Morgunblaðið - 09.06.2001, Síða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 19
EKKI er vitað hvort drengurinn á
myndinni sé að safna rigningarvatni
í skyrdós, en hins vegar vita börnin
á Kátakoti á Kjalarnesi, ýmislegt
um hringrás vatnsins.
Að sögn Steinunnar Geirdal leik-
skólastjóra er þriggja ára þróun-
arverkefni í gangi á Kátakoti. Allur
úrgangur er flokkaður og lífrænn
úrgangur er jarðgerður. Heilmikil
rætun er einnig á leikskólanum og
börnin taka virkan þátt í allri þess-
ari starfsemi.
„Kátakot verður líklegast fyrsti
leikskólinn til að fá umhverfisvæna
leikskólabyggingu og við erum að
undirbúa það á allan hátt,“ segir
Steinunn. Hún segir að engin eitur-
efni verði notuð í byggingunni og
húsið sjálft verður notað sem
kennslutæki. „Það verður til dæmis
hægt að læra um hringrás vatnsins
inni í húsinu sjálfu. Við munum
safna rigningarvatni í tank og svo
geta börnin séð vatnið renna í glær-
um pípum, séð hvernig það fer út í
litla tjörn fyrir utan og gufar upp í
sólinni,“ segir hún og bætir við að
börnin viti þegar töluvert um þetta
ferli.
Kátakot er eini leikskólinn á Kjal-
arnesi og eru þar 38 börn, á tveimur
deildum, Álfhóli og Dvergasteini.
Ungir
umhverfis-
sinnar
Kjalarnes
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
BÆJARRÁÐ og skipulags-
nefnd Kópavogs hafa lýst sig
jákvæð gagnvart hugmyndum
um bryggjuhverfi í utanverð-
um Fossvogi og hafa falið
skipulagsstjóra að vinna
áfram að málinu. Á fundi
skipulagsnefndar á miðviku-
dag var lögð fram greinargerð
framkvæmdaaðila um mögu-
leg umhverfisáhrif slíkrar
byggðar en bæjaryfirvöld
telja nauðsynlegt að reikna
betur út áhrif umferðarmagns
og umferðarhávaða en þar er
gert.
Í mars síðastliðnum greindi
Morgunblaðið frá hugmynd-
um Björgunar ehf. og Byggs
ehf. um að reisa á landfyllingu
út í Fossvog bryggjuhverfi
fyrir 350–400 íbúðir á Kárs-
nesi. Um væri að ræða um 6
hektara landfyllingu sem næði
að meðaltali um 150 metra út í
sjó.
Ekki umtalsverð
áhrif á lífríki
Nú hefur fyrirtækið látið
vinna fyrir sig greinargerð um
möguleg umhverfisáhrif fram-
kvæmdarinnar og var sú vinna
í höndum verkfræðistofunnar
Hönnunar. Er það niðurstaða
greinargerðarinnar að áhrif
landfyllingar á lífríki svæðis-
ins yrðu ekki umtalsverð. Þar
kemur fram að fyrirhuguð
landfylling muni ekki raska
náttúrulegum fjörum þar sem
strandlengjunni á fram-
kvæmdasvæði hafi þegar ver-
ið raskað.
Í greinargerðinni segir að
svæðið sé á skrá Alþjóðafugla-
verndunarsamtakanna sem
alþjóðlega mikilvægt fugla-
svæði og séu vaðfuglar sem
sækja á leirurnar fyrir botni
Fossvogs mest áberandi í hópi
umferðarfugla á svæðinu.
Tekið er fram að fyrirhugað
bryggjuhverfi liggi talsvert
vestan við Fossvogsleirur.
Þá eru engar fornminjar á
fornleifaskrá Þjóðminjasafns
Íslands á svæðinu. Er það nið-
urstaða greinargerðarinnar
að áhrif landfyllingar á lífríki
svæðisins yrðu ekki umtals-
verð.
Að mati höfunda greinar-
gerðarinnar er fyrirséð að
helstu áhrif framkvæmdanna
tengist uppbyggingu íbúðar-
hverfisins og vinnu við deili-
skipulag sem gera þyrfti að
hverfinu.
Er þar fyrst nefnt að áætl-
aður fjöldi barna á grunn-
skólaaldri í bryggjuhverfi er
um 200 eða einn bekkur að
meðaltali í hverri deild. Í
greinargerðinni segir að þetta
kalli á aukið rými í núverandi
barnaskólum á Kársnesi og
verið getur að byggja þurfi við
núverandi skóla til þess að
taka við auknum fjölda. Segir í
greinargerðinni að nú þegar
sé rými til þess. Sömuleiðis
þyrfti að byggja nýjan 3–4
deilda leikskóla en tillagan
gerir ráð fyrir leikskóla í
hverfinu.
Þá er talið að umferð bif-
reiða aukist töluvert vegna
hins nýja hverfis og er miðað
við að um 4.000 bílar á sólar-
hring bætist við þá umferð
sem fyrir er. Ekki er talið að
það kalli á breytingar á núver-
andi umferðaræðum. Þá er
ekki gert ráð fyrir almenn-
ingssamgöngum í hinu nýja
hverfi og því kallar það ekki á
breytingar á núverandi leiðar-
kerfi almenningssamgangna í
Kópavogi, að því er segir í
greinargerðinni.
Hávaði yfir
viðmiðunarmörkum
Kemur fram að samkvæmt
reglugerð sé viðmiðunargildi
fyrir umferðarhávaða utan við
glugga íbúðarhúsnæðis 65
desibel sé um að ræða veru-
lega breytingu á umferðaræð í
byggð og er hljóðstig vegna
núverandi umferðar við þau
mörk. Telja höfundar greinar-
gerðarinnar að umferðarhá-
vaði muni aukast á þeim göt-
um sem liggja að hverfinu
vegna bryggjuhverfisins og er
talið að aukningin muni nema
um 0,5 – 1,5 desibelum. Í sam-
þykkt skipulagsnefndar frá
því á miðvikudag, sem staðfest
er af bæjarráði sama dag,
kemur fram að hún telji nauð-
synlegt að reikna betur út
áhrif umferðarmagns og um-
ferðarhávaða vegna fram-
kvæmdarinnar.
Umrædd greinargerð var
lögð inn til Skipulagsstofnun-
ar þann 5. júní. og hefur hún
fjórar vikur frá þeim tíma til
þess að ákvarða hvort fram-
kvæmdin sé háð mati á um-
hverfisáhrifum eða ekki.
Bærinn jákvæður gagn-
vart bryggjuhverfi
Kársnes
Hugmyndir um bryggjuhverfi á landfyllingu í Fossvogi við norðanvert Kársnes.
Greinargerð um fyrirhugaða landfyllingu í Fossvogi kynnt
ÁÆTLAÐUR kostnaður
vegna breytinga á gatnakerfi
við Hörðuvelli og á svæðinu í
kring er 230 milljónir. Þetta
kom fram í svari við fyr-
irspurn bæjarráðsmanna
Samfylkingar varðandi áætl-
aðan kostnað vegna fyrir-
hugaðra nýbygginga og ann-
arra tilheyrandi fram-
kvæmda á og við
Hörðuvallasvæðið. Áður hef-
ur komið fram að kostnaður
vegna hönnunar og upp-
kaupa eigna sé hátt í 200
milljónir og bætist þar ofan
á. Er þá ótalinn kostnaður
vegna tilfærslu bensínstöðv-
ar við Lækjargötu og fyr-
irhugaðra byggingarfram-
kvæmda á Hörðuvalla-
svæðinu.
„Umbætur á vegakerfi
og umhverfi“
Í umræddum gatnafræm-
kvæmdum felast breytingar
á gatnakerfi og bílastæðum á
Sólvangssvæði, lagfæringar á
Tjarnabraut og Hörðuvöllum
og breytingar á Lækjargötu,
Hlíðarbergi, Hringbraut og á
gönguleiðum á svæðinu.
Verkið verður unnið sam-
hliða breytingum á Reykja-
nesbraut og er hluti af því.
Að sögn Magnúsar Gunn-
arssonar bæjarstjóra er
vissulega um að ræða stórar
fjárhæðir en á móti muni
framkvæmdir koma til með
að skila verulegum umbótum
á vegakerfi og umhverfi.
„Það ber að líta til þess að
það er verið að taka upp
gamla götu og endurnýja
hana algerlega. Einnig eru
sett upp göngutengsl á milli
svæða. Þá eru settar upp
fleiri tengingar vegna
Reykjanesbrautarinnar og
mislægra gatnamóta og óhjá-
kvæmilega koma til vegteng-
ingar og uppkaup á eignum
vegna þessara fram-
kvæmda,“ segir Magnús.
Magnús bendir jafnframt
á að þær framkvæmdir sem
verið er að ráðast í séu með-
al annars bygging leikskóla,
grunnskóla fyrir 550 nem-
endur, bygging íþróttahúss
og kennslusundlaugar. Þá
verði væntanlega einnig
byggt við Sólvang í framtíð-
inni.
„Þetta eru umtalsverðar
framkvæmdir á svæðinu og
þessi uppkaup og fram-
kvæmdir eru fyrst og fremst
til að tryggja að það sé hægt
að nýta svæðið á þann hátt
sem lagt var upp með.“
Kostnaður bæjarins
hátt í 2 milljarðar
Hann bendir á að fram-
kvæmdir sem Vegagerðin sé
að ráðast í á svæðinu á
næsta ári muni kosta 1,4
milljarða og þær fram-
kvæmdir sem bæjarfélagið
ætli í á næstu árum muni að
öllu líkindum kosta vel á
annan milljarð króna.
„Þetta kemur okkur ekk-
ert á óvart. Þetta er nokkuð
sem við höfðum reiknað
með,“ segir hann.
Í bókun bæjarráðsmanna
Samfylkingar á fundi bæj-
arráðs 31. maí síðastliðinn er
ítrekað að engin svör hafi
borist við fyrirspurnum varð-
andi kostnað vegna tilfærslu
bensínstöðvar við Lækjar-
götu né áætlaðan bygging-
arkostnað vegna fyrirhug-
aðra mannvirkja á svæðinu.
„Við höfum á undanförn-
um mánuðum verið í ágætu
sambandi við forráðamenn
Olíufélagsins. Það er ljóst að
þarna þarf að gera verulegar
umferðarbætur vegna mis-
lægra gatnamóta og eins
þarf að auka umferðarör-
yggi. Þarna hefur orðið fjöldi
alvarlegra slysa,“ segir
Magnús en kostnaður vegna
færslu bensínstöðvar liggur
ekki fyrir að hans sögn.
Kostnaður vegna Hörðuvalla
Nemur þegar rúm-
um 400 milljónum
Hafnarfjörður