Morgunblaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 35
við búum við í dag. Dekkjaviðgerðir og
ýmsir aðrar viðgerðir fóru fram á öll-
um tímum sólarhrings.
Herði var búin góð söngrödd sem
veitti honum mikla gleði og varð
mörgum til ánægju. Gilti þá einu hvort
um væri að ræða söng á skemmtunum
eða lofsöngva til Drottins, en Hörður
söng í yfir 40 ár í kirkjukór Leirár-
kirkju. Hann hlustaði mikið á tónlist,
þá einkum íslensk lög. Á heimilinu er
mikið til af bókum, enda hjónin bók-
hneigð.
Hann var mikill veiðimaður og fór á
hverju sumri í laxveiði. Margan laxinn
dró hann á land úr uppáhaldsánum
sínum sem voru Laxá í Leirársveit og
dalaárnar Flekkudalsá og Fáskrúð.
Hver sem minna mátti sín, átti í
Herði skjól. Hann bast vinum sínum
traustum böndum, sumum er dugðu
honum og þeim allt til dauðadags.
Hann var vinsæll hjá afabörnunum
sínum, enda barngóður með afbrigð-
um og óspar á hrósið. Hans er sárt
saknað af þeim.
Á dánarbeði sýndi hann enn þá
reglu er hann vildi hafa á hlutunum
þegar hann boðaði alla fjölskyldu sína
á sinn fund og kvaddi hvert og eitt
okkar.
Samleið mín sem tengdasonar
hjónanna í Lyngholti hefur varað í
tæp tuttugu ár og er mér ómetanlegur
sjóður minninga um samveru sem
aldrei bar nokkurn skugga á. Í mörg
ár fórum við Rannveig með börnin um
hverja helgi til ömmu og afa í Lyng-
holti. Eftir ferð fyrir Hvalfjörð sem
svæfði gjarnan börnin, var gaman að
vekja þau upp með þeim orðum að nú
værum við komin í sveitina.
Sá gleðisvipur sem þá breiddist yfir
nývöknuð börnin þegar þau sáu bæ-
inn, gleymist ekki.
Ég vil þakka góðar samverustundir
og þá ekki síst öll aðfangadagskvöldin
sem við áttum saman í Lyngholti.
Verkamaður í víngarði Drottins er
göfugt hugtak. Fáa menn þekki ég
sem það á betur við en Hörð. Hann
sótti jafnan styrk í trúna og tókst á við
lífið af æðruleysi með öll bestu mann-
leg gildi að leiðarljósi, enda kristöll-
uðust í honum allri þeir bestu mann-
kostir sem ég þekki.
Hann verður í dag borinn til þeirrar
moldar er ól hann og hann orti sjálfur
af stakri alúð.
Blessuð sé minning hans.
Eyþór Eðvarðsson.
Hæ, góði langafi minn, ég elska þig.
Manstu þegar ég og Veronica Líf
skrifuðum á gifsið á fætinum þínum?
Þá kvöddum við þig, því að við vorum
að fara heim til okkar á Kanarí. Það
var mjög gaman að koma í sveitina til
þín og langömmu.
Vaktu, minn Jesús, vaktu’ í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki, þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgrímur Pétursson.)
Þínar
Valdís Marselía og Veronica
Líf Þórðardætur.
Elsku afi. Þessi ár hjá þér og ömmu
í sveitinni eru mér ógleymanleg. Þau
verða í minningunni sem bestu ár ævi
minnar. Þar fékk ég að kynnast gangi
lífsins og ýmislegu sem átti eftir að
koma mér vel. Með bæði góðvild og
þolinmæði þinni kenndir þú litlum
snáða sitthvað til verka, sem hann býr
að til framtíðar. Þú sýndir honum
ómældan áhuga í hverju því sem að
hann tók sér fyrir hendur og leið-
beindir honum af þínu einstaka
innsæi. Í Lyngholtinu hefur mér alltaf
liðið vel og spjallið við eldhúsborðið
alltaf komið manni í gott skap. Þar
voru mörg heimsins málin til lykta
leidd yfir góðgæti að hætti ömmu.
Einnig man ég margar góðar stundir á
fjóspallinum þar sem hlegið var og
gert að gamni sínu.
Af góðvild þinni og kunnáttu hef ég
alltaf hrifist og þeim hæfileika að geta
leiðbeint öðrum. Þú hafðir það ávallt á
orði að það þyrfti svolitla lagni við
hlutina og fannst manni þess vegna
allt leika í höndunum á þér. Þú hafðir
þá náðargáfu að vera einstaklega góð-
ur skipuleggjandi og hugsaðir hvert
verk alveg til enda. Með fram-
kvæmdagleði þinni urðu verkin síðan
að meistarstykkjum sem gerðu Lyng-
holtið að myndarlegri bæjum landsins.
Elsku afi minn, ég mun vera þér að
eilífu þakklátur fyrir allt sem þú hefur
gefið og kennt mér. Ávallt hef ég litið á
þig sem mína fyrirmynd og því er mér
missirinn sár. Þú varst mér ekki bara
góður afi heldur vinur sem ég mun
aldrei gleyma.
Hvíldu í friði.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Hörður Birgisson.
Elsku besti afi minn, þá er þessari
löngu og erfiðu sjúkralegu þinni lokið.
Mig langar hér með nokkrum orðum
að þakka þér kærlega fyrir það liðna
og margar ánægjustundir í sveitinni.
Eftir að dætur mínar fæddust varð
það að föstum lið, í öllum ferðum okk-
ar til Íslands, að heimsækja Lyngholt.
Þar sem við erum búsett erlendis
hafa þessar heimsóknir verið okkur
mjög dýrmætar, þannig höfum við
getað viðhaldið fjölskyldutengslunum
og dætur okkar hafa fengið að kynnast
íslensku dýrunum og fegurð sveitar-
innar.
Með þessum fáu orðum kveð ég þig
afi minn og bið guð þín að gæta.
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð,
og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum vorum
skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa
oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin
að eilífu. Amen.
Elsku amma mín, guð blessi þig og
veiti þér styrk á þessum erfiðum
stundum.
Þín
Anna Lilja og fjölskylda.
Elskulegi bróðir, þú ert horfinn yfir
móðuna miklu eftir löng og erfið veik-
indi. Þú varst einstakur maður, alltaf
svo ljúfur og góður og það vita þeir
best sem þér kynntust. Þú varst hjálp-
samur okkur systkinunum þegar við
vorum lítil og þá sérstaklega móður
okkar sem hafði í mörg horn að líta
með allan barnahópinn sinn. Það rifj-
ast upp margar minningar, allar svo
fallegar og góðar. Leiðir okkar skildu
of snemma þegar ég giftist og flutti í
annað sveitarfélag, en heimsóknirnar í
Lyngholt, sem er eitt fallegasta býli á
Íslandi, voru alltaf eftirminnilegar og
var það ekki síst að þakka þinni ynd-
islegu eftirlifandi konu og börnum. Ég
vildi að ég hefði getað búið nærri þér
og notið nærveru þinnar betur, elsku
bróðir.
Að lokum votta ég þér, elsku Lillý,
mína innilegustu samúð með þökk fyr-
ir hvað þú varst honum góður lífsföru-
nautur, það sýndi sig best í umhyggju
og æðruleysi þínu í veikindum hans.
Eins votta ég börnunum, tengdabörn-
um og afkomendum þeirra mína
fyllstu samúð. Það veit ég að söknuð-
urinn er mikill.
Margrét systir.
Haustið minnir okkur á hringrás
lífsins, að eitt sinn skal sérhver deyja.
Látinn er vinur minn, Hörður í Lyng-
holti. Kynni okkar hafa staðið síðan ég
var lítið telpukorn heima á Læk og
hann flutti með fjölskyldu sinni að
næsta bæ, Lyngholti. Það var árið
1954. Síðan hefur hann verið órjúfan-
legur partur af lífinu í Leirársveitinni.
Við brotthvarf Harðar birtist
myndasafn minninganna: Hörður
ungur maður á skurðgröfu með pabba,
Hörður að byggja, Hörður fjölskyldu-
faðir, Hörður syngjandi gamanvísur í
Fannahlíð og krökkum er boðið á síð-
ustu æfingu, Hörður dansandi við
Lillý, Hörður í heyskapnum og mikil
tilþrif, Hörður bassi í kirkjukórnum,
Hörður að smala og stjórnar liðinu,
Hörður í girðingarvinnu með pabba og
þeir syngjandi frumsamda texta um
sjálfa sig og verkið, Hörður tilbúinn að
vinna samfélaginu gagn, Hörður að
vara ungar stúlkur við tóbakinu (það
dugði), Hörður bílaáhugamaður, en þó
fyrst og fremst Hörður nágranni.
Góður nágranni er gersemi. Er for-
eldrar mínir tóku að reskjast fannst
mér gott að vita af Lillý og Herði á
næsta bæ, einkum þó eftir að mamma
varð ein á Læk. Í huga mér er innilegt
þakklæti fyrir gott nágrenni, velvilja
og hjálpsemi alla tíð.
Það haustaði að í lífi Harðar í Lyng-
holti fyrir nokkru. Ferjumaðurinn
bauð honum far að ókunnri strönd
hinn 21. september. Hringrás lífsins
heldur áfram, hann mun lifa áfram í
afkomendum sínum. Vertu minn
gamli nágranni og vinur kært kvadd-
ur.
Ásdís Einarsdóttir.
Bóndi er bústólpi – bú er landstólpi.
Þessi orð komu upp í hugann er ákveð-
ið var að rita þessi fátæklegu minning-
arorð um vin okkar Hörð Ólafssonar
SJÁ SÍÐU 36
= 1
-
&&C02()***00
;4 8@
/ 4/
&1
4 & G5H5 G5H5
; )/
" -
$
*#
#
>
1
-
*
C)2
2 4 D
1
3
)
*(< <$
*
C # $ 0
C # ), C
, 464 C 6 04#
,C # . )/
C5 # 0 6
9 9, # 9 9 9
.
( 2(<;0()** 1'
/ 4 ?@
// 5
!6
#
$
%7""
4 :1#
-,/4 "/$ #
:14 # " !
9, 4 C5 6 #
4 # . 4 . $
04 94 #
,9, # ,9,
;*
- -
*
( *
* 0
26C2*2
2
$
& 5# DI
/ 4/
1
? +
' #(
(
*-
# #
' # 6 #
#
# # & J
2 # #
9 9, # 9 9 9
4
* * *
<2&2()** # 9// K
)
)$
1 %@
#
$
5 !6
#
$
%&""
* 0 #
# -1 6
$ # 2 5 C5
9 9, # 9 9 9,
>
1
-
( 2260L;0*6CM # ,??
$ 4/
2
1 ;,# ,/
&#/
'( *
.A,5')3''B5:
CD3:
7 7 ( 5 ( 5 ?I
4 888+?I8
( CM(<C)06()** 69 // ?3
' #(
'
*
!%
#
$
4
*
#
*
!@
#
$
%&&"
. , 4. /$ *
-, #
9 # $ (4