Vísir - 19.11.1979, Page 25
VISIR Mánudagur 19. nóvember 1979
BændablóQ meö
kfmni 09 krafti
JónBjamason tra Girdsvfc
Hinn kunni Norðlendingur og
húmoristi, Jón Bjarnason frá
Garðsvik, hefur á vegum Bókaút-
gáfunnar Orn og Orlygur gefið út
fyrsta bindi æviminninga sinna
og nefnir bókina BÆNDABLÖÐ.
Jón segir frá fátæku fólki,
bjargálna fólki, duglegu fólki,
einkennilegu fólki og umfram allt
góðu fólki. Hvergi segir frá vondu
fólki né leiðinlegu. Þá er sagt frá
baðstofulifi með tilheyrandi
hljómsveit rokka, kamba og vef-
stóls, svo og heimsóknum bráð-
skemmtilegra flóa, sem sumir
kunnu þó ekki að meta.
Alltaf er eitthvað að gerast og i
frásögnina er fléttað gaman-
sögum og visum sem höfundur
hefur tint upp af götu sinni og vill
bjarga á þrykk, áður en lok glat-
kistunnar fellur yfir þær.
Jón segir frá uppruna sinum og
bernsku, leik að legg og skel og
elskulegu samfélagi við hunda,
sauðféoghross. Einnig frá hinum
margbreytilegu störfum i
þjónustu við stórt bú þar sem
smáar hendur leituðust snemma
við að verða að gagni og margt
manna var á heimili.
Það er ekki ofsögum sagt að
það sé þjóðlegur fróðleikur,
kraftur og kitlandi kimni i bókinni
Breiðholtsbúar, er safn tiu
sagna, tengdra saman I tima og
rúmi, eða skáldsaga i tiu sjálf-
stæðum köflum, eftir þvi hvenig
lesandinn h'tur á málið, segir aft-
an á nýrri skáldsögu eftir Guðjón
Albertsson sem Bókaútgáfan örn
og örlygur hefur gefið út. Sagan
geristi Breiðholtsbyggð I Reykja-
vik, en Breiðholtshverfin eru sem
kunnugt er fjölmennasti og jafn-
framt yngsti hluti borgarinnar,
ný borg i þeirri gömlu. Ibúar
Breiðholts eru að stærstum hluta
ungt fólk eða fólk innan við miðj-
an aldur og vandamál þess eru
þvi vandamál liðandi stundar. 1
þessari bók er i skáldskaparformi
lýst lffsháttum, sambúðarvanda-
málum og neysluvenjum Breið-
hyltinga. En sé grannt skoðað er
Breiðholt auðvitað ísland nUtim-
ans í smækkaðri mynd og Breið-
holtsbúinn hinn islenski nútima-
maður. Höfundurinn, Guðjón
Albertsson, gjörþekkir persónur
sinar og sögusvið, enda borinn og
barnfæddur Reykvikingur — og
sjálfur Breiðholtsbúi.
BÆNDABLÓÐ og hún muni vekja
hlýjar endurminningar margra
frá bernskuárunum og veita
ungum innsýn i heim horfinna
þjóðhátta.
Bókin er filmusett, umbrotin og
prentuð i prentstofu G.
Benediktssonar en bundin I
Arnarfelli hf. Kápumynd gerði
Ernest Bachmann.
Bókin Breiðholtsbúar er filmu-
sett, umbrotin og prentuð i
prentsmiðjunni Oddi hf. en bund-
in i Sveinabókbandinu hf. Kápu-
mynd gerði Pétur Hahdórsson.
Breiðholtsbúi segir
sögu úr Brelðholtinu
Skemmið ekki
vetrardekkin líka!
Látið hjóiastilla bifreiðina
iBÍLASKOÐUN
&STILLING
S13 ÍOO
HÁTÚN 2a
HJÖLÁ-
LJÓSA-
VÉLA-
ST1LUNGAR
**>*&&&
OPIÐ
KL. 9-9
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan
Nœg bilactaoði a.m.k. á kvöldin
II M N \ R S I K 1 I I siiiu !2Ti
lAllar skreytingar unnar af
)fagmönnum._________________