Morgunblaðið - 09.06.2001, Page 68

Morgunblaðið - 09.06.2001, Page 68
68 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÝTT OG BETRA Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ www.sambioin.is Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Vit nr. 236. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.. Vit nr. 235. B.i. 12 ára Sá snjalli er bxunalaus! Risaeðlurnar Sýnd kl. 2. Ísl. tal.Vit nr. 169 Fyrsti sumarsmellur á Íslandi. Búið ykkur undir tvöfaldan skammt af spennu, gríni og hasar. Myndin er hlaðin frábærum og ótrúlegum tæknibrellum. LEYFÐ ÖLLUM ALDURSHÓPUM.  strik.isKVIKMYNDIR.is 1/2 Hugleikur 29 þúsund áhorfendur Sýnd kl. 1.30, 4, 5.30, 8 og 10.30. . Vit nr. 234 Sýnd kl. 10. B. i. 16. Vit nr 238. Undrahundurinn SPOT slær í gegn í frábærri grínmynd í anda Big Daddy Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. Vit nr. 240. Nýi Stíllinn Keisarans Sýnd kl. 2 og 3.45. Vit nr. 213 Sweet november Sýnd kl. 8. Vit nr. 233 POKEMON 3 Sýnd kl. 2, 4. Ísl tal. Vit nr. 231 Miss Congeniality Sýnd kl. 4. Vit nr. 207 Exit wonds Sýnd kl. 10.15. B.i. 16 ára. Vit nr. 223 7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífum þeirra að eilífu. Frumsýnum stórmynd ársins B E N A F F L E C K HÁSKÓLABÍÓ þar sem allir salir eru stórir Hagatorgi sími 530 1919 Sýnd kl. 10.30.  Hausverk.is  Mbl Sýnd kl. 5.45. Sýnd kl. 8 Sá snjalli er buxnalaus! Undrahund- urinn SPOT slær í gegn í frábærri grínmynd í anda Big Daddy Loksins alvöru tryllir sem fær hárin til að rísa. Með hinum magnaða Morgan Freeman (Kiss the Girls, Seven). Hér er komið sjálf- stætt framhald myndarinnar Kiss the Girls. Rafmögnuð spenna frá byrjun til enda. Hefur verið líkt við Seven og Double Jeopardy. Aðrir leikarar: Monica Potter (Con Air, Patch Ad- ams) og Michael Wincott (Romeo Is Bleeding, Alien: Resurrection). Leikstjóri: Lee Tamahori (The Sopranos, Once Were Warriors). Svikavefur Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.45. og galdrakerlingin Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. Sýnd kl. 2, 4.30, 8 og 11.20. B. i. 12. 29 þúsund áhorfendur  strik.is 1/2 Hugleikur  KVIKMYNDIR.is Sýnd kl. 8 og 10.30 B. i. 14 7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífum þeirra að eilífu. Frumsýnum stórmynd ársins B E N A F F L E C K kirikou og galdrakerlingin ELECTRONIC Arts gáfu nýlega út nýjasta leikinn úr smiðju snillings- ins Peter Molyneux úr Lionhead Studios, en Molyneux er maðurinn á bak við leikina Dungeon Keeper og Populous, svo eitthvað sé nefnt. Leikurinn ber heitið Black & White og er stjórnunarleikur í þriðju per- sónu. Leikurinn þarfnast minnst 350 MHz tölvu með 64 MB minni og 600 MB hörðum disk. Í Black & White taka leikendur sér hlutverk guðs, sem er að byrja í faginu. Honum til hjálpar er sam- viska hans, sem birtist í formi púka og engils, en það er undir hverjum og einum komið á hvorn hann hlust- ar, því bæði illir og góðir guðir hafa jafn mikla möguleika á að vinna leikinn. Séu leikendur ávallt fólki sínu innan handar njóta þeir óbland- innar virðingar, en stjórni þeir með harðri hendi njóta þeir óttabland- innar virðingar. Eftir að leikurinn kemst almenni- lega í gang verður saga hans ljós. Illi guðinn Nemezis stjórnar meiri- hlutan heimsins og leikendur verða að taka höndum saman við aðra guði og auka kraft sinn þar til þeir geta tekist á við Nemezis. Þar sem kraftur hvers guðs er háður fjölda tilbiðjenda hans er aðalverkefni allra borða að fjölga ættbálkunum litlu. Kraftur hvers guðs mælist í getu hans til að gera kraftaverk. Krafta- verkin draga orku sína frá fjölda til- biðjenda og séu þeir nægilega margir geta leikendur galdrað upp timbur til smíða, mat, rigningu, skóga og margt fleira. Ekki eru öll kraftaverk þó til góðs og sé fólk í þannig stuði getur það látið eld- ingum og eldi rigna yfir fólk sitt og annarra. Þetta er þó ekki það eina sem góðir/illir guðir þurfa að hafa áhyggjur af. Í byrjun leiksins þurfa leikendur að velja milli þriggja skepna: belju, tígrisdýrs og apa, sem verða holdgervingar máttar þeirra á jörðu niðri. Hver guð á sína skepnu og oft þurfa þær að berjast fyrir lífi sínu. Skepnur þessar eru skyni gæddar og læra af gjörðum hvers guðs. Leikendur verðlauna þær fyrir góða hegðun en refsa þeim fyrir slæma þar til þær læra. Skepnurnar verða gríðarstórar og hafa vald á ýmsum kröftum sem þær virkja til góðs eða ills. Sem dæmi um þetta má nefna al- mennt hreinlæti. Sé skepnunum ekki snemma kennt, hvar þær eiga að skíta þá læra þær það líklegast aldrei og skíta bara út um allt, ætt- bálkum til lítillar gleði. Sé þeim hinsvegar kennt vel, geta þær ann- aðhvort skelft þorpsbúa og fengið þá til að trúa á leikandann eða hjálp- að þeim við ýmis verkefni og unnið trú þeirra þannig. Auk nauðsyn- legra verkefna eins og að sigra aðra guði og tilbiðjendur geta leikendur einnig sinnt ýmsum verkefnum fyrir fólk eða aðra guði. Verkefnin eru af ýmsum toga og hægt að leysa á mis- munandi vegu. Biðji bóndi leikand- ann um að bjarga rollunum sínum, sem hlupu í burtu, getur hann ann- aðhvort fundið rollurnar og kastað þeim út á sjó og brennt hús bóndans og bóndann með eða fundið þær og skilað þeim og grætt einnota krafta- verk eða annað smálegt. Black & White er öflugasti og stærsti stjórnunarleikur sem komið hefur út, en þrátt fyrir stærð hans er furðulega auðvelt að læra á hann. Líklega hefur það mannsbarn ekki fæðst, sem ekki gæti fundið eitthvað skemmtilegt að bardúsa við í þess- um leik og óhætt að útnefna hann hér með merkilegasta leik sem kom- ið hefur út á þessu ári. Merkilegasti leikur ársins Ingvi M. Árnason skrifar um tölvuleik- inn Black & White Black and White er litskrúðugur leikur. Grafík: Aftan á umbúðunum stendur að leikurinn þarfn- ist minnst 350 MHz tölvu en líklega hefðu fáir gaman af því að spila hann á slíkri vél. Á 600 MHz tölvu greinar- höfundar leit leikurinn ótrú- lega fallega út, en átti það til að hægja örlítið á sér þegar mikið gekk á. Leik- endur geta fært sjónarhorn- ið frá þar til mannvirki á jörðu niðri eru of smá til að þau sjáist og svo beint aftur niður að andlitum einstakra manna, með mjög tilkomu- miklum hætti. Hljóð: Tónlist leiksins hljóm- ar í bakgrunni þar sem hún á að vera. Greinarhöfundur tók sjaldan eftir henni en hún breytist víst eftir and- rúmsloftinu í ættbálkunum. Raddleikur er virkilega skemmtilegur og vel gerður. Stjórn: Upprunalegt stjórn- skipulag leiksins er einfalt en ekki mjög skilvirkt. Mús- in er til þess að draga sjón- arhorn að eða frá, líta til hliðar, taka upp fólk, byggja byggingar og mun fleira. Lyklaborðið er í raun ekki notað mikið nema flýtilyklar leiksins séu lagðir á minnið en þó er auðvitað hægt að breyta öllu eftir smekk hvers og eins. Ending: Black & White mun endast þar til fólk fær leið á því að kasta kindum og öðr- um húsdýrum út á sjó, láta belju/apa/tígrisdýr borða litla kalla, kasta eldi og eld- ingum og búa til rigningu; með öðrum orðum: í mörg ár. Bruno litli (Bruno) G a m a n m y n d 1/2 Leikstjóri: Shirley MacLaine. Handrit: David Ciminello. Aðal- hlutverk: Alex Linz, Shirley Mac- Laine, Joey Lauren Adams, Gary Sinise. Bandaríkin, 2000. Skífan. (104 mín.) Öllum leyfð. Í ÞESSARI fyrstu mynd sem leik- konan Shirley MacLaine leikstýrir, segir frá drengnum Bruno, litlu gáfnaljósi sem er ekki beinlínis vin- sæll meðal skóla- systkina sinna. Bruno er eldklár í ensku, hefur auðugt ímynd- unarafl og finnst gaman að ganga í kjólum. Og hann er ekkert hræddur við að vera hann sjálfur, jafnvel þótt það ávinni honum bar- smíðar í skólanum og fyrirlitningu föður síns. Brunó litli er kvikmynd sem kemur á óvart. Hún gengur a.m.k. tveimur skrefum lengra en flestar myndir af þessu tagi í því að draga upp mynd af ömurlegu lífi að- alsöguhetjunnar og fjölskyldu hans. Höft og kúgun samfélagsins gagn- vart frjálsri tjáningu einstaklingsins er vel framsett í kaþólska skólanum sem Bruno gengur í og óvægnum kjaftagangi íbúa bæjarins. Faðir Brunos er sömuleiðis sterk persóna og vegur samband hans við móður sína þungt í heildarmerkingu mynd- arinnar. Hreinskilinn og dálítið kvik- indislegur húmor myndarinnar gerir hana síðan bráðskemmtilega og þungvæga í senn. Heiða Jóhannsdótt ir MYNDBÖND Að vera öðruvísi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.