Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 44

Morgunblaðið - 15.07.2001, Side 44
DAGBÓK 44 SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn Í dag er væntanlegt Meteor og farþegaskipin Col- umbus og Maxim Gork- iy sem fara aftur út ásamt Quest. Á morgun eru væntanleg Arkona og Saga Rose. Viðeyjarferjan. Tíma- áætlun Viðeyjarferju: Mánudaga til föstudaga: til Viðeyjar kl. 13, kl. 14 og kl. 15, frá Viðey kl. 15.30 og kl. 16.30. Laug- ardaga og sunnudaga: Fyrsta ferð til Viðeyjar kl. 13 síðan á klukku- stundar fresti til kl. 17, frá Viðey kl. 13.30 og síðan á klukkustundar fresti til kl. 17.30. Kvöldferðir eru föstu- og laugardaga.: til Við- eyjar kl. 19, kl. 19.30 og kl. 20, frá Viðey kl. 22, kl. 23 og kl. 24. Sérferðir fyrir hópa eftir sam- komulagi. Viðeyjarferj- an, sími 892 0099. Lundeyjarferðir dag- lega, brottför frá Við- eyjarferju kl.10.30 og kl. 16.45, með viðkomu í Viðey u.þ.b. 2 klst. sími: 892-0099. Mannamót Aflagrandi 40 og Hraunbær 105. Sumar- ferð verður farin á Nesjavelli miðvikudag- inn 18. júlí. Lagt af stað frá Aflagranda 40 kl. 13 og frá Hraunbæ 105 kl. 13.30. Ekið um Línuveg til Nesjavalla og skoð- unnarferð um stöðina. Kaffihlaðborð í boði Orkuveitu Reykjavíkur. Komið við á Ljósafossi og þar skoðuð útskurð- arsýning á vegum Þjóð- minjasafns Íslands. Til baka um Grafning og Mosfellsheiði. Síðasti skrásetningardagur mánudaginn 16. júlí. Í Aflagranda í síma 562- 2571 og í Hraunbæ í síma 587-2888. Norðurbrún 1, Furu- gerði 1 og Hæðargarð- ur 31. Fimmtudaginn 19. júlí verður farið í ferð á Þingvelli og Laugarvatn. Ekið verð- ur um línuveg og Grafn- ing til Þingvalla. Þaðan verður farið að Laugar- vatni þar sem drukkið verður kaffi á veitinga- húsinu Lindinni. Til baka verður farið um Grímsnes og Hellis- heiði. Leiðsögumaður Anna Þrúður Þorkels- dóttir. Lagt verður af stað frá Norðurbrún 1 kl. 12.30 og síðan verða teknir farþegar í Furu- gerði og Hæðargerði. Skráning í Norðurbrún 568-6960, í Furugerði 553-6040 og Hæðar- garði 568-3132. Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 10 boccia, kl. 14 félagsvist, kl. 12.30 bað- þjónusta. Árskógar 4. Á morgun kl. 9-12 opin handa- vinnustofan, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30-16.30 opin smíða- stofan/útskurður, kl. 13.30 félagsvist, kl. 10- 16 púttvöllurinn opinn. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9-16 almenn handavinna, kl. 9.30-11 morgunkaffi/dagblöð, kl. 10 samverustund, kl. 11.15 matur, kl. 15 kaffi. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Fótaaðgerðir mánud og fimmtud. Uppl. í síma 565-6775. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.3018, s.: 554 1226. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað- gerð, kl. 9.30 hjúkrun- arfræðingur á staðnum, kl. 10 verslunin opin, kl. 11.20 leikfimi, kl. 11.30 matur, kl. 13 handa- vinna og föndur, kl. 15 kaffiveitingar. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9 böðun og hárgreiðslu- stofan opin. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Púttæfingar á Hrafn- istuvelli þriðjudaginn kl. 14 til 16.00. Orlofið í Hótel Reykholti í Borg- arfirði 26.-31. ágúst nk. Skráning og allar upp- lýsingar í símum ferða- nefndar 555-0416, 565- 0941,565-0005 og 555- 1703 panta þarf fyrir 1. ágúst. Félagsheimilið Hraunsel verður lokað vegna sumarleyfa starfsfólks til 12. ágúst. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl. 10.00-13.00. Matur í hádeginu. Sunnudagur: Dansleikur kl. 20.00 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13.00. Mið- vikudagur: Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Eigum tvö sæti laus vegna forfalla í 6 daga ferð um Eyja- fjörð-Skagafjörð og Þingeyjarsýslur. 26. -31. júlí. Ákveðið hefur verið að fara aðra hringferð um Norð- austurland 20. ágúst nk.vegna mikilla eftir- spurnar, ef næg þátt- taka verður. Þeir sem hafa skráð sig á biðlista eru vinsamlegast beðn- ir að hafa samband við skrifstofu FEB. Silfur- línan er opin á mánu- dögum og miðvikudög- um frá kl. 10.00 til 12.00 f.h. í síma 588-2111. Upplýsingar á skrif- stofu FEB kl. 10.00 til 16.00 í síma 588-2111. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun. Sund- og leikfimiæfingar á veg- um ÍTR í Breiðholts- laug á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 9.30. Púttvöllurinn er opinn virka daga kl. 9–18, kylfur og boltar til leigu í afgreiðslu sundlaugar- innar. Allir velkomnir. Veitingabúð Gerðu- bergs er opin mánudaga til föstudaga kl. 10-16. Félagsstarfið lokað vegna sumarleyfa frá 2. júlí-14. ágúst. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Á morgun kl. 9-11 morgunkaffi, kl. 9- 12 hárgreiðsla, kl. 11.30- 13 hádegisverður, kl. 14 félagsvist, kl. 15-16 eft- irmiðdagskaffi. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun er handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum frá kl. 9.30-12. Þjóðdansa- sýning norrænna ung- menna í Gjábakka föstud. 20. júlí kl. 15. Aðgangur öllum opinn án endurgjalds. Vöfflu- kaffi selt í Gjábakka. Gullsmári. Lokað vegna sumarleyfa til 7. ágúst. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 10 bænastund, kl. 13 hárgreiðsla, kl. 13.30 til 14.30 gönguferð. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, kl. 13 spil- að. Norðurbrún 1. Fótaað- gerðarstofan lokuð 16.- 20. júlí. Vinnustofur lok- aðar í júlí vegna sumar- leyfa. Bókasafnið opið kl. 12-15, ganga kl. 10. Vesturgata 7. Á morg- un kl. 9 dagblöð og kaffi, fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15 almenn handavinna, kl. 10- 11 boccia, , kl. 11.45 matur, kl. 14.30 kaffi. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smiðjan og hár- greiðsla, morgunstund og almenn handmennt, kl. 10 fótaaðgerðir, kl. 11.45 matur, kl. 13 leik- fimi og frjáls spil, kl. 14.30 kaffi. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu. Skrifstofan lokuð vegna sumarleyfa frá 16. júlí til 7. ágúst. Sumarleyfisferð Úti- vistar 21.-25. júlí (5 dag- ar) Sprengisandur- Norðurland-Grímsey. Ný öku- og skoðunar- ferð, hálendisleiðir, eyðibyggð, eyjar o.fl. Ferð við allra hæfi. Far- arstjóri: Anna Soffía Óskarsdóttir. Uppl. á skrifstofunni að Hall- veigarstíg 1, sími: 561- 4330. GA-fundir spilafíkla, eru kl. 18.15 á mánudög- um í Seltjarnarnes- kirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁA Síðu- múla 3-5 og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laugar- dögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis eru með fundi alla mánu- daga kl. 20 á Sólvalla- götu 12, Reykjavík. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Brúðubíllinn Brúðubíllinn, verður á morgun kl. 10 við Arn- arbakka. Í dag er sunnudagur 15. júlí, 196. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma. (Mark. 10,15.) MIKIÐ er ég óánægð með störf áreitinefndar Félags- þjónustunnar í Reykjavík. Ég leitaði til hennar eftir að hafa lent í einelti á vinnu- stað af yfirmanni mínum þau tvö ár, sem ég starfaði þar. Ég lagði öll mín mál fram tvisvar sinnum á fundum með þremur per- sónum, sem hlustuðu á mál mitt. Mér líður það illa, að ég er ekki tilbúin að sækja um nýtt starf. Ég hélt ég mundi fá aðstoð áreiti- nefndar og að ég gæti litið í spegil og sagt: „Ég hef ekki gert neitt ljótt af mér.“ En ég sit ennþá með sektar- kennd um að ég sé ómögu- leg manneskja, því aldrei heyrði ég frá áreitinefnd meir. Ég vona að þeir sem lenda í sams konar erfið- leikum, séu duglegri en ég. Þetta er slæm líðan, svo ekki sé meira sagt. Kona. Ávísanir eru líka peningar HINN 5. júlí sl. fór tengda- móðir mín í Vero Moda í Kringlunni til þess að sækja fyrir mig bol sem ég hafði látið taka frá fyrir mig. Þegar að greiðslu kom, rétti hún fram ávísun að upphæð 1.390 krónur, sem ég hafði skrifað með tilheyrandi tékkaábyrgðar- númeri. Afgreiðslustúlkan heimtaði þá að fá að sjá skilríki hennar, svo hún hefði eitthvað í höndunum reyndist ekki innstæða fyr- ir ávísuninni. Skelkuð rétti tengdamóðir mín fram veskið sitt með Visa-korti í og hóf þá stúlkan að skrifa niður númerið á kortinu. Þegar tengdamóðir mín spurði hana hvað hún væri eiginlega að gera, sagðist hún vera að afla sér trygg- ingar ef ske kynni að ávís- unin væri fölsuð eða inn- stæðulaus. Tengdamóðir mín heimtaði þá að stúlkan strikaði yfir númerið, enda ekki nokkur fótur fyrir því að hún gengi í ábyrgð fyrir því ef að ég væri að stunda ávísanafals. Eftir nokkurt orðahrak strikaði afreiðslu- stúlkan yfir númerið hneyksluð yfir framferði tengdamóður minnar. Ég vil með þessu bréfi mínu benda þessari ágætu stúlku og hennar yfirmönn- um á það að Íslandsbanki ábyrgist allar ávísanir und- ir 10.000 krónum sé tékka- ábyrgðarnúmeri framvísað. Ég vil líka benda henni á það að ávísanir eru ennþá peningar og var ávísunin fyllt út eftir reglum bank- ans samviskusamlega með tilheyrandi tékkaábyrgðar- númeri. Svona framkoma er henni og Vero Moda versluninni til háborinnar skammar svo ekki sé minnst á upphæðina sem hún var að tryggja að yrði ekki stolið af sér. Þetta fólk ætti að kynna sér betur reglur bankanna um ávís- anir. Virðingarfyllst, Kristín Björg Einars- dóttir Laufrima 6, 112 Reykjavík. Um vísnaþætti VÍSNAKLAMBRARI vestan úr Ísafjarðardjúpi vann sér það helst til frægðar í febrúar sl. að fá birtar í Morgunblaðinu níð- vísur, einkum um forsætis- ráðherrann. Nú er hann enn á ferð- inni, enda telur hann sig hafa fengið mikla hvatn- ingu símleiðis, sennilega frá rauðum og róttækum, því hann tekur upp hansk- ann fyrir vinstrigræna, sem veita m.a. gömlum og eld- rauðum stalínistum húsa- skjól um þessar mundir. Það væri vissulega vel til fundið að Morgunblaðið birti öðru hvoru vel orta vísnaþætti. Hins vegar eiga níð og illkvittni ekkert er- indi í slíka þætti. Vísnavinur. Dýrahald Kettlingar fást gefins ÞRÍR kassavanir sjö vikna kettlingar fást gefins á góð heimili. Upplýsingar í síma 862 6709. Pésa vantar heimili PÉSI er ársgamall brönd- óttur fress. Hann er hálfur skógarköttur, mjög falleg- ur. Pési er geltur. Hann fæst gefins á gott heimili vegna ofnæmis. Upplýsing- ar í síma 899 8767. Kannast einhver við kisuna? ÞESSI læða fannst um miðnætti 3. júlí sl. á brúnni á Miklubraut og Snorra- braut. Hún er mjög sérstök á litin og hún er ómerkt. Ef einhver veit hvar hún á heima, vinsamlegast hafið samband í síma 551 0539 eða við Kattholt, sími 567 2909. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Um einelti 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 örþunn, 8 rúmið, 9 koma á ringulreið, 10 elska, 11 hreinar, 13 eld- stæði, 15 fugls, 18 baslar við, 21 gerist oft, 22 lag- legur, 23 endurtekið, 24 land. LÓÐRÉTT: 2 telur, 3 dysjar, 4 þjón- ustustúlka, 5 blökkumað- ur, 6 viðauki, 7 heimili, 12 sár, 14 rödd, 15 róa, 16 votur, 17 dreng, 18 stétt, 19 dáin, 20 lítilfjörlega. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 karms, 4 gusan, 7 ljúka, 8 ófátt, 9 rif, 11 afar, 13 ýsur, 14 ofnar, 15 fork, 17 afls, 20 err, 22 lútan, 23 eit- ur, 24 narra, 25 meina. Lóðrétt: 1 kelda, 2 rjúpa, 3 skar, 4 gróf, 5 stáss, 6 nætur, 10 innir, 12 rok, 13 ýra, 15 fýlan, 16 ritar, 18 fatli, 19 syrpa, 20 enda, 21 reim. K r o s s g á t a Víkverji skrifar... LÖNGU, mjóu franskbrauðin semFrakkar kalla baguettes hafa lengi verið í uppáhaldi hjá Víkverja. Hann gladdist því mjög þegar þau fóru að fást hérlendis. Bakarar Hag- kaupa hafa lengi boðið upp á góð baguette, en nú bregður svo við að þau hafa minnkað, þó enn sé boðið upp á „gamla, góða verðið“. Hvers vegna skyldu brauðin góðu hafa minnkað að umfangi? x x x VÍKVERJI leyfir sér enn einusinni að hvetja forráðamenn sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar að bjóða áskrifendum stöðvarinnar upp á fleiri leiki frá spænsku deildar- keppninni í knattspyrnu næsta vet- ur. Varla hægt að bjóða betri skemmtun. Besti knattspyrnumaður heims að margra mati, Frakkinn Zinedine Zidane, fór á dögunum frá Juventus á Ítalíu til Real Madrid á Spáni og vakti það mikla athygli, enda greiddi Real meira fyrir hann en nokkru sinni áður hefur verið greitt fyrir knattspyrnumann; andvirði rúmlega 6,6 milljarða íslenskra króna. Fyrir réttu ári keypti sama lið portúgalska snillinginn Luis Figo frá erkifjend- unum í Barcelona á rúmega 5 millj- arða! Ótrúlegt en satt. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu næsta vor verður 15. maí á Hampden Park í Glasgow, þar sem frægasti Evrópuúrslitaleikur sög- unnar fór fram 18. maí 1960, þegar Real Madrid sigraði Eintracht Frankfurt 7:3. Þá skoraði ungverski galdramaðurinn Ferenc Puskas fjögur mörk fyrir Real og argent- ínski snillingurinn Alfredo di Stefano þrjú, en hann er nú heiðursforseti Madrídarliðsins. Í höfuðborg Spánar gælir fólk nú við að Zidane og Figo geri fyrir Real það sem Puskas og di Stefano gerðu á árum áður. x x x VIÐSKIPTAVINIR Amazon-netbókaverslunarinnar í Bandaríkjunum eru hrifnir af verk- um Halldórs Laxness, ef marka má upplýsingar sem fram koma á heima- síðu verslunarinnar á Netinu. Vík- verji undrast þetta vitaskuld ekki, en hefur alltaf jafngaman af því að fylgjast með hvernig útlendingar taka verkum skáldsins og annarra ís- lenskra rithöfunda. Á Amazon-síðunni getur fólk skrifað ritdóma um bækur og gefið þeim einkunnir. Sem dæmi má nefna að „meðaleinkunn“ lesenda um Sjálf- stætt fólk er fjórar og hálf stjarna af fimm mögulegum. Samsvarandi ein- kunn um Atómstöðina eru fjórar stjörnur en skv. þessari könnun er Salka Valka í mestum metum verka meistarans þar vestra. Meðalein- kunn hennar er hvorki meira né minna en fimm stjörnur. x x x VELGENGNI Akureyrarliðannatveggja, Þórs og KA, í 1. deild karla í knattspyrnu er gleðiefni. Vík- verji, sem fylgst hefur með Íslands- mótinu í knattspyrnu mjög lengi, er á þeirri skoðun að lið frá Akureyri sé bókstaflega nauðsynlegt í efstu deild karla. x x x ÞAÐ er vel til fundið hjá eigend-um útvarpsstöðvarinnar Stjörnunnar, sem sendir út á FM 107,7, að leggja áherslu á tónlist fyrir börn. Börn Víkverja eru ákaflega hrifin þegar stillt er á Stjörnuna þeg- ar fjölskyldan bregður sér í bíltúr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.