Morgunblaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 32
MINNINGAR
32 FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Siguróli Geirs-son fæddist í
Keflavík 19. maí
1950. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 20.
september síðastlið-
inn. Foreldrar Sig-
uróla voru Geir
Þórarinsson, vél-
stjóri og organisti í
Keflavík, f. 3.2.
1906, d. 17.12.
1983, og Margrét
Eyjólfsdóttir hús-
móðir, f. 14.12.
1905, d. 8.9. 1968.
Systkini hans eru: 1) Ingiþór, f.
1930, d. 1995, kvæntur Laufeyju
Jóhannesdóttur. 2) Eyjólfur Ingi-
berg, f. 1932, d. 2000, kvæntur
Elínu Þorleifsdóttur. 3) Sigur-
laug, f. 1934, ekkja Jóns Stein-
bergssonar. 4) Karl, f. 1938,
kvæntur Guðrúnu Júlíusdóttur.
Siguróli kvæntist 1992 eftirlif-
andi eiginkonu sinni Vilborgu
hljóðfæraleik við ýmsa skóla á
ferli sínum, stjórnaði lúðrasveit-
um og kórum, s.s. Æskulýðskór
Keflavíkurkirkju, Selkórnum,
Karlakór Keflavíkur, Karlakórn-
um Þröstum, Frímúrarakórnum
auk barna- og kirkjukóra. Hann
hóf feril sinn sem organisti við
Njarðvíkurkirkjur og síðar við
Keflavíkurkirkju eftir að faðir
hans lét af störfum. Kór Kefla-
víkurkirkju söng inn á hljóm-
plötu undir stjórn Siguróla og
kom platan út árið 1988. Hann
útsetti mikið af tónlist fyrir
hljóðfæraleikara og kóra auk
þess að semja tónlist. Í nýjustu
útgáfu sálmabókar ísl. Þjóðkirkj-
unnar er lag eftir Siguróla við
sálm dr. Sigurbjörns Einarsson-
ar. Árið 1990 tók Siguróli við
stöðu skólastjóra Tónlistarskól-
ans í Grindavík, auk söngstjóra-
og organistastöðu við Grindavík-
urkirkju, en þeim störfum
gegndi hann þar til hann varð
fyrir hörmulegu slysi 20. desem-
ber 1998.
Útför Siguróla fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14. Jarðsett
verður í Hafnarfjarðarkirkju-
garði.
Sigurjónsdóttur, f.
13.11. 1946. Hennar
synir eru 1) Stein-
grímur Erlingsson, f.
1970, sambýliskona
Kristín J. Gísladóttir,
þeirra dóttir Soffía,
f. 2000. 2) Úlfar Erl-
ingsson, f. 1972,
kvæntur Charlottu
M. Hauksdóttur. 3)
Ernir Erlingsson, f.
1979, unnusta Mary-
linn Margeirsdóttir.
Siguróli útskrifað-
ist frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík
1975 með tónmennta- og blás-
arakennarapróf. Einnig stundaði
hann nám við Tónskóla þjóð-
kirkjunnar undir leiðsögn dr.
Róberts A. Ottóssonar og Ortulfs
Prunner. 1989 til 1990 var Sig-
uróli við framhaldsnám við tón-
listarskólann í Hamborg og sótti
orgeltíma hjá prof. G. Dickel.
Siguróli kenndi tónmenntir og
Elsku Siguróli minn. Ég mun aldr-
ei gleyma deginum þegar ég sá þig
fyrst.
Þann dag settumst við niður saman
og sömdum lag á píanóið.
Ég minnist þess nú er ég rita þessi
orð hversu mikla aðdáun þú vaktir
hjá mér, því tónlistargáfur þínar og
rithönd þín voru einstök.
Ég mun líka aldrei gleyma degin-
um þegar ég sá þig síðast.
Þegar dauðinn hafði komið til þín
og tekið þig burt.
Ég mun heldur aldrei gleyma öll-
um dögunum þarna á milli, dögum
sem spanna tíu ár.
Ég vil fyrst og fremst þakka þér
fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig,
hversu góður fósturfaðir þú varst, í
senn bæði ljúfur og strangur, en það
var alltaf stutt í hláturinn hjá okkur.
Og mér finnst núna að þú eigir
stóran þátt í því að hafa gert mig að
þeim manni sem ég er í dag.
Guð geymi þig, Siguróli minn.
Þinn fóstursonur,
Ernir.
Flestir kannast við það sem Beat-
rice Webb kallaði þrá eftir „andlegu
öryggi, andlegu heimili“. Við þörfn-
umst innri orku sem veitir von, styrk
og hugarró. Við höfum þörf fyrir þá
trúar- og lífssýn sem hjálpar okkur
að takast á við mótlæti lífsins svo við
sjáum leiðina í gegnum myrkur sorg-
ar sem óhjákvæmilega mætir okkur á
lífsleiðinni. Í fylgd Krists erum við
aldrei ein, aldrei yfirgefin, hvorki í
veikindum, vanda né hættu. Trúin
veitir leiðsögn, huggun og innri frið
sem er æðri öllum skilningi.
Í New York-höfn, milli Manhattan-
eyju og Staten-eyju, er rif sem kallast
Robins Reef. Lítill viti stendur þar og
í mörg ár var vitavörðurinn ekkja
sem hét Jacob Walker. Hún var treg
til þess að setjast þar að ásamt manni
sínum á sínum tíma. Þegar þau höfðu
dvalist þar í fjögur ár veiktist maður
hennar af lungnabólgu, og það var
farið með hann í sjúkraskýlið á Stat-
en-eyju, en frú Walker varð eftir til
að huga að ljósinu. Maður hennar féll
frá skömmu síðar og hann var jarð-
settur uppi í hlíðinni á Staten-eyju. Á
hverjum degi leit frú Walker yfir haf-
ið í áttina að gröfinni. Stundum var
hlíðin brúnleit, í grænum skrúða eða
hvít af snjó, en hún minnti hana alltaf
á orð manns hennar er hann kvaddi
hana í síðasta sinn: „Hugaðu að ljós-
inu.“
Það er hlutskipti þeirra sem elska,
missa og sakna að huga að ljósinu.
Það var stórbrotið að fylgjast með
tónlistarmönnunum sem sýndu hetj-
unum virðingarvott á öldum ljósvak-
ans um daginn. Þá varð manni ljóst
að tónar ná lengra en orð í sorg og
missi. Organistarnir okkar eru í
þessu hlutverki í kirkjum landsins ár-
ið um kring og við kveðjum einn
þeirra í dag, Siguróla Geirsson, sem
um árabil þjónaði Njarðvíkur-
kirkjum, Keflavíkurkirkju og nú síð-
ast Grindavíkurkirkju, auk þess sem
hann gegndi skólastjórastarfi við
Tónlistarskólann í Grindavík. Tón-
listin var honum í blóð borin. Hann
lék á ýmis blásturshljóðfæri auk org-
elsins. Auk þess var hann góður kór-
stjórnandi og ég minnist ferða sem
Kór Keflavíkurkirkju fór til Lúxem-
borgar 1983 og Ísraels á jólum 1985,
þar sem kórinn söng með miklum
ágætum undir hans stjórn.
Siguróli slasaðist alvarlega fyrir
tæpum þremur árum og átti ekki von
um bata og líf eftir það. Sú þungbæra
reynsla reyndi mjög á eiginkonu
hans, Vilborgu Sigurjónsdóttur, og
aðra ástvini. Nú er sigurinn unninn
og við blessum minningu hans og
þökkum honum samfylgdina. Jesús
segir: „Komið til mín, allir þér sem
erfiði hafið og þungar byrðar og ég
mun veita yður hvíld.“ Það er við hæfi
að kveðja hann með þeim orðum og
það er trú okkar kirkju að þeir sem
farnir eru heim taki undir lof- og
þakkargjörðina með okkur í kirkj-
unni.
Tónlistin og trúin hafa það hlut-
verk að efla mennsku mannlífsins.
Æðsta viðmiðun listarinnar er hvorki
samsömun við hefðina né nýjunga-
girni, heldur mennska sem á sér ræt-
ur í hinu guðlega; mennska sem hefur
góð áhrif á samfélag manna og
tengslin við náttúruna og lífríki.
Biðjum þess að tónlistin þjóni
manninum á þann hátt að hún beinist
gegn öflum hins illa og efli mennsku
mannlífsins. Tónlistin er fyrirheit um
betri heim, „nýjan himin“, „nýja
jörð“. Hún er alþjóðlegt sameining-
artákn mennskunnar. Tákn sem
minnir okkur á arf fortíðar og þá
framtíð sem við eigum í vændum.
Tákn sem minnir á tilgang og merk-
ingu, gildi og reisn þess lífs sem við
lifum hér á jörð, tákn sem vekur ást
okkar á frelsi og sannleika, tákn sem
fær okkur til að hungra og þyrsta eft-
ir réttlæti, kærleika, samfélagi, sátt-
argjörð og friði.
Ólafur Oddur Jónsson.
Kveðja frá kór
Grindavíkurkirkju
Í dag er til moldar borinn vinur
okkar, Siguróli Geirsson, tónskáld og
organisti.
Hann tók við starfi organista og
kórstjóra við Grindavíkurkirkju 1990
af Svavari Árnasyni, sem gegnt hafði
starfi organista við kirkjuna í fjölda-
mörg ár.
Siguróli var metnaðargjarn og
vandvirkur, lagði hann sig allan fram
og eyddi ómældum tíma í að gera kór
kirkjunnar að góðum kór. Gerði hann
kröfur um vandaðan söng. Siguróli
var mikið jólabarn sjálfur og hóf und-
irbúning jólanna seinnipart septem-
bermánaðar ár hvert. Hann var
hvatamaður að samsöng kórs Grinda-
víkurkirkju og kórs Kálfatjarnar-
kirkju og æfðu þeir Siguróli og Frank
Herlufsen og stjórnuðu samsöng kór-
anna í báðum kirkjum á aðventunni
1998. Einnig var hann hvatamaður að
móttöku gestakóra til kórs Grinda-
víkurkirkju og einnig heimsóknum
okkar til annarra kóra. Þetta var
bæði ánægjulegt og efldi kórstarf og
kynni á milli kóranna.
Eins hafði hann frumkvæði að
ferðum í óperuna og á söngleiki og
hvatti til þátttöku á kóramótum og
námskeiðum í Skálholti. Var hann
mjög jákvæður um að hafa sem mest
líf innan kórsins.
Kona hans, Vilborg Sigurjónsdótt-
ir, vann vel með manni sínum, enda
er hún tónlistarkennari. Voru þau
með barnakór Grindavíkurkirkju,
sem starfaði með miklum blóma.
Við viljum þakka Siguróla sam-
verustundir liðinna ára og vottum
Vilborgu og fjölskyldum þeirra ein-
læga samúð.
Með virðingu og þökk.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Kveðja frá Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar
Siguróli var duglegur maður.
Hæfileikur hans voru miklir. Hann
komst í góðar hendur sem barn og
tók strax miklum framförum. Fljót-
lega tók hann þátt í tónlistarlífi
Keflavíkur. Var nemandi margra
góðra kennara við Tónlistarskólann í
Keflavík. Eftir nám við Tónmennta-
kennaradeild og Blásarakennara-
deild Tónlistarskólans í Reykjavík
kenndi hann víða. Árin hans sem
kennari við Tónlistarskólann í Kefla-
vík voru giftudrjúg. Nemendur hans
fjölmargir bera þess vitni.
Sem lúðrasveitarmaður var Sigur-
óli hreinn eldhugi. Hann stjórnaði
Lúðrasveit Tónlistarskólans í Kefla-
vík í mörg ár, m.a. í tónleikaferð til
Norðurlandanna 1988. Sem stjórn-
andi, útsetjari, tónsmiður og kennari
var hann óþreytandi leiðtogi. Siguróli
hafði stórar hugmyndir um Stór-
lúðrasveit Suðurnesja sem starfaði
um hríð undir hans stjórn.
Starf hans sem organisti við Kefla-
víkurkirkju var langt. Ávextir þess
starfs voru fjölbreyttir. Þess ber vitni
stórgóð hljómplata Kirkjukórs Kefla-
víkur sem kom út í lok níunda áratug-
arins.
Siguróli stjórnaði Karlakór Kefla-
víkur í áraraðir, m.a. í Kanadaferð
sem enn er í minnum höfð.
Við í Reykjanesbæ þökkum Sigur-
óla öll hans miklu störf í þágu æsku
þessa bæjar.
Nú er langri baráttu lokið hjá Sig-
uróla.
Við stelpurnar sem vorum í Æsku-
lýðskór Keflavíkurkirkju ’69-’71
kveðjum hann með þökk fyrir ynd-
SIGURÓLI
GEIRSSON
!"# $
% "
&'()** ' +
#
!"
#
$
%
$
%&&"
, - # . #
- / # 0
" -, #
1/# 2 0
!2 !(
2&
**
2&
.1 ,3
/ 4/
' #(
)$
* !+
#
$
,*-
( -, 5 1
.
602
7/
7 +8
/ 4/
' #(
'
!/
#
$
(
9# 0 #
6 / #
6 /# $ :
0 6 /# ;
6 / - #
9 9, # 9,
0 * 2&&()"
<.
5 1,
9 # "
1!2
#
$
,*-
( * "# 42 #
; 9# 2
;0'2
/ =# >,
;4 ?@
2/
)( 3
!+
#
$
,*-
( , #
#
' #
' $
#
) #
#
A