Morgunblaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 17
LANDIÐ
Til bókaútgefenda:
BÓKATÍÐINDI 2001
Skilafrestur vegna kynningar og
auglýsinga í Bókatíðindum 2001
er til 8. október nk.
Ritinu verður sem fyrr dreift
á öll heimili á Íslandi.
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Barónsstíg 5, sími 511 8020.
——————— ———————
Frestur til að leggja fram
bækur vegna Íslensku
bókmenntaverðlaunanna 2001
er til 30. október nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA
Morgunblaðið/Líney
Mikið fjör á réttarballi í Skúlagarði
ÞórshöfnÍ KELDUHVERFINU var eindæma
haustblíða um síðustu helgi en hit-
inn komst þá í 18 stig yfir daginn.
Það viðraði því vel í réttirnar en
flugnasveimur var ágengur við
menn og dýr. Hljómsveitin Manna-
korn skemmti gestum á réttarballi í
Skúlagarði á laugardagskvöldi eins
og þeim einum er lagið.
Næturgisting var til reiðu fyrir
gesti sem þess óskuðu á Hótel
Skúlagarði og nokkrir ballgestir
nýttu sér það. Rekstraraðilar í
Skúlagarði eru hjónin Guðrún Sig-
urðardóttir og Júlíus Ólafsson og er
opið þar allt árið.
Húsnæðið hefur verið mikið end-
urnýjað á síðasta ári, m.a. eru ný og
vönduð rúm í öllum herbergjum,
gistipláss er alls fyrir 24 í rúmi og
að auki eru 14 svefnpokapláss.
Nokkuð er um að veiðimenn nýti
sér þennan gistikost, einkum á
rjúpna- og gæsaveiðitíma en á þess-
um slóðum eru góð veiðisvæði.
UNNIÐ er að því á undanförn-
um vikum að lagfæra vegaxlir á
Suðurlandsvegi í Kömbum og
upp af þeim inn á Hellisheiði.
Axlirnar eru lagðar klæðningu
og gerðar þannig úr garði að
betra sé fyrir ökumenn að víkja
út á þær og hleypa bílum fram-
úr ef þeir telja þörf á.
Bjarni Stefánsson, rekstrar-
stjóri Reykjanesumdæmis,
sagði að þessar lagfæringar á
vegöxlunum væru átak á þessu
ári þar sem nokkrir kaflar
væru teknir fyrir, meira yrði
gert á næsta ári fengjust til
þess peningar.
„Við tökum þetta í áföngum,“
sagði Bjarni. Hann sagði að
einnig væri það gert víðar að
leggja klæðningu á vegaxlir og
unnið væri að því að malaraxlir
á vegum hyrfu. Nýir vegir
væru núna lagðir með bundnu
slitlagi á vegöxlunum. Hann
sagði þetta öryggisatriði og
ætti það að liðka fyrir umferð
því auðveldara og hættuminna
væri að víkja út á vegöxlina
þegar hún væri klædd bundnu
slitlagi.
Bundið
slitlag á
vegaxlir á
Hellisheiði
Selfoss
Í SEPTEMBERSÓLINNI á sunnu-
daginn var gaman fyrir ungan
dreng að trítla í fjöruborði Við-
arvatns og gára aðeins þann fagra
spegil í óendanlegri síðdegiskyrrð.
Þessi sunnudagur var einhver hinn
fegursti sem um getur í uppsveitum
Þingeyjarsýslu. Heiðskírt með
logni og hiti allt að 18°C.
Þó Herðubreið sé í 60 km fjar-
lægð þá nýtur hún þess að speglast
í þessu fagra fjallavatni. Viðarvatn
er í 439 metra hæð yfir sjó og til-
heyrir kirkjustaðnum Víðirhóli,
sem nú um stundir er í Öxarfjarð-
arhreppi.
Morgunblaðið/BFH
Haustkyrra á Viðarvatni
Mývatnssveit
HÓLMFRÍÐUR Indriðadóttir frá
Ytra-Fjalli í Aðaldal, fædd 1906
og því 95 ára gömul, fyrrum hús-
freyja á Skjaldfönn við Ísafjarð-
ardjúp, er þrátt fyrir háan aldur
enn hlaupandi um túnin þegar
þess er þörf eins og hér í lok hey-
skapar. Hólmfríður lærbrotnaði í
fyrravor en var ótrúlega fljót að
ná sér enda hefur harka og dugn-
aður verið aðalsmerki hennar
alla tíð.
Ljósmynd/Kristbjörg Lóa Árnadóttir
Enn frá á fæti
Skjaldfönn
NÝ háspennulína RARIK frá Ey-
vindará til Eskifjarðar var tekin
formlega í notkun 21. september.
Línan, sem er tæplega 30 km að
lengd, er byggð fyrir 132 kV spennu,
en verður fyrst um sinn með 66 kV
spennu. Afkastageta línunnar er um
50–60 MW og bætir úr brýnni þörf,
þar sem hún leysir af hólmi 40 ára
gamla línu sem orðin var erfið í
rekstri.
Framkvæmdir gengu framar von-
um og voru á undan áætlun og
reyndist kostnaður við þær aðeins
um 75% af upphaflegri kostnaðar-
áætlun.
Línuhönnun sá um hönnun línunn-
ar, en vinnuflokkar RARIK á Aust-
urlandi með aðstoð vinnuflokka á
Norðurlandi önnuðust framkvæmd-
ir. Jarðvinna var í höndum Árverks á
Egilsstöðum.
Eskifjarð-
arlína tekin
í notkun
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 17