Morgunblaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 1
ÓÐUR maður vopnaður hríðskota-
riffli, skammbyssu og sprengiefni
réðst í gær inn á þingfund héraðs-
þingsins í kantónunni Zug í Mið-Sviss
og gekk þar berserksgang með þeim
afleiðingum að 15 manns lágu í valn-
um, að honum sjálfum meðtöldum.
Fjórtán særðust. Er þetta mesta
blóðbað sem orðið hefur í landinu.
Morðinginn var 57 ára Svisslend-
ingur, Friedrich Leibacher að nafni.
Hann skaut um sig með svissneskum
herriffli og sprengdi handsprengju í
þingsal kantónunnar Zug í hjarta
Sviss í gærmorgun. Hann myrti 3
stjórnarmenn kantónunnar, 11 þing-
menn og lést sjálfur. Enn einn stjórn-
armaður og 9 þingmenn voru illa
særðir. Forseti Sviss fór til Zug frá
höfuðborginni Bern síðdegis í gær í
fylgd með Peter Hess, forseta sviss-
neska þingsins, en hann er frá Zug.
Þingið og kantónustjórnin koma
ávallt saman síðasta fimmtudaginn í
mánuði. Öryggiseftirlit er lítið eins og
á öðrum opinberum stöðum í Sviss.
Morðinginn var klæddur lögreglu-
búningi og notaði herriffil eins og er
til á fjölmörgum svissneskum heim-
ilum. Svissneskir karlmenn á her-
skyldualdri hafa sjálfvirkan riffil
heima hjá sér og geta keypt hann að
herskyldu lokinni. Það kemur sára-
sjaldan fyrir, þrátt fyrir fjölda þeirra,
að herrifflar séu notaðir á ólöglegan
hátt.
Lögregla sagði „játningarbréf“
hafa fundizt heima hjá manninum, og
að sögn svissneskra fjölmiðla talar
hann þar um „dag hefndarinnar á
Zug-mafíunni“. Leibacher hafði lengi
átt í deilum við dómskerfið í Zug.
Deilurnar hófust þegar hann kærði
strætisvagnsbílstjóra fyrir að aka
undir áhrifum áfengis. Almennings-
vagnafyrirtækið kærði Leibacher
fyrir mannorðsspjöll og upp úr því
urðu langvarandi deilur. Æðsti réttur
kantónunnar vísaði ákærum Leibach-
er endanlega frá á miðvikudag og tal-
ið er að það hafi verið kveikjan að
morðæði hans.
Zug er lítil en ein ríkasta kantóna
Sviss, í næsta nágrenni við „banka-
borgina“ Zürich. Hún er þekkt fyrir
lága skatta og þar eru mörg fyrirtæki
og auðmenn skráð til heimilis.
Fimmtán myrtir
á þingfundi í Sviss
Zug, Zürich. AFP, AP, Morgunblaðið.
AP
Meðlimir kantónuþingsins í Zug og blaðamenn, tveir þeirra særðir, bíða
þess fyrir utan þinghúsið í gærmorgun að læknishjálp berist.
221. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 28. SEPTEMBER 2001
DANSKA stjórnin hefur í
fyrsta sinn í sögunni gripið til
ráðstafana í því skyni að verjast
hugsanlegum lífefnahryðju-
verkum. Verið er að festa kaup
á nýju bóluefni, koma upp
rannsóknastofum og endur-
skoða uppbyggingu almanna-
varnakerfisins.
Heilbrigðis- og innanríkis-
ráðherra Danmerkur ætluðu að
leggja fram í dag áætlun um
þennan viðbúnað en að því er
fram kemur í Berlingske Tid-
ende, er gert ráð fyrir, að hann
muni kosta rúmlega 1,2 millj-
arða íslenskra króna í upphafi
og reksturinn um 25 millj.
króna árlega.
Hættan ekki talin
mikil í Danmörku
Ekki er talin mikil hætta á
lífefnahryðjuverkum í Dan-
mörku en samt verður ráðist í
að kaupa nýtt bóluefni gegn
bólusótt. Til eru í landinu eitt
hundrað þúsund skammtar af
gömlu bóluefni frá því um miðj-
an áttunda áratuginn, en þá var
hætt að bólusetja fólk við bólu-
sótt. Það bóluefni er ennþá
virkt en getur þó verið hættu-
legt fólki með veiklað ónæmis-
kerfi, til dæmis alnæmissjúk-
lingum.
Varnir
gegn
lífefna-
hryðju-
verkum
Danir grípa
til ráðstafana
ARABABANDALAGIÐ lét í gær í
ljósi reiði sína og krafðist þess að
ítalska stjórnin bæðist afsökunar
vegna þeirra orða
sem Silvio Berl-
usconi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, lét
falla um að kristin
menning væri
fremri íslamskri
menningu. „Ég tel
orð hans til marks
um kynþáttahatur
og með því að
segja þetta hefur
hann farið út fyrir öll skynsemis-
mörk,“ sagði Amr Mussa, fram-
kvæmdastjóri Arababandalagsins.
„Við teljum ekki að einn menning-
arheimur sé öðrum fremri og ef [Berl-
usconi] heldur það þá hefur hann
rangt fyrir sér og á margt ólært ... og
ég tel að hann þyrfti að lesa sér til um
menningu múslima,“ sagði Moussa.
Á fundi með fréttamönnum á mið-
vikudaginn sagði Berlusconi að vest-
urlandabúar „ættu ekki að efast um
yfirburði menningar okkar,“ og hvatti
til að Evrópa yrði „endurskipulögð á
grundvelli síns kristilega kjarna.“
Louis Michel, utanríkisráðherra
Belga, sem fara nú með forustuna í
Evrópusambandinu (ESB), sagði að
orð Berlusconis væru „algerlega óvið-
unandi“ og gengju þvert á evrópsk
viðhorf og gildismat. Chris Patten,
sem fer með utanríkismál í fram-
kvæmdastjórn ESB, sagði: „Við Evr-
ópubúar ættum kannski að hugsa til
þess, með viðeigandi skammti af hóg-
værð, að hinn íslamski heimur hefur
aldrei verið ábyrgur fyrir helför.“
Nokkrir hægrisinnaðir stjórnmála-
menn á Ítalíu komu Berlusconi til
varnar í gær. Rocco Buttiglioni, Evr-
ópumálaráðherra landsins, sagði:
„okkar menning ... er menning sem
verndar betur en aðrar þau grund-
vallargildi sem gera lífið þess virði að
því sé lifað.“ Í tilkynningu frá skrif-
stofu Berlusconis sagði að hann
myndi eiga fund með arabískum
sendiherra í næstu viku.
Bandaríkjamenn forðuðust að
segja nokkuð um orð Berlusconis, og
þegar fréttamenn spurðu Richard
Boucher, talsmann utanríkisráðu-
neytisins, um afstöðu Bandaríkjanna
sagði hann aðeins að hann vildi „ekki
fella dóma um yfirlýsingar annarra.“
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, staðfesti í gær
að tveimur hershöfðingjum í banda-
ríska flughernum hefði verið veitt
heimild til að fyrirskipa að skotin
skyldi niður hver sú farþegaflugvél
sem virtist vera ógn við bandarískar
borgir. Rumsfeld ítrekaði þó, að
ströngum öryggisreglum yrði fylgt.
Heimild hershöfðingjanna væri
miðuð við að aðstæður bæri svo brátt
að að þeim gæfist ekki tími til að leita
heimilda hjá æðri mönnum í hernum
eða forsetanum.
Bandaríski mannréttindasinninn
Jesse Jackson sagði í gær að hann
hefði engin áform um að fara til Afg-
anistans, þótt talibanastjórnin þar í
landi hefði boðið sér að gerast milli-
göngumaður vegna krafna Banda-
ríkjamanna um að talibanar framselji
Osama bin Laden, sem grunaður er
um að hafa staðið að baki hermdar-
verkunum 11. september.
Utanríkisráðuneytið bandaríska
lýsti því yfir að það væri alls ekki
hlynnt því að Jackson tækist á hendur
hlutverk milligöngumanns.
Arababandalagið og ESB
fordæma orð Berlusconis
Bandarískum hershöfðingjum
heimilað að láta granda farþega-
vélum sem gætu talist ógna byggð
Kaíró, Washington. AFP.
Silvio
Berlusconi