Morgunblaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 15/7–21/7  VÍSITALA neysluverðs hækkaði um 0,8% milli júní- og júlímánaða. Hag- fræðingur ASÍ segir já- kvætt að hækkunin milli mánaða sé minni en und- anfarna þrjá mánuði, en bendir á að útsölur versl- ana kunni að lenda á milli vísitölumælinga.  INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir segir koma til greina að skoða hvort flytja eigi staðbundna lög- gæslu frá ríki til borgar. Í nýútkominni skýrslu kem- ur fram að ofbeldisverkum í Reykjavík hafi fjölgað verulega á undanförnum árum. Grófum líkamsmeið- ingum fer einkum fjölg- andi.  TVEIR Íslendingar, par á þrítugsaldri, komu fram heilir á húfi, svangir, þreyttir og bitnir af skor- dýrum, eftir að hafa verið týndir í frumskógum Ekva- dor í þrjá sólarhringa. Leiðsögumenn fólksins villtust í skóginum.  23. LANDSMÓT UMFÍ var sett á Egilsstöðum á föstudagskvöld. Um 1.500 keppendur eru þar við keppni, en talið er að alls séu um 10.000 gestir á svæðinu.  SAMIÐ hefur verið í kjaradeilu Lögreglufélags Reykjavíkur og ríkisins og gildir nýr samningur fyrir alla lögreglumenn í land- inu. Samið var um upp- stokkun launaflokkakerfis, álagsgreiðslur og að lög- reglumenn fari á eftirlaun 65 ára. Norsk skip tekin vegna meintra ólöglegra veiða VARÐSKIPIN Óðinn og Ægir færðu fjögur norsk loðnuskip til hafnar í vik- unni, eitt til Ísafjarðar og þrjú til Seyð- isfjarðar, vegna meintra ólöglegra veiða innan íslenskrar landhelgi. Dómsátt var gerð í máli skipsins sem flutt var til Ísa- fjarðar og útgerðinni gert að greiða 1,8 milljóna sekt, ásamt því sem um- framafli skipsins var gerður upptækur. Kyrrsetningu skipanna þriggja, sem flutt voru til Seyðisfjarðar, var aflétt gegn rúmlega 30 milljóna króna trygg- ingu. Skipstjórum þeirra var birt ákæra fyrir Héraðsdómi Austurlands en þeir kváðust saklausir af ákæruatriðum. Kaupum á Frumafli rift MIKILL meirihluti hluthafa í Lyfja- verslun Íslands samþykkti á hluthafa- fundi í vikunni að rifta kaupum á Frum- afli hf. af Jóhanni Óla Guðmundssyni, einum af stærstu hluthöfum í Lyfja- versluninni. Hæstiréttur úrskurðaði fyrr um daginn að lögbann yrði lagt við því að Jóhann Óli hagnýtti sér þann rétt sem fylgir 170 milljóna króna hlutafjáreign hans í Lyfjaversluninni, sem honum var afhent sem endurgjald fyrir Frumafl. Á fundinum sagði stjórn og varastjórn félagsins af sér og ný stjórn var kjörin. Göngum lokað vegna bensínleka HVALFJARÐARGÖNGUM var lokað í um þrjá klukkutíma á föstudag vegna þess að tugir bensínlítra láku úr tankbíl Olíudreifingar sem var á leið í gegnum göngin. Talið er að loftventli tengi- vagns hafi ekki verið lokað kirfilega. Göngin voru opnuð fyrir umferð aftur að loknum hreinsunarstörfum. Mistök urðu við boðun slökkviliðs, en slökkvilið höfuðborgarsvæðisins frétti af lekan- um frá fjölmiðlum. INNLENT ÍSRAELAR skutu með þungavopnum á stöðvar palestínsku lögreglunnar í borginni Nablus á Vesturbakkanum á fimmtudag eftir að nokkrir ísraelskir vegfarendur særðust í fyrirsát. Einn palestínskur lögreglumaður féll. Vopnahléið sem samningar náðust um fyrir tilstuðlan Bandaríkjamanna fyrir mánuði hefur reynst ótryggt og kenna deiluaðilar hvor öðrum um. Ísraelar vilja ekki hefja friðarvið- ræður fyrr en liðið hafi vika án alvar- legra átaka. Ariel Sharon, forsætisráð- herra Ísraels, fordæmdi á fimmtudag hart árásir róttækra Palestínumana á ísraelska borgara og sagði að herða yrði aðgerðir af hálfu öryggissveita Ísraels til að koma í veg fyrir þær. Fyrr í vikunni gagnrýndu Banda- ríkjamenn og fleiri aðilar með óvenju harkalegu orðalagi að Ísraelar skyldu rífa niður palestínsk hús á Gaza og í Jerúsalem. Ísraelskir embættismenn sögðu að húsin hefðu verið reist í leyf- isleysi. Íbúar húsanna brugðust við með því að kasta grjóti í lögreglumenn og leiðtogar Palestínumanna báðu aðr- ar arabaþjóðir um hjálp. Einnig olli það titringi að Sharon skyldi segja að fleiri landnemar gyð- inga ættu að fá að setjast að á Gól- anhæðum sem Ísraelar tóku af Sýr- lendingum í sex daga stríðinu 1967. Peking fékk Ólympíu- leikana árið 2008 ÁKVEÐIÐ var á fundi Alþjóðaólymp- íunefndarinnar, IOC, í Moskvu á föstudag að Peking fengi að halda sumarleikana árið 2008. Mikil fagnað- arlæti brutust í Kína er fregnin barst. Kínverjar reyndu að fá að halda leikana árið 2000 en var hafnað. Mann- réttindasamtök hafa mörg andmælt því að Kína fái að halda leikana og benda á að stjórn kommúnista brjóti alþjóðleg mannréttindi. Dauðarefsing- um er beitt af meira kappi í Kína en annars staðar á byggðu bóli. Vopnahlésskil- málar brotnir  ÓEIRÐASEGGIR köst- uðu grjóti og bensín- sprengjum í lögreglu á Norður-Írlandi í vikunni er árleg gönguhátíð Ór- aníureglu mótmælenda náði hámarki. Tugir manna slösuðust. Um 100.000 manns tóku þátt í göngunum, en þá er minnst sigurs Vilhjálms af Óraníu á kaþólskum árið 1690.  LIÐSMENN fram- kvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins réðust á miðvikudag til inngöngu í höfuðstöðvar allra far- símafyrirtækja í Breta- landi og Þýskalandi. Voru þeir að leita gagna vegna gruns um að fyr- irtækin stunduðu verð- samráð í sambandi við svonefnda reikisamninga.  FYRSTU umferðir í flokksleiðtogakjöri breskra íhaldsþingmanna voru í vikunni og fækkaði frambjóðendum í þrjá. Efstur á fimmtudag varð Michael Portillo, næstur var Iain Duncan Smith en Kenneth Clarke varð þriðji. Almennir flokks- menn munu kjósa milli tveggja öflugustu fram- bjóðenda í september.  RÉTTARHÖLDUM yfir Augusto Pinochet, fyrr- verandi einræðisherra Chile, var frestað um óákveðinn tíma á mánu- dag í áfrýjunarrétti. Tal- ið er víst að Pinochet muni sleppa við að þurfa að svara fyrir meint mannréttindabrot, en hann er aldraður og heilsutæpur. ERLENT Verð frá kr. 9.999,- stykkið. 9.999 13-17 OPIÐ Í DAG FRÁ árinu 1966 hefur Jón Sighvats- son rafeindavirki farið um 1.200 ferð- ir á Klifið vestan Heimakletts í Vest- mannaeyjum. Það er brött og erfið ganga upp en að ofan er Klifið slétt og grasi vaxið þótt þverhnípt sé. Jón taldi saman ferðirnar á dögunum en hann sér um endurvarps- og fjar- skiptastöðvarnar á Klifinu sem hann segir standa í 226 metra hæð og stóra mastrið segir hann bæta 30 metrum þar ofan á. „Einhverjir héldu því nú fram um daginn að mastrið væri 40 metra hátt, en það er óþarfi að vera að bæta þar á,“ sagði Jón sem var í viðgerðum uppi á Klifi þegar blaðið náði í hann. Jón segist annars ekki mikið fyrir að fara upp í mastrið þótt það sé „bara“ 30 metra hátt. „Ég er nefni- lega lofthræddur að eðlisfari og fer helst ekki út á svalir yfir 5. hæð í blokk öðru vísi en að halda mér í. Klifið er samt allt í lagi, þar er ég svo heimavanur.“ Hann segist þó fara upp ef þess gerist þörf. „Maður er bara ekkert að glápa mikið niður fyr- ir sig,“ segir hann.Það er á staðkunn- ugum að skilja að ekki sé hlaupið að því að komast upp á Klifið. Jón vill ekki gera mikið úr slíku en segist samt ekki fyllilega sáttur við uppleið- ina eftir seinni jarðskjálftann í fyrra- sumar. „Það hrundi mikið í göngu- leiðina,“ segir hann, „svo er komið þarna stórt bjarg og þarf að fara út í lausamöl til að krækja fyrir það, sem er allt í lagi á góðum degi en við erf- iðar aðstæður er það ekkert sniðugt.“ Jón segist að jafnaði vera 20 til 30 mínútur á leiðinni upp. Í eina tíð seg- ist hann hafa getað farið þetta á tíu mínútum. „En það var fyrir 30 kíló- um,“ segir hann, „annars voru þeir að keppa við mig um daginn strákarnir frá Símanum sem voru að mála hérna uppi. Þeir eru ungir og hressir og ruku fram úr mér, en sprengdu sig og ég var samferða þeim upp síðasta spölinn. Mér hefur reynst best að labba þetta á jöfnum hraða,“ sagði Jón. Varaaflið nýkomið Jón segist hafa þurft að fara allt að því ellefu ferðir í viku en svo líði kannski einn eða tveir mánuðir þar sem hann fari ekki. „Einu sinni fór ég þrisvar á gamlársdag, það var svolít- ið hvimleitt. Þá var sjónvarpið að stríða, ekki mátti láta fólk missa af áramóta- skaupinu. En þetta er nú orðið miklu stöðugra núna.“ Hann segist hafa þurft að böðlast þarna upp í alls konar veðrum en þó sé mesta furða hvað mikla birtu sé að hafa af hafnarsvæðinu. „Svo ef það er þungbúið endurkasta skýin ljós- inu þannig að maður getur stundum farið upp án þess að kveikja á vasaljósi þótt það sé kolniðamyrkur.“ Annars segir Jón tilkomu dísildrif- innar ljósavélar á síðasta ári hafa breytt miklu en hún var flutt upp eft- ir jarðskjálftana í fyrra en fyrir þann tíma hafi ekki verið neitt varaafl. Týndi nestinu í rokinu Jón segist bara einu sinni hafa ver- ið veðurtepptur á fjallinu. „Þá voru komin 14 vindstig og nóttin frekar óskemmtileg því húsið gekk allt í bylgjum í rokinu. Það var ágætis veð- ur þegar við fórum upp, við vorum tveir saman þá. Svo þegar við vorum búnir að gera við og fórum út var bara komið brjálað veður. Ég var með kaffbrúsa og bitabox í höndunum og gekk fyrir hornið á byggingunni en hentist aftur á bak og sá auðvitað hvorki boxið né brús- ann aftur sem þeyttust fram af. Það varð því úr að við snerum við og bið- um veðrið af okkur. Við fórum svo niður um morguninn í stað þess að bögglast þetta í rokinu og myrkrinu.“ Allir vilja aðstöðu á Klifinu „Ég fór fljótlega að fara hér upp á Klif eftir að ég byrjaði hjá Símanum 1966. Ég fór svo í ársleyfi árið 1986 sem hefur staðið síðan. En ég samdi við þá um að halda áfram að sjá um stöðvarnar sem verktaki, bæði hér og úti í Sæfelli.“ Jón segir að Landssíminn eigi öll mannvirkin uppi á Klifinu. „Hér hafa verið í gegnum árin, útvarpsstöðvar, örbylgjusamband fyrir símaumferð og sæstrengi. Svo hefur bæst við á seinni árum NMT og GSM frá Landssímanum. Þá erum við komnir með útvarpsstöðvar, í augnablikinu eru hér sjö FM-útvarpsstöðvar. Svo er auðvitað ekki hvað síst strandstöðin, VHF-sendar fyrir Til- kynningaskylduna og annað. Ríkis- sjónvarpið kom árið 1966. Nefndu það bara, hér vilja allir vera með að- stöðu því þetta er besti dreifingar- staðurinn fyrir Suðurlandsundir- lendi og auðvitað miðin í kring,“ segir Jón. Morgunblaðið/Sigurgeir Það er ekki hlaupið að því fyrir hvern sem er að fara upp á Klifið enda víða bratt. Umsjónarmaður tækjabúnaðar í 35 ár Lofthræddur í stóra mastrinu Morgunblaðið/Sigurgeir Það er orðið þröngt um Jón innan um tækja- búnaðinn og segir hann kominn tíma á end- urnýjun húsakosts.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.