Morgunblaðið - 09.06.2001, Qupperneq 61
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 61
Gullsmiðir
Bæjarlind 4,
200 Kópavogi
sími 544 4420.
Opið
mán.-fös. frá kl. 10-18,
laugardaga 10-16,
sunnudaga 13-16
TILBOÐSDAGAR
Mikið úrval af garðhúsgögnum, allt gegnheilt tekk.
Bananabekkur
Tilboð kr. 39.000
Legubekkur
Tilboð kr. 12.900
Fellibekkur
Tilboð kr. 9.900
• Mikið úrval af stólum
• Skenkir
• Rúmgaflar
• Náttborð
• Snyrtiborð
• Glerskápar
• Hornskápar
• Borðstofusett
Full búð af nýjum vörum - fullt af tilboðum
• Staflanlegir stólar
• Stólar með og án arma
• Borð í mörgum stærðum og gerðum
• Blómaker í þremur stærðum
Venjuleg húsgögn
OFT hefur manni ofboðið frétta-
flutningurinn hér á landi og sýnst
sem fréttamennskan sé að verða
meir og meir í takt við „gulu“
pressuna. Nú hafa fjölmiðlar stigið
enn eitt skref í þá átt þegar þeir, á
meinfýsinn og rætinn hátt, vógu að
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
fyrir að bjóða nokkrum sómakon-
um í utanlandsferð.
Þetta eru konur sem hafa unnið
óeigingjarnt starf í þágu lítilmagn-
ans um áraraðir, konur sem hafa
gefið krafta sína til líknarmála án
kröfu um endurgjald. Í stað þess
að þakka Mæðrastyrksnefnd fyrir
velvild í garð þessara kvenna sem
af fórnfýsi hafa gefið tíma sinn í
þágu þeirra þurfandi, þarf nú
Mæðrastyrksnefnd að sitja undir
ámæli fjölmiðla vegna þess hvernig
að málinu var staðið. Þetta mál er
að mínum dómi stormur í vatns-
glasi og ber meiri keim af illvilja
en heiðarlegri og réttsýnni fjöl-
miðlaumfjöllun. Við eigum að bera
Mæðrastyrksnefnd og þessar kon-
ur á örmum okkar en ekki senda
þeim tóninn í einhverri vandlæt-
ingu vegna þess hvernig að málum
var staðið.
Það má vissulega deila um hvað-
an peningarnir voru teknir sem í
þessa ferð fóru en að mínum dómi
voru rangir aðilar teknir á beinið.
Hvar er t.d. þakklæti kjörinna full-
trúa okkar í borginni til þessara
kvenna, hvar er þakklæti almenn-
ings, hvar er þakklæti fjölmiðla?
Eigum við ekki til neina sómatil-
finningu í þeirra garð? Svo er ekki
að merkja af aumlegu svari eins
fulltrúa meirihlutans í borgar-
stjórn sem hafði ekki bein í nefinu
til að standa við bakið á Mæðra-
styrksnefnd þegar fjölmiðlar fóru
eins og eyðandi stormsveipur í um-
fjöllun um þetta mál.
Fréttamenn hafa hagað sér í
þessu máli eins og þeir séu sál-
arlausir andskotar. Það er eins og
fréttaflutningnum af þessu máli
hafi fyrst og fremst verið ætlað að
særa og valda sem mestum óróa í
samfélaginu. Ég vona að rætinn
fréttaflutningur verði ekki til að
draga íslenskt samfélag niður í
svaðið en það var gerð tilraun til
þess í þessu máli, viljandi eða
hugsunarlaust. Ég hvet nú þá fjöl-
miðla sem hlut eiga að máli að
biðja þessar konur afsökunar á
hvernig að Mæðrastyrksnefnd hef-
ur verið vegið. Sú afsökun mun
vissulega ekki lækna þau sár sem
þegar er búið að valda, því gleðin
yfir utanlandsferðinni hefur verið
troðin niður í svaðið. Þó svo fjöl-
miðlar hafi farið offari í þessu máli
vil ég hvetja almenning til að tapa
ekki áttum og taka upp hanskann
fyrir Mæðrastyrksnefnd Reykja-
víkur.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
þarf á stuðningi okkar að halda í
því fjölmiðlafári sem orðið hefur. Í
Mæðrastyrksnefnd eru einstak-
lingar sem fórna svo miklu fyrir
svo mikið og þeim ber að umbuna,
þó ekki sé annað en með utan-
landsferð.
DANÍEL ÞORSTEINSSON,
Miklubraut 7,
Reykjavík.
Rætinn fréttaflutningur
í garð Mæðrastyrksnefndar
Frá Daníel Þorsteinssyni:
,,YFIRVOFANDI er verkfall
þroskaþjálfa sem starfa hjá íslenska
ríkinu, en verkfall þroskaþjálfa sem
starfa hjá Reykjavíkurborg hefur
nú staðið hátt í þrjár vikur.
Við undirritaðir foreldrar nokk-
urra skjólstæðinga þroskaþjálfa lýs-
um yfir fullum stuðningi við launa-
kröfur þeirra. Fyrir utan hve
gífurlega þýðingarmikið og vanda-
samt starf þeir inna af hendi, hlýtur
einfaldlega að teljast sanngjarnt að
þeir njóti sömu launakjara og aðrar
starfsstéttir með sambærilega
menntun.
Við erum hins vegar alfarið á
móti því að þroskaþjálfar fari í verk-
fall.
Ekki vegna þess að það myndi
þýða að við þyrftum þá að hafa
börnin okkar heima með tilheyrandi
röskun á lífi okkar og störfum, en
margir foreldra eiga til dæmis ekki
val um hvenær þeir fara í sumarfrí
og yrðu því að taka launalaust leyfi.
Nei, við óttumst fyrst og fremst
hvaða afleiðingar þetta getur haft
fyrir velferð barna okkar. Flestir
gera sér sennilega ekki grein fyrir
hvað umönnun fatlaðra og þroska-
heftra barna gengur út á. Þarfir
þeirra eru vissulega mismunandi og
einstaklingsbundnar, en öll eiga þó
sameiginlegt að þurfa öruggan og
traustan ramma um líf sitt, stöðuga
og samfellda stundaskrá til að við-
halda þeirri færni sem þau þó hafa.
Sú færni er í flestum tilfellum af-
rakstur markvissrar þjálfunar og
vinnu um langan tíma (talið í árum).
Þessi vinna hvílir á herðum þroska-
þjálfa, sem eru sérmenntaðir og
sérþjálfaðir til starfans. Engir, ekki
einu sinni við foreldrarnir, geta
komið í þeirra stað. Og verði röskun
á þessari vinnu – s.s. vegna verkfalls
– er ljóst að mörgum barnanna mun
fara snarlega aftur og það mun taka
langan tíma að bæta þann skaða.
Þess vegna má ekki koma til
verkfalls þroskaþjálfa. Og það er
örugglega ekki vilji íslensku þjóð-
arinnar að karp um sanngjarnar og
eðlilegar launakröfur komi út sem
níðingsskapur á fötluðum og varn-
arlausum börnum. Ein spurning að
lokum.
Reglubundin sjúkraþjálfun er eitt
af grundvallaratriðunum í umönnun
fatlaðra barna. Falli hún niður um
einhvern tíma getur það haft hræði-
legar og jafnvel óafturkræfar afleið-
ingar fyrir þau, vöðvar styttast, liðir
læsast osfrv. Nú er það svo að
sjúkraþjálfarar ríkisins fara ekki í
verkfall þótt og ef þroskaþjálfar
geri það. Sjúkraþjálfun er hluti af
lögbundnum mannréttindum
barnanna. En komi til verkfalls
þroskaþjálfa, sem þýðir að stofnanir
undir þeirra stjórn loka – hvert eig-
um við þá að mæta með börnin okk-
ar í sjúkraþjálfun? Gætum við t.d.
leitað til sjúkrahúsanna?
Virðingarfyllst,
Anna Karen Kristjánsdóttir,
Áslaug Guðmundsdóttir,
Bergdís Rósantsdóttir,
Bjarni J. Bogason,
Bjarni Ó. Bjarnason,
Eggert Ísólfsson,
Elsa María Ólafsdóttir,
Gaukur Garðarsson,
Gísli Ragnarsson,
Guðbjörg Magnúsdóttir,
Guðrún Sóley Guðnadóttir,
Guðrún Þórðardóttir,
Gyða Einarsdóttir,
Gylfi Björnsson,
Helga Steinunn Hauksdóttir,
Helgi Harðarson,
Hrefna Egilsdóttir,
Jórunn Magnúsdóttir,
Kjartan Einarsson,
Kolbrún Snæfeld,
Kristján Már Hauksson,
Michael Pantano,
Ólafur J. Ólafsson,
Páll Kristinn Pálsson,
Sigríður Einarsdóttir,
Sigríður Sigurðardóttir,
Sigurður Kristjánsson,
Sigurður Pálsson Beck,
Sirrý Skarphéðinsdóttir,
Skjöldur Vatnar,
Svava Magnúsdóttir,
Valdimar Viðar Tómasson,
Þorgils Garðar,
Þórunn Óskarsdóttir.
Fötluðu börnin
bera skaðann
Foreldrar barna, sem þurfa á aðstoð þroska-
þjálfa að halda, hafa sent Morgunblaðinu opið
bréf til ráðherranna Geirs H. Haarde, Jóns
Kristjánssonar og Páls Péturssonar.
VERKFALL þroskaþjálfa hjá
Reykjavíkurborg hefur staðið yfir
síðan 18. maí. Frá upphafi hefur
verið mikil samstaða í hópnum og
verkfallsvörslunni. Við höfum komið
saman daglega og stappað stálinu
hvert í annað. Við höfum farið á þá
staði sem þroskaþjálfar starfa og er
ástandið orðið bagalegt víða. Á leik-
skólum hafa börn verið send heim
daglega bæði fötluð og ófötluð.
Skammtímavistunin í Eikjuvogi er
lokuð og skammtímavistunin í Álfa-
landi er rekin með mjög skertri
þjónustu. Grunnskólarnir sendu
fötluð börn heim. Eins og sést á
þessu hefur verkfallið haft slæmar
afleiðingar fyrir fötluð börn, ófötluð
börn og aðstandendur þeirra. Við
höfum fengið mikinn stuðning víða
og greinilegt er að lágu launin okk-
ar hafa vakið mikla athygli. Við höf-
um fengið meðbyr frá ólíklegustu
stöðum.
Mjög líklegt verður að teljast að
foreldrar séu orðnir langþreyttir á
ástandinu. Það er gífurleg afturför
fyrir fatlað barn og fjölskyldu þess
að fá enga þjónustu í þetta langan
tíma. Dragist þetta verkfall á lang-
inn, taka sumarleyfin við og er hætt
við að þjálfun hjá þroskaþjálfa
skerðist þá sem því nemur.
ÞROSKAÞJÁLFAR
hjá Reykjavíkurborg.
Leysum verkfall
þroskaþjálfa
Frá þroskaþjálfum í verkfalli:
HALLÓ!
Ég skrifa þetta fyrir vinkonu mína
sem ætlar til Íslands 8. júní og
hyggst dvelja þar í fjóra daga með
eiginmanni sín-
um, unnustu
minni og mér. Er
mögulegt að ein-
hver geti veitt
henni aðstoð við
að finna ættingja
manns sem hét
Jón Guðmunds-
son (Gudmundur-
son) og fæddist
1876? Hún er
ekki með fleiri
upplýsingar um hann en á ljósmynd
af honum. Myndin virðist vera tekin í
Bandaríkjunum. Ég hef reynt að afla
upplýsinga á vefsíðu íslenskra ætt-
fræðinga en við vitum ekki nóg um
Jón og ekki er hægt að birta ljós-
myndir á síðunni.
Jón fór til Vestur-Noregs, staðar
skammt frá Bergen, á árunum 1907–
1908 og verið getur að hann hafi snú-
ið aftur til Íslands eftir Noregsdvöl-
ina. Hann eignaðist son í Noregi,
Martin Alsaker (Haugland), hann
fæddist 1.1. 1909 og Martin er faðir
vinkonu minnar. Hana langar til að
vita hvort einhver geti aðstoðað hana
við að finna ættingja eða sagt henni
hvar afi hennar hafi búið. Ég veit að
hún verður mjög ánægð ef það tekst!
Bestu kveðjur
STEINAR GLAD-IVERSEN,
Bjerkeveien 29,
N-1350 Lommedalen,
Noregi.
Leitar ættingja
Frá Steinari Glad-Iversen:
Jón
Guðmundsson
ÉG furða mig á að í umræðunni um
kvótann, þorskþurrðina og Hafró
hefir ekki verið minnst einu orði á
hvalafriðunina sem nú hefir staðið
árum saman, hvalur og selur tímgast
óhindrað og fjölgar geigvænlega á
grunnslóð og góflar árlega seiðum og
átu fiskistofna. Í hval- og selkjafta
fer árlega ekki minna magn afla en
sem nemur heildarafla íslenska fiski-
skipaflotans og vel það. Væri ekki at-
hugandi að fá hvalasérfræðinga
Hafró í viðtöl og leita álits þeirra
hvort þarna sé ekki að leita orsaka
að hluta – eða alfarið?
ÁSGEIR LONG,
Lyngási 2, Garðabæ.
Kvóta-
umræðan
Frá Ásgeiri Long:
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face