Morgunblaðið - 09.06.2001, Síða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMKVÆMDAAÐILAR væntan-
legs álvers á Reyðarfirði fylgja ávallt
ströngustu kröfum sem í gildi eru um
leyfilegt magn ýmissa efna í lofti að
sögn Gunnars G. Tómassonar, verk-
fræðings, en Gunnar vann skýrslu um
áhrif fyrirhugaðs álvers á Reyðarfirði
fyrir Reyðarál hf.
Á fundi Landverndar á þriðjudag
um áhrif fyrirhugaðs álvers í Reyð-
arfirði kom fram hjá Ingibjörgu E.
Björnsdóttur umhverfisfræðingi, að 2
tonn af fjölarómatískum kolvetnum,
eða PAH-efnum verði losuð út í and-
rúmsloftið, en þau eru krabbameins-
valdandi. Þá fari 828 tonn af brenni-
steinstvíoxíði út í andrúmsloftið á
hverju ári, brennisteinsþoka geti
myndast við vissar aðstæður og 88,5
tonn af köfnunarefnisoxíðum muni
fara í andrúmsloftið árlega.
Gunnar G. Tómasson bendir á hinn
bóginn á að framkvæmdaaðilar ál-
versins hafi kosið að fylgja ströng-
ustu kröfum sem gerðar eru í þessum
efnum. Notast sé við íslenskar reglu-
gerðir, tilskipanir frá Evrópusam-
bandinu eða leitað til einstakra landa
og ströngustu kröfum sem finnast
hverju sinni verði framfylgt í álverinu
í Reyðarfirði. Sem dæmi nefnir Gunn-
ar leyfileg mörk fyrir magni brenni-
steinstvíoxíðs í lofti, þar séu íslenskar
reglur strangari en Evrópulöggjöf og
því hafi verið kosið að fylgja þeim.
Varðandi leyfilegt loftmagn flúoríð-
efna fylgja framkvæmdaaðilar norsk-
um reglum sem Hollustuvernd ríkis-
ins hefur einnig notað.
Þá segir Gunnar engar reglur vera
til á Íslandi eða í Evrópusambandinu
um leyfilegt magn PAH efna í lofti. Í
því tilfelli fylgi menn allra ströngustu
kröfum um losun slíkra efna sem
gerðar eru í einstökum Evrópulönd-
um.
Ströngustu
kröfum fylgt
í hvívetna
Fundur Landverndar um matsskýrslur
vegna fyrirhugaðs álvers á Reyðarfirði
ÁRSREIKNINGAR Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 2000 voru í fyrri-
nótt samþykktir í borgarstjórn
Reykjavíkur. Átta fulltrúar R-lista
greiddu atkvæði með reikningun-
um og sjö fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks á móti. Sjálfstæðismenn létu
bóka að skuldastaða Reykjavíkur-
borgar hafi versnað til muna í
valdatíð R-listans, skuldirnar hafi
vaxið um átta milljónir króna á dag
og að áhrif skuldaaukningarinnar
muni fyrr eða síðar verða til þess
að seilst verði í vasa borgarbúa
sem á endanum þurfi að borga
brúsann. Þá voru í bókuninni gagn-
rýnd „þau bókhaldsbrögð sem nú-
verandi meirihluti hefur beitt til að
villa um fyrir kjósendum varðandi
raunverulega stöðu borgarinnar. Í
eyðslufylleríi umliðinna ára hefur
R-listinn gengið verulega á eignir
Reykjavíkurborgar og flutt skuldir
borgarinnar frá borgarsjóði til
hinna ýmsu fyrirtækja. Þessi
blekkingarleikur hefur þó ekki ein-
vörðungu áhrif á bókhaldsstærðir
heldur stuðlar hann einnig að mis-
vísandi skilaboðum um hvar póli-
tísk ábyrgð ákvarðana liggur,“
sagði í bókuninni.
„Ómálefnalegt að
bera saman ólíka hluti“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri gagnrýndi að sjálf-
stæðismenn hafi á blaðamanna-
fundi fyrr um daginn borið skulda-
stöðu borgarsjóðs og fyrirtækja
borgarinnar saman við skuldastöðu
ríkissjóðs og sveitarfélaga en ekki
tekið fyrirtæki í eigu ríkis og sveit-
arfélaga með í reikninginn. „Ég
geri ekki athugasemd við að sjálf-
stæðismenn sýni línurit sem sýna
tiltekna þróun eða að þeir sýni
samstæðu borgarinnar en ekki
borgarsjóðinn. Það er í góðu lagi,
en þið skuluð bera saman sambæri-
lega hluti,“ sagði Ingibjörg. „Það
gerðuð þið ekki og þetta er
ómerkilegur málflutningur.“
Í bókun R-lista sagði að þriðja
árið í röð væru frávik frá fjárhags-
áætlun óveruleg. Borgarsjóður hafi
skilað 1,9 milljörðum í tekjuafgang
ef ekki er tekið tillit til lífeyr-
isskuldbindinga að fjárhæð 952
milljónir króna. Heildarskuldir
borgarsjóðs hafi lækkað annað árið
í röð, nú um 1,4 milljarða að raun-
gildi. Um samstæðureikning borg-
arinnar segir að sú breyting hafi
verið gerð að þar séu nú öll fyr-
irtæki, sem borgarsjóður eða fyr-
irtæki hans eiga meirihluta í, sem
hafi áhrif á efnahagsreikning sam-
stæðunnar. Samkvæmt honum hafi
peningalegar eignir aukist um 2,6
milljarða og skuldir um rúma 6
milljarða að raungildi. Peningaleg
staða án lífeyrisskuldbindinga hafi
því versnað um 3,5 milljarða og um
6,6 milljarða að raungildi séu líf-
eyrisskuldbindingar meðtaldar.
Skuldaaukninguna megi rekja til
lántöku Orkuveitu Reykjavíkur
vegna fjárfestinga í virkjunum og
veitukerfum. Einnig hafi Félagsbú-
staðir hf. tekið lán til kaupa á
félagslegum íbúðum. Verðmæti
fastafjármuna samstæðunnar hafi
aftur á móti aukist um 30 milljarða
króna.
Ársreikningar Reykja-
víkurborgar samþykktir
ÞRÍR vélstjórar á Herjólfi hafa sagt
upp störfum eftir að fjórða mannin-
um, sem vann sem vélstjóri í afleys-
ingum, var sagt upp. Kristján Ólafs-
son, deildarstjóri skiparekstrar hjá
Samskipum, sem tóku við rekstri
Herjólfs á síðasta ári, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þrír vélstjórar
séu skráðir á skipið en ætlunin hafi
verið að fækka um eina vélstjóra-
stöðu. Í kjölfar þess hafi hinir vél-
stjórarnir þrír sagt upp störfum.
Kristján sagði að auðveldlega
myndi ganga að fá nýja menn í störf-
in, þau yrðu ekki endilega auglýst
enda væru aðrir vélstjórar þegar
starfandi hjá Samskipum. Aðspurð-
ur sagði hann að ekki stæði til að
segja upp öðrum starfsmönnum á
Herjólfi, þó að ákveðin endurskoðun
varðandi rekstur væri alltaf í gangi.
Segja upp
í kjölfar
uppsagnar
Vélstjórar á Herjólfi
STEFÁN Pétursson fjármálastjóri
Landsvirkjunar segir að þær for-
sendur sem Þorsteinn Siglaugsson
rekstrarhagfræðingur gaf sér við
mat á arðsemi Kárahnjúkavirkjunar
séu í fáum en mikilvægum atriðum
rangar.
Afleiðingin sé sú að niðurstaða
Þorsteins um að tap á Kárahnjúka-
virkjun verði 22–51 milljarður
standist alls ekki. Þvert á móti sé
útlit fyrir vel viðunandi hagnað.
Stefán ítrekar þó að skýrsla Þor-
steins sé að mörgu leyti vel gerð.
Sérstaklega í ljósi þess að Lands-
virkjun hafi hingað til ekki verið
tilbúin til að gefa miklar upplýsing-
ar um verkið.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
vildi Stefán þó ekki gefa upp hve
mikið Landsvirkjun telji sig geta
hagnast á virkjuninni. Ástæðan sé
sú að slíkar upplýsingar séu við-
kvæm viðskiptaleyndarmál. Vissu
kaupendur um þann arð sem Lands-
virkjun hefði af virkjun myndu þeir
krefjast lægra orkuverðs. Það sama
eigi við um rekstrarkostnað. Þá geri
Þorsteinn ráð fyrir 1.250 milljónum í
rekstrarkostnað en Landsvirkjun
treysti sér til að reka virkjunina fyr-
ir minna fé.
Þorsteinn á villigötum
varðandi þróun álverðs
Stefán segir að sú arðsemiskrafa
sem Þorsteinn gerir ráð fyrir í því
sem hann nefnir raunsætt mat sé í
hóf stillt. Þorsteinn gerði ráð fyrir
að ávöxtun á hlutafé yrði 8,42% en
4,37% af lánsfé. Stefán segir að
Landsvirkjun geri hins vegar enn
hærri arðsemiskröfu til virkjunar-
innar. Í áætluninni sé gert ráð fyrir
þeim möguleika að sitthvað bregði
út af við fram kvæmdina. Með góðri
áætlanagerð og vali á hæfum verk-
tökum sé þeirri áhættu haldið í lág-
marki. Engin framkvæmd sé þó án
áhættu.
Stefán segir að veigamestu mis-
tökin sem Þorsteinn hafi gert í
skýrslunni varði verð á áli.
Í skýrslunni segir hann að sér-
fræðingar geri ráð fyrir að álverð
lækki um 1–1,5% árlega. Sé varlega
farið valdi sú lækkun því að orku-
verð lækki um 2,94% árlega að
raungildi miðað við áætlaða verð-
bólgu í Bandaríkjunum.
Stefán segir að hér sé Þorsteinn á
villigötum. Sérfræðingar haldi því
fram að álverð muni til framtíðar
lækka um 1–1,5% að raungildi á ári
en ekki 2,94% eins og Þorsteinn
heldur fram. Hann bendir á að til að
rökstyðja sitt mál sýni Þorsteinn á
mynd þróun álverðs frá árinu 1989
til dagsins í dag. Það sem sé villandi
við þessa mynd, og þar með þá spá
sem af henni sé dregin, sé að 1988–
89 hafi álverð verið í sögulegu há-
marki. Sé miðað við verð á áli frá
1968 líti myndin og spá um álverð
allt öðruvísi út.
„Kjarni málsins er sá að Þor-
steinn er ekki að gefa sér sömu for-
sendur um þróun álverðs og helstu
sérfræðingar á því sviði í heiminum í
dag,“ segir Stefán. Þær áætlanir
sem Landsvirkjun, Norsk Hydro,
Reyðarál, íslenskir fjárfestar og al-
þjóðlegur bankamarkaður nota gera
ráð fyrir að álverð á samningstím-
anum, 20 ár, verði að meðaltali í
kringum 1550 dollarar á tonnið. Þor-
steinn geri hins vegar ráð fyrir að
meðalverð verði um 1030 dollarar á
tonn.
Þá segir Stefán að Þorsteinn
reikni orkumagn rangt með tilliti til
stofnkostnaðar. Mat Þorsteins á að
virkjanir vegna Reyðaráls kosti 107
milljarða á núverandi gengi sé þó
innan skekkjumarka. Inni í þeirri
tölu séu hins vegar fleiri virkjanir
en Kárahnjúkavirkjun, t.a.m.
stækkun Kröfluvirkjunar o.fl. Þess-
ar framkvæmdir afli um 5.500 Gíga-
wattstunda. Stefán segir að Þor-
steinn virðist hins vegar miða
útreikninga sína við að Kárahnjúka-
virkjun ein muni kosta 107 milljarða
og orkumagnið í samningum sé að-
eins 4.890 gWst.
!
"
#$$
Stefán Pétursson, fjármálastjóri Landsvirkjunar
Mikilvægar forsendur
um arðsemi rangar
NÚ er sá tími að ganga í garð þegar kúm og kálfum er
hleypt út úr fjósum eftir veturlanga inniveru. Fyrsti
dagurinn úti á túni er yfirleitt mikill gleðidagur í lífi
nautpeningsins. Kálfinum Smellu frá Dalbæ í Hruna-
mannahreppi var nýlega hleypt út úr stíu sinni.
Til að byrja með þurfti hann að sæta því að vera
bundinn með múl við tré. Smella var ekki mjög ánægð
með þetta og bræðurnir Björgvin og Elís Jónssynir
höfðu samúð með sjónarmiði kálfsins, enda eiga ungir
drengir og kálfar margt sameiginlegt á vorin.
Smella úti í garði
Morgunblaðið/Sigurður Sig.