Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.06.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTIR 14 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í HVARFI rétt undir þjóðveg-inum í Hvalfirði, við Fossaá íFossaárdal, í skjóli undir Eyr- arfjalli, stendur lítill sumarbústað- ur í sannkallaðri gróðurvin innan um tún og mela. Í gær voru í bú- staðnum saman komin fjölskylda og vinafólk Snæbjarnar heitins Jónassonar, fyrrum vegamála- stjóra, til að skoða afrakstur þeirr- ar miklu vinnu sem hann lagði í að gróðursetja þarna tré og plöntur. Snæbjörn hafði lengi ætlað að bjóða vinum og velunnurum að koma og sjá afrakstur erfiðis síns en entist því miður ekki ævi til, en hann féll frá um miðjan júlí árið 1999. Í vetur tók ekkja hans, Bryndís Jónsdóttir, ákvörðun um að láta verða af þessari heimsókn núna í vor. „Við keyptum hér land árið 1966 og þá var hér ekki nokkur planta,“ upplýsti Bryndís með nokkru stolti, „þannig að óhætt er að segja að ótrúlega vel hafi tekist til.“ Jónas, sonur Snæbjarnar, sagði að meðal gestanna sem þarna voru saman komnir væru margir þeir sem faðir hans hafði helst samband við um ræktunina og naut ýmissar fyrirgreiðslu hjá, s.s. varðandi útvegun á fræi og plöntum. „Hér eru í dag bæði fulltrúar úr garðyrkjufélaginu og skógræktarfélaginu, auk kunn- ingja pabba sem hafa haft þennan sama skógræktaráhuga.“ Trjárækt en ekki skógrækt Í stuttri tölu sem Jónas hélt áð- ur en gestum var boðið að ganga um eignina og skoða plönturnar kom fram að hvammurinn sem bú- staðurinn stendur í væri um sjö hektarar að stærð og væri á landa- merkjum sem áin skipti, Kiðafells sunnan megin og eyðijarðarinnar Útskálahamars norðan megin. Helming hvammsins keypti fjöl- skyldan en leigir hinn hlutann af bóndanum á Kiðafelli gegn gróð- ursetningu og umhirðu ræktunar- innar í hvamminum. Jónas sagði að fyrstu árin hafi farið í skógrækt til skjólmyndunar hjá Snæbirni. „Pabbi vildi ekki láta kalla sig skógræktarmann heldur trjárækt- armann, en skjólið var nauðsyn- legt til að geta ræktað eitthvað sem átti að standa upp úr grasi.“ Hann sagði föður sinn strax hafa stefnt að því að gera þarna til- raunir með ýmsar tegundir sem ekki voru í almennri ræktun hér- lendis. „Hann leit á sumarbústað- arlandið frekar sem stóran garð heldur en skóg.“ Lítið merkt Jónas var búinn að setja niður nokkrar merkingar við tré og plöntur í hvamminum en sagði að líta yrði á þær með fyrirvara og hann tæki vel leiðréttingum. „Pabbi sagði að þó maður fengi fræ merkt ákveðinni tegund væri ekki víst nema einhver önnur yxi upp af fræinu. Maður gæti ekki verið viss fyrr en plantan færi að blómstra en þá þyrfti jafnvel að bíða í tuttugu ár.“ Þetta sagði Jón- as föður sinn hafa notað sem af- sökun þegar verið var að hvetja hann til að merkja plönturnar, það væri betra að bíða og vera viss. Jónas sagði föður sinn í raun hafa haft gaman af öllum öllum gróðri og stöðugt hafa viljað fjölga tegundum og afbrigðum. Á lista sem gestir fengu í hendur yfir hin- ar ýmsu tegundir við bústaðinn voru taldar upp yfir sjötíu teg- undir en Jónas sagðist telja að á landareigninni væru þær yfir hundrað talsins. Sannkölluð gróðurvin í Hvalfirði Bryndís Jónsdóttir, ekkja Snæbjarnar Jón- assonar, fyrrum vegamálastjóra, bauð vin- um hans og velunnurum að koma og skoða þann mikla árangur sem hann náði í upp- græðslu og trjárækt við sumarbústað fjöl- skyldunnar í Kjós, á sólríkum sumardegi. Snæbjörn Jónasson, fyrrverandi vegamálastjóri. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bryndís Jónsdóttir, ekkja Snæbjarnar Jónassonar, fyrrverandi vegamálastjóra, og Jónas Snæbjörnsson, sonur þeirra, tóku á móti gestum í blíðskaparveðri síðdegis í gær í Kjósinni. Það er sannkallaður sælureitur sem bústaðurinn stendur í við Fossaá í annars berangurslegu umhverfi þjóðvegarins í Hvalfirði. BRAUTSKRÁNING nemenda úr Menntaskólanum við Sund fór fram við hátíðlega athöfn í Há- skólabíói í gær. Alls brautskráðust 138 stúd- entar, sjö nemendur úr lat- ínudeild, 25 úr nýmáladeild, 32 úr félagsfræðideild, níu úr hag- fræðideild, 51 úr náttúrufræði- deild og 14 úr eðlisfræðideild. Í skýrslu Más Vilhjálmssonar rektors skólans kom meðal annars fram að undanfarin ár hefði skól- inn þurft að takmarka fjölda ný- nema sem innrituðust til þess að bregðast við þrengslum og hús- næðisskorti sem þjakað hefði skól- ann árum saman. „Aðstaða nem- enda og starfsmanna er verri en boðlegt er enda skólinn í allt of litlu húsnæði sem hannað var sem grunnskóli á sínum tíma.“ Á hinn bóginn horfði til betri vegar í þeim efnum. „Sameiginleg nefnd ríkis og Reykjavíkurborgar hefur lagt til að á næstu árum verði byggðir þrír nýir framhaldsskólar í Reykjavík. Menntaskólinn við Sund er einn þeirra.“ Rektor minntist enn fremur á verkfall kennara og sagði að vet- urinn hefði verið erfiður, bæði fyrir nemendur og aðstandendur þeirra, kennara og aðra starfs- menn skólans. „Það er aðdáun- arvert hvernig nemendur hafa unnið út úr þessum erfiðu að- stæðum í vetur, þó að náms- árangur hefði stunduð getað verið betri.“ Jöfnun á hæstu fullnaðareinkunn Fram kom í máli rektors að námsárangur þess árgangs sem nú kveður skólann hafi verið sér- lega góður. „Óvenju margir nem- endur voru með ágætiseinkunn. Alls voru 12 nemendur með ágæt- iseinkunn, 9 í meðaltal eða hærra, þ.á m. 10 nemendur nátt- úrufræðideildar. Líklegt er að aldrei fyrr í sögu skólans hafi út- skrifast jafnmargir nemendur með ágætiseinkunn.“ Dux scholae Menntaskólans við Sund er Berglind Bára Sigurjóns- dóttir og hlaut hún ágæt- iseinkunnina 9,7 en hún braut- skráðist úr félagsfræðideild. Árangur hennar er jöfnun á hæstu fullnaðareinkunn sem gefin hefur verið við MS frá upphafi skólans. Morgunblaðið/Golli Berglind Bára Sigurjónsdóttir, dux scholae, tekur við viðurkenningum úr hendi Más Vilhjálmssonar rektors. Skólaslit Mennta- skólans við Sund Aðstaða nemenda og starfs- manna er verri en boðlegt er FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur gefið út reglugerð um eftirlits- nefnd með fjármálum sveitarfélaga. Eftirlitsnefndin hefur það hlutverk að fylgjast með fjármálum sveitar- félaga og gera nauðsynlegar athug- anir á þróun þeirra. Í reglugerðinni segir m.a. að félagsmálaráðherra skipi þriggja manna eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Einn fulltrúi er skip- aður samkvæmt tilnefningu Samb- ands íslenskra sveitarfélaga og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera löggiltur endurskoðandi. Þrír varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann nefndarinnar. Félagsmálaráðuneyt- ið leggur eftirlitsnefndinni til sér- stakan starfsmann sem undirbýr fundi hennar og útvegar og vinnur ýmsar nauðsynlegar upplýsingar fyrir störf nefndarinnar. Hlutverk eftirlitsnefndarinnar er að fylgjast með fjármálum sveitar- félaga og gera nauðsynlegar athug- anir á þróun þeirra. Leiði athugun í ljós að fjármál sveitarfélags stefni í óefni skal nefndin aðvara viðkom- andi sveitarstjórn og grípa til nauð- synlegra ráðstafana. Samhliða skal nefndin upplýsa ráðuneytið um álit sitt. Eftirlits- nefnd með fjármálum sveitar- félaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.