Morgunblaðið - 09.06.2001, Síða 31
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 31
NÝ REGLUGERÐ tekur gildi hér
á landi um áramót, sem takmarkar
notkun hættulegra efna í ýmsum
varningi. Hættulegu efnin kallast
sæfiefni, virk efni sem notuð eru til
þess að berjast gegn skaðlegum líf-
verum með efna- eða líffræðilegum
aðferðum, að sögn Elínar G. Guð-
mundsdóttir, fagstjóra eiturefna-
sviðs hjá Hollustuvernd ríkisins. Á
neytendasíðu sl. fimmtudag var
fjallað um eitruð efni í viðarvörn
svo sem krómsölt og TBT og segir
Elín að með nýju reglugerðinni
verði notkun slíkra efna takmörkuð
talsvert. „Viðarvarnarefnin ásamt
nagdýraeitri verða endurskoðuð
fyrst af öllum, en í þeim er mikið af
efnum sem geta verið hættuleg um-
hverfinu.“
Reglurnar taka gildi hér vegna
tilskipunar ESB frá því í maí í
fyrra. Að sögn Elínar hafa reglur
um eiturefni verið mjög flóknar og
ólíkar milli landa, en unnið er að því
að samræma þær. „Mjög strangar
reglur gilda á hinum Norðurlönd-
unum hvað notkun sæfiefna varðar.
Skráningarskylda er á vörum sem
innihalda slík efni og verður sú
regla tekin upp hér á landi um
næstu áramót. Ný efni verða tekin í
áhættumat og síðan verður ákveðið
hvort eigi að leyfa þau á markaði.
Það sama gildir um virk efni sem
fyrir eru, endurskoðað verður hvort
þau verða seld áfram.“
Langur aðlögunartími
Nokkur tími mun líða þar til allar
breytingar, sem reglugerðin kveður
á um, verða komnar í gagnið. „Skila
á inn gögnum um viðarvarnarefnin í
mars 2004. Eftir þann tíma koma
fram niðurstöður úr áhættumati og
þá verður farið að taka ákvarðanir
um hvaða efni verða notuð áfram,“
segir Elín. Í bæklingi sem Hollustu-
vernd sendir frá sér á næstu dögum
um framkvæmd reglugerðarinnar
kemur fram að aðildarlöndin fái tíu
ára aðlögunartíma til þess að hætta
að nota sæfiefni sem kunna að vera
í sölu, en hljóta ekki samþykki nýju
reglugerðarinnar.
Gagnvarið timbur
notað að óþörfu
Viður sem varinn er hættulegum
eiturefnum, er notaður meira en
þörf krefur hérlendis, að mati
Rögnvalds S. Gíslasonar, efnaverk-
fræðings hjá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins. „Ástæðulaust
er að mála hlutina of svörtum litum
þótt því sé ekki að leyna að í fúa- og
viðarvörn er að finna mörg heilsu-
spillandi efni,“ segir Rögnvaldur.
„Ótækt er að setja alla gagnfúavörn
úr flokkum A og B undir sama hatt,
eins og fram kom í viðtali við Ómar
Gunnarsson efnaverkfræðing og
fleiri í Morgunblaðinu sl. fimmtu-
dag. Þótt finna megi krómsölt, TBT
og fleiri hættuleg efni í mörgum
þeirra, er það ekki algilt um fúa-
vörn í þessum flokkum. Engin yf-
irborðsefni geta komið í staðinn
fyrir gagnfúavörn þar sem á annað
borð er hætta á að viður fúni, ólíkt
því sem gefið var til kynna í um-
ræddu viðtali,“ segir Rögnvaldur.
Hjá Rannsóknastofnun bygging-
ariðnaðarins er veitt gæðaeftirlit
með gagnvörn viðar, meðal annars
A- og B-flokkum. „Við höfum eft-
irlit með að kröfur séu uppfylltar
samkvæmt Evrópustöðlum og einn-
ig reglum á vegum Norræna timb-
urverndarráðsins. Ótal efni er hægt
að nota í hverjum flokki til að ná
þessum kröfum. Lífræn tinsam-
bönd eru til að mynda einungis hluti
af þeim efnum, sem hægt er að nota
til að gagnverja í flokki B og króm-
sambönd eru bara í sumum þessara
efna sem notuð eru í gagnvörn í
flokki A og reyndar fleiri flokkum.“
Nota má
hættuminni efni
Rögnvaldur segir að verið sé að
nota gagnvarið timbur í mun fleiri
tilfellum en þurfi miðað við íslensk-
ar aðstæður, til að mynda í borð-
aklæðningar utan á húsveggjum
sem óþekkt sé að fúni hér á landi.
„Þetta er mikið notað, en það er
bara af því að ekki er til reglugerð
sem bannar það,“ segir hann.
Rögnvaldur segir mikilvægt í
allri umræðu að greina á milli við-
arolía sem bornar eru á yfirborð
viðar og annarra fúavarnarefna, en
segir nauðsynlegt að hafa allan vara
á varðandi umgengni við þessi efni.
„Einna alvarlegast er að viðarolíur,
sem eru seldar til að bera á timbur,
eru meira og minna með varasöm-
um gróðurdrepandi efnum, sem ég
tel að óþarfi sé að nota. Í sumum
löndum er búið að loka fyrir notkun
ýmissa þessara efna og það er ekki
að ástæðulausu. Um leið og komin
er reglugerð sem takmarkar notk-
un á vafasömum efnum, þurfa fram-
leiðendur að nota önnur efni. Til eru
aðrir valkostir sem kunna að vera
dýrari og óvíst að þeir virki jafn
vel.“ Rögnvaldur segir lykilatriði að
rétt sé staðið að vinnulagi og með-
höndlun viðar og viðarefna en hjá
Rannsóknarstofnun byggingariðn-
aðarins megi nálgast rit um það efni
sem nefnist „Yfirborðsefni fyrir
viðarfleti utanhúss.“
Notkun hættu-
legra efna í við-
arfúavörn verð-
ur takmörkuð
Ný reglugerð tekur gildi um áramót sem
takmarkar notkun hættulegra efna í ýms-
um varningi, svo sem í viðarfúavörn.
Viður, sem varinn er með hættulegum efn-
um, er meira notaður hér á landi en þörf
krefur, að mati efnaverkfræðings hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gagnvarið timbur er notað oftar en nauðsynlegt er hér en þrýstifúa-
vörn inniheldur oft hættuleg efni og er notuð m.a. í sólpalla.
brauðálegg frá Síld og fiski um að
meðaltali 6%. Ekki er um allt álegg
að ræða að sögn Sófusar Sigurð-
arsonar sölustjóra.
Skinka hefur hækkað um 5,6 til
6,3%, pepperoni og spægipylsur um
5,3% og beikon um 7,6%. Ástæður
hækkunarinnar segir Sófus vera
margþættar: „Það eru hækkanir á
svínafóðri sem er allt keypt í banda-
ríkjadollurum. Síðan eru umbúða-
hækkanir og laun sem eru að
hækka. Ef það er eitthvað þá er
verið að halda hækkununum í lág-
marki.“
Dilkakjöt hækkar um 6%
Norðlenska hækkaði dilkakjöt
um 6% um mánaðarmótin.
Aðspurður um ástæður hækkun-
arinnar sagði Gunnar Níelsson
sölustjóri að Ríkið hafi dregið úr
framlögum vegna geymslugjalds og
því hafi ekki verið annað fært en að
hækka verðið í samræmi við aukinn
kostnað. Auk þess hafi flutnings-
kostnaður, pökkunarkostnaður og
launakostnaður aukist talsvert.
Gengisþróun óhagstæð
Gott fæði sem framleiðir meðal
annars Gott granola, Morgungull
og Gott múslí hækkaði verð á öllum
vörum um 7 til 8% þann fyrsta júní.
„Vörurnar okkar hafa ekki
hækkað árum saman og þessi
hækkun er til þess gerð að vega upp
í aukinn kostnað. Allt okkar hráefni
VERÐHÆKKANIR á neysluvör-
um hafa verið áberandi undanfarið
og mörg fyrirtæki hafa hækkað
verð á mat- og drykkjarvörum sín-
um.
Goði hækkaði verð á kjötvörum
að meðaltali um 7% þann fyrsta júní
sl. Nautavöðvar hækkuðu um 12 til
18% en lambalæri og -hryggir um
10%. Forunnar kjötvörur, sem eru
stærsti hlutinn af vörum sem hækk-
uðu, hækka um 6,5% að nautahakki
og -gúllasi undanskildu. Ástæður
hækkunarinnar segir Karl Steinar
Óskarsson markaðsstjóri vera
margþættar. „Umbúða- og dreif-
ingarkostnaður hefur hækkað
vegna gengissigs krónunnar og svo
hefur bensín hækkað svo dæmi sé
tekið. Hækkun á lambakjöti okkar
má rekja til hækkunar á verði til
bænda síðastliðið haust sem var
ekki tekin inn í verðið fyrr en í vor.
En einnig er þar um að ræða kostn-
aðarhækkanir.“
Svínakjöt hækkar um 3 til 4%
Svínakjöt hefur hækkað hjá Slát-
urfélagi Suðurlands undanfarið og
nemur hækkunin um 3 til 4%.
Að sögn Steinþórs Skúlasonar
forstjóra hækkuðu þó ekki allar
kjötvörur. „Um miðjan maí hækk-
uðum vínarpylsur í tíu stykkja
pakkningum um 3%, en fyrirhafði
þessi vara verið á óbreyttu verði frá
því 1991.“ Ástæður hækkunarinnar
segir hann vera hækkað verð á
svínakjöti til bænda sem stafi svo
aftur af hækkunum á gengi.
Innfluttar vörur
hækka einnig hjá SS
Innfluttar vörur hækkuðu einnig
hjá Sláturfélaginu. Niðursoðið
gæludýrafóður hækkaði um 4 til
6%, innfluttur ís hækkaði um 5 til
7%, sælgæti um 2% og Barilla pasta
um 9%. Gunnar G. Gunnarsson
deildarstjóri innflutningssviðs seg-
ir ástæður hækkunarinnar vera að
langstærstum hluta gengisþróun,
en auk þess hafi einstaka vörur
hækkað frá framleiðanda.
Flest álegg að hækka
Um mánaðarmótin hækkaði
hefur hækkað með genginu og
kostnaður við flutning, laun og um-
búðir hefur aukist“ segir Viðar Sig-
urjónsson framkvæmdastjóri.
Hækkun um 2,5 til 18%
Vörur voru að hækka þann 22.
maí hjá O Johnson & Kaaber.
Verðhækkunin þar var misjöfn
en var á bilinu 2,5 til 18%. Til dæm-
is hækkaði Melroses te um 6,25%,
Pilsbury hveitið um 17,97%, ör-
bylgjupitsur frá Chicago-Town um
3,4% og Colgate vörurnar um 9,6%.
Að sögn Alfreðs Jóhannssonar
sölustjóra má rekja hækkunina
beint til gengisþróunar það sem af
er árinu. Hann segir verðið á þess-
um vörum stjórnast af verði gjald-
miðlana sem þær eru keyptar í og
því þurfi að hækka verðið nú.
Innfluttar vörur hækka
Nathan & Olsen hækkuðu allar
innfluttar vörur um að meðaltali 5%
þann 5. júní.
Morgunkorn hækkaði um 5,8%,
sykur um 6,5% og aðrar innflutn-
ingsvörur hækkuðu um 4% að með-
altali. Aðspurður um ástæður
hækkunarinnar sagði Þorsteinn
Gunnarsson markaðsstjóri að
slæmu gengi krónunnar væri um að
kenna, en einnig hafi markaðsverð
á sykri farið hækkandi. Þorsteinn
segir að þrátt fyrir þessa hækkun
sé fyrirtækið að taka á sig hluta af
gengistapinu.
Verðhækkun hjá Blómavali
Undanfarið hafa ýmsar smávör-
ur hækkað í verði hjá Blómavali.
Ís hefur hækkað um að meðaltali
8 til 10% að sögn Trausta Gunn-
arssonar verslunarstjóra. „Ísinn
hefur ekkert hækkað frá heildsala
síðan snemma á árinu, en þá hækk-
aði hann um 4,5%. Þá hækkuðum
við ekkert og höfum ekki hækkað
ísinn í tvö ár.“
Brauð hafa einnig hækkað hjá
Blómavali og nemur verðhækkunin
frá 7% til 15%. Kristinn Einarsson
framkvæmdastjóri segir þessa
verðhækkun ráðast af verði frá
bökurum sem hafi hækkað um
miðjan maí, en brauðin sem hækk-
uðu voru öll keypt hjá Jóa Fel bak-
ara. „Við samræmum verðin en áð-
ur voru þau mismunandi. Í staðinn
fyrir að hafa verðið 270, 280 og 290
krónur setjum við allt brauðið í 310
krónur.“
Kristinn tekur þó fram að sum-
arblóm séu að lækka í Blómavali
núna og stjúpur séu á tilboði. Þar
hafi verðið lækkað úr 1500 kr í 1000
kr fyrir 20 stjúpur.
Jói Fel hækkar brauðverð
Brauð hafa einnig verið að
hækka frá bökurum. Hjá Jóa Fel
hafa brauð hækkað um miðjan maí
um 6 til 7% að sögn Lindu Magn-
úsdóttur verslunarstjóra. Hún seg-
ir að hækkanir á hveiti ráði þar
mestu um enda stjórnist verðið af
gengi dollarans sem hefur verið
mjög hátt undanfarið.
Öll brauð hækka um 5%
Myllan hefur boðað hækkun á öll-
um brauðum um 5% þann 14. júní.
„Þetta er bara verðhækkun
vegna allra verðhækkananna sem
hafa verið að skella á okkur“ segir
Kolbeinn Kristinsson forstjóri
Myllunnar. „Við vonuðumst til að
gengið myndi ganga til baka, en þar
sem það hefur ekki orðið gátum við
ekki beðið með þetta lengur.“ Kol-
beinn bætir við að það séu bara
brauðin sem hækki núna og verð á
öðrum vörum Myllunnar hafi
hækkað áður en hækki ekki núna.
Almennar
verðhækkanir
vegna gengis-
þróunar
NÚ geta viðskiptavinir matvöru-
verslunar hagkaup.is notað Fríkort-
ið sitt eins og í öðrum verslunum
Hagkaups og safnað þannig frí-
punktum í hvert skipti sem verslað
er í matinn. Í fréttatilkynningu segir
að hagkaup.is sé fyrsta netverslunin
á Íslandi sem bjóði viðskiptavinum
sínum upp á að nota Fríkortið.
Þar segir ennfremur að einfalt sé
að nota kortið þar sem aðeins þurfi
að slá inn kortanúmerið í fyrsta
skipti sem það er notað.
Nýtt
Frípunktar
á Netinu
NÝVERIÐ hóf húðmeðferðarstofan
Húð-ný-ung starfsemi í Kringlunni.
Á stofunni er m.a. boðið upp á sér-
hæfðar húðmeðferðir við háræða-
sliti, húðsliti, bólum, bóluörum,
hrukkum og dökkum húðflekkjum.
Húð-ný-ung býður viðskiptavinum
húðmeðferðir alla virka daga frá
klukkan 10 til 20 og laugardaga frá
klukkan 12 til 16 yfir sumartímann.
Á fimmtudögum milli klukkan 15 og
17 er síðan boðið upp á viðtöl við
Guðmund Benediktsson, lækni.
Stofan er staðsett á 3. hæð Kringl-
unnar og eigendur hennar eru Heið-
dís Steinsdóttir, Ása Oddsdóttir og
Guðmundur Benediktsson, læknir.
Heiðdís Steinsdóttir, einn
þriggja eigenda Húð-ný-ung.
Ný húðmeð-
ferðarstofa í
Kringlunni