Morgunblaðið - 09.06.2001, Side 20
AKUREYRI
20 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
28 feta hjólhýsi með áföstum
sólpalli og snyrtiaðstöðu.
Staðsett í Aðaldalshrauninu.
Upplýsingar í símum
462 5259 og 865 5992.
Til sölu
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI
Laus eru til umsóknar hálf staða á aðalskrifstofu
Háskólans á Akureyri. Starfið felst í símavörslu,
almennri afgreiðslu, ljósritun og ritvinnslu. Góð
kunnátta í ensku og norðurlandamálum æskileg.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskóla-
kennara á Akureyri eða Starfsmannafélags ríkis-
stofnana.
Upplýsingar um starfið gefur Sigrún Harðardóttir
á skrifstofu Háskólans á milli klukkan 10 og 12 í
síma 463 0501.
Skriflegum umsóknum skal skilað
til framkvæmdastjóra Háskólans á
Akureyri fyrir 25. júní nk.
AKUREYRARKIRKJA: 10. júní,
sjómannadagurinn. Sjómannamessa
í Akureyrarkirkju kl. 11. Sr Jóna
Lísa Þorsteinsdóttir. Einar Ingi
Einarsson flytur hugvekju. Sjómenn
lesa og aðstoða við útdeilingu. Karla-
kór Akureyrar-Geysir syngur.
Stjórnandi: Erla Þórólfsdóttir. Org-
anisti: Sveinn Arnar Sæmundsson.
Þriðjudagur 12. júní, morgun-
söngur kl. 9.
Fimmtudagur 14. júní, kyrrðar-
og fyrirbænastund kl. 12. Bænaefn-
um má koma til prestanna. Unnt er
að kaupa léttan hádegisverð í Safn-
aðarheimili eftir stundina.
GLERÁRKIRKJA: Sjómannadags-
guðsþjónusta verður í kirkjunni kl.
11.00. Sjómenn taka þátt í athöfn-
inni. Athöfn við minnisvarðann verð-
ur að guðsþjónustu lokinni.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma í umsjá unga fólksins
sunnudag kl. 20.00, allir velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Tón-
listarsamkoma laugardaginn 9. júní
kl. 20.00. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu
syngur ásamt einsöngvurum, stjórn-
andi Óskar Einarsson. Flutt verður
létt og skemmtileg tónlist og er að-
gangur ókeypis.
Lofgjörðarsamkoma sunnudaginn
10. júní. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu
ásamt einsöngvurum flytur fjöl-
breytta tónlist, einnig verða vitnis-
burðir og fyrirbænaþjónusta. Allir
hjartanlega velkomnir.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Æðruleysismessa í Munkaþverár-
kirkju sunnudaginn 10. júní kl. 21.00.
Séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir leiðir
guðsþjónustuna og Ólína Frey-
steinsdóttir talar. Tónlistarmennirn-
ir Eiki Bó, Stefán Ingólfsson og
Arna Valsdóttir leiða sönginn. Þá
verður tekið við fyrirbænum í at-
höfn. Að henni lokinni verður boðið
upp á kaffi í Kapítulinu.
Kirkjustarf
HÁSKÓLINN á Akureyri
brautskráir 139 kandidata á há-
skólahátíð sem haldin verður í
Íþróttahöllinni á Akureyri, í
dag, laugardaginn 9. júní kl.
10:30.
Skipting brautskráðra eftir
deildum er sem hér segir: Heil-
brigðisdeild: B.S. próf í hjúkr-
unarfræði 16, B.S. próf í iðju-
þjálfun 15, Meistarapróf í
hjúkrun 1. Kennaradeild:
B.Ed.-próf í kennarafræði 12,
B.Ed.-próf í leikskólafræði 23,
Kennslufræði til kennslurétt-
inda 34, fyrrihluta nám til
meistaragráðu í skólastjórnun
4.
Rekstrardeild: B.S. próf í
rekstrarfræði 23, Diploma í
iðnrekstrarfræði 4. Sjávarút-
vegsdeild: B.S. próf í sjávarút-
vegsfræði 7.
Háskólaárið 2000-2001 voru
sem fyrr fjórar deildir starf-
ræktar í Háskólanum á Akur-
eyri: Heilbrigðisdeild með 215
nemendur, kennaradeild með
257 nemendur, rekstrardeild
með 169 nemendur og sjávarút-
vegsdeild með 36 nemendur.
Samtals stunduðu því 677 nem-
endur nám við háskólann og
hafa þeir aldrei verið fleiri.
Háskólahátíð Há-
skólans á Akureyri
139
kandidat-
ar braut-
skráðir
TAP varð af reglubundinni starf-
semi Skógræktarfélags Eyfirðinga á
síðasta ári upp á 1,5 milljón króna.
Hluti tapsins á rætur að rekja til
kostnaðar í kringum 70 ára afmæl-
ishald félagsins á árinu. Þetta kom
fram á aðalfundi félagsins í vikunni,
sem að þessu sinni var haldinn utan-
dyra, í Vaðlareit austan Akureyrar.
Í skýrslu Vignis Sveinssonar for-
manns Skógræktarfélagsins kom
m.a. fram, að rekstur síðasta árs
hafi verið viðunandi. Sölutekjur í
gróðrastöðinni jukust um 24,7% en
lítlis háttar tap varð þó á rekstri
hennar. Mikil samkeppni var í jóla-
trjáasölu en þrátt fyrir það skilaði
hún rúmlega einnar milljóna króna
hagnaði. Efnahagur félagsins er
traustur, handbært fé frá rekstri
var 4,6 milljónir króna og eigið fé í
árslok var rúmar 25 milljónir króna.
Í máli Vignis kom einnig fram að
mikil aukning væri framundan í
skógrækt með tilkomu landshluta-
bundinna skógræktarverkefna og
kalli það á stóraukna framleiðslu
trjáplantna. Þurfi Skógrætarfélagið
því að marka sér stefnu um hvort
það vilji taka þátt í þeirri aukningu.
Mikil þörf á viðbótar
framleiðslurými
Í máli Hallgríms Indriðasonar
framkvæmdastjóra Skógræktar-
félags Eyfirðinga kom m.a. fram að
gróðursetningar hafi verið með allra
mesta móti hjá félaginu á síðasta
ári.
Alls var plantað um 90.000
plöntum og var mest plantað í
Kjarna, Eyrarlandsháls og Mel-
gerðismela.
Plöntuframleiðsla í Gróðrarstöð-
inni í Kjarna hefur vaxið ört síðustu
árin. Heildarfjöldi framleiddra
plantna á síðasta ári var um
1.300.000 og á þessu ári horfir í svip-
aða framleiðslu. Hallgrímur sagði
gróðurhús stöðvarinnar löngu full-
nýtt og að mikil þörf væri á viðbótar
framleiðslurými. Framleiðsla sum-
arblóma sem hafin var á síðasta ári
virðist hafa skilað félaginu nokkrum
arði og fjölda ánægðra viðskipta-
vina.
Í framkvæmdaáætlun fyrir þetta
ár er gert ráð fyrir að hafist verði
handa um frekari uppbyggingu í
Kjarnastöð. Byggja þarf gróðurhús
og undirbúa útistæði fyrir plöntur.
Aðalfundur Skógræktarfélags Eyfirðinga
Gróðursetning með
allra mesta móti í fyrra
Morgunblaðið/Halldór
Fundarmenn á aðalfundi Skógræktarfélags Eyfirðinga, sem haldinn
var í Vaðlareit, hlýða á Vigni Sveinsson, formann félagsins.
Leiguskipti
Akureyri - Reykjavík
Óska eftir 4ra herbergja íbúð í leiguskiptum á
130 fm raðhúsi á Akureyri í a.m.k. 2 ár.
Upplýsingar í síma 862 8826 e.kl. 19.00.
ÍSLENSKIR djassáhugamenn horfa
fram á skemmtilega tíma síðar í sum-
ar en dagana 14.-18. ágúst verður
fyrsta alþjóðlega Django djasshátíðin
á Íslandi, haldin á Akureyri á Lista-
sumri. Hátíðin er tileinkuð sígaunan-
um Django Reinhardt og tónlist hans
og er hér um sannkallaða djassveislu
að ræða.
Django Reinhardt er af mörgum
talinn einn snjallasti djassgítarleikari
sem uppi hefur verið. Hann lék öllum
betur á gítar þrátt fyrir að hafa misst
tvo fingur á vinstri hendi í bruna 18
ára að aldri. Django var orðinn goð-
sögn í lifanda lífi en hann lést aðeins
43 ára gamall.
Aðdáendur hans sækja árlegar tón-
listarhátíðir víða um heim til þess að
leika og hlýða á besta flutning sem völ
er á af Djangodjasstónlist. Virtasta
og stærsta hátíðin er haldin í Samois í
Frakklandi, þar sem Django bjó síð-
ustu æviárin. Django Jazz 2001 festi-
val á Akureyri á að verða hátíðin sem
veitir Íslendingum tækifæri til að
sækja slíkan tónlistarviðburð heima,
jafnframt því að veita aðdáendum
beggja vegna Atlantshafs tækifæri á
að mætast á miðri leið. Kveikjan að
hátíðinni eru árlegir tónleikar Robin
Nolan Trio í Deiglunni á Akureyri sl.
þrjú ár og námskeið þeirra félaga í
Tónlistarskólanum á Akureyri.
Fyrir utan árlegt námskeið þeirra
félaga er um nokkra tónleika að ræða
á Django Jazz 2001 festival á Akur-
eyri. Þar ber fyrst að telja að Robin
Nolan Trio frá Hollandi leikur í Deigl-
unni fimmtudagskvöldið 16. ágúst.
Daginn eftir leikur kvintettinn Perl
Django frá Seattle, sem er ein besta
Djangohljómsveit Bandaríkjanna.
Þann 18. ágúst er svo komið að
stærsta lið hátíðarinnar, eða innigötu-
tónleikum í verslunarmiðstöðinni
Glerártorgi. Á kynningu hátíðarinnar
sagðist Jón Hlöðver Áskelsson þess
fullviss að hljómburðurinn á Glerár-
Django Jazz 2001 festival á Akureyri um miðjan ágúst
Sannkölluð veisla fyrir
djassáhugamenn
Morgunblaðið/Kristján
Félagarnir Ólafur Haukur Árnason, Pétur Ingólfsson og Jóhann Guð-
mundsson, sem kalla sig Hrafnaspark, léku djass á kynningu alþjóðlegu
Django-djasshátíðarinnar á Glerártorgi.
torgi væri frábær. Hann sagði jafn-
framt að því stefnt að hátíð sem þessi
yrði árlegur viðburður. Við sama
tækifæri sagði Gunnar Ragnars, sem
einnig kemur að undirbúningi, að hér
væri um mjög áhugaverða uppákomu
í bænum ræða, „og trúlega sú flott-
asta í sumar.“
Fimm tíma sveifla
á Glerártorgi
Á þessum hápunkti hátíðarinnar á
Glerártorgi verða fimm tíma tón-
leikar með sígaunasveiflu og Django-
jassi á göngum Glerártorgs. Robin
Nolan Trio og Perl Django fá þar til
liðs við sig söngvarann víðþekkta
Randy Greer frá Barcelona og Paul
Weeden, gítarleikarann góðkunna frá
Noregi. Einnig leikur Djangókvartett
Akureyrar skipaður ungum Akureyr-
ingum en kvartettinn verður þá búinn
að fara í sína fyrstu tónleikaför til
Grænlands og taka þátt í námskeiði
Robin Nolan Trio.