Morgunblaðið - 16.10.2001, Blaðsíða 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 49
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0030-3021
4543-3700-0015-5815
4507-2800-0001-4801
!"
!#$ %&
'(' (###
Öflugasta vörnin
gegn öldrun fyrir augun þín
AGE MANAGEMENT STIMULUS COMPLEX EYES
Þetta einstaka augnkrem frá La prairie vinnur dýpra og kröftugra
gegn hrukkum og öðrum sjáanlegum einkennum öldrunar
en áður hefur þekkst.
Fullkomin lausn fyrir dýrmæta augnumgjörðina,
húð þín verður yngri, bjartari og ljómar
sem aldrei fyrr.
Kringlunni 8-12,
Laugavegi 23,
Smáralind.
3 KYNNINGAR:
Í dag í Kringlunni.
Mið. 17. okt.
í nýrri verslun í Smáralind.
Fim. 18. okt.
á Laugaveginum.
10% kynningarafsláttur
og veglegur kaupauki.
Vertu velkomin
ÞAÐ ER ekki heiglum hent að
dæma þessa bók án þess að taka mið
af fyrri verkum höfundanna. Það er
að sjálfsögðu heilög ritning innan
gagnrýnendageirans að hvert verk
standi eitt og sér og skuli dæmt á
eigin forsendum, án allrar vísunar í
„betra en“, „nær ekki sömu hæðum
og“, „vildi að verkið væri meira í lík-
ingu við“ og svo framvegis. Það er þó
með þessa óskráðu reglu eins og aðr-
ar að oft er himinn og haf á milli
sýndar og reyndar.
Í tilfelli Neil Gaiman, sem skrifar
Mr. Punch, er nánast ógerlegt að
skilja höfundinn frá höfuðverki hans,
sögunni af Morpheus og systkinum
hans í Sandman. Allar fantasíu-
myndasögur eru reyndar undir
sömu sökina seldar. Sandmanserían
skóp ný og hærri viðmið um snilld
innan myndasöguheimsins og er
einnig ein af fáum myndasögum sem
hafa náð að skapa sér nafn hjá hinum
almenna bókaunnanda. Ég er því
ansi hræddur um að samanburður sé
óumflýjanlegur.
Mr. Punch kom út 1995 eða í þann
mund sem Sandman var að renna
sitt skeið. Sagan snýst um hugrenn-
ingar ungs drengs sem reynir að
koma einhverju skikki á óþroskaðar
tilfinningar sínar í samfélagi fullorð-
inna. Einföldustu mál verða að dul-
arfullum leyndarmálum í meðförum
hinna fullorðnu þar sem þeir mæla í
hálfkveðnum vísum. Sagan er sögð í
fyrstu persónu og Gaiman lætur pilt-
inn túlka það sem fram fer í kringum
sig með sínu barnslega ímyndunar-
afli. Smátt og smátt kemur þó í ljós
að dulmál umhverfisins byggist ekki
einvörðungu á órum ungs hugar
heldur leynist þar ýmislegt óhreint í
pokahorninu. Beinagrindurnar í
skápunum koma þá í ljós og spennan
eykst.
Teiknari bókarinnar er Dave
McKean sem sá einnig um að
skreyta kápur Sandman-blaðanna á
sínum tíma af miklu listfengi. Hér
notar hann margvíslega tækni til
þess að koma hugsunum drengsins á
framfæri; barnslegar teikningar sem
falla eins og flís við rass við viðfangs-
efnið, ljósmyndir, klippimyndir,
brúður og vatnsliti í dimmum tónum.
Hann nær með þessu að skapa ver-
öld sem er á mörkum draums og
veruleika. Veröld sem er ógnvekj-
andi og forvitnileg í senn. Hreint
ótrúlega vel gert og ekki spillir fyrir
að bókin er í stærra broti en hefð-
bundnar myndasögur sem gerir það
að verkum að myndskreytingarnar
ná ennþá betri tökum á lesandanum.
Því miður er ekki hið sama hægt
að segja um söguna sjálfa. Eins og
hæfir umfjöllunarefninu þá reynir
Gaiman að gefa í skyn frekar en að
tala hreint út. Það tekst samt ekki
nógu vel þar sem meginsagan hverf-
ur nánast í skuggann af tilvistar-
kvíðalegum pælingum drengsins.
Vísanir hans í brúðuleikhús (sem
bókin dregur nafn sitt af) verða á
endanum þreyttar og hafði ég á til-
finningunni að Gaiman hefði sniðið
sér of þröngan stakk við framsetn-
inguna.
Það er ekki ólíklegt að Gaiman
hafi skrifað Mr. Punch sem eins kon-
ar andsvar við Sandman. Mr. Punch
er persónulegt verk þar sem reynt
er að skyggnast inn fyrir luktar dyr
hugans á meðan Sandman var á út-
opnu í endalausum vísunum og hug-
myndaauðgi. Þrátt fyrir áðurnefnda
galla er margt gott að finna í Mr.
Punch en fyrir höfund Sandman er
það bara ekki nógu gott. Svona getur
nú heimurinn verið grimmur.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Á mörkum draums
og veruleika
heimirs@mbl.is
Mr. Punch eftir Neil Gaiman og
Dava McKean. Útgefið af Vertigo/
DC Comics 1995. Bókin fæst
í Nexus IV á Hverfisgötu.
Heimir Snorrason