Morgunblaðið - 09.06.2001, Side 27
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 27
Í BYRJUN september mun verslun
BabySam verða opnuð í Skeifunni 8 í
Reykjavík. BabySam er dönsk versl-
anakeðja sem sérhæfir sig í sölu á
vörum fyrir börn, allt frá fæðingu til
þriggja ára aldurs. 29 BabySam-
verslanir eru reknar í Danmörku.
BabySam-verslanirnar selja fatn-
að, barnavagna, húsgögn og margt
fleira. Eins verður boðið upp á að
leigja vöggur, barnavagna, barnabíl-
stóla og margt fleira. Baugur er sér-
leyfishafi BabySam á Íslandi.
Framkvæmdastjóri BabySam á
Íslandi er Soffía Waage Árnadóttir.
Verslunin
BabySam opn-
uð á Íslandi SVISSNESKA fyrirtækið SAir
Group sem m.a. rekur flugfélagið
Swissair, hefur boðað end-
urskipulagningu fyrirtækisins og
hyggst selja eignir og lækka kostn-
að. Dálkahöfundur Wall Street
Journal gagnrýnir, að undanfarnar
vikur hafi verið unnið að því að
sannfæra fjárfesta um að vandræði
fyrirtækisins væru ekki eins alvar-
leg og ætla mætti og að talsmenn
fyrirtækisins hafi forðast að fara
nákvæmlega í hvernig minnka ætti
kostnað.
Mario Corti, forstjóriSAir Group,
lýsti því yfir fyrr í þessari viku að
fyrstu fimm mánuði ársins hefði
reksturinn gengið vel og sala aukist
um 5% frá fyrra ári. Einnig hefðu
verið seld nokkur hótel í eigu
Swissair og áætlað væri að minnka
kostnað um 500 milljónir franka á
seinni hluta þessa árs. Tap fyr-
irtækisins nam um 160 milljörðum
íslenskra króna á síðasta ári. SAir
Group er samt sem áður skuldum
vafið og veitir ekki af end-
urskipulagningunni. Aðalvanda-
málið er Swissair sem er of lítið til
að keppa við önnur flugfélög, sem
eru hluti af öflugum samstarfs-
félögum. Áætlanir Swissair um að
stækka og eflast hafa ekki orðið að
veruleika. Almenn niðursveifla í al-
þjóðlegu efnahagslífi kemur heldur
ekki á besta tíma fyrir SAir Group,
en evrópsk flugfélög tilkynna um
þessar mundir að hægt hafi á sölu.
SAir Group á einnig 49,5% hlut í
belgíska flugfélaginu Sabena og
49% hlut í tveimur litlu frönskum
flugfélögum, Air Liberté og Air
Littoral. Búist er við að frönsku
flugfélögin verði tekin til gjald-
þrotaskipta í þessum mánuði.
„…það markar brottför okkar frá
Frakklandi,“ segir Gabriela Baum-
gartner, yfirmaður samskipta við
fjárfesta hjá SAir Group. WSJ bend-
ir á að brottförin verði hvorki hröð
né auðveld og örugglega ekki ódýr.
Óljós framtíð SAir Group
SAMRUNI Telia og Sonera er nær
því fullfrágenginn, að því er sænska
blaðið Dagens Industri greinir frá í
gær. Talsmenn símafyrirtækjanna
tveggja hafa þó ekki staðfest fréttirn-
ar. Í frétt DI kemur fram, að sam-
einað norrænt símafélag verði til í
tveimur lotum. Fyrsta skrefið er sam-
eining sænska símafélagsins Telia og
hins finnska Sonera, en í næstu lotu
verði Tele Danmark hluti af samein-
uðu félagi. Það var sænski fréttavef-
urinn Ekonomi24 sem fyrstur birti
fréttir af hugsanlegri stofnun Nordic
Telecom í síðustu viku. Þar kom fram
að sameiningarviðræður sænska
Telia, finnska Sonera og danska Tele
Danmark stæðu yfir og niðurstöðu af
þeim mætti vænta á næstunni.
DI segir að viðræðurnar hafi staðið
yfir í níu mánuði og nú eigi einungis
eftir að ganga frá formsatriðum í
sambandi við samruna Telia og Son-
era. Ef af þessum samruna verður og
Tele Danmark kemur til liðs við fyr-
irtækið í kjölfarið, verður til fyrirtæki
með 16 milljónir farsímaáskrifenda,
um 1.300 milljarða íslenskra króna
veltu og markaðsvirði upp á 3.500
milljarða.
Samruni
Telia og Son-
era sagður á
lokastigi
LYF- og líftæknisjóðurinn sem er í
umsýslu Sparisjóðs Hafnarfjarðar
(SPH) skilaði 34,64% ávöxtun á
tímabilinu 30. apríl 2000 til 1. maí
2001. Fjármálasjóðurinn sem er í
umsýslu SPH skilaði 20,49% ávöxtun
á sama tímabili og Vanguard Europe
Stock Index Fund í umsýslu Vangu-
ard skilaði 18,22% ávöxtun, sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá SPH.
Í tilkynningunni kemur fram að
Sparisjóður Hafnarfjarðar hafi
fyrstur íslenskra fjármálafyrirtækja
hafið rekstur alþjóðlegra atvinnu-
greinatengdra verðbréfasjóða í apríl
2000. Lyf- og líftæknisjóðurinn fjár-
festir í leiðandi lyfjafyrirtækjum um
allan heim. Fjármálasjóðurinn legg-
ur áherslu á fjárfestingar í alþjóð-
legum bönkum, verðbréfafyrirtækj-
um og tryggingafélögum með
breiðan tekjugrunn.
Samanburðurinn á ávöxtun verð-
bréfasjóðanna er birtur hjá Láns-
trausti en samkvæmt fréttatilkynn-
ingu er Scudder Global Themes
Fund sem er í umsýslu Scudder í
fjóðra sæti listans með 17,8% ávöxt-
un og Alþjóðasjóðurinn sem er í um-
sýslu SPH í því fimmta með 17,73%
ávöxtun.
Lyf- og líf-
tæknisjóður
með 34,64%
ávöxtun
♦ ♦ ♦
Bakpoki
aðeins 1.600 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is