Morgunblaðið - 02.08.2001, Side 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 39
Mikill afsláttur!
Stendur til 3. ágúst.
SUMIR íslenskir
stjórnmálamenn virð-
ast líta á stjórnmál
sem nokkurs konar
knattspyrnuleik, alltaf
eigi að standa með
samflokksmönnum
sínum og gegn þeim
sem eru í öðrum flokk-
um. Þeir standa með
samherjum sínum og
verja þá af fullum
krafti, jafnvel þótt þeir
hafi gerst sekir um
spillingu. Af sama
krafti ráðast þeir hins
vegar á andstæðinga
sína sem uppvísir
verða að misferli.
Bent á tvöfalt
siðgæði
Sem betur fer er Davíð Oddsson
forsætisráðherra ekki í þessum hópi
manna. Hann tók hart á máli Árna
Johnsen og varði hann ekki, enda
var framferði Árna óverjandi. Fjöl-
miðlar fjölluðu einnig yfirleitt með
ábyrgum hætti um málið og lögðu
sig fram við að upplýsa almenning.
Davíð sá hins vegar ástæðu til að
benda á tvöfalt siðgæði margra ís-
lenskra vinstri manna sem telja
spillingu bara vera spillingu ef hún
er hægra megin. Sem kunnugt er
benti hann í helgarviðtali DV á fjög-
ur dæmi um vinstri menn sem hefðu
augljóslega gerst sekir um spillingu
en ekki sagt af sér og þannig ekki
axlað ábyrgð, líkt og Árni Johnsen
hafði tilkynnt að hann myndi gera.
Skemmtileg
staðfesting
Nú vill svo skemmtilega til að
með viðbrögðum sínum við þessum
ummælum Davíðs hafa tveir stjórn-
málamenn sannað með glæsilegum
hætti að þeir hafa þetta tvöfalda sið-
gæði. Í viðtali í DV sagði Steingrím-
ur J. Sigfússon, Vinstrigrænum,
Davíð vera að fara með umræðuna í
„leðjuslag“ og að hann væri „að
leggja að jöfnu algerlega ósambæri-
lega hluti“. Bryndís Hlöðversdóttir,
Samfylkingunni, sagði Davíð vera
að gera tilraun til að fegra mynd
Árna með þeim ósmekklega hætti
að „draga fjölda nafngreindra ein-
staklinga á sakamannabekk“.
Með þessum ummælum verja
þingmennirnir samherja sína með
miklum upphrópunum um ósmekk-
legheit Davíðs án þess að svara með
einu orði rökstuðningi hans. Þeir
virðast telja ósmekklegt að fjalla
um spillingarmál vinstri manna.
Ummæli Davíðs voru ekki bara
sönn, heldur mikilvæg. Bæði vegna
þess að sagt hefur verið opinberlega
að spillingarmál komi oftast upp í
Sjálfstæðisflokknum og vegna þess
að mál Árna Johnsen hefur sýnt að
ekki er fjallað um spillingarmál á
sama hátt eftir því hvort um er að
ræða hægri eða vinstri menn.
Mismunandi um-
fjöllun
Þegar ástæða hefur
verið til að fjalla um
spillingarmál vinstri
manna, t.d. vegna þess
að þeir hafa verið í
framboði, hafa sam-
herjar þeirra varið þá,
burtséð frá öllum stað-
reyndum og rökum.
Þeir hafa snúið vörn í
sókn og talað um „skít-
kast“ hægri manna.
Þetta gerðist bæði
þegar Ólafur Ragnar
Grímsson bauð sig
fram til embættis for-
seta og þegar Helgi Hjörvar og
Hrannar B. Arnarsson buðu sig
fram í borgarstjórn. Í hvorugu
þessara tilvika voru ýmsir fjöl-
miðlar jafnduglegir og nú við að
upplýsa málin svo kjósendur fengju
upplýsingar um spillinguna. Þeir
voru þess í stað duglegir við að fjalla
um að „harka væri hlaupin í kosn-
ingabaráttuna“ og taka viðtöl við
alla þá sem sökuðu hægri mennina
um skítkast.
Ekki ber að líta svo á að Árni
Johnsen hafi almennt fengið ósann-
gjarna meðferð í fjölmiðlum. Fjöl-
miðlar hafa yfirleitt staðið sig mjög
vel í hans máli og það hefði verið
beinlínis rangt að hlífa honum. Hins
vegar hlýtur að vera eðlileg krafa að
framvegis sé fjallað á sama hátt um
spillingarmál vinstri manna og fjöl-
miðlar sem þykjast vilja standa
undir nafni sýni ekki hlutdrægni
með aðgerðaleysi sínu eins og þeir
hafa gjarnan gert.
Órökstuddur spuni
Í ummælum Steingríms og Bryn-
dísar má einnig sjá nokkuð fag-
mannlega notkun þeirra á pólitísku
bragði sem kalla má „spuna“, sem
er þýðing á enska orðinu „spin“.
Gengur það út á að koma með stað-
hæfingar sem festast gjarnan vel í
minni. Er þá treyst á að eingöngu
með því að setja þessar staðhæfing-
ar fram takist að festa þær í vitund
fólks. Oft er spuni af þessu tagi
órökstuddur. Steingrímur kallaði
ummæli Davíðs „leðjuslag“ þótt þau
væru sönn og hefðu tilgang í um-
ræðunum. Bryndís sagði að ummæli
Davíðs einkenndust af því að honum
væri „órótt“ þótt ekkert í viðtalinu
benti til þess. Einnig kallaði hún
ummælin stefnubreytingu því það
væri ekki lengur stefnan að Árni
skyldi axla ábyrgð og víkja. Davíð
hafði þó aldrei sagt neitt í þá veru
þótt hann hefði sagt að Árni hefði
þegar tekið út þyngri refsingu en
menn hefðu að jafnaði fengið.
Viðbrögð Steingríms og Bryndís-
ar hafa gefið kjósendum gott tæki-
færi til að bera saman siðgæði
þeirra og forystumanna Sjálfstæð-
isflokksins, sem hafa tekið rök og
siðgæði fram yfir flokkslínur.
Pólitískur fótboltaleikur
Gunnlaugur
Jónsson
Stjórnmál
Ummæli Davíðs, segir
Gunnlaugur Jónsson,
voru ekki bara sönn,
heldur mikilvæg.
Höfundur er framkvæmdastjóri