Morgunblaðið - 09.06.2001, Síða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hf. og Háskólinn á Akureyri hafa
sett í gang samstarfsverkefni í
áframeldi á þorski í tveimur
sjókvíum í Eyjafirði, skammt
sunnan Svalbarðseyrar. Um er að
ræða tilraunaverkefni, þar sem
ala á áfram 10-15 tonn af þorski í
sumar og fram á haust en þá
verður fiskurinn tekinn til
vinnslu. Í gær var fyrstu þorsk-
unum sleppt í aðra kvína, alls um
einu tonni, sem veiddur var í
snurvoð í Eyjafirði og Skagafirði
og fluttur lifandi í körum á
áfangastað. Ekki lifði þó allur
fiskurinn ferðalagið af.
Björn Gíslason og Bergur Guð-
mundsson, nemar í sjávarútvegs-
deild HA, hafa umsjón með verk-
efninu og hafa þeir félagar m.a.
fengið styrk úr Nýsköpunarsjóði
námsmanna. Einnig starfar Krist-
ján Halldórsson skipstjóri hjá ÚA
með þeim að verkefninu í sumar.
Björn sagði að tíminn fram á
haust yrði notaður til ýmissa
rannsókna. Þorskurinn í annarri
kvínni verður alinn á síld og
loðnu en þorskurinn í hinni á
þurrfóðri frá Laxá.
Strax eftir helgi verður aftur
haldið í róður en báturinn Jón
forseti ÓF frá Ólafsfirði er not-
aður við veiðarnar. Í tengslum við
verkefnið hefur fengist tímabund-
ið leyfi sjávarútvegsráðuneytisins
til dragnótaveiða í Eyjafirðinum.
Tilraunaverkefni ÚA og Háskólans á Akureyri
Áframeldi á
þorski hafið í
kvíum í Eyjafirði
Morgunblaðið/Kristján
Þorskinum rennt í kvína, Bergur Guðmundsson og Haraldur Ólafsson raða í rennuna, Birkir Magnússon er á
háfnum og Björn Gíslason sér um talninguna.
GYLFI Arnbjörns-
son, framkvæmda-
stjóri Eignarhalds-
félags Alþýðubank-
ans, verður næsti
framkvæmdastjóri
Alþýðusambands Ís-
lands. Gert er ráð
fyrir að formlega
verði gengið frá
ráðningu hans á
fundi miðstjórnar
sambandsins um
miðjan mánuðinn.
Gylfi hefur verið
framkvæmdastjóri
Eignarhaldsfélags
Alþýðubankans í
fjögur ár en þar áð-
ur var hann hagfræðingur Al-
þýðusambandsins um fimm ára
skeið, á árunum 1992–1997.
Gylfi staðfesti við Morgun-
blaðið í gær að sér hefði verið
boðin staða framkvæmdastjóra
ASÍ í vikunni og
hann hefði fallist á
að taka hana að sér.
Hann á von á því að
taka við nýju starfi
um mitt sumar en
enn hefur ekki verið
ráðið í stöðu hans
hjá Eignarhalds-
félaginu.
„Þetta starf
leggst vel í mig og
verkalýðshreyfingin
hefur lengi verið
mér hugleikin,“
sagði Gylfi. Hann
tekur við af Ara
Skúlasyni sem lét af
störfum sem fram-
kvæmdastjóri skömmu eftir ára-
mót.
Gylfi Arnbjörnsson er kvænt-
ur Arnþrúði Ösp Karlsdóttur
verkefnisstjóra og eiga þau
fjögur börn.
Alþýðusamband Íslands
Gylfi Arnbjörns-
son næsti fram-
kvæmdastjóri
Gylfi
Arnbjörnsson
EINAR K. Guðfinns-
son, 1. þingmaður Vest-
firðinga fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn og formaður
sjávarútvegsnefndar
Alþingis, segir ákvörð-
un sjávarútvegsráð-
herra um að gefa veiðar
á steinbíti frjálsar á
næsta fiskveiðiári vera
mjög mikilvæga og svo
sannarlega skref í rétta
átt fyrir smábátasjó-
menn. Hann leggur
áherslu á að enn frekar
verði að koma til móts
við smábátasjómenn og
vonast til þess að frum-
varp það sem tilbúið
var á lokadögum þingsins en kom
ekki fram, um auknar veiðiheimildir
í steinbít, ufsa og ýsu, verði afgreitt
á Alþingi í haust.
„Ég fagna þessari ákvörðun sjáv-
arútvegsráðherra mjög,“ segir Ein-
ar. „Ég tel að hún muni leiða til
þess að tekjumyndun í sjávarútvegi
á Vestfjörðum muni aukast og það
er auðvitað það sem málið snýst
um.“
Ekki sammála því að ákvörð-
unin leiði til of mikillar sóknar
Einar segist ekki sammála þeim
sem hafi lýst áhyggjum sínum í fjöl-
miðlum af því að ákvörðun ráðherra
leiði til of mikillar sóknar. „Ég hef
alltaf verið þeirrar
skoðunar að ekki síð-
ur væri hægt að
stjórna veiðum með
sóknartakmörkunum
en aflamarkstakmörk-
unum. Til dæmis ætti
að vera auðvelt að
beita svæðalokunum
til þess að afstýra
rányrkju á steinbít og
skapa rými fyrir
strandveiðiflotann. Ég
hef alls ekki áhyggjur
af því að þetta leiði til
þess að sóknin verði
óeðlileg eða komi í
veg fyrir að minni
bátarnir geti stundað
þessar veiðar. Öðru nær,“ segir
Einar ennfremur.
Að þessu leyti telur Einar að
ákvörðun ráðherra hafi verið Vest-
fjörðum og Vestfirðingum til heilla,
en hann tekur þó fram að fráleitt sé
lokið aðgerðum fyrir smábátaflot-
ann í heild. Sjávarútvegsráðherra
hafi hins vegar verið settar mjög
þröngar skorður nú, þar sem hann
fari ekki með lagasetningarvald og
hafi því einungis getað gripið til að-
gerða sem ekki kölluðu á lagasetn-
ingu.
Vill aukningu á ýsu strax
„Sjávarútvegsráðherra vildi á síð-
ustu dögum þingsins beita sér fyrir
að afgreitt yrði frumvarp hans um
aukningu á aflaheimildum smábáta-
flotans. Það hefði þýtt að ýsuaflinn
hefði aukist um 70%. Því miður náði
það ekki fram að ganga, en þessu
máli er alls ekki lokið og ég bind
vonir við að frumvarpið geti orðið að
lögum nú á haustþingi. Það yrði
mjög gott innlegg í þetta mál að
mínu mati,“ segir Einar og bætir við
að þá yrði aflaaukningin í ýsu að
taka gildi strax á næsta fiskveiðiári,
enda sé slíkt tæknilega mögulegt í
framkvæmd.
Hann bætir því við að störf end-
urskoðunarnefndar um stjórn fisk-
veiða vegi hér afar þungt og mjög
brýnt sé að vinnu hennar sé hraðað.
Endurskoðunarnefndin hefur
engan tíma til að drolla
„Nefndin hefur það hlutverk að
auka sátt um fiskveiðistjórnunar-
kerfið. Það liggur fyrir að meðal
landsmanna er bullandi óánægja
með hlut smábátanna eins og hann
er í dag og því tel ég að nefndinni
beri að setja fyrr en seinna fram til-
lögur sem geta aukið sátt um þessi
mál. Hún hefur engan tíma til að
drolla með þessi mál fram á haust,
því að þessi mikla óvissa sem er í
kringum greinina, ofan í þennan
mikla niðurskurð aflaheimilda, er al-
gjörlega óþolandi fyrir sjávarútveg-
inn og til stórskaða fyrir greinina,“
sagði Einar K. Guðfinnsson.
Einar K. Guðfinnsson, formaður sjávarútvegsnefndar
Fagnar ákvörðun
sjávarútvegsráðherra
Einar K.
Guðfinnsson
KARLMAÐUR sem var við vinnu á
hjólbarðaverkstæði á Ísafirði slasað-
ist á fæti í gærmorgun þegar dekk
sem hann var að dæla lofti í sprakk.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Ísafirði voru meiðsl
mannsins minni en fyrst var talið en
fóturinn er bólginn og marinn. Mað-
urinn var fluttur á sjúkrahúsið á Ísa-
firði.
Um klukkan fjögur síðdegis féll 10
ára gamall drengur niður af þaki.
Hann var talinn handarbrotinn og
var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði.
Meiddist þegar dekk sprakk
ELDUR kviknaði í jeppa þegar hon-
um var ekið austur yfir Markar-
fljótsbrú síðdegis í gær. Þrennt var í
bílnum, tveir fullorðnir og barn og
sakaði engan. Tekist hafði að
slökkva eldinn áður en slökkvilið bar
að. Bíllinn er talsvert skemmdur.
Þegar bílstjórinn opnaði vélarhlíf-
ina sá hann að eldur kraumaði í vél-
arhúsinu. Eldurinn var slökktur með
handslökkvitæki sem vegfarandi
sem átti leið hjá hafði í bíl sínum.
Kviknaði í
bíl á Mark-
arfljótsbrú
ÞÆR eru ýmsar, kræsingarnar sem finnast í sjónum. Vel bar í veiði hjá
þessari kríu á Seltjarnarnesi sem gæddi sér á gómsætu hornsíli.
Gott í gogginn
Morgunblaðið/Ómar