Morgunblaðið - 22.06.2001, Side 11
Á annað hundrað nemenda stunda
fjarnám á háskólastigi á Austur-
landi. Kennaraháskóli Íslands, Há-
skólinn á Akureyri, Hólaskóli og
Háskóli Íslands bjóða fjölbreytt
námsval en að mati Emils Björns-
sonar, framkvæmdastjóra fræðslu-
nets Austurlands, hefur það mikla
þýðingu fyrir byggðamál á svæðinu
að slíkt nám sé fyrir hendi. „Að öðr-
um kosti flytti margt af því fólki
sem nú stundar háskólanám á Aust-
urlandi brott af svæðinu til að verða
sér úti um menntun,“ segir Emil.
„Markmiðið er að auka möguleik-
ana á háskólanámi á svæðinu en nú
stendur til að bjóða upp á nám í
tölvufræðum hjá Háskólanum í
Reykjavík og nám frá Landbúnaðar-
háskólanum á Hvanneyri.“
Framhaldsskólarnir í samstarfi
Meðal nýmæla á sviði framhalds-
náms á Austurlandi er nám á fjöl-
miðla- og upplýsingabraut og er
það samstarfsverkefni framhalds-
skólanna þriggja á svæðinu, Verk-
menntaskóla Austurlands, Fram-
haldsskólans í Austur-Skaftafells-
sýslu og Menntaskólans á Egilsstöð-
um.
Eyjólfur Guðmundsson, skóla-
meistari Framhaldsskólans í Austur-
Skaftafellssýslu, segir framhalds-
skólana á Austurlandi hafa allar
klær úti við að auka á margbreyti-
leika náms fyrir íbúa svæðisins.
„Fjarkennslutæknin kemur okkur að
góðum notum og fer vel á því að
hún sé notuð við kennslu í upplýs-
inga- og fjölmiðlafræðum,“ segir
Eyjólfur. Námið lýtur að öllum
þáttum miðlunar, allt frá prentiðn
yfir vef- og ljósvakamiðlun. Verk-
efnið er unnið í samstarfi við fjögur
fyrirtæki af svæðinu, Svæðisútvarp
Austurlands, Skjávarp, Héraðsprent
og Tölvusmiðjuna.
Það er mikið um að vera hjá Ingi-
mundi Ingimarssyni og hans fólki
sem nú vinnur myrkranna á milli, á
bjartasta tíma ársins, við undirbún-
ing Landsmóts UMFÍ.
„Um þessar mundir starfa hér
rétt um hundrað starfsmenn sem
leggja sig alla fram um að mótið
verði hið glæsilegasta,“ segir Ingi-
mundur og bætir við að starfsfólk-
inu fjölgi með hverjum deginum.
Mest verða hér um 500 manns á
mótinu sjálfu, 12. til 15. júlí við
vaktastörf og fleira. „Mótið verður
því væntanlega fjölmennasti vinnu-
staðurinn á Austurlandi þessa
helgi!“
Þótt þungamiðja mótsins sé á
Egilsstöðum er keppt víðar, í Hall-
ormsstað og Fellabæ, á Seyðisfirði,
Eskifirði, Reyðarfirði, Neskaupstað
og Fáskrúðsfirði. Gera má ráð fyrir
lífi og fjöri á þessum stöðum alla
helgina.
Fjörugt tjaldbúðarlíf hefur ein-
kennt Landsmótin til þessa og Ingi-
mar segir enga breytingu verða á
því í ár. „Vonir standa til að kepp-
endur verði um 2000 og þeir verða
flestir í tjöldum, nema einstaka af-
reksmaður sem leyfir sér þann
munað að sofa í rúmi nóttina fyrir
keppni. Keppendurnir verða í sér
tjaldbúðum. Gestir, starfsmenn og
aðstandendur sem gætu orðið um
10.000 til 12.000 talsins verða í sér
tjaldbúðum. Annars má ætla að
tjaldað verði á hverjum bletti.“
Ekki er nokkur vafi á því að nafli
alheimsins verður á Austurlandi um
landsmótshelgina. Ingimundur full-
yrðir að íþróttamannvirkin sem
boðið verður uppá finnist varla
betri og aðstaða fyrir áhorfendur sé
prýðileg. „Það eina sem ég kvíði fyr-
ir er að við ráðum ekki við alla
áhorfendurna sem vilja fylgjast með
keppninni í pönnukökubakstri, en
við erum að vinna í því máli núna!“
Nánari upplýsingar eru á
www.landsmot2001.is.
www.east.is:
Alsherjar upp-
lýsingavefur
Af þeim erlendu ferðamönnum
sem komu til landsins á síðasta ári,
leituðu 34% upplýsinga um Ísland á
vefnum. En til þess að ná árangri í
markaðssetningu á netinu er engan
vegin nóg að setja upp síðu, hana
þarf að uppfæra reglulega þannig
að upplýsingar séu ávallt réttar og
aðgengilegar. Það hefur aðstandend-
um www.east.is sannarlega tekist
enda vefurinn stútfullur af upplýs-
ingum sem nýtast öllum sem annað
tveggja eru að skipuleggja ferðalög
um fjórðunginn, eða eru á ferðalagi
og þurfa á þjónustu að halda.
Ferðamálasamtök Austurlands,
samtök sveitarfélaga á Austurlandi
og Þróunarfélag Austurlands standa
í sameiningu að vefnum, en dagleg
umsýsla hans heyrir undir ferða-
málasamtökin. Ásmundur Gíslason,
formaður ferðamálasamtakanna,
segir að heimsóknum inn á vefinn
hafi fjölgað mjög mikið á síðustu
mánuðum en nú er svo komið að
heimsóknirnar eru um 200 á degi
hverjum.
Vefurinn er aðgengilegur og
spannar allt svæðið frá Bakkafirði
og suður í Skaftafell. Og þá er bara
að setjast við tölvuna og skoða vef-
inn www.east.is.
Viðamikið starf hefur staðið yfir að
undanförnu til að undirbúa aust-
firskt atvinnulíf fyrir álvers- og
virkjanaframkvæmdir. Það eru Sam-
band sveitarfélaga í Austurlands-
kjördæmi, Þróunarstofa Austur-
lands og STAR verkefnisstjórn sem
standa þar að baki. ,,Markmiðið er
að greina afl austfirskra fyrirtækja
til að takast á við verkefnið og
hugsanlegar leiðir til að nýta sókn-
arfæri sem gefast,“ segir Elín Sigríð-
ur Einarsdóttir, rekstrarfræðingur
hjá Hönnun hf., en hún hefur yfir-
umsjón með verkefninu.
,,Fimm faghópar voru myndaðir
í kjölfar málþingsins „Nýir tímar í
Austfirsku atvinnulífi“. Vinnan
hófst á að farið var í gegnum
svokallaða SVOT-greiningu og velt
upp hugsanlegum aðgerðum. Í
þessum vinnuhópum hafa komið
fram margar hugmyndir að þróun
atvinnulífs á Austurlandi og er
okkur umhugað um að framboð
þjónustu á svæðinu raskist ekki
vegna framkvæmdanna. Einnig er
verið að kanna möguleika á víð-
tæku samstarfi og í sumum tilfell-
um sameiningu fyrirtækja.“
Stefnt er að því að mynda gagna-
grunn með upplýsingum um aust-
firsk fyrirtæki, sem áhuga hafa á að
selja vörur og þjónustu tengda
framkvæmdunum. Þar verða einnig
aðgengilegar greinagóðar upplýsing-
ar um þjónustu í fjórðungnum og
mun þeim upplýsingum verða kom-
ið á framfæri við framkvæmdaaðila.
Landsmót Ungmennafélaganna:
12.000 manna íþróttahátíð 12. til 15. júlí
augl‡sing
4. tbl. 1. árg. 2001 Austurland á nýrri öld
www.athygli.is
Á döfinni...
23. júní – Borgarfjörður
Ferðamálahópur Borgarfjarðar:
Andvökunætur - Jónsmessuferð
upp í Hafnarfjall (létt 3-4 tíma
gönguferð). Varðeldur og söngur
að lokinni ferð og þar á eftir veit-
ingar í Fjarðarborg.
Lagt af stað kl. 22.30 frá Höfn.
23. júní – Höfn
Fjölskylduferð út í óvissuna.
Norðfjörður
Ferðafélag Fjarðamanna: Jóns-
messuferð að Hólatjörnum í
Fannardal. Lagt af stað frá
Naumamel kl. 20.00. Fararstjóri
Ína D. Gísladóttir.
30. júní – Hérað – Vopnafjörður
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs: Dags-
ferð í Fagradal í Vopnafirði. Farið
í rútu út á Hellisheiði og gengið
þaðan í Fagradal. Loks verður
siglt til Vopnafjarðar þar sem rút-
an sækir hópinn.
27. júní – Seyðisfjörður
Bláa kirkjan kl. 20.30. Ásdís
Valdimarsdóttir, víóla (lagfiðla),
og Steinunn Birna Ragnarsdóttir,
píanó.
30. júní – Seyðisfjörður
Menningardagur barna – Karlinn í
tunglinu. Trúðurinn Skralli verður
á svæðinu og listasmiðja barna
verður sett upp í Herðubreið.
Júlí – Hallormsstaðaskógur
Alla sunnudaga í júli verða
gönguferðir með leiðsögn um
Hallormsstaðarskóg. Að jafnaði
verður lagt af stað frá Trjásafninu
kl 14.00. Nánar auglýst síðar.
3. júlí-15. júlí
Skriðuklaustur Héraði
Ljósmyndasýning kanadíska ljós-
myndarans Arna Haraldssonar í
Gallerí Klaustri.
4. júlí – Seyðisfjörður
Bláa kirkjan kl. 20.30. Stormur-
inn, harmonikkuhópur frá
Reykjavík og nágrenni, harmon-
ikkuball á eftir í Skaftafelli.
Nánari upplýsingar:
Markaðsráð Suðausturlands, sími
478 1500 og Markaðsstofa
Austurlands, sími 471 2320,
www.east.is.
Íþróttavöllurinn á Egilsstöðum.
Uppbygging í menntamálum
Framþróun í
austfirsku
atvinnulífi
Menntaskólinn á Egilsstöðum
Jónas Hallgrímsson, framkvæmda-
stjóri Austfars ehf., umboðsaðila
Smiril-line á Íslandi, fékk á dögun-
um hvatningarverðlaun Þróunarfé-
lags Austurlands. Sjálfum fannst
honum skrýtið að fá verðlaun fyrir
að vinna vinnuna sína en bætti við
að verðlaunin fengi hann fyrir að
hafa þrjóskast í þessum rekstri síð-
ustu árin.
Jónas segir Norrænu vera afar
mikla lyftistöng fyrir samfélagið
eystra, „þá er ég ekki eingöngu að
tala um þá uppbyggingu sem hefur
orðið hér, heldur ferðaþjónustuna á
öllu Austurlandi, já og alveg suður
um til Reykjavíkur.“
Á hverju ári ferðast 15 til 17
þúsund manns með Norrænu og
hlutfall Íslendinga er alltaf að
aukast. Í ár verður það um 25%
sem er eitthvað það mesta sem orð-
ið hefur. „Fólk hefur nefnilega áttað
sig á því að ferð með Norrænu er
líka ferðalag um Ísland. Fólk af höf-
uðborgarsvæðinu ekur austur, siglir
síðan í 2 sólarhringa til Danmerkur,
slappar vel af á leiðinni og byrjar
utanlandsferðina úthvílt. Á heim-
leiðinni er síðan kjörið að keyra
norður og slá þar með tvær flugur í
einu höggi, fara hringinn og til út-
landa um leið!“
Sigling með Norrænu:
Afslappandi og þægilegt frí
Íslendingar ferðast í auknum mæli með
Norrænu.