Morgunblaðið - 15.07.2001, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 15.07.2001, Qupperneq 31
knúna til að gera það sama. Ljóst er að Sjónvarpið hefur yf- irburði hvað áhorf varðar, 93% landsmanna segjast horfa á Sjón- varpið í viku hverri samkvæmt dag- bókarkönnun Gallup frá því í mars 2001. Þessi stærð er óþekkt erlend- is og hér er að öllum líkindum um ,,áhorfsheimsmet“ að ræða. Áhorf á Sjónvarpið hefur ekki minnkað marktækt hvað þennan mælikvarða varðar (e. reach) eftir að sam- keppni hófst árið 1986. Hvað áhorfshlutdeild varðar hefur Sjón- varpið alla tíð haft yfirhöndina. Þetta er einsdæmi í heiminum þar sem ríkisstöðvar hafa undantekn- ingalaust misst áhorf við tilkomu einkastöðva og á flestum mörkuð- um orðið undir í áhorfshlutdeild. Auðvelt er að færa rök fyrir því að Ríksútvarpið sé svo til eitt um það að leggja rækt við íslenska tungu, sinna menningarefni og öðru efni af því tagi sem flokkast undir sértækt efni. Ekki verður séð að einkastöðvarnar hér á landi sinni þessum málflokkum að neinu ráði. McKinsey kemst að því að þessi dagskrárstefna (blanda af afþrey- ingarefni og sértæku efni) sé sá kostur sem er hvað vænlegastur til árangurs í því nýja umhverfi sem hefur skapast við aukna sam- keppni. Þetta er áhugaverð niður- staða þar sem einkastöðvar á Ís- landi hafa stundum gangrýnt dagskrárstefnu Sjónvarpsins og gert tilkall til þess að Sjónvarpið sendi ekki út afþreyingarefni. Ástæðan fyrir þessari gagnrýni er sú að afþreyingarefni er líklegast til að falla að smekk flestra áhorf- enda (mikið áhorf) og þar með aug- lýsenda. Þessi gagnrýni er þess vegna lituð af fjárhagslegum hags- munum einkamiðlanna og verður því að skoðast í því ljósi. Meginniðurstaða McKinsey- hópsins er að ríkisstöð eigi að stefna að mikilli markaðshlutdeild í áhorfi með afþreyingarefni, án þess þó að vanrækja þær menningarlegu skyldur sem til hennar eru gerðar. Spurningin er hvort Sjónvarpinu hefur tekist að rata hinn gullna meðalveg í því sambandi. Margt bendir til þess að svo sé. Höfundur er forstöðumaður markaðssviðs RÚV. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 31 Í VOR samþykkti Alþingi breyt- ingar á lögum um tóbaksvarnir. Meginmarkmið breytinganna var að fylgja eftir þróun sem hefur átt sér stað víðast hvar á Vesturlöndum og miðar að því að takmarka tóbaks- neyslu eins og kostur er. Á sama tíma og heilbrigðis- og trygginga- nefnd Alþingis fjallaði um málið var til meðferðar hjá nefndinni tillaga til þingsályktunar um heilbrigð- isáætlun til ársins 2010. Reykingar eru ýmist stór eða stærsti áhættu- þáttur margra sjúkdóma sem áætl- unin setur í forgang að draga úr. Ég ætla að það teldist tvískinnung- ur hjá þingmönnum að afgreiða heilbrigðisáætlunina, en láta hjá líða að herða samhliða aðgerðir til að draga úr eftirspurn og neyslu tób- aks. Nokkuð hefur verið deilt á efni þeirra breytinga sem gerðar voru og hefur sú umfjöllun verið til þess fallin að valda nokkrum misskiln- ingi, sem vert er að leiðrétta. Réttur til reyklauss andrúmslofts Því hefur verið haldið fram að nú sé foreldrum óheimilt að reykja á heimilum sínum í nálægð barna. Þetta er ekki rétt. Ekkert slíkt bann hefur verið innleitt. Á hinn bóginn er í lögunum það nýmæli að rétturinn til reyklauss andrúmslofts er viðurkenndur. Þar segir: „Virða skal rétt hvers manns til að þurfa ekki að anda að sér lofti sem er mengað tóbaksreyk af völdum ann- arra.“ Þá segir að þeir sem beri ábyrgð á barni „skuli stuðla að því“ að það fái notið réttar síns að þessu leyti, einnig þar sem reykingar eru ekki bannaðar. Með þessum orðum er fyrst og fremst áréttað að for- eldrar og aðrir forráðamenn bera í krafti forsjár sinnar ábyrgð á vel- ferð barns í þessu tilliti og eiga að standa vörð um réttindi þess og hagsmuni. Bann við tóbaksauglýsingum Í ljósi þess heilsutjóns sem tób- aksneysla veldur og gífurlegra út- gjalda sem heilbrigðiskerfið verður fyrir vegna hennar, kemur ekki á óvart þó að sífellt fleiri hreyfi þeirri skoðun að banna beri sölu og notk- un tóbaks líkt og annarra eiturlyfja. Ljóst er að ef tóbak væri ný vara þá yrði það umsvifalaust flokkað með öðrum eitur- og fíkniefnum og það bannað. Fyrir því að varan er leyfð og ekki þykir fært að banna hana eru fyrst og fremst sögulegar og menningarlegar ástæður. Þess í stað hefur sú leið verið farin að þrengja aðgang að tóbaki og leitast við að takmarka neyslu þess með öllum tiltækum og lögmætum ráð- um. Liður í þessu er auglýsinga- bann á tóbaki. Bannið er að finna í 7. gr. tóbaksvarnalaganna og felur í sér víðtæka skilgreiningu á því hvað teljist auglýsing í skilningi laganna og er henni sérstaklega beint gegn því sem kallað hefur verið óbeinar eða dulbúnar auglýsingar. Rétt er að minna á að víðtækt auglýsinga- bann hefur lengi verið í tóbaks- varnalögum og nú í vor voru aðeins gerðar smávægilegar orðalags- breytingar hvað það snertir. Í stað orðalagsins sem bannaði: „hvers konar umfjöllun í fjölmiðlum um einstakar vörutegundir nema ljóst sé að hún miði beinlínis að því að koma á framfæri upplýsingum sem draga úr skaðsemi tóbaksneyslu“ kom orðalagið: „hvers konar um- fjöllun í fjölmiðlum um einstakar vörutegundir til annars en að vara sérstaklega við skaðsemi þeirra“. Tálmanir á tjáningarfrelsi – ritskoðun Mikið hefur verið fjallað um þetta ákvæði laganna og hefur verið látið að því liggja að lagagreinin fæli í sér ritskoðun eða aðra ólögmæta skerðingu á stjórnarskrárvörðu tjáningarfrelsi. Af þessu tilefni er ástæða til að rekja í fáum orðum hvað felst í ákvæði 73. gr. stjórn- arskrárinnar um tjáningarfrelsi og hvaða heimildir löggjafinn hefur til að setja skorður við því. Segja má að ákvæði 73. gr. stjórnarskrár- innar sé fjórþætt. Í fyrsta lagi kveður greinin á um að allir menn skuli vera frjáls- ir skoðana sinna og sannfæringar. Í öðru lagi verndar ákvæðið rétt manna til „að láta í ljósi hugs- anir sínar“. Í þessum rétti er fólgið hið eig- inlega tjáningarfrelsi. Frelsi til skoðana og sannfæringar eru mik- ilsverð réttindi en væru þó verulegum takmörkunum háð ef tjáningarfrelsi væri ekki til staðar. Í ákvæðinu seg- ir jafnframt að menn séu skyldugir til að ábyrgjast það sem frá þeim hefur farið fyrir dómi og gefur þessi fyrirvari á tjáningarfrelsinu skýrt til kynna að réttur manna í þessum efnum sé ekki ótakmarkaður. Í þriðja lagi leggur ákvæðið for- takslaust bann við ritskoðun og öðr- um sambærilegum tálmunum á tjáningarfrelsi. Með ritskoðun er átt við skoðun á rituðu eða uppteknu efni til úrlausnar á því hvort það megi birta. Með orðunum sambæri- legum tálmunum í ákvæðinu er átt við hverjar aðrar þær hindranir sem ætlað er að koma í veg fyrir það fyrirfram að ritað eða talað mál sé birt. Ritskoðun er sú skerðing á tjáningarfrelsi sem lengst gengur og er kveðið á um það í ákvæðinu að slíka tálmun eða aðrar sambæri- legar megi „aldrei í lög leiða“. Það ákvæði tóbaksvarnalaga sem hér er til umfjöllunar felur ekki í sér rit- skoðun eða aðra sambærilega tálm- un í skilningi 73. gr. stjórnarskrár- innar. Engin fyrirfram hindrun er fólgin í reglu laganna heldur leggur ákvæðið aðeins ábyrgð á þann sem þrátt fyrir ákvæðið kýs að birta um- fjöllun sem reynist brjóta í bága við það. Í fjórða lagi kveður ákvæðið á um heimildir löggjafans til þess að setja tjáningarfrelsinu skorður með lögum, þó aðeins í þágu eftirtalinna markmiða, „allsherjarreglu eða ör- yggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra“ og síðan segir: „enda teljist þær nauð- synlegar og samrýmist lýðræðis- hefðum“. Af þessu sést að þótt tján- ingarfrelsið teljist til grund- vallarmannréttinda og sé viður- kennt sem ein meginstoð lýð- ræðislegs samfélags hefur stjórn- arskrárgjafinn, þ.e. fólkið í landinu og Alþingi, talið réttlætanlegt að heimila tilteknar takmarkanir á þessu frelsi til að ná markmiðum sem talin eru vega þyngra en óskor- aður réttur fólks til að tjá sig. Á þessum grundvelli hefur löggjafinn sett ýmsar skorður við tjáningar- frelsi landsmanna. Má þar nefna ákvæði almennra hegningarlaga um landráð, sem sækja stoð sína í markmiðið um öryggi ríkisins, og bann við klámi sem sækir stoð sína í markmiðið að vernda siðgæði manna. Einnig má nefna meiðyrða- löggjöfina, sbr. markmiðið að vernda mannorð manna. Bann við tóbaksauglýsingum sækir stoð sína í markmiðið um að vernda heilsu manna en í sama flokk falla t.d. lagaákvæði um bann við áfengisaug- lýsingum og lyfjaauglýsingum. Af þessu má sjá að auglýsinga- bann tóbaksvarnalaga stefnir að lögmætu markmiði skv. stjórnar- skránni, en að fleiru þarf að huga. Skilyrði fyrir takmörkunum 73. gr. stjórnarskrárinnar setur þrjú skilyrði sem verða að vera upp- fyllt til að takmörkun á tjáningarfrelsi geti staðist. Í fyrsta lagi verður takmörkunin að vera lögmælt, þ.e. heimildin til hennar verður að vera í settum lögum, gerð „með lög- um“, takmörkun þarf að sækja stoð sína til þeirra markmiða sem þar eru tilgreind, og fjallað var um í fyrri grein minni, og loks þarf hún að vera nauð- synleg og samræmast lýðræðishefðum, en í því felst jafnframt að hún má ekki ganga lengra en nauðsyn krefur. Það er ljóst að hið umdeilda ákvæði tóbaksvarnalaga uppfyllir fyrsta og annað skilyrðið, þ.e. tak- mörkunin sem ákvæðið felur í sér er lögmælt og ákvæðið er sett til að vernda heilsu manna, ekki hvað síst heilsu barna og unglinga. Þriðja skilyrðið um að takmörkunin sé nauðsynleg og gangi ekki lengra en nauðsynlegt er til að ná því mark- miði sem stefnt er að er mun mats- kenndara skilyrði en hin tvö og ekki óeðlilegt að umræða skapist um það hvort of langt hafi verið gengið í einstökum tilvikum. Hins vegar ber að forðast óupplýsta umræðu sem einkum byggist á sleggjudómum og illa ígrunduðum staðhæfingum og er í því sambandi vísað til fullyrð- inga þeirra sem hafa haldið því á lofti að Alþingi hafi með því að sam- þykkja hið víðtæka auglýsingabann innleitt ritskoðun eða aðra sam- bærilega tálmun á tjáningarfrelsi landsmanna, því fer fjarri. Það sem umræðan á að snúast um er hvort nauðsynlegt hafi verið að ganga eins langt og gert var og hvaða sjónarmið eigi að leggja til grund- vallar við mat á þeirri nauðsyn. Mat löggjafans liggur fyrir, hann telur nauðsynlegt að í gildi sé víðtækt auglýsingabann á tóbaki. Endanlegt úrskurðarvald og mat á þessu er hins vegar í höndum dómstóla, komi málið til kasta þeirra. Við mat á því hversu langt má ganga skipta þeir hagsmunir sem í húfi eru miklu máli. Ef hagsmun- irnir eru miklir getur reynst nauð- synlegt að ganga lengra en þegar um litla hagsmuni er að ræða. Það er óumdeilt að það er gríðarlegt hagsmunamál bæði fyrir einstak- lingana og þjóðfélagið í heild að það takist að draga úr tóbaksneyslu og þeim afleiðingum sem hún veldur. Óbeinar auglýsingar Segja má að hæstaréttardómur frá árinu 1987 (H. 1987:394) hafi sýnt fram á nauðsyn þess að skerpa ákvæði um bann við auglýsingum. Í því máli var ábyrgðarmaður tíma- rits ákærður fyrir að brjóta bann þágildandi laga við tóbaksauglýs- ingum með umfjöllun um nokkrar sígarettutegundir og samanburði á verði þeirra. Hann var dæmdur til refsingar í héraði og í dómnum seg- ir m.a.: „Svo sem nú hefur verið rakið er tilgangur auglýsingabanns- ins sá að sporna við útbreiðslu tób- aksnotkunar og draga á þann hátt úr líkum á sjúkdómum og ótíma- bærum dauðsföllum sem kynni að mega rekja til hennar. Fortakslaust bann við prentun og útgáfu auglýs- inga eða annarrar nánar skil- greindrar umfjöllunar um tilteknar vörutegundir í þessu skyni verður samkvæmt framansögðu ekki talið stríða gegn ákvæðum 72. gr. stjórn- arskrárinnar.“ (Nú 73. gr.) Hæsti- réttur tók ekki afstöðu til þess hvort ákvæði tóbaksvarnalaga færi í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsi. Minni hluti hæstaréttar, tveir dómarar, skilaði sératkvæði og staðfesti héraðsdóm- inn, en með dómi meiri hluta rétt- arins var ákærði sýknaður einfald- lega með þeim rökum að umfjöllunin í tímariti hans teldist ekki auglýsing í skilningi tóbaks- varnalaga. Af niðurstöðu meiri hluta Hæsta- réttar í þessu máli má álykta að ef ætlunin er að framfylgja auglýs- ingabanni á tóbaki sem taki bæði til beinna og óbeinna auglýsinga þá sé orðalag auglýsingabannsins í nú- gildandi lögum nauðsynlegt og jafn- framt réttlætanlegt með vísan til þeirra ríku og óumdeildu hagsmuna sem verið er að vernda. Sú stað- reynd að tóbaksneysla er sá ein- staki áhættuþáttur sem talinn er valda mestu og víðtækustu heilsu- tjóni hefur verið talin fullnægjandi röksemd fyrir því víðtæka auglýs- ingabanni sem tóbaksvarnalögin kveða á um og ákvæðið þannig talið uppfylla þau skilyrði sem sett eru fyrir skerðingu tjáningarfrelsisins og rakin voru hér að framan. Áfram heimilt að segja frá reynslu sinni Fyrir nokkru gat að lesa hér í blaðinu reynslusögur tveggja þjóð- þekktra og málsmetandi manna af tóbaksnotkun. Grein annars þeirra sérstaklega bar vott um mjög djúp- stæða og ríka reynslu sem og góða yfirsýn og þekkingu á mismunandi vörumerkjum. Hinn bað, í niðurlagi frásagnar af reynslu sinni, um birt- ingu greinarinnar fyrir 1. ágúst, þ.e. gildistökudag nýju laganna. Vegna þessara skrifa finnst mér rétt að endingu að árétta tvennt í þessu sambandi. Annars vegar að frá 1. júlí 1996 hefur verið óheimilt að nefna einstakar vörutegundir tób- aks á nafn í fjölmiðlum nema bein- línis hafi verið miðað að því að koma á framfæri upplýsingum sem draga úr skaðsemi tóbaks og hins vegar að eftir 1. ágúst, líkt og áður, verður heimilt að fjalla almennt um tóbak í fjölmiðlum. Þannig geta herra- mennirnir tveir eins og allir aðrir skrifað greinar og sagt öðrum frá reynslu sinni, skoðunum og sann- færingu, mært tóbaksnotkun ef þeir vilja og haldið því fram ef þá langar að tóbaksreykingar séu hollar og allra meina bót. Vegna ályktunar stjórnar Blaðamannafélags Íslands frá 18. maí sl. og kröfu þess um að bannið við tóbaksauglýsingum verði afnumið úr tóbaksvarnalögum af því að það stríði gegn „prent- og rit- frelsi“ í landinu, finnst mér jafn- framt rétt að árétta að það sama á við um almennar fréttatilkynningar, þær eru heimilar bæði fyrir og eftir 1. ágúst nk. Slík umfjöllun er heimil jafnvel þótt hún geti virkað hvetj- andi til tóbaksneyslu, s.s. fréttir um rannsóknir sem þættu sýna fram á að tóbaksreykingar séu ekki eins skaðlegar og haldið hefur verið fram. Það er einungis bannað að fjalla um einstakar vörutegundir tóbaks. Með öðrum orðum, almenn umfjöllun í fjölmiðlum telst ekki auglýsing í skilningi tóbaksvarna- laga nema einstakra vörutegunda, þ.e. vörumerkja, sé getið. UM TÓBAKSVARNIR OG AUGLÝSINGAR Jónína Bjartmarz Meginmarkmið breyt- inganna var að fylgja eftir þróun sem hefur átt sér stað víðast hvar á Vesturlöndum, segir Jónína Bjartmarz, og miðar að því að tak- marka tóbaksneyslu eins og kostur er. Höfundur er alþingismaður og formaður heilbrigðis- og trygginganefndar. hættu og jafnvel ógæfu. Ég vil gjarn- an sjá húsbréfakerfið færast til bankanna sem sjálfir myndu annast greiðslumat, en Íbúðalánasjóður fengi það hlutverk, líkt og norski Húsbankinn, að lána með hóflegum kjörum fé til byggingar leiguíbúða og félagslegra íbúða. Öfugt við það sem margir virðast halda er séreign- arstefna einsog hér fyrst og fremst einkenni fátækra þjóða. Í fátækra- hverfum heimsins á fólkið skúrana sína sjálft. Fátækrahverfi verða til þarsem félagslegt skipulag skortir. Ég vildi ekki sjá það hér sem sums staðar sést, að ríka fólkið búi í dýrum leiguíbúðum við miðbæinn en þeir fátækari í óseljanlegum eignaríbúð- um úthverfanna. Almennur leigu- markaður mun koma hér fyrr eða síðar. Spurningin er aðeins hvernig að því verður staðið. Það yrði mikil hagsbót fyrir alla ef ekki þarf að fjármagna hverja íbúð nema einu sinni og fólkið geti þá greitt sinn húsnæðiskostnað með einu mánaðargjaldi, í stað þess að taka lán, greiða vexti, verðbætur, skatta, fasteignagjöld og þurfa sjálft að sinna öllu viðhaldi – og missa svo ef til vill íbúðina útaf einhverju allt öðru, t.d. ábyrgðum fyrir aðra. Það þarf öðruvísi hugsun varðandi hús- næðismál í þéttbýli einsog hér en í dreifbýli sveita og þorpa. Með lögum um Íbúðalánasjóð var opnað fyrir lánveitingar til leiguíbúða. Spurn- ingin er því um lánskostnað og lóðir. Mín ábending er fyrst og fremst þessi: Við viljum heimili í stað hús- eignar. Við verðum að leysa þörf heimilanna fyrir öruggan samastað í tilverunni. Um það ættum við að vera sammála og sameinast um leiðir að markmiðinu. Höfundur er formaður Leigjendasamtakanna og kennir sig við Pálmholt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.