Morgunblaðið - 03.11.2001, Síða 1

Morgunblaðið - 03.11.2001, Síða 1
252. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 3. NÓVEMBER 2001 ENGINN fótur reyndist fyrir því að duft sem fannst í póstsendingum á tveimur stöðum í Þýskalandi hefði haft að geyma miltis- brandsgró. Ulla Schmidt, heil- brigðisráðherra Þýskalands, greindi frá þessu í gærkvöldi. Fyrr um daginn hafði orðið mikið upp- nám í sambandslöndunum Thür- ingen og Schleswig-Holstein þegar fréttist að bréf, sem sent var at- vinnumálaskrifstofu ríkisins í Rud- olstadt í Thüringen, og tveir pakk- ar sem fundust í Neumünster í Schleswig-Holstein hefðu haft að geyma miltisbrandsgró. Í Karachi í Pakistan gerðist það að skrifstofum dagblaðsins Jang var lokað en frumrannsóknir höfðu leitt í ljós að miltisbrandsgró hefði verið að finna á fréttayfirlýsingu sem barst blaðinu í síðustu viku. Stjórnvöld í landinu vildu þó rann- saka málið nánar og gáfu í skyn í gær að um gabb gæti hafa verið að ræða. Á fimmtudag hafði fengist stað- fest að miltisbrandsgró var að finna í póstpoka í bandaríska sendiráðinu í Vilníus í Litháen. Var það fyrsta miltisbrandstilfellið í Evrópu en fram að þessu hafa þau verið einskorðuð við Bandaríkin. Á myndinni má sjá hvar grískir slökkviliðsmenn æfa viðbrögð við fundi grunsamlegra póstsendinga en fulltrúar bandaríska sendiráðs- ins í Aþenu sögðu í gær að nú væri verið að rannsaka bréf sem barst nýverið og þótti grunsamlegt. Reuters Duftið reyndist laust við miltisbrand Berlín, Karachi. AP, AFP. GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði í gær að ekkert hlé yrði gert á árásum á skotmörk í Afganist- an yfir hvíldarmánuð múslima, ram- adan, sem hefst um miðjan nóvem- ber. Héldu bandarískar B-52 sprengjuflugvélar áfram að tæma lestar sínar yfir hernaðarlega mikil- vægum hæðum í nágrenni Kabúl sem þykir til marks um að nú eigi að veita afgönsku stjórnarandstöðunni fullt liðsinni í baráttunni við hersveitir tal- ibana. Margar múslimaþjóðir, sem stutt hafa aðgerðirnar gegn Afganistan, höfðu lýst andstöðu sinni við að loft- árásum yrði haldið áfram á meðan á ramadan stæði. „Mín skoðun er sú að óvinurinn muni ekki taka sér neina hvíld á meðan ramadan stendur yfir og því munum við ekki gera það held- ur,“ sagði Bush hins vegar í gær. „Við munum halda þessu stríði áfram uns við höfum náð markmiðum okkar,“ sagði hann. Í fyrrinótt hafði komið til bardaga í Uruzgan í Mið-Afganistan milli talib- ana og stuðningsmanna Hamids Karzai, áhrifamikils stjórnarand- stæðings af þjóðflokki Pastúna. Sögðust Talibanar hafa handsamað 25 af stuðningsmönnum Karzai en Karzai hefur undanfarið reynt að vinna Zaher Shah, fyrrverandi kon- ungi Afganistan, fylgi meðal Afgana. Koma á fót „áróðursútvarpi“ Karzai slapp sjálfur undan á flótta en fyrir nokkru tóku talibanar annan forystumann stjórnarandstöðunnar, Abdul Haq, af lífi en hann hafði verið í Afganistan í sömu erindagjörðum og Karzai. Vesturveldin sjá Shah sem líklegan forystumann þeirrar stjórn- ar sem hugsanlega tæki við ef talib- anar hrökklast frá völdum. Talsmenn talibanastjórnarinnar sögðu bæði Osama bin Laden, sem grunaður er um hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september sl., og Mohammad Omar, andlegan leiðtoga talibana, á lífi og vel haldna þrátt fyr- ir næstum fjögurra vikna langar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna. Hafa Bandaríkjamenn nú ákveðið að setja á laggirnar útvarpsstöð, Radio Free Afganistan, sem ætlað er að vinna gegn talibönum í svokölluðu „áróðursstríði“ en þeir óttast þau áhrif sem yfirlýsingar talibana um voðaverk Bandaríkjamanna í Afgan- istan hafa á almenning í löndum múslima í nágrenni Afganistan, sem og í Afganistan sjálfu. Ekki gert hlé á árás- unum yfir ramadan Washington, Doha, Rabat í Afganistan. AFP, AP.  Verulegur/26 DAVID Trimble, leiðtoga Sam- bandsflokks Ulster (UUP) á Norður- Írlandi, mistókst í gær að tryggja sér kosningu í embætti forsætisráðherra en þá fór fram atkvæðagreiðsla um endurreisn heimastjórnarinnar í hér- aðinu. Einungis 29 af 59 þingmönnum flokka sambandssinna á þinginu í Belfast greiddu Trimble atkvæði sitt en til að ná kjöri þurfti hann að njóta helmings stuðnings bæði hjá flokkum kaþólskra og mótmælenda. Í kjölfar þeirrar tímamótaákvörð- unar Írska lýðveldishersins, IRA, í síðustu viku að byrja afvopnun lýsti Trimble yfir vilja UUP til að endur- reisa samstjórn kaþólskra og mót- mælenda á N-Írlandi sem hann veitti forystu þar til í sumar. Greiddu allir þingmenn kaþólskra Trimble at- kvæði sitt í gær en í röðum sam- bandssinna greiddu þingmenn Lýð- ræðislega sambandsflokksins, DUP, flokks klerksins Ians Paisley, allir at- kvæði gegn Trimble. Það sem hins vegar skipti meira máli var að tveir þingmenn UUP greiddu atkvæði gegn formanni sín- um. Töldu þeir sig ekki geta sam- þykkt stjórnar- samstarf með Sinn Féin að svo stöddu, þrátt fyrir frumkvæði IRA í síðustu viku. Ekki væru fyrirliggj- andi nægar upplýsingar um hvort – og þá hvernig og hvenær – herinn hygðist halda afvopnun áfram. Norður-Írlandsmálaráðherra bresku ríkisstjórnarinnar, John Reid, þarf nú að ákveða hvort efnt verður til nýrra kosninga á N-Írlandi eða hvort stjórnin í London tekur að fullu við stjórnartaumunum á nýjan leik. Fulltrúar bæði Sinn Féin og DUP hvöttu til þess í gær að boðað yrði til kosninga. Uppnám á Norður-Írlandi Trimble náði ekki kosningu Belfast. AFP. David Trimble YASSER Arafat, leiðtogi Palest- ínumanna, og Shimon Peres, utan- ríkisráðherra Ísraels, áttu stuttan fund á eyjunni Mallorca í gær, þar sem þeir eru staddir á ráðstefnu um efnahagsmál í Miðjarðarhafs- löndum. Á myndinni sjást þeir tak- ast í hendur á fundarstaðnum í bænum Formentor, en að baki þeim stendur Hosni Mubarak, forseti Egyptalands. Þetta var fyrsti fundur Arafats og Peresar síðan 26. september og er vonast til að hann geti lagt grunninn að frekari friðarumleit- unum en ófriðlegt hefur verið um að litast í Mið-Austurlöndum að undanförnu. Skutu palestínskir byssumenn einn ísraelskan hermann til bana og særðu annan á Vesturbakkanum í gær. Palestínumennirnir óku á jeppa upp að ísraelskri herstöð ná- lægt landnemabyggð gyðinga í Beit El, beindu skothríð að herstöðinni og flúðu svo á brott. Arafat og Peres hittast Reuters STÖRFUM í Bandaríkjunum fækk- aði um 415 þúsund í október, og at- vinnuleysi í mánuðinum nam 5,4%, að því er greint var frá í gær. Er þetta mesta atvinnuleysi síðan í desember 1996, og mesta aukning milli mánaða síðan í maí 1980. „Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Bandaríkin,“ sagði George W. Bush forseti um atvinnuleysistölurnar. Hvatti hann þingið til að samþykkja frumvarp um ráðstafanir til styrktar efnahagslífinu, til þess að auðvelda Bandaríkjamönnum að rétta úr kútn- um eftir hryðjuverkin 11. september. Bandaríkin Atvinnu- leysi eykst Washington. AFP. LÖGREGLAN í Kaupmannahöfn ætlar að sögn Jyllandsposten ekki að sinna kærum sem lagðar hafa verið fram á hendur jafnaðarmannaflokki Poul Nyrup Rasmussen forsætisráð- herra um lagabrot í sambandi við óbeinar greiðslur danska alþýðusam- bandsins í flokkssjóði. Sagði lögregl- an í gær að ekkert benti til að um brot væri að ræða þar sem refsiákvæði í lögum um fjárstuðning við flokka hefði ekki tekið gildi fyrr en eftir að greiðslurnar voru inntar af hendi. Tveir prófessorar í lögum fullyrtu í vikunni að flokkurinn hefði lengi brot- ið lög með því að taka við nær níutíu milljónum ísl. kr. að jafnaði á ári frá 1990. Bent var á að ekki væri skýrt frá greiðslunum opinberlega eða í bókhaldi flokksins. Ólöglegt fé í flokkssjóð?  Danskir/24 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.