Morgunblaðið - 16.10.2001, Side 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KOSTNAÐUR umfram fjárheimildir
vegna skrifstofuhúsnæðis Alþingis
kom enn til umræðu á Alþingi í gær
vegna frumvarps til laga um fjár-
aukalög fyrir árið 2001. Frumvarpið
var rætt sl. fimmtudag en þá tókst
ekki að ljúka fyrstu umræðu og
komst málið því aftur á dagskrá í
gær.
Í umræðunum fyrir helgi benti
Einar Már Sigurðarson, fulltrúi Sam-
fylkingarinnar í fjárlaganefnd, meðal
annars á mikinn kostnað umfram
fjárveitingar sem fallið hefur á ríkið
vegna skrifstofubyggingar Alþingis
við Austurstræti.
Af því tilefni kom Halldór Blöndal
(D), forseti Alþingis, í ræðustól og
gagnrýndi bæði fjárlaganefnd og
framkvæmdavaldið, einkum þó
Framkvæmdasýsluna. Sagði hann
framúrkeyrsluna til marks um að Al-
þingi gæti ekki treyst verklegu og
fjármálalegu eftirliti Framkvæmda-
sýslu ríkisins. Fjárlaganefnd þings-
ins hefði svo brugðist að því leyti að
hún hefði ekki lagt til nægilegar við-
bótarfjárheimildir í fjáraukalögum
fyrir þetta ár, enda þótt hún hefði
kannað málið sérstaklega.
Mistök
fjármálaráðuneytis
Gat hann þess þá að forsætisnefnd
Alþingis hefði skipað sérstakan eft-
irlitsaðila með framkvæmdum sem
nú standa yfir við þjónustuskála Al-
þingis en stefnt er að því að taka hann
í notkun eftir eitt ár.
Einar Már gerði ummæli forseta
Alþingis að umtalsefni við umræðuna
í gær og það gerðu fleiri. Sagðist Ein-
ar Már velta því fyrir sér hvaða skila-
boð forseti þingsins væri með þessu
að senda ýmsum stofnunum ríkisins
og hvaða þætti hann væri helst að
gagnrýna. Beindi hann máli sínu
einkum til fjármálaráðherra, þar sem
komið hafði fram gagnrýni á það að í
fjáraukalagafrumvarpi væri ekki
gert ráð fyrir því að söluandvirði
vegna húseignar Alþingis að
Skólabrú rynni til framkvæmda á
vegum þingsins, þrátt fyrir að óskað
væri eftir því. Nú væri komið í ljós að
mistök fjármálaráðuneytis hafi orðið
þessa valdandi.
Af þessu tilefni sagðist Halldór
Blöndal (D) hafa gert ráð fyrir því að
í frumvarpi til fjáraukalaga yrði
heimildargrein í samræmi við bréfa-
skriftir fjármálaráðuneytisins og Al-
þingis. Sagði hann að hér hefðu ein-
faldlega átt sér stað mistök sem ekki
kæmu að sök, því á þau væri bent við
fyrstu umræðu málsins.
„Ég lít svo á að forsætisnefnd og
ég sem forseti Alþingis beri að bregð-
ast við og tryggja eftirleiðis að slíkt
endurtaki sig ekki. Þess vegna er
fyllilega tímabært að ég lýsi þvílíku
yfir og það má auðvitað finna að því
að ég sem forseti Alþingis hafi ekki
borið gæfu til þess að standa betur að
framkvæmdum hér við Austurvöll og
ég skorast ekki undan þeirri ábyrgð,“
sagði Halldór ennfremur.
Hann sagði vilja að kæmi skýrt
fram að forsætisnefnd hefði tekið á
þessu máli og hún muni gera allt sem
í hennar valdi stendur til þess að
koma í veg fyrir að slíkt endurtaki
sig.
„Ég er með þessum orðum og yf-
irlýsingum mínum hér á Alþingi á
engan hátt að skorast undan þeirri
ábyrgð sem ég ber á því sem hér hef-
ur gerst,“ sagði Halldór Blöndal.
Kostnaður vegna Auðunarstofu
á Hólum fram úr áætlun
Fjölmargt í lagafrumvarpi ráð-
herra um fjáraukalög var rætt í gær.
Kom m.a. fram hörð gagnrýni frá
Vinstri grænum á þann kostnað sem
áætlaður er vegna utanríkisráðherra-
fundar NATO í Reykjavík á næsta
ári. Undraðist Steingrímur J. Sigfús-
son (Vg) það m.a. að boðið væri til
slíks fundar án þess að það hefði fyrst
verið rætt á þingi.
Af þessu tilefni sagði Geir H.
Haarde (D), fjármálaráðherra, að ut-
anríkisráðherra hefði haft fulla heim-
ild til þess að bjóða Ísland fram sem
fundarstað í krafti meirihluta ríkis-
stjórnarinnar á Alþingi.
Þá vakti athygli í umræðunni upp-
lýsingar sem komu fram um kostnað
við svonefnda Auðunarstofu á Hólum
í Hjaltadal.
Einar Már Sigurðarson spurði
fjármálaráðherra um kostnað vegna
stofunnar og velti því fyrir sér hvers
vegna gengisþróun og vaxtabreyting-
ar gætu haft áhrif á kostnað vegna
Auðunarstofu sem verið hefði gjöf frá
Norðmönnum.
Í fjáraukalögum fyrir þetta ár er
gert ráð fyrir 10 milljóna króna auka-
framlagi til byggingar Auðunarstofu
og í fjárlögum fyrir næsta ár er gert
ráð fyrir 33 milljóna framlagi vegna
verksins.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði að um væri að ræða undarlega
og óvenjulega sögu. Norðmenn hefðu
gefið Íslendingum efnivið til að
byggja þetta mannvirki, en sá efni-
viður væri tré í skógi sem þyrfti að
höggva. Sagði Geir að sér þætti af-
skaplega leiðinlegt hve kostnaður við
þetta verkefni hefði aukist. Úr því
sem komið væri, hlyti hins vegar að
vera best að ljúka við smíði hússins
og koma málinu frá.
Um er að ræða eftirlíkingu af stofu
sem Auðun rauður Hólabiskup lét
reisa á 14. öld og stóð fram á 18. öld.
Ákveðið var að hefja endurbygg-
inguna í tengslum við kristnitökuaf-
mælið á síðasta ári.
Kostnaður umfram fjárveitingar vegna skrifstofubyggingar ræddur á Alþingi í gær
Forseti Alþingis skor-
ast ekki undan ábyrgð
UM 1.200 vinnuslys eru tilkynnt ár-
lega til Vinnueftirlitsins og verða þau
í öllum atvinnugreinum. Flestir sem
slasast eru ungir karlmenn nýlega
komnir á vinnumarkaðinn. Dánar-
tíðni í öllum vinnuslysum á sjó og
landi hérlendis er um sjö á hverja 100
þús. starfandi menn en um 3,6 á
hverja 100 þús. starfandi í Evrópu-
löndum. Tilkynna ber vinnuslys þeg-
ar um ræðir meira en dags fjarvist.
Þessar upplýsingar komu fram á
blaðamannafundi hjá félagsmálaráð-
herra og Vinnueftirlitinu þegar evr-
ópska vinnuverndarvikan var kynnt
en Evrópusambandið stendur að
henni. Verður lögð áhersla á varnir
gegn vinnuslysum. Hérlendis sér
Vinnueftirlitið um framkvæmd vik-
unnar sem felst í upplýsingaátaki,
heimsóknum á vinnustaði og ráð-
stefnu um vinnuslysavarnir sem hald-
in verður næstkomandi fimmtudag.
Fundurinn var haldinn í Smáralind og
sagði Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri
Vinnueftirlitsins, það táknrænt þar
sem þar hefði í fyrsta sinn verið beitt
ákvæðum laga um samræmingu á ör-
yggismálum á byggingarstað.
Páll Pétursson sagði slysavarnir á
vinnustað nauðsynlegar og þar skipti
máli árvekni allra starfsmanna og
brýnt væri einnig að gera starfsum-
hverfi sem best úr garði. Sagði ráð-
herra Vinnueftirlitið hafa miklu hlut-
verki að gegna bæði við að sporna
gegn slysum og að hafa áhrif á starfs-
umhverfi. Hann sagði starfsmenn
þurfa að finna til sameiginlegrar
ábyrgðar enda væru slys á vinnustað
áfall fyrir alla starfsmenn. Kristinn
Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlits-
ins, greindi frá nokkrum staðreynd-
um varðandi vinnuslys. Hann sagði að
á ári hverju yrðu um 250 milljón
vinnuslys í heiminum og árlega dæi
1,1 milljón manna vegna vinnuslysa
og atvinnutengdra sjúkdóma. Í Evr-
ópu deyja árlega 5.500 manns í vinnu-
slysum og hann sagði 4,5 milljónir
vinnuslysa verða í álfunni þar sem að
minnsta kosti þrír vinnudagar töpuð-
ust. Sagði hann það svara til 146 millj-
óna vinnudaga.
Á Íslandi er dánartíðni vegna
vinnuslysa á landi þrír á hverja 100
þúsund manns í vinnu og segir Krist-
inn helming þeirra verða í bygging-
arvinnu. Í heild er dánartíðnin sjö en
3,6 í öllum vinnuslysum í Evrópu og
segir Kristinn því þörf átaks hérlend-
is til að draga úr vinnuslysum. Vera
kunni þó að einhver vanskráning sé á
vinnuslysum í sumum Evrópulöndum
en það skýri þó ekki þennan mikla
mun.
Alls 26 slys og óhöpp á
byggingartíma Smáralindar
Einar Ragnarsson, verkfræðingur
hjá Hönnun, gegndi starfi samræm-
ingaraðila öryggismála við byggingu
Smáralindar. Fólst í því að skrá alla
þætti öryggismála, vera í sambandi
við Vinnueftirlitið, miðla upplýsingum
og skipuleggja samstarf verktaka um
öryggismál. Hann sagði verkefnið
flókið vegna hins stutta verktíma og
fjölda verktaka þar sem hver leigu-
taki sá sjálfur um innréttingar á
svæði sínu. Þá sagði hann nauðsyn-
legt að slíkur samræmingaraðili væri
óháður og kæmi ekki úr herbúðum
verktaka eða verkkaupa.
Alls urðu 26 slys eða óhöpp á bygg-
ingartíma Smáralindar, 22 hjá Ístaki
og fjögur hjá verktökum í innrétt-
ingavinnu. Flest urðu þau á tímanum
frá júní til desember árið 2000 eða
fimmtán en þá stóð yfir uppsteypa
sem Einar sagði að væri hættulegasti
verkþátturinn. Mánuðina janúar til
júní í ár voru slysin sjö og fjögur til
viðbótar fram að opnun 10. október.
Hann sagði ekkert slysanna hafa ver-
ið alvarlegt en eitt alvarlegt slys varð
áður þ.e. þegar jarðvinna stóð yfir.
Sagði Einar tvö slysanna hugsanlega
leiða til örorku og flest hefðu valdið
frá eins til sjö daga fjarveru, stöku
slys þó um mánaðar fjarveru og væri
það helst vegna beinbrota.
Kolbeinn Kolbeinsson, verkfræð-
ingur hjá Ístaki, sagði fyrirtækið hafa
fjárfest fyrir um 18 milljónir króna í
margs konar öryggisbúnaði við bygg-
ingu Smáralindar og lögð hefði verið
mikil áhersla á öryggismál við alla
framkvæmdina. Sagði hann það
stefnu Ístaks að fækka vinnuslysum.
Ráðstefna á fimmtudag
Eins og fyrr segir stendur Vinnu-
eftirlitið fyrir ráðstefnu um varnir
gegn vinnuslysum næstkomandi
fimmtudag. Verða þar flutt erindi um
vinnuumhverfi, öryggisstjórnun, um-
ferðina, tryggingamál og fleira. Ráð-
stefnan fer fram á Grand hóteli og
stendur frá kl. 12.50 til 16.50. Starfs-
menn Vinnueftirlitsins munu heim-
sækja fyrirtæki og athygli starfs-
manna vakin á hættum í
vinnuumhverfinu og viðbrögðum við
þeim. Verður sjónum beint að fyrir-
byggjandi aðgerðum og bent á nauð-
syn þess að tilkynna öll vinnuslys til
Vinnueftirlitsins.
Evrópsk átaksvika um vinnuvernd stendur til föstudags
Morgunblaðið/Golli
Páll Pétursson félagsmálaráðherra setti vinnuverndarvikuna. Næst
honum situr Kristinn Tómasson, þá Eyjólfur Sæmundsson og Einar
Ragnarsson. Einnig sést í Kolbein Kolbeinsson.
Um 1.200 vinnuslys til-
kynnt árlega hérlendis
TÆPLEGA þrítugur karlmað-
ur hefur verið dæmdur í 40
daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir að ráðast með skófluskafti
að afgreiðslumanni 11–11 í
Funalind í Kópavogi og berja
hann nokkrum sinnum í andlit
og líkama.
Maðurinn játaði brot sín.
Hann hefur tvívegis áður verið
dæmdur fyrir líkamsárásir en
þá til greiðslu fésekta. Haldi
hann skilorð í þrjú ár fellur
refsingin niður.
Guðmundur L. Jóhannesson
héraðsdómari við Héraðsdóm
Reykjaness kvað upp dóminn.
Dæmdur
fyrir árás
með skóflu-
skafti
UNGIR sem aldnir er láta sig geð-
heilbrigði varða, gengu fylktu liði
frá Hlemmi niður Laugaveginn að
Ingólfstorgi á laugardaginn. Til-
efnið var „geðslegur dagur“ sem
var rúsínan í pylsuenda dagskrár í
tengslum við alþjóða geðheilbrigð-
isdaginn sem var síðasta miðviku-
dag. Lúðrasveit verkalýðsins fór í
broddi fylkingarinnar en á Ingólfs-
torgi var haldin fjölskylduhátíð þar
sem hin ýmsu geðheilbrigðissamtök
kynntu starfsemi sína. Að auki var
boðið upp á ýmis skemmtiatriði á
geðslegum degi og fjölmenntu tón-
listarunnendur að veitingastaðnum
Gauki á Stöng þar sem blásið var til
heljarinnar tónlistarveislu.
Geðslegur
dagur
í miðbænum
Morgunblaðið/Jim Smart