Morgunblaðið - 09.06.2001, Page 64
FÓLK Í FRÉTTUM
64 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á DÖGUNUM var stofnað nýtt ís-
lenskt markaðs- og dreifingarfyr-
irtæki fyrir kvikmyndir sem
gengur undir nafninu ICE –
Kvikmyndadreifing ehf. Það eru
Sambíóin og Háskólabíó sem
standa sameiginlega að hinu nýja
fyrirtæki sem dreifa mun mynd-
um kvikmyndahúsanna sem eru á
vegum UIP, alþjóðlega dreifinga-
fyrirtækisins, sem sér um dreif-
ingu mynda Hollywood-kvik-
myndaveranna Universal,
Paramount og Dreamworks, auk
annarra smærri „sjálfstæðra“
kvikmynda.
Í tilefni af hinu nýja fyrirtæki,
var efnt til kynningarhófs í
Kringlubíói.Eftir að Þorvaldur
Árnason frá Sambíóunum hafði
kynnt stuttlega til sögunnar hið
nýja dreifingarfyrirtæki hófst
kynning á væntanlegum myndum
á vegum þess, auk þess sem Sam-
film, sérlegt dreifingarfyrirtæki
Sambíóanna, kynnti væntanlegt
efni frá Warner Bros og Disney.
Að sögn aðstandenda hins nýja
dreifingarfyrirtækis er mark-
miðið að ná niður kostnaði á
markaðssetningu á kvikmyndum
Háskólabíós og Sambíóanna
ásamt því styrkja stöðuna varð-
andi erlend innkaup á kvikmynd-
um. Er fullyrt að samstarfið muni
auka þjónustu bíóanna, með betra
úrvali kvikmynda en nýja dreif-
ingarfyrirtækið hefur yfir að
ráða Háskólabíói, Bíóborginni,
Bíóhöllinni, Saga-bíói, Kringlu-
bíói, Nýja bíói í Keflavík og Nýja
Bíói á Akureyri.
Að sögn Christofs Wehmeiers
markaðs- og kynningarstjóra
nýja fyrirtækisins var tilgang-
urinn með kynningarsýningunni
að sýna fram á hversu mikilli
breidd kvikmynda það mun búa
yfir, með því að geta boðið upp á
allt frá harðsoðnum afþreying-
armyndum Hollywood til „öðru-
vísi“ mynda hvaðanæva að úr
heiminum.
ICE – Kvikmyndadreifing kynnti væntanlegar myndir sínar
Markmið-
ið er auk-
in breidd
Þorvaldur Árnason kynnti ICE –
Kvikmyndadreifingu ehf.
Christof Wehmeier, markaðs- og kynningarstjóri, veitir Þorfinni Óm-
arssyni, framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs, innsýn í nýja fyrirtækið.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
GUÐMUNDUR heilsar með virkt-
um og býður mér inn í hljóðverið.
Ásamt honum eru þar fyrir þeir
Ívar Bongó upptökumaður og Jó-
hann Hjörleifsson trommuleikari.
Þeir eru að vasast í trommuhljómum
og alltumlykjandi eru taktar og slög
af ýmsu tagi. Friðrik Sturluson
bassaleikari kemur síðar inn, í forláta
sandölum, og enn síðar rekur Jens
Hansson, hljómborðs- og saxófón-
leikari, inn nefið. Andrúmsloftið er
afslappað og hljóðverið hæfilega á rúi
og stúi eins og gengur og gerist.
Snúrur, magnarar og þess háttar raf-
tól á víð og dreif. Við hliðina á hljóð-
verinu er kaffiaðstaða. Þar setjumst
við Guðmundur inn og hefjum spjall.
Rauður þráður
„Við byrjuðum að taka upp í apríl,“
segir Guðmundur. „Kannski aðeins í
seinna lagi miðað við í fyrra. Við tók-
um okkur þriggja mánaða frí í byrjun
ársins. Gerðum ekki neitt, nema jú að
semja.“
Í janúar í fyrra ákváðu Sálarmenn
að gera tvær plötur með því mark-
miði að það yrði ákveðinn þráður sem
lægi í gegnum parið. Bæði hljóm-
fræðilega séð svo og textalega. Fyrir
síðustu jól kom út platan Annar máni
eins og áður er getið og verður sú
nýja gefin út fyrir þessi jól.
„Maður er búinn að garfa ansi
lengi í þessu bandi,“ segir Guðmund-
ur og samþykkir að þessi plata og sú
síðasta sýni svolítið breytta mynd af
sveitinni. „Í fyrra fór mikill tími í til-
raunamennsku í sambandi við hljóð-
mynd og vinnsluaðferðir almennt.
Samt erum við að reyna að vera trúir
því sem við stöndum fyrir og „fílum“
sem er að búa til melódísk popplög.
Þetta er engin U-beygja. Enda trúi
ég ekki á það að taka U-beygju bara
til að taka U-beygju. Maður verður
að finna músíkina þróast eðlilega – að
það sé enginn rembingur í gangi. Ég
held að hún sé að gera það með þess-
um tveimur plötum. Við erum svona
að reyna að horfa meira til heildar-
myndarinnar.“
Hann gefur lítið upp um hver mun-
urinn sé á þessari plötu og þeirri
fyrri.
„Hún er að taka mynd núna. Í dag
fór nýtt lag, „Hinn eini sanni“, í út-
varpið sem er svona í ætt við rokk-
lögin „Sódóma“ og „Ég þekki þig“.
Annars er þetta ekkert svo meðvitað
hvernig við veljum á plötuna. Þegar
við erum að ræða saman um þetta fer
þetta bara eftir því hvernig menn eru
að „fíla“ músíkina. Þegar við veljum
lögin á plötuna er það bara atkvæða-
greiðsla – það sýnir vel hug hljóm-
sveitarinnar og það er algerlega farið
eftir því. Þetta er svona það sem
kemst næst lýðræðinu í Sálinni hans
Jóns míns.“
Textarnir á síðustu plötu voru um
margt torræðir. Einhver mikil og
dularfull saga í gangi og erfitt að átta
sig á því hvað nákvæmlega var um að
vera.
„Það er viss rauður þráður...ein-
hver frásögn þarna undir,“ segir
Guðmundur. „Við höfum ekki viljað
fara alla leið með hvað þetta er. Það
kemur vonandi í ljós í fyllingu tím-
ans.“
Breyttar vinnuaðferðir
Nálgun Sálarmanna við hljóðvers-
vinnu hefur tekið nokkrum breyting-
um frá því sem áður var.
„Breytingin felst m.a. í því að á
þessum tveimur síðustu plötum höf-
um við fjölgað forstigunum, erum
farnir að forvinna plöturnar miklu
meira,“ segir Guðmundur. „Þegar ég
er að semja lag geri ég „demo“
(prufueintak) heima hjá mér. Síðan
fær bandið þetta og við förum að æfa.
Breytingin er líka sú að við æfum
allt, allar hugmyndir. Fyrir þessa
plötu æfðum við 20 lög, vitandi það að
það eru 10 til 11 lög sem fara á plöt-
una. Síðan förum við í hljóðver og
tökum upp æfingarnar og gerum
önnur „demo“. Síðan förum við og
ákveðum plötuna. Þá erum við búnir
að ganga í gegnum þrjú stig. Og síð-
an tökum við upp það sem við vorum
búnir að útsetja á æfingunum og þá
hefst stúdíóvinnan sem er að fara
núna af stað í júní, júlí. Tilrauna-
mennska á grunninn sem við vorum
búnir að æfa.“
Guðmundur segir að þá sé þessi
hefbundna skipan – gítar, bassi,
trommur og hljómborð – víkkuð út.
„Það því ansi skemmtilegur tími að
fara í hönd í sumar. Þegar við förum
að hlaða ofan á það sem við erum
komnir með og reynum að sjá út
hvert það leiðir okkur.“
Hann segir talsverða spennu hafa
verið í kringum upptökurnar á síð-
ustu plötu, skiljanlega þar sem það
var fyrsta Sálarplatan í fimm ár.
„Núna er þetta hins vegar búið að
vera mjög rólegt, allir vita hvað er í
gangi.“
Engin tökulög
Sálin hefur verið ein af fáum „ball-
sveitum“ sem helda uppi stemmning-
unni einungis með eigin tónlist.
„Þetta er svo lítill bransi hérna á
Íslandi að það er eiginlega ekkert
pláss fyrir eitthvað sem heitir upp-
tökustjóri eða umboðsmaður,“ segir
Guðmundur. „Þegar við byrjuðum,
fyrir þrettán árum, var það ekkert
hægt. Ef þú vildir láta þetta ganga
þurftir þú að gera þetta allt saman
sjálfur. Það er líka langskemmtileg-
ast og þannig hefur það verið frá
fyrsta degi. Það var síðan alltaf
ákveðinn kaleikur sem við sóttumst
eftir. Það er það sem ég ólst upp við –
að fara á Stuðmannaböll og sjá þá
taka sín eigin lög. Þetta er allt öðru-
vísi umhverfi og ég hef t.d. ekki spil-
að „coverlag“ (tökulag) í fimm ár – og
sakna þess ekki neitt. En ég ætla
ekki að „dissa“ neinn, einhvers stað-
ar verða menn að byrja. En svo kom
að því einn daginn hjá okkur, eftir
fjórar plötur, að það var ákveðið að
spila ekki „cover“ framar.“
Guðmundur heldur áfram að reka
hugmyndafræði sveitarinnar
„Við í Sálinni erum ekkert á leið-
inni út að „meika“ það,“ segir hann-
ákveðinn. „Við erum bara hér á Ís-
landi. Og við viljum spila mikið fyrir
fólk og breiða út fagnaðarerindið. Við
erum búnir að gera þessi sveitaböll
að tónleikum því ef þú vilt spila mikið
hér á landi verður þú að bjarga þér.
Það voru þessi sveitaböll. Þetta var
það sem við stefndum að, að spila eig-
in tónlist fyrir framan fjölda fólks.
Þessi yngri bönd eru vonandi að
komast inn á þetta, með fleiri plötum
og fleiri lögum.“
Beint í hjartað
Og tónlistin skiptir máli.
„Þegar maður er kominn upp á
svið og finnur víbrana frá fólkinu og
maður er að gefa sjálfur á móti ...
þetta er bara einhver orka sem mað-
ur verður háður,“ segir Guðmundur.
„Sérstaklega þegar þú ert mjög
ástríðufullur fyrir músík og fyrir
þinni eigin músík. Þú ert að uppskera
svo mikið af því sem þú hefur verið að
sá.“
Hann segir það stórkostlegt að sjá
hvernig tónlist hreyfir við fólki. „Ég
trúi því að þriggja mínútna popplag
geti verið lífsreynsla fyrir margt fólk.
Ég meina ... það hlýtur að vera þann-
ig fyrir okkur báða ... þegar við vor-
um ungir og heyrðum eitthvað lag og
urðum ekki samir aftur. Þetta hefur
jafnmikil áhrif á mig; eitt gott popp-
lag eins og að sjá góða kvikmynd eða
lesa góða bók. Músík sleppur ein-
hvern veginn frá skynseminni og fer
bara beint í hjartað. Þetta er ein
fárra listgreina sem gerir þetta vel.“
Guðmundur kímir og segir: „Ég
hlakka bara til að fara á Rammstein,
vera í kösinni og allt sem heitir skyn-
semi er fokið út í veður og vind. Það
er málið! Sleppa sér svolítið.“
Guðmundur segir þessi augnablik
sem hann upplifir á sviðinu vera
ástæðuna fyrir því að hann er enn að
þessu í dag.
„Sálin er líka orðin góður félags-
skapur og við eigum afskaplega gott
með að vera saman. Það hefur líka
rosalega mikið að segja.“
Að lokum er vert að geta þess að
Sálin verður á faraldsfæti í sumar og
mun spila vítt og breitt um landið. Í
kvöld verða þeir t.a.m. í Félagsheim-
ilinu Árnesi, Selfossi.
Í hljóðverinu – Sálin hans Jóns míns
„Engin U-beygja“
Sálin hans Jóns míns er í Grjótnámunni um þessar mundir að taka upp
nýja plötu. Á hún að mynda einhvers konar seinni hluta Annars mána
sem út kom fyrir síðustu jól. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við
Guðmund Jónsson, gítarleikara sveitarinnar.
Morgunblaðið/Billi
Guðmundur Jónsson við upptökur í Grjótnámunni. Á bak við hann glitt-
ir í Jóhann Hjörleifsson trommuleikara.
arnart@mbl.is
MOGGABÚÐIN
mbl.is
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fös 15. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 16. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 22. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 23. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 30. júní kl. 20- NOKKUR SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Í KVÖLD: Lau 9. júní kl. 19 - UPPSELT
Í KVÖLD: Lau 9. júní kl. 22 - UPPSELT
Sun 10. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI
Fim 14. júní kl. 20 - UPPSELT
Fös 15. júní kl. 20 - UPPSELT
Lau 16. júní kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 16. júní kl. 22 - ÖRFÁ SÆTI
Þri 19. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Sýnt á Stóra sviði í tilefni 19. júní, eftir
sýningu flytur Ragnheiður Eiríksdóttir,
hjúkrunarfræðingur og kynlífspistla-
höfundur, erindi tengt Píkusögum.
ATH. ekki er hleypt inn í salinn eftir að
sýningin hefst.
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR.
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
3. hæðin
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
!
!
! "
! #$#% & '() * + , #!
!
* + , #
-./ 00 1 23
-#
!
$4 ## #5
$4
6 ### +$ 7( &8$##! ## *##
-&## #
+"9 $ 7:;7<! &; $ 7:"'(
HEDWIG KL. 20
Frumsýning fös 29/6 UPPSELT
Hádegisleikhús kl. 12
RÚM FYRIR EINN
fös 15/6 örfá sæti laus
fim 21/6 nokkur sæti laus
FEÐGAR Á FERÐ KL. 20
fim 14/6 nokkur sæti laus
fös 15/6 nokkur sæti laus
mið 20/6 UPPSELT
sun 24/6 nokkur sæti laus
Allar sýningar hefjast kl. 20.
Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og
frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í
síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða
530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030