing
manna fyrir hljómsveitinni þverri og
skammt í algera fyrirlitningu þeirra
manna sem viðkomandi vildu
kannski helst að kynnu að meta sig.
Þannig var því farið með bandarísku
rokksveitina Weezer sem sló ófor-
varandis í gegn fyrir sjö árum og
lagði síðan mikið á sig til að losna við
þorra aðdáenda sinna.
Weezer er það sem Bandaríkja-
menn kalla dæmigerða háskólasveit
sem leikur grípandi gítarrokk.
Framan af ferli sveitarinnar var
aulaleg ímynd liðsmenn sveitarinnar
áberandi og í greinum um Weezer
var sífellt verið að leggja áherslu á
það hve óstjörnulegir liðsmenn sveit-
arinnar væru. Það má til sanns vegar
fær að liðsmenn Weezer virðast ekki
hafa stefnt á frægðina þegar þeir
stofnuðu sveitin í menntaskóla í Los
Angeles 1983.
Höfuðpaur sveitarinnar var Riv-
ers Cuomo sem hafði þá leikið
þungarokk með ýmsum sveitum
undir sterkum áhrifum frá Kiss,
Quiet Riot, Judas Priest og Iron
Maiden. Í Los Angeles kynntist
Cuomo-bassaleikaranum Matt
Sharp og þeir tveir stofnuðu síðan
Weezer með gítarleikaranum Jason
Cropper. Síðar hætti Cropper og
Brian Bell kom í hans stað. Um
trommuleik sá Patrick Wilson, en
sjálfur lék Cuomo á gítar og söng.
Næstu mánuðir fóru í spilirí, en
Cuomo hefur lýst því í viðtölum að
þeir félagar hafi eiginlega ekki átt
von á því að ná nokkrum árangri,
ekki síst vegna þess að þeir fengu yf-
irleitt dræmar viðtökur við tónleika-
haldi sínu; það voru allir á kafi í
grugg- og glysrokki á þeim tíma og
þegar Weezer var að spila með öðr-
um sveitum var hún yfirleitt síðust á
dagskráninni þegar áheyrendur
voru farnir heim.
Milljónasala
Með þrautseigju komst Weezer
loks á samning, hjá DGC merki Dav-
ids Geffens, og tók upp fyrstu skíf-
una með Cars stjörnuna Ric Ocasek
við stjórnvölinn. Ekki höfðu þeir
Weezer félagar meiri trú á skífunni
en svo að um leið og upptökum lauk
fór sveitin í frí og Cuomo sneri aftur í
skóla, hélt til Harvard, að ljúka
námi. Platan kom svo út vorið 1994
og fór rólega af stað. Markaðsdeild
DGC lagði aftur á móti hart að sér,
með takmörkuðum stuðningi sveit-
arinnar, og meðal annars gerði Spike
Jonze bráðgott myndband við lagið
Undone (The Sweater Song) sem
vakti verulega athygli þá um haustið.
Næsta smáskífa, Buddy Holly, vakti
enn meiri athygli og þegar við bætt-
ist enn betra myndband þar sem
liðsmenn sveitarinnar birtust í sjón-
varpsþættinum hallærislega Happy
Days, fór breiðskífan að seljast fyrir
alvöru og fór á endanum í rúmum
tveimur milljónum eintaka í Banda-
ríkjunum einum, en í hátt á fjórðu
milljón á heimsvísu. Svo víða skír-
skotun hafði sveitin að til gamans má
geta þess að á geisladiskinum með
Windows 95, sem kom á markað í
ágúst 1995, var myndbandið við
Buddy Holly notað til að sýna hve
stýrikerfið væri öflugt. Um það leyti
var Weezer aftur á móti farin í frí
aftur og fékkst ekki til að fylgja skíf-
unni frekar eftir þótt enn hefði verið
gefin út smáskífa þá um sumarið,
Say It Ain’t So. Cuomo tók aftur til
við námið, en þeir Sharp og Wilson
stofnuðu hljómsveitina Rentals.
Kominn með algjört
ógeð á Weezer
Cuomo segist hafa velt því alvar-
lega fyrir sér á þessum tíma að
hætta hljómsveitabrasi enda var
hann kominn með algert ógeð á lög-
unum af plötunni eftir að hafa verið
búinn að spila sömu lögin aftur og
aftur í hálft þriðja ár; fyrst þegar
lögin voru ný og óútgefin, og síðan á
tveggja ára tónleikaferð um heim-
inn. Í ferðinni fékk Cuomo einnig
ógeð á blaðamönnum að því hann
segir sjálfur, ekki síst fyrir það að
honum fannst þeir sífellt misskilja
sig og á endanum hætti hann að veita
viðtöl.
Þegar í skólann var komið gerði
Cuomo sitt til að leyna því að hann
væri rokkstjarna og hélt sig að
mestu út af fyrir sig. Um líkt leyti
var verið að lengja á honum annan
fótinn og hann gekk með stálgrind
um fótinn sem hann þurfti að herða á
fjórum sinnum á dag. Getur nærri að
hann hafi hneigst til þunglyndis á
þessum tíma og kemur kannski ekki
á óvart að lögin sem hann samdi voru
öllu bölsýnni en gleðirokkið sem
Weezer var fræg fyrir. Þegar Como
sneri aftur úr fríinu og náminu var
hann búinn að setja saman beina-
grind að plötu sem fjallaði um líf
hans árin tvö í tímaröð, allt frá því
hann sneri aftur í venjulegt líf eftir
að hafa verið rokkstjarna í hálft ann-
að ár. Tónlistin var myrk og textarn-
ir ekki síður og segja má að í kjölfar-
ið hafi orðið eins konar uppgjör
innan sveitarinnar sem lyktaði með
því að Weezer varð nánast sólóverk-
efni Cuomos. Þegar kom að því að
taka skífuna upp ákváðu þeir Weeze-
félagar svo að stýra upptökum sjálfir
í stað þess að fá Ocazek aftur og
reyndu að sögn vísvitandi að draga
úr poppáhrifum og ekki síst að reka
af sér gleðirokksorðið.
Streist á móti frægðinni
Það kemur líkast til fáum á óvart
að plata númer tvö, Pinkerton, seld-
ist minna en skífan á undan, ekki síst
í ljósi þess að sveitin streittist á móti
við myndbandagerð, var lítt gefin
fyrir að spila á tónleikum og höfuð-
paur hennar veitti engin viðtöl. Eftir
það sem þeim þótti hæfileg kynning
var Weezer svo aftur lögð á hilluna
1997 og þráðurinn ekki tekinn upp
aftur fyrr en síðasta sumar að Weez-
er hóf tónleikahald eftir þriggja ára
hlé frá spilamennsku. Ekki þurftu
menn að óttast viðtökurnar, því það
seldist snimmhendis upp á alla tón-
leika.
Meðal þess sem bar við í því fríi
var að Matt Sharp hætti í sveitinni
og tók sinn tíma að æfa inn nýjan
mann. Síðan tók við tímabil þegar
þeir félagar segjast hafa velt því fyr-
ir hvort þeir ættu að halda áfram eft-
ir allt saman og þá í hvaða átt yrði
haldið, en þeir segjast hafa prófað
ýmsa stíla og stefnur áður en þeir
enduðu á sama stað og lagt var upp
frá. Að þeirri niðurstöðu fenginni
hélt Weezer í hljóðver að taka upp
þriðju breiðskífu sína á sjö árum,
sem þykja ekki mikil afköst. Ric
Ocasek er við stjórnvölinn líkt og
forðum og nafn plötunnar og umslag
eru meira að segja vísun í fyrstu
plötuna, sem Weezer-vinir kalla
gjarnan bláu plötuna; sú nýja heitir
Græna platan og á umslaginu eru
þeir Weezer-félagar fjórir með
grænan bakgrunn.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Weezer amast
við frægðinni
Það er ekki tekið út með sældinni að verða vin-
sæll, ekki síst ef sá sem fyrir því verður vildi síst af
öllu lenda í öðru eins umstangi og sölumennsku
og fylgir frægðinni oftar en ekki.
Háskólasveit: Meðlimir hljómsveitarinnar Weezer.