Morgunblaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 15. JÚLÍ 2001
159. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Sunnudagur
15. júlí 2001
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Reuters
Mandela
Nelson Mandela barðist fyrir frelsi svartra Suður-Afríkubúa
og afnámi aðskilnaðarstefnunnar. Hann sat fyrir það í fang-
elsi í 27 ár. Mandela kom úr fangelsi tilbúinn að fyrirgefa
þeim sem höfðu kúgað hann og þjóð hans í þrjár aldir. Hann
varð forseti hinnar nýju Suður-Afríku
og er elskaður af öllum
íbúum landsins.
Ragna Sara Jónsdóttir
hitti hinn síunga Nelson
Mandela í Jóhannesarborg
í liðinni viku. /2
B10
BÓLUEFNI
20
FLAK rússneskrar vöruflutn-
ingaþotu sem fórst skammt frá
Moskvu í gærmorgun. Í vélinni
var tíu manna áhöfn og fórust all-
ir, að sögn embættismanna flug-
yfirvalda. Hún var fjögurra
hreyfla, af gerðinni IL-76, og var
í flugtaki frá Tsjekalovskí-
herflugvelli um 30 kílómetra frá
Moskvu er hún hrapaði. Fjar-
skiptasamband við vélina rofnaði
um tveim mínútum eftir flugtak
og var hún þá í um 50 metra
hæð, að sögn ITAR-Tass-frétta-
stofunnar. Flugvélin var í eigu
einkarekins félags, Rus, og á leið
til Norílsk sem er mikið náma-
hérað norðarlega í Síberíu. Var
farmurinn byggingarefni og
snyrtivörur.
AP
Tíu fórust í flugslysi
LEIÐTOGAFUNDUR forseta Pak-
istans, Pervez Musharrafs og Atal
Behari Vajpayee, forsætisráðherra
Indlands, hefst í dag á Agra-hóteli í
grennd við grafhýsið Taj Mahal.
Munu þeir meðal annars reyna að ná
samkomulagi um lausn á deilunni um
Kasmír en ríkin tvö hafa háð þrjár
styrjaldir síðustu hálfa öldina og voru
tvær þeirra um yfirráð í Kasmír. Ind-
verjar ráða tveim þriðju héraðsins.
Tugþúsundir manna hafa frá 1989
fallið í átökum indverska hersins við
skæruliða sem vilja að allt Kasmír
verði sameinað Pakistan en Kasm-
írbúar eru flestir múslímar eins og
Pakistanar.
Musharraf kom til Indlands í gær
með eiginkonu sinni, Sehba, og 19
manna sendinefnd og var tekið á móti
þeim með mikilli viðhöfn í Nýju-
Delhí, höfuðborg Indlands. Pakist-
ansforseti sagðist koma með opnum
huga til landsins en tók fram að ef
ekki næðist samkomulag um Kasmír
þýddi lítið að ræða önnur vandamál.
Indverjar saka Pakistana um að
aðstoða skæruliða í Kasmír með
vopnasendingum. Musharraf segist
styðja málstað þeirra en ekki hafa
neina stjórn á þeim.
„Ég hlakka til þess að eiga mik-
ilvægar, hreinskilnislegar og áhuga-
verðar viðræður, mun hvetja þá til að
sameinast okkur um lausn á deilunni
sem verði í samræmi við óskir Kasm-
írbúa,“ sagði Musharraf í opinberri
yfirlýsingu við komuna. „Það mun
auðvelda lausn á öðrum málum og
valda því að samskiptunum verður
komið í eðlilegt horf.“
Er Bretar veittu þjóðum Indlands-
skaga sjálfstæði 1947 var landinu
skipt milli hindúa og múslíma; hinir
síðarnefndu byggja Pakistan og
Bangladesh. Sex ár eru síðan pakist-
anskur forseti hefur farið í opinbera
heimsókn til Indlands og tvö ár síðan
ríkin tvö hafa átt formlegar viðræður
um samskiptavandamál sín. Nokkr-
um stundum áður en Musharraf lagði
af stað kom í fyrsta sinn á þessu ári til
skotbardaga á línunni sem skiptir
Kasmír milli herliðs Indverja og Pak-
istans. Tveir óbreyttir borgarar féllu
annars staðar í héraðinu fyrir ind-
verskum hermönnum..
Forsetinn lagði blómsveig að gröf
Mahatma Gandí, frelsishetju Ind-
verja, en einnig heimsótti hann æsku-
heimili sitt í höfuðborginni er hann yf-
irgaf fyrir meira en hálfri öld.
Musharraf snæddi með Vayjpayee og
fleiri indverskum ráðamönnum í gær
en formlegar viðræður hefjast í dag.
Bandaríkjamenn og fleiri stórþjóð-
ir hafa lagt mikla áherslu á að fá Ind-
verja og Pakistana til að friðmælast.
Er ástæðan ekki síst að bæði ríkin
ráða nú yfir kjarnorkuvopnum og af-
leiðingarnar af stórstyrjöld milli
þeirra gætu því orðið geigvænlegar.
Musharraf Pakistansforseti við komuna til Nýju-Delhí á Indlandi
Lausn á Kasmírdeilunni
grundvallarskilyrði
Nýju-Delhí, Jammu. AP, AFP.
UM LEIÐ og Alþjóðaólympíunefnd-
in hafði á fundi sínum á föstudag
skýrt frá því að sumarleikarnir 2008
yrðu í Peking braust út mikill fögn-
uður í borginni. „Við erum svo ham-
ingjusöm! Þakka ykkur fyrir traust-
ið!“ var hrópað. Hundruð þúsunda
manna flykktust næstu klukku-
stundirnar til miðborgarinnar og
söfnuðust saman á Torgi hins himn-
eska friðar sem hefur verið mið-
punktur margra frægra mótmæla-
funda og hátíða í nær 52 ára sögu
alþýðulýðveldisins. En sjálfsprottinn
fögnuðurinn á föstudagskvöld er lík-
lega sá mesti sem dæmi eru um á
torginu. Hann kom lögreglunni al-
gerlega á óvart en hún er annars vön
að vera vel viðbúin fjöldasamkomum.
Tilkynningin um að Peking hefði
unnið barst skömmu eftir klukkan 22
að staðartíma en þá hafði fjöldi
manna þegar safnast saman í von um
að niðurstaðan yrði sú sem hún varð.
Lögreglan sem var á staðnum réð vel
við þann fjölda. En næstu klukku-
stundirnar streymdi enn meiri
mannfjöldi um torgið, í gleðivímu
sem menn höfðu ekki búið sig undir.
Fólk kom hjólandi og gangandi eða í
bílum og úr öllum áttum. Menn hróp-
uðu af fögnuði, veifuðu brosandi kín-
verska fánanum eða smáflöggum
með merki Ólympíuleikanna í Pek-
ing 2008. Aðrir héldu á dagblöðum
með forsíðufréttum um að Peking
þætti líklegust til að hreppa hnossið.
Vegfarendur föðmuðu hver annan og
ef þeir komu auga á útlendinga var
hrópað: „Velkomin til Peking!“
Bílflautur voru þeyttar óspart, há-
vaðinn var ægilegur og allar umferð-
arreglur fuku út í veður og vind.
Bílaumferð stöðvaðist að lokum al-
gerlega þótt lögreglan reyndi að
koma upp tálmum til að greiða fyrir
henni ... fólk hunsaði þá. Svo fór að
lögreglan gafst upp og liðsmenn
hennar tóku í staðinn þátt í fagnað-
arlátunum. Farsímakerfi Kína, sem
er hið næststærsta í heiminum, lam-
aðist í meira en klukkustund eftir að
tíðindin bárust.
Meðal þeirra sem komu á Torgið
voru Jiang Zemin, forseti Kína og
aðrir leiðtogar landsins og hafa þeir
sjaldan verið jafnkátir ásýndum.
Torg hins himneska friðar
„Þakka ykkur
fyrir traustið“
Peking. Morgunblaðið.
Sjö feit/14
KÍNVERSKUR dómstóll dæmdi í
gær bandarískan prófessor, Li Sha-
omin, sekan um njósnir og verður
honum vísað úr landi, að sögn
Xhinhua-fréttastofunnar. Hann var
handtekinn í lok febrúar og hefur
málið valdið misklíð milli Kína og
Bandaríkjanna.
Kínverska fréttastofan sagði að
lagðar hefðu verið fram „öflugar
sannanir“ fyrir því að Li hefði njósn-
að fyrir Taívana og ógnað öryggi
Kína.
Li er bandarískur ríkisborgari,
kennir viðskiptafræði við háskóla í
Hong Kong og hefur kennt við kín-
verska háskóla og verið ráðgjafi fyr-
ir Sameinuðu þjóðirnar í Peking.
Hann er einn af fimm Bandaríkja-
mönnum af kínverskum uppruna
sem handteknir hafa verið í Kína
undanfarna 12 mánuði, sakaðir um
njósnir fyrir Taívan. Hinir hafa enn
ekki hlotið dóm.
Bandaríska þingið samþykkti í
júní ályktun þar sem þess var krafist
að Li yrði látinn laus.
Prófessor
vísað
úr landi
Peking. AP.
BÍLSPRENGJA varð manni að
bana í borginni Leiza á Norður-
Spáni í gær og sögðu fjölmiðlar að
hryðjuverkamenn Baska hefðu verið
að verki. Hinn látni var borgar-
fulltrúi og hét Jose Javier Mugica.
Sprengingin varð um klukkan tíu í
gærmorgun að staðartíma. Leiza er í
héraðinu Navarra sem liggur að
Baskalandi en aðskilnaðarhreyfing
Baska, ETA, krefst þess að Baskar
verði sjálfstæð þjóð og land þeirra
nái einnig yfir Navarra.
Tilræði á Spáni
Borgarfull-
trúi myrtur
Madríd. AP.
♦ ♦ ♦
Ég get gert
allt sem ég vil
Pálmi
tekur skrefið áfram
26