Morgunblaðið - 09.06.2001, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞEGAR ég var sjö ára gömul las ég
bókina Pollýönnu í fyrsta sinn. Á
þeim árum þótti það ein mesta
dyggð konunnar að sýna endalaust
umburðarlyndi. Allar stelpur voru
því hvattar til
þess að lesa
Pollýönnu enda
er sú bók einhver
besti skóli sem
fáanlegur er í
þeim efnum.
Svo lengi lærir
sem lifir. Bækur
og lestur bóka
hafa allar stundir
verið stór þáttur
í lífi mínu. Ég hef
nú unnið í meira en 20 ár á Bóka-
safni Kópavogs og líkað það vel.
Við Kópavogsbúar höfum horft á
bæinn okkar vaxa með undraverð-
um hraða. Við höfum það á tilfinn-
ingunni að Kópavogur sé á góðri
leið með að verða nafli alheimsins ef
svo heldur sem horfir.
En einhvers staðar í öllum þess-
um hraða hafa kjör starfsfólks bæj-
arins orðið eftir á listanum. Launin
hafa staðið í stað – og reyndar
lækkað miðað við laun annarra í
þjóðfélaginu sem vinna sambæri-
lega vinnu.
Nú kemur sér vel að hafa lesið
Pollýönnu á hverju ári sem barn.
Mér hefur loks skilist hvað vænt-
anlega vakir fyrir mínum ágætu
vinnuveitendum. – Ekki trúi ég því
að þeir hafi bara gleymt okkur. Þeir
eru að búa okkur markvisst undir
þau ár sem brátt vitja okkar, það
eru elliárin, þegar ekkert verður
annað fyrir okkur til að lifa af en
ellistyrkurinn – ef ekki verður þá
búið að afnema hann að fullu.
Það verður ekki svo mikill munur
á þeirri upphæð og því sem við
fáum í laun fyrir vinnu okkar hér á
Bókasafni Kópavogs í dag, að þörf
verði á því fyrir okkur að breyta
lífsmáta okkar sem nokkru nemur.
Við getum því litið á vinnu okkar
hjá Kópavogsbæ sem háskóla í und-
irgefni, lítillæti og þolinmæði.
Við eigum bara að brosa og
þakka fyrir það að fá að vera í
vinnu á lægsta taxta til þess að búa
okkur undir það að lifa af ellilaun-
unum.
Við megum líklega þakka fyrir
það að fá að vinna hjá Kópavogsbæ
án þess að borga fyrir það.
Reynum því enn að brosa og
muna að: „Hvert verk lofar sig
sjálft“, þótt vinna okkar sé lítils
metin af vinnuveitandanum.
KRISTJANA EMILÍA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Borgarholtsbraut 27,
Kópavogi.
Kalt skal við
kalið leggja
Frá Kristjönu Emilíu
Guðmundsdóttur:
Kristjana E.
Guðmundsdóttir
Opið bréf til ráðamanna Kópavogs
ERT þú kennari sem langar að
breyta til, prófa nýtt umhverfi?
Eða langar þig að kenna hópi já-
kvæðra og samheldinna barna sem
þykir vænt um sveitina sína og
skólann sinn, þar
sem þú getur
kynnst hverju
einu og einasta
persónulega?
Langar þig að
kenna við skóla
þar sem allir eru
félagar, jafnt í
efsta sem neðsta
bekk? Ef svarið
við þessum
spurningum er já, þá ættir þú tví-
mælalaust að sækja um kennara-
eða skólastjórastöðu við Grunn-
skólann í Skógum. Við niðinn frá
Skógafossi, þar sem Eyjafjallajök-
ull gnæfir yfir sveitinni og Skógas-
andur breiðir úr sér í að því er
virðist nær endalausa víðáttu í átt-
ina að hafinu þar sem hvítfyssandi
öldur leika sér við ströndina,
stendur Grunnskólinn í Skógum.
Hann er á nútíma mælikvarða lítill
og fámennur skóli, en þó svo stór
og sterkur. Stór í þeim skilningi að
hann hefur alla þá aðstöðu sem
góður skóli þarf og ég held að
margir fjölmennari skólar á lands-
byggðinni gætu verið stoltir af.
Hann hefur góða aðstöðu til
íþróttanáms, góða aðstöðu til all-
skyns sérgreina eins og mat-
reiðslu, tölvunáms og svo mætti
áfram telja. Skólinn er sterkur því
á bak við hann stendur þéttur hóp-
ur foreldra og annarra velunnara
skólans sem eru tilbúnir til að
leggja töluvert á sig til að skólinn
geti dafnað. Grunnskólinn í Skóg-
um er mjög vel í sveit settur hvað
varðar öll samskipti við aðra skóla
á svæðinu, þá bæði í austur og
vestur. Í næsta nágrenni við skól-
ann er eitt stærsta og vandaðasta
byggðasafn landsins, Byggðasafnið
í Skógum, þar sem er hægt að
sækja endalausan fróðleik um
forna siði og menningu. Í næsta
umhverfi skólans eru einnig ótelj-
andi staðir sem hafa verið vett-
vangur atburða í þjóðsögum og Ís-
landssögunni. Má þar nefna
Steinahelli, Dranginn í Drangshlíð,
Skógafoss með kistu Þrasa, Stóru-
Borg þar sem fundist hafa merkar
fornminjar og svo mætti lengi
telja.
SIGURGEIR LÍNDAL
INGÓLFSSON,
formaður foreldraráðs
grunnskólans í Skógum.
Skógaskóli
Frá Sigurgeiri Líndal Ingólfssyni:
Sigurgeir Lín-
dal Ingólfsson