Morgunblaðið - 09.06.2001, Qupperneq 62
DAGBÓK
62 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
ÞEGAR Víkverji vaknaði einnmorgun nú í vikunni helltist
yfir hann sálarangist, eins og ávallt
þegar illa árar og þjóðarbúið verð-
ur fyrir áföllum. Í þetta skipti var
það vitaskuld ástand þorskstofns-
ins sem olli Víkverja hugarangri.
„Hvernig má það vera að fiskistofn-
ar hrynji í hafinu umhverfis Ísland,
hjá okkur sem búum við besta og
fullkomnasta fiskveiðistjórnunar-
kerfi í víðri veröld?“ hugsaði Vík-
verji með sér og hann gerði það
sem menn eiga síst af öllu að gera
við þessar aðstæður; hann dró
sængina upp fyrir haus og fór að
hugsa um vandamálin.
Eftir því sem Víkverji hugsaði
meira jókst angistin og vandamálin
hlóðust upp. Það var ekki bara
þorskstofninn sem leitaði á hugann
heldur fór Víkverji líka að ergja sig
yfir ýmsu öðru sem úrskeiðis hefur
farið að undanförnu. „Það er greini-
lega eitthvað rotið í þjóðríkinu Ís-
landi,“ hugsaði Víkverji með sér og
sá skyndilega fyrir sér Hamlet í
samnefndu leikriti eftir Shake-
speare. Bensínverðið er til dæmis í
sögulegu hámarki eftir stutt verð-
stríð, sem leiddi til lækkunar í
örfáa daga. Síðan hefur allt farið í
sama farið og ástandið í þeim efn-
um raunar aldrei verið eins slæmt
og nú. Þó las Víkverji einhvers
staðar að heimsmarkaðsverð hefði
farið hríðlækkandi að undanförnu.
Víkverji hefur aldrei skilið verð-
lagningu á eldsneyti hér á landi og
er löngu hættur að reyna að komast
til botns í þeim lögmálum sem þar
ríkja. Svo eru það matvörukaup-
menn, sem hafa hærra verð á kass-
anum en í hillunum, einkavæðingin
sem leitt hefur til fákeppni og þá er
oft stutt í okrið. Víkverji getur
heldur aldrei ógrátandi hugsað um
kvótakerfið og sægreifana.
x x x
Æ, HVÍLÍK ógn og skelfing.Víkverji bylti sér í rúminu
og kveikti á útvarpinu. Þar var ver-
ið að flytja fréttir af snjókomu fyrir
austan og norðan og að ákveðnir
fjallvegir væru ófærir og þó komið
fram í júní. Ekki batnar það, hugs-
aði Víkverji með sér.
Síðan fóru einhverjir spekingar
að tala um þorskstofninn og „áfell-
isdóm yfir Hafrannsóknastofnun,“
eins og einhver orðaði það. Einn
hagfræðingurinn talaði um hætt-
una á „hjarðhegðun“ í kjölfar svona
ótíðinda enda byggju Íslendingar
við „færanlegt fjármagnskerfi“ sem
auðveldaði fjármagnseigendum að
flytja fé sitt úr landi ef þeim byði
svo við að horfa og margur hefur
farið á taugum af minna tilefni en
þessari sótsvörtu skýrslu Hafró um
þorskstofninn. Aðalatriðið væri að
halda ró sinni, sagði hagfræðing-
urinn, og Víkverji reyndi að taka
sig saman í andlitinu, fór fram á
baðherbergi, gerði á sér morgun-
verkin og leið ögn skár á eftir.
Víkverji ætlar sér ekki þá dul að
blanda sér í pólitísk eða efnahags-
leg deilumál á Íslandi enda hefur
hann ekki umboð til þess á þessum
vettvangi. Hann telur sig heldur
ekkert vera að taka afstöðu í þeim
málum sem hér hafa verið til um-
ræðu heldur einungis að „hugsa
upphátt“ eins og það er kallað. Og í
ljósi ástandsins í efnahags- og þjóð-
málum læðist sú hugsun óneitan-
lega að honum hvort mikils væri
misst þótt landstjórnin, og þá um
leið yfirráðin yfir fiskimiðunum,
flyttist úr landi, til dæmis til
Brussel?
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ak-
ureyrin, Snorri Sturlu-
son, Örfirisey, Baldvin
Þorsteinsson, Víðir og
Þerney koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Venus, Rán, Ýmir, Pét-
ur Jónsson, Sléttbakur
og Eridanus koma í dag.
Orlik og Olshana fóru í
gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofan
er opin alla miðvikud.
frá kl. 14–17. S.
551 4349. Fataúthlutun
og fatamóttaka er opin
annan og fjórða hvern
miðvikud. í mánuði, frá
kl. 14– 17 s. 552 5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800 4040 frá kl.
15–17.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Félag frímerkjasafnara.
Opið hús laugardaga kl.
13.30–17.
Mannamót
Bólstaðarhlíð 43. Farið
verður norður Kjöl,
fimmtudaginn 21. júní
kl. 8. Þingeyrarkirkja í
A-Hún skoðuð. Kvöld-
verður í Hreðavatns-
skála. Nesti og góður
klæðnaður. Upplýsingar
og skráning í síma 568-
5052 fyrir þriðjudaginn
19. júní.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10-13. Matur í hádeginu.
Sunnudagur: Félagsvist
spiluð kl.13. Dansleikur
kl. 20. Caprí Tríó leikur
fyrir dansi. Mánudagur:
Brids spilað kl. 13. Dans-
kennsla Sigvalda kl. 19-
22.
Dagsferð 13. júní.
Nesjavellir-Grafningur-
Eyrarbakki. Húsið -
Sjóminjasafnið á Eyr-
arbakka skoðað. Leið-
sögn: Tómas Einarsson
og Pálína Jónsdóttir.
Eigum ennþá nokkur
sæti laus. 19.-22. júní.
Trékyllisvík 4 dagar gist
að Valgeirsstöðum í
Norðurfirði svefnpoka-
pláss. Ekið norður
strandir. Farið í göngu-
ferðir og ekið um sveit-
ina. Ekið heimleiðis um
Tröllatunguheiði eða
Þorskafjarðarheiði. Síð-
ustu skráningardagar.
Eigum nokkur sæti laus.
Leiðsögn Tómas Ein-
arsson. Silfurlínan er op-
in á mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12.fh. í síma 588-2111
Upplýsingar á skrifstofu
FEB kl. 10til 16 í síma
588-2111.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Laugardagsgangan
verður kl. 10 frá
Hraunseli. Gíróseðlar
fyrir ársgjöldum hafa
verið sendir út, félags-
skírteini fást í Hraunseli
gegn kvittun félags-
gjalds. Þriggja daga ferð
til Hornafjarðar hefur
verið breytt, farið
þriðjudagin 3. júli til 5.
júlí, nálgist farseðla á
mánudag og þriðjudag
11 og 12 júní. Orlofið á
Hótel Reykholti í Borg-
arfirði 26.–31.ágúst nk.
Skráning hafin, allar
upplýsingar í Hraunseli
sími 555-0142. Sum-
arfagnaður verður
fimmtudaginn 14. júní í
Hraunseli kl. 14,
sumardagskrá kynnt og
skemmtiatriði.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar á vegum ÍTR eru
byrjaðar aftur í Breið-
holtslaug á þriðjudögum
og fimmtudögum kl.
9.30. (Ath. breyttur tími)
Umsjón Edda Bald-
ursdóttir íþróttakennari.
Boccia á þriðjudögum kl.
13 og á föstudögum
kl. 9.30, umsjón Óla
Stína. Dans hjá Sigvalda
á mánudögum kl. 15.30,
allir velkomnir (ekkert
skráningargjald). Veit-
ingar í kaffihúsi Gerðu-
bergs. Allar upplýsingar
á staðnum og í síma
575 7720.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Púttað verður
á Listatúni í dag laug-
ardag kl. 11. Mætum öll
og reynum með okkur.
Farið verður í skemmti-
siglingu á Þingvallavatni
fimmtudaginn 14. júní.
Farið frá Gjábakka
kl.13.15 og frá Gull-
smára kl 13.30. Kaffi-
veitingar í Þingvalla-
sveit. Væntanlegir
þátttakendur skrái sig
sem fyrst á þátttökulista
í Gullsmára og Gjá-
bakka. Hámarksfjöldi 40
manns. Verið vel klædd
því siglt er á opnum báti.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Hrafnista Hafnarfirði
og Reykjavík. Eins og
undanfarin ár verður
sjómannadagurinn hald-
inn hátíðlegur, dagskrá
verður með hefð-
bundnum hætti, kl. 14–
17 kaffisala í borðsölum,
harmonikkuleikur,
Hrafnistubúðin opin,
ágóðinn rennur til vel-
ferðar heimilisfólksins.
Kl. 13–17 handa-
vinnusýning og sala,
handavinnusýning verð-
ur einnig opin mánudag-
inn 11. júní kl. 9–16.
Skógræktarfélag Mos-
fellsbæjar verður með
skógardag í Hamrahlíð
sunnudaginn 1. júní kl.
13 til 16. Gróðursett og
grillað á eftir. Allir vel-
komnir.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastdæma, Breið-
holtskirkju við Þang-
bakka. Skálholtsskóli,
ellimálanefnd Þjóðkirkj-
unnar og ellimálaráð
Reykjavíkurprófast-
dæma efna til sum-
ardvalar fyrir eldri
borgara í Skálholti. Boð-
ið er til fimm daga dval-
ar í senn og raðast þeir
þannig: 25. til 29. júní, 2.
til 6. júlí og 9. til 13. júlí.
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
ellimálaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma f.h.
virka daga í síma 557-
1666.
Haukar, öldungaráð.
Sumarferðin er 13. júní.
Skráning í símum 555-
0176 eða 555-0852.
Minningarkort
Líknarsjóður Dómkirkj-
unnar, minningaspjöld
seld hjá kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði eru afgreidd í síma
456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Minningakort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjuhúsinu
Laugavegi 31, þjón-
ustuíbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún 1,
Apótekinu Glæsibæ og
Áskirkju Vesturbrún 30
sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28 í s. 588
8899 milli kl. 10 og 17
alla virka daga. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar eru
afgreidd á bæjarskrif-
stofu Seltjarnarness hjá
Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir sem
hafa áhuga á að kaupa
minningarkort vinsam-
legast hringi í síma 552-
4994 eða síma 553-6697,
minningarkortin fást
líka í Háteigskirkju við
Háteigsveg.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju s.
520-1300 og í blómabúð-
inni Holtablómið, Lang-
holtsvegi 126. Gíróþjón-
usta er í kirkjunni.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju
sími 520 1300 og í blóma-
búðinni Holtablómið,
Langholtsvegi 126. Gíró-
þjónusta er í kirkjunni
Í dag er laugardagur 9. júní, 160.
dagur ársins 2001. Kólúmbamessa.
Orð dagsins: Þú hefur frá blautu
barnsbeini þekkt heilagar ritningar.
Þær geta veitt þér speki til sálu-
hjálpar fyrir trúna á Krist Jesú.
(II.Tím. 3, 15.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 ræma, 8 mergð, 9 dáin,
10 kraftur, 11 ávinnur
sér, 13 fyrir innan, 15
reifur, 18 á langt líf fyrir
höndum, 21 verkfæri, 22
kyrru vatni, 23 ókyrrð,
24 farangur.
LÓÐRÉTT:
2 guðlega veru, 3 líkams-
hlutar, 4 tölustaf, 5 selur-
inn, 6 æsa, 7 röskur, 12
bors, 14 goggur, 15
hrósa, 16 ráfa, 17 and-
varpi, 18 óþefur, 19
slægjulands, 20 strá.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skjól, 4 gefur, 7 bólan, 8 öngul, 9 dáð, 11 anna,
13 urra, 14 urtan, 15 hlýr, 17 gafl, 20 enn, 22 saddi, 23
amman, 24 renna, 25 norpi.
Lóðrétt: 1 subba, 2 jólin, 3 lind, 4 glöð, 5 fagur, 6 rolla,
10 áttin, 12 aur, 13 ung, 15 hosur, 16 ýldan, 18 armar, 19
lundi, 20 eira, 21 nafn.
K r o s s g á t a
UM síðustu helgi bauð
herrann minn mér út að
borða á Pizza Hut við Suð-
urlandsbraut. Hann kom
strax auga á rómantískasta
staðinn í húsinu. Þau borð
reyndust þá vera ætluð
reykingafólki en við reykj-
um hvorugt.
Brosmild stúlka vísaði
okkur á reyklaus borð
miklu óvistlegri en framan-
greint.
Er reykingafólki gert
hærra undir höfði á veit-
ingahúsum en þeim sem
ekki reykja? Við höfum
tekið eftir sömu vanköntum
víðar á veitingastöðum.
Verða reyklaus pör að
byrja að reykja til að geta
setið við sama (rómantíska)
borð og reykingafólk?
Björg Elín.
Léleg þjónusta
ÉG hef alltaf skoðað BT
blaðið þegar það kemur á
mitt heimili. Mig vantaði
nýjan GSM-síma og fór þá
að skoða þetta ágæta blað.
Svo sá ég þetta fína tilboð.
Ég ákvað því að fara og
kaupa mér síma og fór því
snemma í háttinn svo ég
gæti vaknað snemma og
fengið frí 1.000 sms. Um
morguninn hringdi ég í BT
til þess að vera alveg örugg
um að síminn kostaði ekki
bara 1 kr. og svo þyrfti
maður að borga eitthvað
ákveðið á mánuði. Jú, jú
sagði konan, hann kostar
bara krónu og sagði að það
væri best bara að drífa sig
af stað svo maður gæti
fengið frí sms og það væri
best að fara í BT í Skeif-
unni. Ég dríf mig þangað
og tek númer. Ég sá fullt af
fólki að bíða en ákvað að
vera bara jákvæð og þolin-
móð. Ég fór í tölvurnar þar
sem var hægt að fara í leiki
og svoleiðis á meðan maður
bíður. Þegar ég var búin að
vera þarna í fjóra tíma frá
kl. 12–16 var komið að mér.
Ég talaði við afgreiðslu-
manninn og sagði honum að
ég ætlaði að borga vissa
upphæð á mánuði, en þá
segir hann að ég verði að
vera orðin 18 ára og eiga
kreditkort. Þetta stóð ekki í
blaðinu, svo ég þurfti bara
að hætta við og fara heim.
Þetta finnst mér mjög lé-
legt af BT, ég var búin að
bíða þarna í fjóra tíma.
Kveðja,
Ásdís M. Egilsdóttir
Reynimel 84, R., 12 ára.
Götuljós vantar
BJÖRGVIN hafði samband
við Velvakanda og vildi
benda á að það vantar til-
finnanlega götuljós á
gatnamótum Arnarbakka
og Stekkjarbakka. Þarna
er mikill umferðarþungi og
erfitt að komast yfir.
Skaðsemi nagladekkja
LESANDI hafði samband
við Velvakanda og vildi
taka undir með manni, sem
skrifaði í Velvakanda 23.
maí sl. um ngaladekk. Það
eru komin ný dekk sem eru
miklu betri og skaða hvorki
fjárhag né heilsuna. Fólk
ætti að athuga þetta vel. Af
hverju er fólk svona fast í
þessum frumstæðu og
skaðlegu nagladekkjum?
Ég vil bara vekja athygli á
skaðseminni og kostnaðin-
um sem þau valda.
Slæmur aðbúnaður
ÉG fór í Þjóðleikhúsið fyrir
nokkru og mig langar að
kvarta yfir stólunum þar.
Stólarnir eru afskaplega
litlir og þröngir og ekki
hægt að stinga fótunum
undir næsta stól til þess að
reyna að rétta úr fótunum.
Fólk, sem er yfir 170 cm,
getur ekki setið í þessum
stólum með góðu móti.
Þessi aðbúnaður er fyrir
neðan allar hellur. Er ekki
hægt að gera einhverja
bragarbót á þessu? Annars
er öruggt að maður kemur
ekki þarna aftur.
Kona.
Tapað/fundið
Nokia GSM-sími
hvarf af landsmóti
Á LANDSMÓTI skóla-
hljómsveita í Reykjanesbæ
dagana 1.–3. júní sl. hvarf
Nokia 3320 GSM-sími úr
farangri í einni skólastof-
unni sem gestir mótsins
gistu í. Þetta setti mjög
leiðinlegan svip á annars
vel heppnað mót. Þeir sem
telja sig eitthvað vita um
símann og hvarf hans, eru
vinsaml. beðnir að hafa
samb. við Herdísi í s. 557
9017.
GSM-sími tapaðist
GSM-sími tapaðist á lóð
Laugarneskirkju, fimmtu-
daginn 7. júní sl. Skilvís
finnandi er vinsaml. beðinn
að hafa samb. í s. 581-4716.
Guffagrín
ER einhver sem á Guffa-
grín með íslensku tali, sem
Samútgáfan gaf út á sínum
tíma? Vinsaml. hafið samb.
í s. 562-9144.
Tvíburaregnhlíf-
arkerra í óskilum
Tvíburaregnhlífarkerra
fannst við Túngötu 42.
Kerran hefur verið á þvæl-
ingi á þessum slóðum í
nokkurn tíma og sást áður
á Sólvallagötu 54. Uppl. í s.
551-6443.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Er reykinga-
fólk rétt-
hærra?