Morgunblaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 15
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 15
HINN 23. júní hófst Listasumar á
Akureyri, menningarhátíð sem
haldin hefur verið þar á hverju
sumri frá árinu 1993. Hátíðin stend-
ur til 26. ágúst og er því um sann-
kallað listasumar að ræða, þar sem
menningarviðburðir fara fram með
skipulegum hætti lungann úr sumr-
inu. Listasumarið skipuleggur og
kynnir listviðburði á sviði bók-
mennta, myndlistar, leiklistar,
dans, tónlistar, auk ýmissa upp-
ákoma, og taka margs konar félög,
stofnanir, og einstaklingar þátt. Má
þar nefna Sumartónleika í Akur-
eyrarkirkju, sem eru hluti af Lista-
sumrinu, Djassklúbb Akureyrar
sem staðið hefur fyrir tónleikum á
hverju sumri í tengslum við hátíð-
ina, Listasafn Akureyrar og Safna-
safnið sem kynna sýningar sínar í
tengslum við Listasumarið, Minja-
safnið, listagalleríið Kompuna og
Gilfélagið, félag áhugamanna um
listir og menningu á Akureyri, sem
stendur fyrir ýmsum uppákomum
og sýningahaldi á hátíðinni.
„Listasumarið verður viku
styttra í ár en í fyrra, en þá fengum
við aukafjárveitingu frá bænum og
dagskráin þá var nokkuð veglegri
en í ár,“ segir Guðrún Pálína, en því
fer þó fjarri að viðburðina skorti í
sumar. „Á dagskránni í sumar eru
og hafa verið mjög fjölbreytilegir
liðir. Það eru sýningar í söfnunum,
tónleikar í kirkjunni og á vegum
Gilfélagsins og Djassklúbbsins, list-
sýningar á vinnustofum Aðalheiðar
S. Eysteinsdóttur og Jóns Laxdals
með skipulagðri dagskrá mismun-
andi viðburða sem ber yfirskriftina
„Á slaginu sex“. Á vegum nokkurra
myndlistarmanna í bænum er sölu-
og sýningarrýmið Samlagið Listhús
og einnig er bókmenntadagskrá á
vegum Gilfélagsins og Sigurhæða –
Húss Skáldsins og í Davíðshúsi, svo
eitthvað sé nefnt.“
Listagilið miðpunktur
En hvað ber hæst á Listasumrinu
í sumar? „Í ágúst er sýning Per
Kirkeby í Listasafni Akureyrar,
Tumi Magnússon og Ráðhildur
Ingadóttir verða með sýningu í
Ketilhúsinu og í Komp-
unni verður Pétur Magn-
ússon, auk margra annara
myndlistarsýninga,“ svar-
ar Guðrún Pálína. „Fyrir
utan myndlistina er nátt-
úrulega merkileg öll sú
tónlist sem er. Annars
vegar er mjög vönduð
tónleikaröð í Akureyrar-
kirkju sem Björn Steinar
Sólbergsson sér um, Sum-
artónleikar í Akureyrar-
kirkju. Hins vegar er
Djassklúbbur Akureyrar,
sem er með tónleika á
hverjum fimmtudegi, og
núna að auki djasshátíð
sem heitir Djangodjass í
ágúst. Svo má ég til með að nefna
bókmenntadagskrá Gilfélagsins, en
aðalviðburður hennar var bók-
menntakvöld, þar sem Þorsteinn
Gylfason skipulagði dagskrá um
Tómas Guðmundsson og Magnús
Ásgeirsson undir yfirskriftinni
Endir allra funda. Dagskrár Þor-
steins undanfarin ár hafa verið und-
ir árlegum bókmenntaviðburðum
sem kallast „Heimur ljóðsins“.“
Stór hluti af viðburðum á Lista-
sumri fer fram í Listagili, menning-
armiðstöð á Akureyri sem saman-
stendur af nokkrum gömlum húsum
sem hafa verið gerð upp og nú hýsa
listviðburði og uppákomur. „Lista-
sumarið fer fram að miklu leyti í
Listagilinu og nágrenni, það er Ak-
ureyrarkirkju og Sigurhæðum-
Húsi skáldsins. Safnasafnið stendur
auðvitað nokkuð fyrir utan bæinn,
en það ætti ekki að hindra fólk í að
leggja leið sína þangað, þar er svo
vandað og fallegt safn, og sama má
segja um Minjasafnið. Svo mun
hluti af Djangodjassinum fara fram
á Glerártorgi.“
Listasumarið setur sinn
svip á Akureyrarbæ, sem
von er. „Okkur hefur tek-
ist að kynna Listasumarið
nokkuð vel innan bæjar-
ins, en við leggjum einnig
mikla áherslu á að kynna
það á landsvísu og út fyrir
landssteinana,“ segir
Guðrún Pálína. „Það hef-
ur mjög mikla þýðingu
fyrir menningarlíf á Ak-
ureyri að þessi hátíð sé
haldin hér. Viss hópur
sækir alltaf viðburði, en
ég vildi gjarna sjá meira
af fólki í leiðtogastöðum
sýna okkur áhuga, ekki
bara með peningastyrk
heldur einnig með þátttöku. Þó er
alltaf misjafnt eftir viðburðum
hvernig þátttakan er. Ég er viss um
að margir eiga eftir að leggja leið
sína í Listagilið vegna sýninga
Listasumars og í Listasafn Akur-
eyrar um þessar mundir.“
Listasumar á Akureyri starfræk-
ir heimasíðu, þar sem nálgast má
dagskrá hátíðarinnar ásamt öðrum
upplýsingum. Slóðin er: http://
www.listagil.is
Listin ræður
ríkjum lungann
úr sumrinu
Listasumar á Akureyri hófst hinn 23. júní
og stendur til loka ágúst. Inga María
Leifsdóttir sló á þráðinn til Guðrúnar
Pálínu Guðmundsdóttur, stjórnanda Lista-
sumarsins, og fræddist um hátíðina í ár.
Frá vinnustofum Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur og Jóns Laxdal.
ingamaria@mbl.is
Verk eftir Lilju Hauksdóttur, einn útskriftarnema frá
AKI, Hollandi. Sýningin verður opnuð 21. júlí.