Morgunblaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 15.07.2001, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FORSPRAKKI Spainheitir Josh Haden.Hann er sonur hinsmargrómaða djass- bassaleikara Charlie Haden sem m.a. hefur leikið með Ornette Coleman, Denny Zeitlin, Alice Coltrane og Keith Jarrett. Þrátt fyrir að hafa tekið upp hljóðfæri föður síns var það ekki djassinn sem átti upphaflega hug Josh heldur pönkið. Eftir að hafa eytt nokkr- um árum í að leika pönk fannst Josh komin tími til að kalla fram fíngerðari til- finningar en reiði. Hann hafði þá leikið á bassa í ein 14 ár og fannst hljóð- færakunnátta sín orðin of mikil til þess að geta talist í hópi pönkara. Hann hóf að safna saman frumsömdu efni hljómsveitalaus og hafði í raun lítinn áhuga að koma saman sveit. Það var ekki fyrr en hann kynntist núverandi samstarfsfélaga sínum, gítarleikaranum Ken Boudakian, í Kaliforníuhá- skólanum í Irvine árið ’93 sem hann fékk áhuga á hljóm- sveitarstarfi á ný. Þeir félagar fengu til liðs við sig bassaleik- arann Merlo Podlewski og tromm- arann Hartzell og hljómsveitin Spain var stofnuð. Þar sem djasstónarnir um- kringdu Josh á uppeldisárum hans af skiljanlegum ástæðum er tónlist hans undir miklum djassáhrifum. Þó ekki svo mikið í vali hljóma, heldur þá frekar í vinnuaðferðum og öðru slíku, því sveitin leggur mikið upp úr því að allt sé spilað beint inn á band. Og að hljóðfærin og hljóðfæraleikurinn séu „lífræn“ en ekki stafræn eins og liðsmenn sveitarinnar orða það sjálfir. Einnig eru greinileg áhrif frá tregablús, bandarískri sveita- tónlist og rokktónlist sjöunda ára- tugarins. Þar sem liðsmönnum sveitarinnar fannst lög Josh’s vera sefandi og undurfögur fannst þeim vel við hæfi að skíra sveitina í höf- uðið á því landi sem þeim fannst bera alla sömu kosti og lagasmíð- arnar. Allt sem þarf er ástarsorg? Eftir nokkra tónleika gerði Spain fljótlega samning við Rest- less útgáfuna og fyrsta breið- skífan, The Blue Moods of Spain, kom út árið ’95. Platan þótti nokk- uð fín, en sumir gagnrýnendur settu út á hve þunn, flöt og tilfinn- ingalaus söngur Josh var. En aðdáendurnir heilluðust af eintón- aðri rödd hans og þótti hún henta vel til þess að tjá þá stemmningu sem í lögunum er. Lagasmíðarnar þóttu þó framúrskarandi og áferð laganna heillandi. Helst var tónlist Spain líkt við Cowboy Junkies, The Tindersticks eða Velvet Und- erground. Kjarni flestra textanna var skilningsrík upprisa úr ástarsorg þar sem frásöguhátturinn var til- finningaþrunginn og opinskár. Hingað til hafa allir textar Josh verið tengdir ástinni, á einn eða annan hátt. Leitað innvortis Eftir útgáfu fyrstu plötunnar lagði sveitin í tónleikaferð um Bandaríkin, Evrópu og Ástralíu. Þegar þar kom til sögu höfðu orð- ið trommaraskipti, og hafði núver- andi liðsmaður Joey Waronker komið sér ofan á trommustólinn. Eftir að hinni löngu tónleikaferð lauk lagðist Josh Haden í mikla sjálfsskoðun. Þótt að hann hafi ekki komist að neinni endanlegri niðurstöðu, frek- ar en einhver annar sem reynir, um tilgang tilvistar sinnar og hvata þá skilaði innvortis leitin sér í dýpri laga- og textasmíðum. Það liðu því fjögur ár frá fyrstu og annarri skífu Spain. Þessi önnur plata, She haunts my dreams, þyk- ir með eindæmum góð. Plat- an var tekin upp á eyju við strendur Svíþjóðar og eru allir aukahljóðfæraleik- ararnir á plötunni sænskir. Á plötunni náði Josh að fullkomna söngstíl sinn, sem nú er jafn mjúkur og tals- máti hans. Það hentar stíl sveitarinnar mun betur og gerir hann persónulegri, þar sem hlustandinn fær það jafnvel á tilfinninguna að það sé verið að hvísla í eyra sér. Textarnir urðu ögn dul- arfyllri en áður og sagði Josh það vera skírskotun í textasmíðar sveitatónlist- arinnar, þar sem hin raun- verulega meining væri oft falin undir yfirborðinu. Textarnir gefa þó ýmislegt í skyn, en opinbera aldrei neitt. Einnig var léttara yfir textasmíð- unum en áður og textarnir krydd- aðir spaugilegum textabrotum inn á milli. Á dögunum kom svo út þriðja breiðskífa sveitarinnar, I Believe, og er kveðið við sama tóninn og á plötunni á undan. Þó virðist sem Josh Haden sé loksins búinn að jafna sig á ást- arsorginni og sé farinn að leiða hugan meira að almættinu, a.m.k. gefa sum lagaheiti plötunnar það í skyn. Það verður svo að koma í ljós síðar hvort Josh finni loksins svör- in sem hann leitaði að áður hjá al- mættinu eða hvort hann nái að sætta sig við svarleysið á end- anum, eins og allir hinir. Hjartans mál Áhugi á tregafullri sveitalagatónlist hefur aukist undanfarið. Birgir Örn Steinarsson segir frá bandarísku sveitinni Spain sem sækir innblástur sinn í djass, sveitatónlist og rokk sjöunda áratug- arins. Tónlist á sunnudegi Birgir Örn Steinarsson JOSH Harnett heitir náungi nokk- ur sem leikur í stórmyndinni Pearl Harbour sem nú er verið að sýna víða um land. Einnig leikur hann í kvikmyndinni Virgin Suicides sem Háskólabíó sýnir, og margar ung- meyjarnar ættu að þekkja hann úr unglingamyndunum The Faculty og Halloween H2O: 20 Years Later. Josh, sem heitir Joshua Daniel, er fæddur 21. júlí 1978 í San Fransisco. Hann er víst á föstu með ungri leikkonu, fyrrverandi sund- drottningu og fyrirsætu, sem heitir Estella Warren og leikur Daena í kvikmyndinni Planet of the Apes sem margir bíða eftir með eftir- væntingu og sýnd verður með haustinu. Stúlkan sú er fædd 23. desember 1978 í Kanada og er því steingeit. Steingeit og krabbi eru í eðli sínu ólík, en þau gætu lært margt hvort af öðru og átt saman ánægjulegt ástarsamband. Þau eru bæði skiln- ingsrík og umburðarlynd, íhalds- söm og hagsýn, en steingeitinni gæti þótt nóg um tilfinningaflækjur krabbans, þar sem hún er yfirveguð og svöl. Bæði þarfnast þau öryggis, en á meðan Josh myndi beina þeim þörfum að fjölskyldunni og tilfinn- ingunum, leitar Estella að öryggi í starfi og klifur metorðastigann. Sambandið snýst framan af að mestu um fjölskylduna og vinnuna. Þegar kemur að heimili, dagleg- um þörfum og venjum, þá eru þau líkari, en Josh hefur tungl í vatns- bera en Estella í vog. Bæði vilja þau stjórna tilfinningum sínum en eru þó bæði jákvæð og vinaleg. Hlutlægni ætti samt að vera mikill kostur í þeirra sambandi, þau ættu að geta talað um tilfinningamál án þess að falla í gryfju tilfinninga- seminnar eða fásinnu. Einnig hafa þau bæði þörf fyrir að fara út og hitta fólk. Lífsstíllinn þeirra verður að öllum líkindum líflegur, sam- vinnuverkefni verða ofarlega á baugi, þar sem allt sýst um fólk, list og menningu. Ef þau uppfylla þess- ar samfélagslegu þarfir sínar ættu þau að verða tilfinningalega full- nægð. Með tíð og tíma ætti þeim því að takast að koma á jafnvægi í sambandinu og veita hvort öðru langþráð öryggi.  Hlutlægir öryggis- fíklar Josh leitar ör- yggis í fjöl- skyldu og til- finningum ... ... en Estella í framanum og frægðinni. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Á leikferð um landið:                      !" #"  $% $&''()& % *+ "" ,% &-- ..'//**!""0+1!2/! 333  & (   $4 & (  MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Lau 21. júlí kl. 20 – LAUS SÆTI Fö 27. júlí kl 20 – LAUS SÆTI SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason Stórsöngleikur Leikfélagsins WMU Fi 19 júlí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Su 22. júlí kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Fi 26. júlí kl. 20 – ÖRFÁ SÆTI Ath. TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Stóra svið Sumarsöngleikurinn HEDWIG KL. 20.30 Fös 20/7 örfá sæti laus Lau 21/7 AUKASÝNING örfá sæti laus Lau 28/7 nokkur sæti laus Lau 11/8 Fös 17/8 Lau 25/8 Fös 31/8 Ath. aðeins sýnt í sumar! „í einu orði lýst meistaraleg“ S.H. Mbl „stjarna er fædd“ DV „hvergi er slegið af trukkinu“ A.E. DV „óborganleg“ S.S. Fréttablaðið Barinn opnar kl. 19.30, tveir fyrir einn tilboð til kl. 20. Plötusnúðar leika fyrir sýningu og í hléi. Hádegisleikhúsið RÚM FYRIR EINN Sýningar hefjast aftur 15. ágúst Miðasalan er opin frá kl 10-14 í Iðnó og 14-18 í Loftkastalanum alla virka daga og frá kl. 14 fram að sýningu á sýningarkvöldum. Hópasala er í síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða 530 3037. midasala@leik.is — www.leik.is Miðasölusími er 530 3030
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.