Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 9
FULLORÐINN rósastari hefur
haldið til í Skógum undir Eyjafjöll-
um síðan í júnílok. Yann Kolbeins-
son, áhugamaður um fuglaskoðun
og ritari flækingsfuglanefndar,
segir að tegundin sé afar sjaldséð
hér við land en síðast hafi nokkrir
fuglar sést síðla sumars árið 1994.
Yann segir rósastara verpa suð-
austast í Evrópu en eigi það til á
nokkurra ára fresti að fara á sum-
arflakk til Vestur- og Norður-
Evrópu en það gerist gjarnan í
framhaldi af stórum skordýra-
göngum í Suðaustur-Evrópu. Hann
segir að rósastarinn í Skógum sé sá
sextándi sem sæki landið heim svo
vitað sé.
Sjái fólk ókennilega fugla vill
Yann hvetja til að haft verði sam-
band við flækingsfuglanefnd og lát-
ið vita. Nefndin gefur árlega út
skýrslu um flækingsfugla hér á
landi sem birtist í tímaritinu Blika
sem Náttúrufræðistofnun gefur út í
samstarfi við fleiri aðila.
„Flækingsfuglanefnd var stofn-
sett nokkru fyrir árið 1980 og er
því ein af elstu flækingsfugla-
nefndum Evrópu. Þetta er allt sjálf-
boðavinna en 7 nefndarmenn, kosn-
ir af fjölda fuglaskoðara á landinu,
sjá um að dæma gögn sem nefnd-
inni berast,“ sagði Yann og bætti
við að senda mætti ábendingar á
eftirfarandi heimilisfang: Flæk-
ingsfuglanefnd, c/o Yann Kolbeins-
son, Sólheimar 30, 104 Reykjavík.
Rósastari heldur
til í Skógum
Ljósmynd/Yann Kolbeinsson
VÍÐA er unnið að undirbúningi
snjóflóðavarna á svæðum þar sem
hætta er á snjóflóðum. Stefnt er að
því að ljúka brýnustu aðgerðum fyr-
ir árið 2010. Helstu framkvæmdir
sem eru á döfinni eru í Bolungarvík,
á Seyðisfirði og í Neskaupstað.
Að sögn Guðmundar Bjarnasonar,
bæjarstjóra Fjarðabyggðar, hófust
framkvæmdir við þvergarð og keilur
í Neskaupstað árið 1999 en auk þess
er unnið að uppsetningu stoðvirkja
úr stáli sem komið er fyrir á upp-
takasvæðum ofar í fjallinu. Gert er
ráð fyrir að þessum aðgerðum ljúki
á þessu ári.
Gerð verður frumathugun seinna í
sumar um framkvæmdir sem eru
áætlaðar árið 2003 en það á eftir að
athuga hvort þær varnir verði garð-
ar eða net eða hvort tveggja. Áætl-
aður heildarkostnaður við þær er
um 600 milljónir króna en fram-
kvæmdirnar sem nú standa yfir
kosta einnig um 600 milljónir króna.
Ráðist að upptakasvæðum
„Á Seyðisfirði voru fyrirhugaðar
miklar aðgerðir árið 1998. Þeim var
frestað þar sem mikil óánægja var
meðal íbúa bæjarins. Gerð voru
drög að heldur stórum mannvirkjum
sem hefðu verið alveg á milli
húsanna og kostnaður var kominn
langt fram úr áætlun. Lagt var til að
ráðist yrði að upptakasvæðum snjó-
flóðanna til að koma í veg fyrir að
þau færu af stað,“ sagði Ólafur Sig-
urðsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðar.
„Það er búið að hafa eftirlit með
efri hluta Bjólfsins í tvö til þrjú ár
núna og menn sjá að best væri að
setja þvergarð þar til að stöðva snjó-
flóðin. Það er alveg ljóst að ef stór
flóð féllu úr efsta hluta fjallsins
myndu engar varnir sem væru niðri
við bæinn halda þeim.“ Kostnaður-
inn við þvergarðinn yrði um 100 til
120 millljónir. Hægt er að huga að
frekara framhaldi eftir að þessum
framkvæmdum verður lokið.
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri
Bolungarvíkur segir að nánast hafi
verið lokið við hönnun þvergarðaog
leiðigarða sem rísa munu þar. Ljóst
sé hins vegar að sjö hús séu í vegi
framkvæmdanna og eru samninga-
viðræður núna í gangi við íbúa
húsanna. Töf hefur orðið vegna þess
en ekki er hægt að bjóða verkið út
fyrr en samkomulag hefur náðst við
húseigendur. Kostnaður við fram-
kvæmdirnar eru 400 milljónir króna.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist á
næsta ári.
Ofanflóðasjóður
Með færslu snjóflóðavarna yfir til
umhverfisráðuneytisins um áramót-
in 1995–1996 hefur ofanflóðasjóður
verið stórlega efldur. Snjóflóðaeft-
irlitskerfi var byggt upp frá grunni,
nákvæm stafræn kort hafa verið
gerð af fjöllunum ofan þeirra
byggða sem búa við ógn af flóðum,
rýmingaráætlanir hafa verið gerðar
og átak hefur verið gert í rannsókn-
um og þróun varðandi gerð hættu-
mats. Áætlað er á næstu tveim árum
að ljúka hættumati fyrir alla þétt-
býlisstaði þar sem hætta er á of-
anflóðum.
Ofanflóðasjóður tekur þátt í og
styður ýmsar rannsóknir sem tengj-
ast málaflokknum.
Samkvæmt framkvæmdaráætlun
sjóðsins er stefnt að því að ljúka
brýnustu aðgerðum fyrir árið 2010
og er nú ýmist unnið að undirbún-
ingi margvíslegra aðgerða eða fram-
kvæmd þeirra víðs vegar um land.
Samkvæmt áætluninni er gert ráð
fyrir því að heildarkostnaður að-
gerða til að tryggja öryggi fólks
nemi um 8 milljörðum króna. Und-
irbúningur og framkvæmdir hafa
verið í gangi síðan 1996 eða eftir fall
stóru flóðanna á Vestfjörðum.
Brýnustu aðgerðum í snjóflóða-
vörnum verði lokið árið 2010
Þvergarður í Bjólf-
inum og húsakaup
í Bolungarvík
1 41- - .
-./-!**'
*-
+--
! " # "$ %&&%
+--
'--
' ()
"*'--
+(- , '
#
(--
%& ! *
**-
%)-
. '/
+)--
# "$ %&&%
0!%--