Morgunblaðið - 16.10.2001, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 25
Kosmeta
Síðumúla 17 • Sími 588 3630
Hárið glampar
og glansar
VETRARDAGSKRÁ Kaffileik-
hússins í Hlaðvarpanum hefst ann-
að kvöld með frumsýningu á verk-
inu Veröldin er vasaklútur. Það er
The Icelandic Take Away Theatre
sem semur verkið, en Kaffileik-
húsið verður athvarf Take Away
leikhússins í vetur. Kaffileikhúsið
er að hefja sitt sjöunda starfsár að
sögn Eddu Jónasdóttur, rekstrar-
stýru Hlaðvarpans. Fimm sýningar
eru ráðgerðar á fyrri hluta starfs-
ársins, auk verksins sem frumsýnt
verður annað kvöld verður breskt
uppistand á dagskrá í lok nóvem-
ber, þar sem Alan Cochrane og
Howard Read skemmta Íslending-
um, en þeir hafa getið sér gott orð
á öllum helstu uppistandsstöðum
Bretlands á liðnum árum.
Þriðja verkefni Kaffileikhússins
er leikritið Eva, sem tekið er upp
frá fyrra starfsári, en einleikurinn
fjallar um miðaldra sjónvarpskonu
í glímu við aldurinn og fegurð-
ardýrkun nútímans. Jólaleikrit
Kaffileikhússins verður einleikur-
inn Missa Solemnis eftir Kristiinu
Hurmerintu. Loks verður svo verk
Völu Þórsdóttur og Icelandic Take
Away-leikhússins, Háaloft, tekið til
sýninga að nýju.
Stórsveitin verður
hljómsveit hússins
Nýjung í starfsemi Kaffileik-
hússins í vetur verður að sögn
Eddu Jónasdóttur að Stórsveit
Reykjavíkur verður eins konar
húshljómsveit, og verða fyrstu tón-
leikar sveitarinnar í Kaffileikhús-
inu 31. október. Kaffileikhúsið er
einnig í samvinnu við Tapas-barinn
á neðri hæð hússins, en Tapas-
barinn býður upp á veitingar að
spænskum sið með leiksýningum í
húsinu.
Leikritið Veröldin er vasaklútur
er gamanleikur, unninn út frá
trúðatækni og því sem kallað er
leikmunavinna. Ekkert handrit er
gert að verkinu, það er samið af
aðstandendum sýningarinnar á æf-
ingum.
Leikstjóri sýningarinnar er Neil
Haig, og hann segir að verkið sé
unnið út frá ákveðinni hugmynd
eða ramma. „Hugmyndin var að
verkið snerist um líf tveggja bak-
ara sem taka þátt í aðgerðum and-
spyrnuhreyfingar. Þetta er óskil-
greind andspyrnuhreyfing; – við
vitum ekki hverju hún berst gegn,
– en bakararnir eru stöðugt að
bjarga mannslífum. Þetta snýst um
þess konar hetjudáðir. Þetta býður
upp á ýmsa möguleika við að
tengja saman margar litlar sögur í
eina heild,“ segir Haig.
Leikararnir í sýningunni eru
Vala Þórsdóttir og Ágústa Skúla-
dóttir, en sviðsmynd og búninga
hannar Katrín Þorvaldsdóttir.
Ágústa segir bakarana vænar per-
sónur. „Þeir eru örlátir; bakaríið
þeirra er í hjarta bæjarins og þeg-
ar þeir eru beðnir um að aðstoða
andspyrnuhreyfinguna komast þeir
að því að þeir eru mun félgaslegar
sinnaðir en þeir höfðu ímyndað
sér.“ „Þeir kunna ekki að segja
nei,“ segir Haig, „jánka öllu og
taka allt að sér sem þeir eru beðnir
um,“ og Vala bætir við: „Þeir
bretta bara upp ermarnar og tak-
ast á við verkefnin, hvort sem það
er að baka brauð eða að bjarga
mannslífum. Fyrir þá er hvort
tveggja angi af sama veruleika.
Sjálfsbjargarviðleitnin er þeim í
blóð borin, og þeir verða að finna
lausnir á sínum vandamálum.“
Þær Vala Þórsdóttir og Ágústa
Skúladóttir hafa báðar mikla
reynslu af leiklistarkennslu og leik-
stjórn bæði hér á landi sem erlend-
is. Ágústa hefur leikið í flestum
uppfærslum leikhússins, bæði í
Lundúnum, þar sem leikhúsið var
stofnað, og hér heima, ásamt því að
eiga stóran þátt í að semja mörg
þeirra verka sem það hefur sett á
svið. Síðustu misseri hefur Ágústa
getið sér gott orð fyrir uppistand
víða á Bretlandseyjum þar sem
hún er búsett.
Vala hefur starfað sem leikkona,
höfundur, leikstjóri og kennari síð-
astliðin 6 ár. Hún hefur unnið mik-
ið með The Icelandic Take Away
Theatre bæði hér á landi og í Eng-
landi, bæði sem höfundur og leik-
kona. Hún hefur sýnt sex einleiki
eftir sig, nú síðast Háaloft í Kaffi-
leikhúsinu.
Með rætur í ensku leikhúsi
The Icelandic Take Away
Theatre var stofnað af þremur
konum í Lundúnum árið 1996.
Leikfélagið starfaði fyrstu fjögur
árin alfarið í Englandi, en hóf
starfsemi sína hérlendis árið 2000,
þegar tvö verka þess, Dóttir
skáldsins og Háaloft, voru valin úr
fjölda nýrra íslenskra leikverka til
að taka þátt í leiklistarhátíðinni Á
Mörkunum. The Icelandic Take
Away Theatre hefur lagt metnað
sinn í að flytja ný leikverk, og hef-
ur sett upp níu frumsamin leikrit á
fimm árum og nýja leikgerð eftir
skáldsögu Einars Más Guðmunds-
sonar, Englar alheimsins. Leik-
félagið fékk gagnrýnendaviður-
kenninguna á leiklistarhátíð
jaðarleikhúsa í Búdapest í apríl
2001 og fyrstu verðlaun á Evr-
ópsku kvennaleikhúshátíðinni í
Finnlandi sama vor. Þetta er ell-
efta leikverk félagsins.
Morgunblaðið/Golli
Vala Þórsdóttir og Ágústa Skúladóttir í hlutverkum bakaranna jákvæðu í verkinu Veröldin er vasaklútur.
Baka brauð og
bjarga mannslífum
Fyrsta frumsýningin í Kaffileikhúsinu á þessu leikári
BANFF fjallakvikmyndahátíðin
verður haldin í Háskólabíói í kvöld
og annaðkvöld kl. 20.15, bæði
kvöldin. Hátíðin er á vegum versl-
unarinnar Nanoq/Skátabúðarinn-
ar í Reykjavík og er þetta fjórða
sinn sem hátíðin kemur hingað til
lands.
Í ár verður sérstök hátíðasýning
í tilefni 25 ára afmælis hátíðarinn-
ar, auk úrvals bestu kvikmynda
síðasta árs. Að þessu sinni eru 11
myndir á hátíðinni m.a. Sishap-
angma – a celebration of life, Stik-
ine River Fever, Y2sKi, El Capit-
an. Af eldri myndum er helst að
nefna Solitairy Journey, mynd
Guðmundar Einarssonar frá Mið-
dal um fjallamennsku í Tindfjöllum
og fleira þar sem sýnt er frá heim-
sókn sir Edmund Hillary til Ís-
lands árið 1955.
Forsala aðgöngumiða er í versl-
uninni Nanoq í Kringlunni.
Ellefu myndir á Banff-
hátíðinni í Háskólabíói
SAMSÝNING 12 listamanna verður
opnuð í Sparisjóðnum í Garðabæ að
Garðatorgi 1 kl. 17.30 á morgun.
Sýningin er samstarfsverkefni
Sparisjóðsins í Garðabæ og Menn-
ingarmálanefndar Garðabæjar. Hún
verður opin á afgreiðslutíma Spari-
sjóðsins út árið 2001.
Myndlist á
Garðatorgi
ÍSLENSKIR milljarðamæringar
– Efnuðustu menn þjóðarinnar og
leiðir þeirra til auðs og valda er eft-
ir Pálma Jónasson. „Í bókinni er
fjallað um efnuðustu menn þjóð-
arinnar og ferill þeirra rakinn,
kryddaður sögum úr hörðum og
framandi heimi þar sem auðurinn
getur margfaldast eða horfið á auga-
bragði. Á undanförnum árum hafa
átt sér stað miklar eignatilfærslur á
Íslandi. Myndast hefur hópur vell-
auðugra Íslendinga sem eru millj-
arðamæringar, eiga eignir að verð-
mæti meira en 1.000 milljónir króna.
Milljarðamæringarnir eru yfir 50
talsins og eiga margir fátt annað
sameiginlegt en auðinn,“ segir í
kynningu.
Útgefandi er Almenna bóka-
félagið. Bókin er 332 bls., innbundin
og prentuð í prentsmiðjunni Odda.
Ragnar Helgi Ólafsson hannaði
bókarkápu. Verð 4.490 kr.
Nýjar bækur
SORG í ljósi lífs og dauða er eftir
sr. Braga Skúlason. Höfundur hefur
starfað sem sjúkrahúsprestur á
Landspítalanum frá
1989. Í bókinni fjallar
hann um sorgina frá
ýmsum hliðum. Efn-
isþættir eru m.a.
missir barna, sjálfs-
víg, sorgarferli í
ýmsu samhengi, for-
boðin sorg, staðurinn
sem þú forðast, fóst-
urlát, dauðinn og skólastofan, lík-
brennsla, friðhelgi sorgarinnar,
bernskuáföll og leiðsögn fullorðinna,
að eldast. Bókin er samsafn greina,
fyrirlestra og ljóða höfundar 1989-
2001.
Bókin fæst í Kirkjuhúsinu og hjá
höfundi.
Bragi
Skúlason
Lyklakippur
Litir: Gyllt, silfrað
aðeins 350 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is