Morgunblaðið - 09.06.2001, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 9
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð kynnti á fundi sínum á Eg-
ilsstöðum sl. miðvikudag nýja mál-
efnahandbók um sveitarstjórnar-
mál. Þar eru sett fram helstu
markmið flokksins um verkefni,
ábyrgð og stefnu í sveitarstjórnar-
málum.
Handbókin skiptist í nokkra
kafla, m.a. um fjárhag, rekstur og
verkaskiptingu í sveitarfélögum,
velferð og samábyrgð, náttúru og
umhverfi, upplýsingatækni til
fræðslu og framfara og nýsköpun í
atvinnumálum. Í fréttatilkynningu
flokksins kemur fram að með hand-
bókinni sé tekin afdráttarlaus af-
staða til margra þeirra lykilspurn-
inga sem framboð til
sveitarstjórnakosninga um land allt
munu ræða á næstunni. Þá var
greint frá ályktunum VG um fisk-
veiðistjórnarmál, í kjölfar niður-
staðna Hafrannsóknastofnunar um
leyfilegan hámarksafla á næsta fisk-
veiðiári.
Leggur flokkurinn áherslu á að
endurmeta verði allar forsendur
fiskverndaraðgerða við Ísland.
Vinna þurfi vandaða úttekt á ár-
angri fiskveiðiráðgjafar, og leggja
grundvöll að nýju ráðgjafar- og
verndarkerfi þar sem raunveruleg
óvissa í stofnstærðarmati verði sett
í samhengi við viðurkennd varúðar-
sjónarmið og grunnreglur sjálf-
bærrar nýtingar.
Vinstri grænir telja að hraða
þurfi endurskoðun laga um stjórn
fiskveiða og mótun nýrrar sjávarút-
vegsstefnu. Gera eigi grundvallar-
breytingar á aflamarkskerfinu og
taka alla þá þætti sem hafa áhrif á
sóknina með í reikninginn.
Þá lýsir þingflokkurinn áhyggjum
af því að annað árið í röð hafi rík-
isstjórnin ákveðið að svonefndri
aflareglu skuli í reynd vikið til hlið-
ar með sérreglum og útgefnar veiði-
heimildir auknar.
Þingflokkur VG hyggst síðar á
árinu gangast fyrir sérstakri náms-
stefnu um grundvöll fiskveiðiráð-
gjafar og stöðu fiskverndarmála.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð kynnir nýja
málefnahandbók og ályktar um fiskveiðistjórnun
Endurmeta þarf forsend-
ur fiskverndaraðgerða
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Vinstrihreyfingin – grænt framboð kynnir nýja málefnahandbók og
ályktanir um fiskveiðistjórnunarmálin. F.v.: Árni Steinar Jóhannsson,
Steingrímur J. Sigfússon, Svanhildur Kaaber og Þuríður Backman.
Egilsstaðir. Morgunblaðið.
Á ÍSAFIRÐI hefur verið stofnað
til félagsskapar um smíði flugvélar
þar í bæ. Markmiðið er að kaupa og
smíða vél af gerðinni RV-9 og er
stefnt að því að hefjast handa við
gerð hennar í haust. Félagið mun
sjálft fjármagna kaup og smíði vél-
arinnar og telur Þór Harðarson,
forsvarsmaður félagsins, að tvö til
þrjú ár muni líða þar til vélin verð-
ur fullgerð.
Félagið er fyrst og fremst
áhugamannafélag, en helsta hvötin
að stofnun þess er áhugi félags-
manna á flugmálum. Auk Þórs
standa að félaginu þeir Þorri
Gestsson, Páll Janus Hilmarsson,
Skarphéðinn Ölver Sigurðsson og
heiðursfélagi er Ingólfur Eggerts-
son.
Félagið sem stofnað var þann 1.
júní nefnist FÍ, en til stóð að láta
það heita Flugfélag Ísafjarðar.
Fyrir því fékkst hins vegar ekki
leyfi hjá Hagstofu Íslands sem
taldi að heitið væri misvísandi,
enda gerir Hagstofan ráð fyrir því
að heitið flugfélag feli í sér að um
flugrekstur sé að ræða. Að sögn
Þórs stendur þó ekki til að hefja
slíkan rekstur, heldur er ætlunin að
nota vélina í einkaflugi á Ísafirði.
Flugvél smíðuð á Ísafirði
Léttur fatnaður í sumarfríið
Buxnadress
með safarísniði
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Buxur, bolir, jakkar, kjólar
Góða helgi!
Frábært úrval af fallegum hlutum
Opið lau.-sun. frá kl. 15-18, þri.-fim. frá kl. 20:30-22:30
eða eftir nánara samkomulagi.
Laugavegi 4, sími 551 4473
Brúðarkorsilett
með tilheyrandi
kr. 11.900
P
ó
stsend
um
Langur
laugardagur
Full búð af
glæsilegum vörum
Opið í dag
frá kl. 10-17
Elégance
boutique
Laugavegur 25, sími 533 5500
15% afsláttur
á löngum laugardegi
Bankastræti 9, sími 511 1135
Í t ö l s k h ö n n u n
www.jaktin.is
Sérverslun með ítalskar vörur fyrir dömur og herra
Vesti á frábæru tilboði í dag.
Opið frá kl. 11—17.
Indlandi
Í versluninni Míru, Bæjarlind 6, Kópavogi,
er ljósmyndasýning Freysteins G. Jónssonar.
Tilefni sýningarinnar er að í lok liðins vetr-
ar lauk Freysteinn ljósmyndanámi frá New
York Institute of Photography.
Á sýningunni eru 44 myndir, 20 eru svart-
hvítar og 24 í lit. Sýningin samanstendur af
myndum frá Indlandi sem teknar voru í
febrúar á þessu ári.
Sýningin er opin á opnunartíma Míru og
eru allir velkomnir.
Mannlíf á
w
w
w
.m
ir
a.
is
Bæjarlind 6, sími 554 6300
NÝ SENDING
Glæsilegir brúðarkjólar, samkvæmiskjólar,
frúarsett með síðum jökkum (stórar stærðir)
Brúðameyjarkjólar
og brúðasveinaföt
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230 Opið frá kl. 10 til 14
Sumarbuxur
20% afsláttur í dag