Morgunblaðið - 02.08.2001, Side 1
174. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 2. ÁGÚST 2001
TUGIR þúsunda Palestínumanna
hrópuðu í gær á hefnd er þeir fylgdu
til grafar átta mönnum sem féllu í
árás Ísraela í fyrradag. Leiðtogar
Palestínumanna sögðu í gær að hætta
væri nú á allsherjarátökum í Mið-
Austurlöndum en Ísraelar vísuðu á
bug fordæmingu margra ríkja á að-
gerðum þeirra. Þess í stað ítrekuðu
þeir að áfram yrði sóst eftir lífi þeirra,
sem legðu á ráðin um hryðjuverk.
Mikill mannfjöldi, tugir þúsunda og
jafnvel allt að 100.000 manns, fylgdi
þeim sem féllu síðasta spölinn í borg-
inni Nablus í gær. Krafðist fólkið þess
að dauða þeirra yrði hefnt og kom
víða til átaka að útförinni lokinni. Féll
einn Palestínumaður fyrir byssukúl-
um ísraelskra hermanna og tveir aðr-
ir, sem grunaðir voru um að vera á
snærum Ísraela, voru myrtir.
Fjöldamörg ríki og alþjóðlegar
stofnanir fordæmdu í gær og í fyrra-
kvöld árásir Ísraela og þar á meðal
Bandaríkjastjórn, dyggasti banda-
maður Ísraela. Í yfirlýsingu banda-
ríska utanríkisráðuneytisins sagði að
árásirnar væru ögrandi og ykju hætt-
una á enn meiri hörmungum.
Ísraelsstjórn vísaði þessum mót-
mælum á bug í gær og Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, sagði að
árásin, sem varð sex Hamas-mönnum
og tveimur börnum að bana, hefði
tekist mjög vel. Á fundi í ísraelsku
ríkisstjórninni í gær var síðan sam-
þykkt að halda áfram þeirri stefnu að
drepa herskáa Palestínumenn, sem
taldir væru hættulegir öryggi Ísraels-
ríkis.
Vaxandi efasemdir
Í Ísrael er vaxandi umræða um
réttmæti stefnunnar og sumir fjöl-
miðlar halda því fram að í stað þess að
lama Hamas-hreyfinguna hafi árás-
irnar eflt hana verulega og aukið
hættuna á miklu meira blóðbaði. Kom
það einnig fram í viðtali sem ísraelska
sjónvarpið átti við Abed Rabbo, upp-
lýsingaráðherra palestínsku heima-
stjórnarinnar. Þar hvatti hann til að
erlendir eftirlitsmenn yrðu fengnir til
að fylgjast með ástandinu og myndi
þá koma í ljós hverjir væru með ögr-
anir. Á það vilja Ísraelar ekki fallast.
Tugir þúsunda Palestínumanna við útför þeirra sem féllu í árás Ísraela
Hrópað á hefnd og varað
við enn meira blóðbaði
Reuters
Námsmeyjar við háskólann í Amman í Jórdaníu biðja fyrir Palestínu-
mönnunum, sem féllu í árás Ísraela í fyrradag. Jórdanskir námsmenn
efndu víða til fjölmennra mótmæla í gær vegna stefnu Ísraela.
Jerúsalem. AP, AFP.
Fordæmdar/24
BÚIST er við, að rannsóknir á vefja-
rækt út frá stofnfrumum úr fósturvís-
um manna hefjist í Japan fyrir árslok
en fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti hins vegar í fyrradag að
banna alla einræktun mannsfrumna,
jafnvel í lækningaskyni. Óttast ýmsir,
að bannið leiði til þess, að Bandaríkin
einangrist og dragist aftur úr öðrum
ríkjum í þessum vísindum. Bretar
hafa þegar leyft svipaðar rannsóknir
og nú verða sennilega leyfðar í Japan.
Í væntanlegri reglugerð um rann-
sóknir japanskra vísindamanna á
stofnfrumum segir, að aðeins megi
notast við frumur, sem fást við frjó-
semisaðgerðir og yrði að öðrum kosti
fleygt. Þær má nota við vefjarækt en
eftir sem áður er bannað að einrækta
menn og stofnfrumur mega ekki
ganga kaupum og sölum.
Stofnfrumur eru undirstaða allra
vefja mannslíkamans og eru miklar
vonir bundnar við, að með ræktun
vefja úr þeim megi lækna marga sjúk-
dóma, t.d. alzheimers- og parkinsons-
veiki, sykursýki og mænuskaða.
Þrátt fyrir þessar miklu væntingar
samþykkti bandaríska fulltrúadeildin
í fyrradag að banna ekki aðeins ein-
ræktun manna, heldur alla einræktun
mannsfrumna, jafnvel í lækninga-
skyni. Tekur bannið einnig til alls inn-
flutnings á afurðum vefjaræktunar
erlendis frá og þær má því ekki nota í
lækningaskyni í Bandaríkjunum.
Flýja land?
Margir andstæðingar samþykktar-
innar segja, að ekki sé öll von úti enn
og vona, að leyfðar verði sams konar
rannsóknir og í Japan. Að öðrum
kosti sé hætta á, að bandarískt vís-
indasamfélag einangrist og þá með
þeim afleiðingum, að bandarískir vís-
indamenn fari úr landi. George W.
Bush, forseti Bandaríkjanna, hafði
ekki tjáð sig um samþykktina í gær
en hins vegar var haft eftir konu hans,
Lauru, að hún styddi rannsóknir á
stofnfrumum í lækningaskyni.
Einræktun á fósturvísafrumum í lækningaskyni
Leyfð í Japan en bönn-
uð í Bandaríkjunum
Tókýó, Washington. AP.
ÞESSAR tvær flugvélar, sem not-
aðar voru til að draga á loft svif-
flugur, rákust saman í lofti í gær
rétt við Rieti-flugvöllinn á Mið-Ít-
alíu. Hröpuðu þær til jarðar saman-
kræktar en það er af flugmönnun-
um að segja, að þeir sluppu með
skrámur.
AP
Óskemmtilegt
faðmlag
LÖG um nýtt letur gengu í
gildi í Aserbaídsjan í gær og
við það tækifæri sagði forseti
landsins, Geidar Aliev, að von-
andi yrði þessi þriðja letur-
breyting á 75 árum jafnframt
sú síðasta.
Allar opinberar stofnanir,
fyrirtæki, dagblöð og önnur
útgáfa verða nú að nota latínu-
letur í stað þess kýrillíska en
landsmenn voru neyddir til að
taka það upp á sovéttímanum.
Áður höfðu þeir um aldaraðir
notast við arabískt letur.
Leturbreytingin hefur vakið
miklar deilur í landinu. Stuðn-
ingsmenn latínuletursins
segja að það falli betur að
tungunni, sem er tyrkneskrar
ættar, en það kýrillíska en
margir óttast að leturbreyt-
ingin verði til að einangra hinn
fjölmenna minnihluta rúss-
neskumælandi manna í land-
inu. Þá gruna sumir blaða-
menn Aliev um að vilja gera
þeim lífið leitt með þessum
hætti en frjáls fjölmiðlun hef-
ur ekki verið eitt af forgangs-
málum hans.
Aserbaídsjan
Skipt um
letur í
þriðja sinn
Baku. AP.
LEIÐTOGAR stjórnmálaflokkanna í
Makedóníu náðu í gær bráðabirgða-
samkomulagi um stöðu albönskunn-
ar, en hana talar um þriðjungur
landsmanna. Hafa friðarviðræðurnar
gengið vonum framar og er nú aðeins
eftir að ganga frá samningi um skipan
lögreglunnar í þeim héruðum, sem
eru að mestu byggð Albönum.
Bandaríski sendimaðurinn James
Pardew og Francois Leotard, sendi-
maður Evrópusambandsins, hafa
stýrt viðræðunum og sögðu þeir í
gær, að nú ylti allt á samkomulagi um
lögregluliðið. Náist það munu 3.000
gæsluliðar frá NATO-ríkjunum koma
til Makedóníu til að hafa eftirlit með
afvopnun skæruliðanna.
Haft er eftir heimildum, að sam-
komulagið um stöðu albönskunnar
feli í sér, að hana megi nota á þingi og
í dómskerfinu og öll lög verði einnig
birt á henni. Makedónskan, tunga
slavneska meirihlutans, verði hins
vegar opinbert mál ríkisstjórnarinnar
og í alþjóðlegum samskiptum.
Sagt er, að lítið vanti á sátt um
skipan lögreglunnar eftir að leiðtogar
albönsku stjórnmálaflokkanna féllu
frá kröfum um stofnun sérstaks, al-
bansks lögregluliðs, sem yrði óháð
makedónska innanríkisráðuneytinu.
Nú er rætt um, að Albanir fái sömu
yfirráð í sínum héruðum yfir lögregl-
unni og slavar.
Þrátt fyrir friðarviðræðurnar hafa
albanskir skæruliðar haft sig nokkuð í
frammi en yfirmaður varnarmála í
landinu sagði í gær, að það yrði ekki
látið spilla viðræðunum. Sagt er, að
fimm foringjar skæruliða hafi týnt lífi
í bænum Gostivar um síðustu helgi en
ekki er vitað með hvaða hætti það
varð.
Leiðtogar stjórnmálaflokkanna í Makedóníu semja um stöðu albönskunnar
Mikilvægt skref
í átt til friðar
Ohrid. AFP.