Morgunblaðið - 16.10.2001, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ZONG-YUAN Zhao, sem er einn
stigahæsti unglingur í heimi í sínum
aldursflokki, sigraði á Atskákmóti
Glefsis sem fram fór í Garðabæ um
helgina eftir harða keppni við Björn
Þorfinnsson. Zhao fékk 6½ vinning í 7
skákum, en eina jafnteflið var gegn
Birni, sem hafnaði í öðru sæti með 6
vinninga. Lokastaðan á mótinu varð
þessi:
1. Zong-Yuan Zhao 6½ v.
2. Björn Þorfinnsson 6 v.
3. Dagur Arngrímsson 5 v.
4. Halldór B. Halldórsson 4½ v.
5. Baldur Möller 3 v.
6. Davíð Kjartansson 2 v.
7. Stefán Bergsson 1 v.
8. Kjartan Thor Wikfeldt 0 v.
Baráttan um efsta sætið á mótinu
var spennandi allt fram á síðustu mín-
útur, ekki síst fyrir tilstilli Halldórs B.
Halldórssonar sem glímdi við þá
Björn og Zhao í tveimur síðustu um-
ferðunum. Björn lék illa af sér gegn
Halldóri í sjöttu umferð, en tókst af
alkunnu harðfylgi að halda barátt-
unni áfram og náði að lokum jafntefli.
Í síðustu umferðinni tefldi Halldór
síðan við Zhao og eftir að öllum öðr-
um skákum umferðarinnar var lokið
sátu þeir enn að tafli og Halldóri hafði
tekist að halda stöðunni í jafnvægi.
Það fór þó svo að lokum að hann lék af
sér og þar með tryggði Zhao sér sigur
á mótinu.
Það var Taflfélag Garðabæjar sem
stóð fyrir mótinu í samvinnu við Tafl-
félagið Helli, Skákfélags Akureyrar,
Skákskóla Íslands, 12 tóna, MP-verð-
bréf og Guðmund Arason.
Skák frá Evrópumóti taflfélaga
Björgvin Jónsson teflir sjaldan á
skákmótum, en hefur þrátt fyrir það
náð að halda styrkleika sínum eins og
sjá mátti á Evrópumóti taflfélaga þar
sem hann hlaut flesta vinninga liðs-
manna Taflfélags Reykjavíkur. Hann
tapaði ekki skák, fékk 6 vinninga af 7
og verðlaun fyrir bestan árangur á
þriðja borði. Eins og sjá má í eftirfar-
andi skák er Björgvin óhræddur við
að takast á við hvössustu byrjunar-
afbrigði skákfræðanna og fylgist því
greinilega vel með þróun mála þótt
hann tylli sér sjaldan niður við skák-
borðið í opinberum mótum.
Hvítt: Björgvin Jónsson
Svart: Mario Horvath
Sikileyjarvörn
1.e4 c5 2.Rf3 d6 3.d4 cxd4 4.Rxd4
Rf6 5.Rc3 g6 6.Be3 Bg7 7.f3 0–0
8.Dd2 Rc6 9.Bc4 Bd7 10.0–0–0 Da5
11.h4 Hfc8 12.Bb3 Re5 13.Kb1 b5!?
Svartur fórnar peði fyrir gagnfæri,
en oftast er leikið hér 13...Rc4
14.Bxc4 Hxc4 15.Rb3 Dc7, ásamt 16.
Bd4 eða 16. h5 o.s.frv.
Svartur getur ef til vill leikið 13. --
h5!? í stöðunni.
14.Rcxb5 Dxd2 15.Bxd2 --
Hvítur getur einnig drepið með
hrók, t.d. 15.Hxd2 Hab8 16.a4 a6
17.Ra3 Be8 18.Bg5 Kf8 19.h5 Rxh5
20.Ka2 Hc5 21.g4 Rf6 22.Bxf6 Bxf6
23.Hxh7 Ha5 24.c3 e6 25.Bd1 Bxa4
26.b4 Bxd1 27. Hxd1 Hab5 28. Raxb5
og hvítur vann (Hannes Hlífar Stefáns-
son-Guðmundur Halldórsson, 1994).
15...Hab8
Eða 15...Rc4 16.Bxc4 Hxc4 17.b3
Hc5 18.c4 e5 19.Re2 Bxb5 20.cxb5
Hxb5 21.Bg5 Hb6 22.Bxf6 Bxf6
23.Rc3 Hc6 24.Rd5 Kg7 25.Hc1
Hxc1+ 26.Kxc1 h5 27. Kb2 Bd8 28. g3
Hc8, með jafntefli 18 leikjum síðar
(Þröstur Þórhallsson-Guðmundur
Halldórsson, Deildarkeppni 1994).
16.a4 a6 17.Rc3 Be8 18.Bg5 Kf8
Hvítur á peði meira, en það er mjög
erfitt fyrir hann að notfæra sér það.
Svörtu mennnirnir standa vel til að
verjast peðameirihluta hvíts á drottn-
ingarvæng.
19.Ka2 Rc4 20.g4 Hc5 21.Bc1 h5
22.gxh5 Rxh5 23.Hhg1 Ra5 24.Hg5 --
Sjá stöðumynd 1
24...Rb7?
Með þessum leik tapar svartur dýr-
mætum tíma, því að hann verður fyrr
eða síðar að drepa biskupinn á b3.
Eftir 24...Rxb3 25.cxb3 Be5 26.Be3
Hcc8 27.Rd5 e6 28. Rc3 Hc7 29. Hg2
Hbc8 kemst hvítur lítið áleiðis.
25.f4 Hxg5 26.hxg5 Rc5 27.f5
gxf5?!
Það er varasamt að taka valdið af
riddaranum á h5. Öruggara hefði ver-
ið fyrir svart að bíða átekta með 27. --
Rxb3 28. cxb3 Bd7 o.s.frv.
28.exf5 Rxb3 29.cxb3 Rg3?
Eftir 29...Bd7 30.Rce2 Hc8 31.Hg1
e5 32.fxe6 fxe6 virðist svartur hafa
nægilegt mótvægi fyrir peðið. Reynd-
ar verður hvítur að gæta sín, t.d.
33.Hf1+ Ke7 34.Be3 e5 35.Rf5+ Bxf5
36.Hxf5 Ke6 37.Hf2 d5 38.Kb1 Hf8
39. Hxf8 Bxf8 og svartur hefur betra
tafl.
30.f6! --
Sjá stöðumynd 2
30...Bh8
Eða 30...exf6 31.Bf4 Kg8 32.Bxg3
fxg5 33.Bxd6 Hb6 34.Rf5 Hb7
35.Rxg7 o.s.frv.
31.Bf4 Rh5
Engu betra er 31. -- e5 32. Bxg3
exd4 33. Bxd6+ Kg8 34. Bxb8 dxc3
35. Hd8 o.s.frv.
Hvítur nær nú afgerandi liðsyfir-
burðum og lokin þarnast ekki skýr-
inga.
32.Hh1 Bxf6 33.gxf6 Rxf6 34.Rf5
Rg8 35.Rxd6 Hb4 36.Rxe8 Hxf4
37.Rc7 Hf6 38.R7d5 Hd6 39.Re3 e6
40.Rc4 Hd4 41.Hd1 Hxd1 42.Rxd1
Re7 43.Ka3 Rc6 44.b4 Ke7 45.b5
axb5 46.axb5 Rd4 47.Kb4 f5 48.Kc5
Rb3+ 49.Kb6 Rd4 50.Ka6 Kd7 51.b6
Rc6 52.Ra5
og svartur gafst upp. Lokin hefðu
getað orðið á eftirfarandi hátt:
52...Rxa5 (52...Rb8+ 53.Kb7 e5
54.Kxb8 e4 55.b7 f4 56.Ka7 e3
57.b8D) 53.Kxa5 Kc8 54.Ka6 Kb8
55.b7 e5 56.Kb6 e4 57.Rc3 e3 58.Re2
f4 59.Rd4 f3 60.Rc6+ mát.
Björn Þorsteinsson
enn í fremstu röð
Sigurbjörn Björnsson og Björn
Þorsteinsson eru efstir á Haustmóti
TR með 7½ vinning þegar ein umferð
er til loka mótsins. Sigurbjörn stend-
ur þó betur að vígi þar sem hann á
frestaða skák við Davíð Kjartansson.
Björn Þorsteinsson sigraði Sævar
Bjarnason í 10. umferð og það er svo
sannarlega ánægjulegt að sjá hann
standa sig svo vel eftir að hafa dregið
sig að mestu leyti í hlé frá þátttöku í
skákmótum um árabil.
Arnar Gunnarsson, sem virtist
ætla að veita Sigurbirni harða keppni
um efsta sætið, tapaði óvænt fyrir
Einari Kr. Einarssyni í 10. umferð, en
Einar var í neðsta sæti á mótinu. Ein-
ar hefur reyndar haft töluverð áhrif á
gang mála, þótt vinningarnir séu ekki
margir, því fyrr í mótinu sigraði hann
Davíð Kjartansson. Ingvar Jóhannes-
son, sem var farinn að eygja mögu-
leika á efsta sætinu, gerði jafntefli við
Jón Árna Halldórsson í 10. umferð.
Staðan í A-flokki er þessi fyrir síðustu
umferð:
1. Sigurbjörn Björnsson 7½ + fr.
2. Björn Þorsteinsson 7½ v.
3.-4. Arnar Gunnarsson, Ingvar Jóhannesson 7 v.
5. Davíð Kjartansson 5½ + fr.
6.-7. Jón Árni Halldórsson, Sævar Bjarnason 4 v.
8. Dagur Arngrímsson 3½ + fr.
9. Júlíus Friðjónsson 3½ v.
10.-12 Guðni Stefán Pétursson, Guðjón Heið-
ar Valgarðsson, Einar Kr. Einarsson 2½ + fr.
Í B-flokki er staða efstu manna
þessi:
1. Halldór Pálsson 7 v.
2. Guðmundur Kjartansson 6 v.
3. Ólafur Kjartansson 5½ v.
4. Jónas Jónasson 5 + 2 fr.
5.-7. Bjarni Magnússon, Kjartan Guðmunds-
son, Halldór Garðarsson 5 v. o.s.frv.
Í C-flokki er staðan þessi fyrir síð-
ustu umferð:
1. Aldís Rún Lárusdóttir 9½ v.
2. Hilmar Þorsteinsson 8½ v.
3. Anna Björg Þorgrímsdóttir 8 v.
4. Sturla Þórðarson 7 v.
5. Aron Ingi Óskarsson 6½ v.
6.-10. Trausti Eiríksson, Ásgeir Mogensen,
Skúli Mogensen, Ólafur Evert Úlfsson, Arn-
ljótur Sigurðsson 5 v.
o.s.frv.
Skákmót á næstunni
SÍ. 19.10. Íslandsm. skákfélaga
SÍ. 23.10. Minnm. um Jóhann Þóri
SA. 25.10. Hraðskákmót
Zong-Yuan Zhao sigraði
á Atskákmóti Glefsis
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
SKÁK
G a r ð a b æ r
ATSKÁKMÓT
12.–14.10. 2001
SKÁK
Stöðumynd 1. Stöðumynd 2.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Blá/hvíta húsið í Smáranum
Glæsilegt 2.400 fm atvinnuhúsnæði á fjórum
hæðum til leigu. Möguleikar á skiptingu í 300
fm skrifstofu- og verslunareiningar. Tryggðu þér
góðan stað fyrir reksturinn í miðju höfuðborgar-
svæðisins í tíma. Staðsetningin hefur mikið
auglýsingagildi. Traustur eignarhaldsaðili.
Upplýsingar í síma 896 6526.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Norræna félagið
Aðalfundur 24. okt. 2001
Norræna félagið í Reykjavík heldur aðalfund
í Norræna húsinu miðvikudaginn 24. október
kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Færeyskur fróðleikur og fjör.
Veitingar í boði.
Stjórnin.
KENNSLA
Viltu vernda hjartað?
Dagana 25.—27. október halda Símenntunar-
stofnun KHÍ og Hjartavernd námskeið um
helstu áhættuþætti hjartasjúkdóma sem tengj-
ast mataræði. Einnig verður kennt að elda
hjartavænan mat.
Staður og stund:
Kennslueldhús Kennaraháskóla Íslands, Skip-
holti 37; 25. október kl. 20—22, 26. október kl.
17—21 og 27. október kl. 10—14.
Kennarar: Brynhildur Briem og Stefanía V.
Stefánsdóttir, kennarar við KHÍ og sérfræði-
læknir frá Hjartavernd.
Verð: 13.500 kr.
Innifalið í verði eru 2 máltíðir og uppskriftir.
Skráning er til 18. október í síma 563 3980
í Símenntunarstofnun KHÍ, netf.: simennt@khi.is .
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Útboð
Fasteignir Akureyrarbæjar óska eftir tilboðum
í breytingar í kjallara og á 1. hæð í norðurálmu
dvalarheimilisins Hlíð við Austurbyggð.
Um er að ræða endurnýjun snyrtiherbergja
og breytingar á vakt- og línherbergi.
Útboðsgögn verða afhent gegn 10.000 kr. skila-
tryggingu á teiknistofunni Form ehf., Kaupangi
við Mýrarveg, Akureyri, frá og með mánudeg-
inum 15. október nk.
Tilboðin verða opnuð hjá Fasteignum Akureyr-
arbæjar, Geislagötu 9, Akureyri, þriðjudaginn
23. október nk. kl. 11.00 að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Fasteignir Akureyrarbæjar.
Hafnarfjörður
Svæðisskipulag
- kynningarfundur
Boðið er til kynningarfundar þar sem kynntar
verða tillögur að svæðisskipulagi fyrir höfuðborg-
arsvæðið 2001—2024.
Fundurinn verður haldinn í Hafnarborg fimmtu-
daginn 18. október kl. 20:00.
Bæjarskipulag Hafnarfjarðar.
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir,
Lára Halla Snæfells, Erla Alex-
andersdóttir, Margrét Haf-
steinsdóttir og Garðar Björg-
vinsson michael-miðill starfa
hjá félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum uppá einka-
tíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—18.
Utan þess tíma er einnig hægt
að skilja eftir skilaboð á sím-
svara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
KENNSLA
■ www.nudd.is
BLÓMADROPAMEÐFERÐ
Verð með nám-
skeið í notkun
blómadropa
helgina 20.—21.
október.
Er einnig með
einkatíma og
held fræðslufundi og fyrirlestra.
Uppl. gefur Íris Sigurðardóttir
í símum 561 1885 og 866 2420,
netfang isblom@simnet.is.
FÉLAGSLÍF
FJÖLNIR 6001101619 I Atkv,
EDDA 6001101619 III
HLÍN 6001101619 IV/V
I.O.O.F.Rb.4 15110168
I.O.O.F. Ob. 1 Petrus 18210168
Fl.
Aðalstöðvar KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Ferð aðaldeilda KFUK og KFUM
á Akranes í kvöld. Mæting á
Holtaveg kl. 18:45. Skráning til
kl. 13 í síma 588 8899. Enginn
fundur hjá KFUM á fimmtudag.
Kristilegt félag
heilbrigðisstétta
Aðalfundur verður haldinn
þriðjudaginn 16. október kl 20.00
á Háaleitisbraut 58.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Umræða um trúarþarfir
sjúklinga og fræðslu fyrir heil-
brigðisstarfsmenn.
Hugleiðing
Sr. Sigfinnur Þorleifsson.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R