Morgunblaðið - 09.06.2001, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 09.06.2001, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Í UMRÆÐUM undanfarnadaga um skýrslu Hafrann-sóknastofnunar um nytja-stofna sjávar og ofmat stofn- unarinnar á stærð þorskstofnsins, hafa m.a. sjávarútvegsráðherra, for- ystumenn útvegsmanna og fleiri haldið því fram að ekki mætti blanda stjórnkerfi fiskveiða saman við vernd fiskistofnanna og fiskveiðiráð- gjöf. Á liðnum áratug hefur þó marg- sinnis komið fram í máli ráðherra og forsvarsmanna í sjávarútvegi að eitt meginmarkmið núverandi fiskveiði- stjórnunarkerfis sé að koma í veg fyrir ofveiði og stuðla að hagkvæmri nýtingu auðlinda. Kvótakerfið sé best til þess fallið að vernda fiski- stofnana. Kvótakerfið tryggir að höfð er stjórn á sókn í fiskistofnana „Kvótakerfið tryggir að höfð er stjórn á sókn í fiskistofnana,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, í áramótagrein í Morgun- blaðinu 31. desember 1995. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, sagði í ræðu á sjómannadaginn fyrir ári: „Við stjórnum fiskveiðum af nauðsyn og það er öllum sem um það vilja hugsa ljóst að sú tíð kemur aldrei að allir geti veitt eins og þeim sýnist. Tækniframfarirnar hafa orð- ið það stórfenglegar að sóknargetan er og verður alltaf umfram afrakst- ursgetu fiskistofnanna. Markmiðið með fiskveiðistjórnuninni er að varð- veita fiskistofnana og hámarka arð- semina af nýtingu þeirra fyrir þjóð- arheildina.“ Í 1. grein laga um stjórn fiskveiða, sem sett voru 1990, segir að mark- mið þeirra sé að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu fiskistofna og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Þegar lagafrum- varpið um stjórn fiskveiða var til meðferðar á Alþingi 1990, sagði Halldór Ásgrímsson þáverandi sjáv- arútvegsráðherra í framsöguræðu með frumvarpinu: „Framseljanlegar veiðiheimildir eru [...] grundvallarat- riði í þessum tillögum um fiskveiði- stjórn. Þær eru sá aflvaki sem stuðl- ar að aðlögun fiskiskipastólsins að afrakstursgetu fiskstofnanna. Þann- ig eru lögmál markaðskerfisins nýtt til að auka hagkvæmni veiðanna,“ sagði Halldór. Þorsteinn Pálsson sendiherra gegndi embætti sjávarútvegsráð- herra á árunum 1991-1999. Hann vék að meginmarkmiðum fiskveiði- stjórnunarkerfisins í ræðu á Alþingi um rekstrarvanda sjávarútvegsins í maí 1992 og sagði m.a.: „Við höfum gjarnan sett okkur meginmarkmið með stjórnun fiskveiðanna. Þau eru í aðalatriðum þrjú. Í fyrsta lagi að stjórnunin leiði til þess að við náum þeim markmiðum varðandi verndun fiskstofna sem við setjum á hverjum tíma. Í öðru lagi að við náum þeirri hagkvæmni í rekstri útgerðarinnar sem nauðsynleg er. Í þriðja lagi að greinin geti búið við sem mest frjáls- ræði og sem minnst opinber afskipti. Vitaskuld geta verið skiptar skoðan- ir um meginmarkmið af þessu tagi.“ Og síðar í ræðu sinni sagði Þor- steinn: „Ég hygg þó að flestir séu á einu máli um að fiskveiðistjórnunar- kerfi þurfi að tryggja að við náum þeim markmiðum um verndun fisk- stofna sem sett eru á hverjum tíma. Við getum farið ýmsar leiðir til þess að ná þessum markmiðum. Í fyrsta lagi getum við búið við aflamarks- kerfi sem er í grundvallaratriðum svipað því sem við búum við í dag. Hins vegar er hægt að hugsa sér margs konar útfærslur á því. Í öðru lagi getum við byggt í grundvallarat- riðum á sóknarmarkskerfi og í þriðja lagi gætum við búið við útboð á veiði- heimildum og látið uppboð stjórna því hverjir veiða á hverjum tíma. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um þessar þrjár meginleiðir. Eins og nú- verandi fiskveiðistjórnunarlög eru orðin eftir margra ára þróun þá tel ég að menn komist býsna nærri því að koma til móts við þau höfuðmark- mið sem við höfum sett. Eftir að nýju lögin gengu í gildi sýnir reynslan af fyrsta fiskveiðitímabilinu að okkur virðist vera að takast að ná að stýra veiðunum í samræmi við þær ákvarðanir um heildarafla sem sett- ar hafa verið,“ sagði Þorsteinn. Reyndist aflamarkskerfið sem skyldi við stjórnun heildarafla? Þorsteinn mælti fyrir frumvarpi um endurskoðun laganna um stjórn fiskveiða á Alþingi í febrúar 1994, sem byggt var á tillögum endurskoð- unarnefndar („tvíhöfða nefndarinn- ar“). Fór hann þá yfir reynsluna af aflamarkskerfinu og sagði m.a.: „Það hefur lengi verið eitt af okkar helstu markmiðum að stuðla að við- gangi og hagkvæmustu nýtingu fisk- stofna hér við land. Til þess að tryggja viðgang fiskstofna er grund- vallaratriði að geta stjórnað hve mikið er veitt úr þeim. Hafrann- sóknastofnun hefur frá árinu 1976 birt tillögur um hámarksafla þorsks á Íslandsmiðum sem hafa lengst af miðast við að ekki sé gengið á stofn- inn. Á árunum 1976-1993 hefur þorskafli að jafnaði verið rúmlega 20% umfram ráðgjöf stofnunarinn- ar. Spornað var við þessari óheilla- vænlegu nýtingu stofnsins árið 1991 og síðan hefur afli umfram ráðgjöf verið mun minni. Til þess að meta hvernig fiskveiðistjórnunarkerfið hefur reynst við stjórnun heildarafla er eðlilegt að bera saman leyfilegan heildarafla og veiddan afla. Sl. ára- tug hefur umframaflinn verið tæp- lega 14%. Þessi staðreynd gæti bent til þess að aflamarkskerfið hafi ekki reynst sem skyldi. Það er að mínu mati ekki rétt. Ástæða þess er fyrst og fremst sú að stjórnun byggðist á blöndu af aflam sóknarmarkskerfi frá 1 Eftir að nánast hreint af kerfi kom til hefur afli v ákvörðun um heildarafla ef skilinn afli krókabáta sem h ið langt umfram allar við sagði Þorsteinn ennfremur Viðurkenningar margra manna hér á landi og e Á árinu 1992 kom í ljós a þorskstofnsins var orðið mj legt og var gripið til mikill ingar á þorskafla á næstu aflaskerðing fól í sér gr breytingar á stuttum tíma. Ragnarssonar var þó ekk skoðunar að aflamarksker brugðist í samtali við Mbl. í en þá lá fyrir ákvörðun um tonna heildarþorskafla: ,,Þ höfum nú haft kvótakerfið ár er eðlilegt að fólk velti sér hvort það hafi brugðist einhver önnur atriði skýr komið er. Ég fullyrði að þó kerfið hafi ekki verið fullkom an af hafi það þó stutt að þv aflanum innan þeirra marka sem ákveðin voru,“ sagði hann. Í svargrein Kristjáns Ragnarssonar við gagn- rýni Jóns Sigurðssonar, Frjálslynda flokknum, á kvótakerfið, sem birtist í Morgunblaðinu í október yrti Kristján að árangurinn kerfinu væri ótvíræður. „O ur tekist að nútímavæða sjávarútveg. Endurnýjun gengið vel, fyrirtæki eru að kútnum en þurfa svigrúm t vaxa og dafna. Vísbendinga að upp séu að koma árgan ilvægra fiskistofna sem e sterkustu í háa herrans tíð tíma er auðlindin að skila m kvæmni og árangri fyrir þjó heild. Kvótakerfið hefur h urkenningar margra mætr hér á landi og erlendis. Fr komið hjá forstjóra Þjóðh unar að hann teldi fiskveiði arkerfið hagkvæmt og að tekjur þjóðarbúsins hámarkaðar með því,“ sag „Markmið fis er að varðve Deilt er um hvort ástæða sé til að blanda stjórnkerfi fiskveiða inn í umræðuna um vernd fiskistofna og skýrslu Hafrannsókna- stofnunar um ástand þorskstofnsins. For- ystumenn í sjávarútvegi og sjávarútvegs- ráðherrar hafa margoft á undanförnum áratug lýst yfir að kvótakerfið sé best fallið til að vernda fiskistofnana. Ómar Frið- riksson rifjar upp þessi ummæli og ræðir við nokkra af helstu forsvarsmönnum sjáv- arútvegsmála á undanförnum árum. Ágreiningur um hvort blanda eigi kvótakerfinu í umr Skiptar skoðanir eru á h fyrrverandi sjávarútveg ÆVINTÝRIN ENDI VEL ÓHUGNANLEGAR TILRAUNIR Fréttir um að bandarískir ogbreskir vísindamenn hafi not-að líkamsleifar hvítvoðunga, barna og fullorðinna í kjarnorkutil- raunir vekja óhug. Tilraunirnar voru að mestu gerðar á sjötta áratugnum og snerust um að mæla áhrif geisl- unar á menn. Gengu þær undir nafn- inu „Sólskinsverkefnið“. Líkin voru fengin víða að – frá Evrópu, Suður- Ameríku, Bandaríkjunum, Kanada, Hong Kong og Ástralíu – á 15 ára tímabili og virðist samþykkis að- standenda ekki hafa verið leitað. Umfang þessa máls hefur verið dregið fram í dagsljósið með upplýs- ingum, sem greint hefur verið frá í þessari viku. Hins vegar hefur verið vitað af þessum tilraunum um nokk- urt skeið. Árið 1995 var sýnd heim- ildamynd þar sem rætt var við Jean Prichard, sem fæddi andvana barn árið 1957. Fætur barnsins voru teknir og notaðir í tilraunir. Þegar móðirin vildi fá að klæða barnið fyr- ir útför þess var henni bannað það til þess að hún kæmist ekki að því hvað hefði verið gert við líkið. Eng- inn hafði spurt hana hvort fjarlægja mætti líkamshluta úr barninu. Hugtakið vísindi er allajafna tengt hugsjónum og göfugum markmiðum. Oft getur hins vegar verið stutt í öfgarnar og furðulega auðvelt að láta siðfræðina lönd og leið. Ekki þarf að leita lengra aftur en til seinni heimsstyrjaldarinnar til að finna hörmuleg ódæðisverk framin í nafni vísindanna og það virðist við fyrstu sýn ótrúlegt að í lýðræðisríkj- um þar sem rétti einstaklingsins er hampað í síbylju skuli slíkir hlutir geta gerst. Einn af forvígismönnum „Sól- skinsverkefnisins“ var Willard Libby, sem árið 1960 hlaut Nób- elsverðlaunin í efnafræði. Á fundi í janúar árið 1955 kvartaði Libby undan því að erfiðleikar við að út- vega sýni úr mönnum gerðu að verk- um að miklar gloppur væru í nið- urstöðum tilraunanna: „Ég veit ekki hvernig við eigum að útvega þau, en ég veit að það er sérstaklega mik- ilvægt að fá þau og einkum úr ung- um aldurshópi. Sýni úr mönnum skipta því mestu máli og ef einhver veit hvernig hægt er að fremja lík- stuld væri sá hinn sami að vinna þjóð sinni raunverulegt gagn.“ Vís- indamönnunum, sem unnu að verk- efninu, var ljóst að lagalegur og sið- fræðilegur grunnur rannsókna þeirra var vafasamur. Samkvæmt bandarískum skjölum var rúmlega 1.500 líkum safnað sam- an og þau send til Bretlands og Bandaríkjanna, mörgum þeirra af börnum, að því er kom fram hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC, en samkvæmt breskum blöðum voru líkin 6.000. Hermt hefur verið að leitað hafi verið fanga þar sem eft- irlit var slakt, sérstaklega á fá- tækrasvæðum. Ákveðið hefur verið að hefja rannsókn þessa máls í Bret- landi og Ástralíu og mikill þrýst- ingur hefur myndast á stjórnvöld í Hong Kong. Gögn um þessar tilraunir sáu fyrst dagsins ljós eftir að Bill Clin- ton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ákvað að opna skyldi skjalaskápana. Leynd var svipt af mörg hundruð skjölum, en þó eru enn skjöl varð- andi „Sólskinsverkefnið“, sem ekki eru talin þola dagsbirtu. Það er auðvelt að segjast aldrei mundu taka þátt í óhæfuverkum, en dæmi á borð við „Sólskinsverkefnið“ sýnir að enginn skyldi fullyrða hvernig hann myndi bregðast við þegar á reyndi. Leiðin úr hinu sið- menntaða þjóðfélagi í villimennsk- una er stutt og það er hættulegt að sofna á verðinum. Sumarið er tími ævintýranna íaugum margs ungs fólks. Að baki er vetur, skóli og skammdegi og við tekur sól og ylur, bjartar sumarnætur, launuð vinna og rýmri auraráð. En ævintýrin eru með þeim ósköpum að þau geta ýmist haft góð- an endi eða illan. Þess vegna er ástæða til að benda á það framtak nokkurra aðila sem koma að vímuefnavörnum, að standa saman að því að brýna fyrir ungu fólki að ganga hægt um gleðinnar dyr nú í sumar því að á þessum árs- tíma eru ölvunarakstur og nauðganir algengari en á öðrum tímum ársins. Tölur bæði frá Umferðarráði og Neyðarmóttökunni leiða í ljós að margir áttu um sárt að binda eftir síðasta sumar vegna tilfella sem hægt var að rekja til áfengis- drykkju. Þannig létust síðasta sumar fimm ungmenni í tveimur umferðarslys- um, þar sem ölvun kom við sögu, og þrjú önnur slys tengdust ölvun, þar sem allir ökumennirnir slösuðust og tveir farþegar, í sumum tilfellum al- varlega. Að sama skapi sýna tölur frá Neyðarmóttökunni að flestar nauðg- anir eiga sér stað í ágúst en þar næst í júlí. Í yfir 30% nauðgana er þolandi í áfengisdauða. Í langflest- um tilfellum verða nauðganirnar heima hjá þolanda eða geranda og yfirleitt þekkjast þeir. Nauðganirn- ar tengjast oftast gleðskap í heima- húsum, en næstalgengasti vettvang- ur nauðgana er á víðavangi. Ekki þarf mikið ímyndunarafl til að skynja hvílíkir harmleikir eru á bak við atburði af þessu tagi og eft- irköst þeirra – ölæðisafglöp sem leggja líf ungra manneskja í rúst. Í þessu ljósi er ekki vanþörf á framtaki Jafningjafræðslunnar, sem er um þessar mundir að þjálfa 15 manna hóp fólks, sem mun fara í vinnuskóla og ræða við unglinga þar í 9. og 10. bekk um vímuefni og af- leiðingar þeirra auk þess að svara þeim spurningum sem unglingarnir kunna að bera fram. „Sumarið býður upp á ýmis æv- intýri sem við viljum öll að endi vel og þar tel ég að stuðningur heima fyrir skipti mestu máli,“ sagði Sig- urður Guðmundsson landlæknir á kynningarfundi forvarnahópsins. Orðunum er auðvitað beint til for- eldranna. Engir eru í betri aðstöðu til að brýna fyrir unga fólkinu að fara að öllu með gát þegar gengið er á vit ævintýra sumarsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.