Morgunblaðið - 09.06.2001, Síða 63

Morgunblaðið - 09.06.2001, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 63 DAGBÓK Rauðagerði 26, sími 588 1259 Vor—sumar 2001 Útsala á vönduðum dömu- og herrafatnaði að Rauðagerði 26 í dag, laugardag frá kl. 10 til 18. 25—60% afsláttur Stærðir 36-48 VERIÐ VELKOMIN VISA - EURO Fundur hinna gagnrýnu radda í Hótel Lind, Rauðarárstíg, 9. júní kl. 13.00-17.00 Vg-smiðjan boðar til fundar um Kárahnjúkavirkjun og mögulegar afleiðingar hennar fyrir umhverfi og samfélag. Dagskrá: - Kárahnjúkavirkjun - mestu náttúruspjöll Íslandssögunnar? Kolbrún Halldórsdóttir, alþingismaður. - Kárahnjúkaþjóðgarður. Stefán Benediktsson, Náttúruvernd ríkisins. - Risaverksmiðja - Orka og samfélag. Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur. - Efnahagsleg áhrif. Þorsteinn Siglaugsson, hagfræðingur. - Kaffihlé. - Umræður. Frummælendur taka þátt pallborðsumræðum. Fundarstjóri: Kolbeinn Óttarsson Proppé. Langur laugardagur Tilboð Teg. Sabu Stærðir 36-41 Litur Svartur Verð áður kr. 5.995 Verð nú kr. 3.999 Teg. Mario Due Stærðir 40-46 Litur Svartur Verð áður kr. 4.995 Verð nú kr. 2.995 Teg. Mario Due Stærðir 40-46 Litur Svartur Verð áður kr. 4.995 Verð nú kr. 2.995 Domus Medica JÓN Baldursson og Karl Sigurhjartarson eru engir nýliðar í íslenska landslið- inu, en það var ekki fyrr en síðla vetrar sem þeir rugluðu saman „kerfum“ sínum og tóku upp sam- vinnu við spilaborðið. Þeir unnu sitt fyrsta mót saman í Svíþjóð fyrir skömmu – bikarkeppni Norður- landanna með Sverri Ár- mannssyni og Magnúsi Magnússyni – og um miðj- an mánuðinn munu þeir spila á EM á Tenerife. Þrátt fyrir stuttan undir- búningstíma spila þeir þró- að kerfi, enda báðir miklir kerfismenn. Heimavinnan skilaði sér vel í þessu spili frá síðstu æfingu: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠ K964 ♥ ÁKG5 ♦ Á732 ♣ 10 Vestur Austur ♠ ÁDG1032 ♠ 875 ♥ 87 ♥ D10632 ♦ 64 ♦ K ♣ G84 ♣ 9652 Suður ♠ -- ♥ 94 ♦ DG10985 ♣ ÁKD73 Jón og Karl voru í NS gegn Símoni Símonarsyni og Sverri F. Kristinssyni: Vestur Norður Austur Suður Sverrir Jón Símon Karl 2 spaðar 2 grönd Pass 3 spaðar Pass 3 grönd Pass 4 tíglar Pass 4 hjörtu Pass 5 spaðar Pass 6 tíglar Allir pass Eftir veika opnun Sverr- is sýnir Jón 15-17 punkta og grandskiptingu með innákomunni á tveimur gröndum. Skiptingin er ekki alveg eftir bókinni, en Jón taldi dobl verri kost með einspil í laufi. Og eins og einhver sagði – það er ekki við norður að sakast þótt hann sé með einspil í laufi! Með þremur spöðum er Karl kerfisbundið að segja frá láglitunum, og síðan svarar hann þremur gröndum og sýnir lengri tígul. Jón gefur þá fyrir- stöðusögn og Karl stekkur í fimm spaða, sem er lyk- ilspilaspurning þar sem spaðaásinn er útilokaður í svarinu. Þessi sagnvenja heitir „Voidwood“ á alþjóð- legu bridsmáli, en það orð er sett saman úr „void“ (eyða) og „Blackwood“. Jón svarar samviskusam- lega á sex tíglum, sem er þriðja þrep og sýnir tvö lykilspil án trompdrottn- ingar. Karl veit þá að al- slemma er slæmur kostur og passar. Slemman náðist líka á hinu borðinu, en þar var nokkur þoka yfir sögnum og engin leið að meta al- slemmuhorfur. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT Ó, FAÐIR, GJÖR MIG LÍTIÐ LJÓS Ó, faðir, gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið, til hjálpar hverjum hal og drós, sem hefur villzt af leið. Ó, faðir, gjör mig blómstur blítt, sem brosir öllum mót og kvíðalaust við kalt og hlýtt er kyrrt á sinni rót. Ó, faðir, gjör mig ljúflingslag, sem lífgar hug og sál og vekur sól og sumardag, en svæfir storm og bál. Ó, faðir, gjör mig styrkan staf að styðja hvern, sem þarf, unz allt það pund, er guð mér gaf, ég gef sem bróðurarf. Ó, faðir, gjör mig sigursálm, eitt signað trúarlag, sem afli blæs í brotinn hálm og breytir nótt í dag. Matthías Jochumsson. Árnað heilla GULLBRÚÐKAUP. Sunnudaginn 10. júní eiga hjónin Sig- ríður Jóhannesdótt- ir, f. 10.júní 1926, og Sigfús A. Jó- hannsson, f. 5. júní 1926, til heimilis að Gunnarsstöðum, Þistilfirði, gullbrúð- kaup. Þau bjóða sveitungum, vinum og vandamönnum til fagnaðar í Sval- barðsskóla klukkan 15 á morgun, sunnu- daginn 10. júní. STAÐAN kom upp á minn- ingarmóti Borowski í Essen í Þýskalandi er lauk fyrir stuttu. Mikhail Gurevich (2.688) var þar á meðal þátt- takenda, en hann er einn stigahæsti þátttakandinn á EM í Makedóníu sem stendur nú yfir. Friso Nibjoer (2.580) hafði hvítt gegn honum og beitti gamalkunnu stefi til að véla af hon- um skiptamun. 22. Bxh7+! Kxh7 23. Dxf8 Bd7 Svartur yrði snarlega mát eft- ir t.d. 23. ...Rxa4 24. Hg3 g6 25. h5. 24. Rc5! Dc6 25. Dd6 Db5 26. Dxb8 Dxc5 27. b3 Bb5 28. h5 Df2 29. h6! Dxe1+ 30. Kb2 gxh6 31. Df8 Kg6 32. g4 og svartur gafst upp enda óverjandi mát. Skákin tefldist í heild sinni: 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 cxd4 8. Rxd4 Bc5 9. Dd2 0-0 10. 0-0-0 a6 11. h4 Rxd4 12. Bxd4 b5 13. Hh3 b4 14. Ra4 Bxd4 15. Dxd4 a5 16. Bb5 Hb8 17. Bd3 Rb6 18. Rc5 Rd7 19. Ra4 Dc7 20. He1 Rb6 21. Dc5 Db7 o.s.frv. Hægt er að fylgjast með gangi mála á EM á skak.is. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.             STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbarn dagsins: Þú ert í eðli þínu frjáls- lyndur maður, en stundum hættir þér til að sjá heiminn gegnum litað gler. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Reyndu að skipuleggja fram í tímann sem mest þú mátt. Þótt aldrei sé hægt að sjá allt fyrir, hjálpar það tvímæla- laust að hafa einhverja áætl- un. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er eins og þú sért að missa tökin á verkefnum þín- um. Staldraðu við og for- gangsraðaðu hlutunum og kláraðu þá svo einn af öðrum á skipulegan hátt. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Einhverjar róttækar breyt- ingar liggja í loftinu og þú skalt gera þitt til þess að geta brugðist rétt við. Þannig verða þær þér til framdrátt- ar. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þótt ýmsir erfiðleikar steðji að þér máttu ekki láta þá stjórna lífi þínu. Þeir eru líka til að sigrast á þeim og það átt þú auðveldlega að geta. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Reyndu að brjótast út úr þeim hugsanagangi, sem ríkt hefur svo lengi. Hafðu frum- kvæði að þeim breytingum, sem þú veist að eru til hins betra. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ert búinn að hjakka svo lengi í sama farinu að leiðind- in læðast að þér. Hristu upp í hlutunum og leyfðu hug- myndafluginu að njóta sín. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Einhver snurða hefur hlaupið á þráðinn hjá þér og gömlum vini. Vertu fyrri til að rétta fram sáttahönd, því sjaldan veldur einn þá tveir deila. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er hin stöðuga vinna sem fyrst og fremst skilar ár- angri. Einstaka upphlaup bjargar engu, þegar allt fellur í dúnalogn inn á milli. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Sumir eru seinteknir og aðrir fljótari til. Láttu ekki blekkj- ast til að halda að í fyrrnefnda hópnum sé enginn sem þú getur blandað geði við. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Flas er hreint ekki til fagn- aðar. Þú skalt temja þér að gaumgæfa allar hliðar mála og kveða ekki upp úrskurð fyrr en þú telur þig öruggan. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Allt er þetta spurning um stað og tíma. Láttu vera að taka einhverja áhættu ef þér finnst landið liggja illa. Þinn tími kemur bara síðar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þótt þér sýnist málin óskýr í fyrstu skaltu ekki gefast upp, því þokunni léttir með tíman- um og þú sérð hlutina í réttu ljósi. Þá ertu á grænni grein. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Hlutavelta Þessi duglegu börn afhentu nýlega ABC-hjálpar- starfi kr. 2.710. Þau heita Helga Margrét Ólafsdótt- ir, Alexander Ársælsson, Páll Axel Ólafsson og Hanna Sólbjört Ólafsdóttir. Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.