Morgunblaðið - 03.11.2001, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 03.11.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 51 DAGBÓK Gott verð Góð þjónusta Alltaf fullt af nýjum vörum Stærðir 36-42 og 44-56 Eddufelli 2 s. 557 1730 Bæjarlind 6 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. HELGARTILBOÐ Verð áður 4.420 kr. Verð áður 14.900 kr. 1.990.- 9.900.-Tilboð Opið til kl. 16 á laugardögum malmö jojo Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518 Ný sending Ullar- og kasmírkápur Flottir aðskornir heilsársfrakkar Opið laugardaga frá kl. 10-15ÞRJÚ grönd er ekki falleg- ur samningur í NS – einn lit- ur opinn og aðeins sex slagir til reiðu. En Ítalinn Bocchi fékk slag gefins á útspilinu og beitti svo blekkingu til að fæla vörnina frá veikleikan- um. Spilið er frá viðureign Ítala og Frakka á HM í Par- ís: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠ 1086 ♥ 1086 ♦ D642 ♣Á62 Vestur Austur ♠ DG73 ♠ 92 ♥ KG93 ♥ Á532 ♦ K85 ♦ G10 ♣104 ♣G9853 Suður ♠ ÁK54 ♥ D7 ♦ Á973 ♣KD7 Vestur Norður Austur Suður Quantin Duboin Multon Bocchi Pass Pass Pass 2 lauf * Pass 2 hjörtu *Pass 2 grönd Pass 3 grönd Pass Pass Pass Í kerfi Bocchi og Duboin sýnir opnun á tveimur lauf- um veik spil með hálitina eða 18-19 punkta og jafna skipt- ingu, eins og hér. Frakkinn Quantin var óheppinn í vali á útspilslit þegar hann lagði af stað með smáan spaða. Bocchi stakk upp tíu blinds og fékk þar sjöunda slaginn. En það var allt of snemmt að fagna og Bocchi ákvað að slá ryki í augu varnarinnar með því að fara sjálfur í hjartað. Í öðrum slag spilaði hann hjarta á drottninguna og kóng vesturs. Quantin gat með engu móti séð fyrir sér hjartastöðuna og hélt áfram með spaðann, spilaði drottn- ingunni. Bocchi drap, spilaði tígli á drottningu (Quantin dúkkaði), tígli á ásinn og enn tígli. Quantin var inn í þriðja sinn og nú á síðasta séns. En hann nýtti sér ekki loka- tækifærið og hélt áfram með spaðann. Og þá gat Bocchi lagt upp níu slagi. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. LJÓÐABROT VIÐLÖG Margur prísar sumarið fyrir fagran fuglasöng. En eg hæli vetrinum, því nóttin er löng. Gef eg mitt ekki kærleiksker til kaups fyrir neinum plógi, ellegar hindir hendi mér fyrir hundrað dýr á skógi. Setjum gullsöðulinn á gangarann væna. Við skulum ríða í lundinn þann hinn græna. Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 5. nóvem- ber, verður sjötugur Óðinn Árnason, Mýrarvegi 111, Akureyri. Af því tilefni taka hann og eiginkona hans, Gunnþóra Árnadóttir, á móti ættingjum og vinum á Græna hattinum við Hafn- arstræti á Akureyri á sunnudag, 4. nóvember, frá kl. 16-19. 60 ÁRA afmæli. Í daglaugardaginn 3. nóv- ember er sextugur Kristján K. Normann, Hæðargarði 14, Reykjavík. Í tilefni dags- ins tekur hann og kona hans, Gréta Þ. Sigmundsdóttir, á móti ættingjum og vinum í dag milli kl. 16–19 í Fóst- bræðrasalnum, Langholts- vegi 109. 60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 3. nóv- ember, er sextugur Frið- finnur Ágústsson, Mávahlíð 24, Reykjavík. Hann og eig- inkona hans, Helga Haf- berg, taka á móti ættingjum og vinum í Kiwanis-húsinu, Engjateig 11, í dag kl. 16-18. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bc4 Rf6 4. d3 e6 5. Bb3 Be7 6. c3 O-O 7. O-O Rc6 8. He1 b5 9. Rbd2 a5 10. d4 cxd4 11. cxd4 Bb7 12. Rf1 Hc8 13. Rg3 Db6 14. d5 Rg4 15. dxc6 Dxf2+ 16. Kh1 Bxc6 17. He2 a4 18. Bc2 d5 Staðan kom upp í minningarmóti Jó- hanns Þóris Jóns- sonar sem lauk í gær. Áskell Örn Kárason (2.258) hafði hvítt gegn Sig- urði Páli Steindórs- syni (2.213). 19. Re5! Dxe2 20. Dxe2 Rxe5 21. exd5 Bxd5 22. Be4 Bc4 23. Bxh7+ Kxh7 24. Dxe5 Hc5 25. De4+ f5 26. Db7 Bf6 27. Be3 Hd5 28. Rh5 Bxb2 29. Hb1 Be5 30. Bf4 Hfd8 31. h4 Bc3 32. Kh2 H8d7 33. Dc6 e5 34. Bg5 f4 35. Hc1 Bb2 36. Hxc4 bxc4 37. Dxc4 a3 38. De4+ Kg8 39. Bf6 Hd2 40. Bxg7 Hxg7 41. Rxg7 Kxg7 42. h5 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birtir til- kynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbarn dagsins: Þú ert seigur og missir sjaldan sjónar á takmarki þínu. Þessi þrautseigja skil- ar þér ótrúlega langt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Orð sem falla í hita leiksins valda þér verulegum heila- brotum. Taktu þau samt ekki of alvarlega, því viðkomandi vill efalaust taka þau aftur. Naut (20. apríl - 20. maí)  Tækni nútímans er ótrúleg og þú átt ekki að streitast á móti henni, heldur taka hana í þína þjónustu. Þannig opn- ast þér nýir möguleikar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú hefðir gott af því að kom- ast eitthvað afsíðis og spek- úlera í hlutunum. Það birtast oft nýir fletir þegar málin eru könnuð í ró og næði. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Reyndu að taka til hendinni heima við. Þú kemur sjálfum þér á óvart, því þú getur svo miklu meira en þú hefur haldið. Brettu upp ermarn- ar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Vertu óhræddur við að segja skoðanir þínar hver sem í hlut á. Það á að vera auðvelt að vera hreinskilinn án hamagangs og stóryrða. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Gefðu þér tíma til að aðstoða vini þína, sem hafa leitað hjálpar hjá þér. Mundu að þeir voru til fyrir þig, þegar þú þurftir á þeim að halda. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Langi þig til þess að lyfta þér upp, skaltu gera það og njóta þess. Það hefur ekkert upp á sig að neita sér um allt í misskildu samviskubiti. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú átt eftir að verða hissa þegar upp á yfirborðið kem- ur sérstakt fjölskyldumál. Þótt framandi sé verður að leysa það sem önnur slík. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú gætir fengið ýmsar hug- myndir af því að gefa þér tíma til að spjalla við vinina. Og hver veit nema einhver þeirra eigi eftir að opna þér dyr. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Láttu ekki fordóma hafa áhrif á hvernig þú metur til- boð sem þér berast. Vertu opinn og gefðu þér góðan tíma til að kanna málin frá öllum hliðum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Öll menntun er eftirsóknar- verð svo þú ættir að grípa tækifæri sem gefast á því sviði. Það er aldrei að vita hvenær sú þekking gagnast þér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hafðu vakandi auga á fjár- málunum og láttu engan bil- bug á þér finna þótt útlitið sé ekki alltaf jafnglæsilegt. Sýndu fyrirhyggju og spar- semi. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FRÉTTIR GÖNGUFERÐ á Grímannsfell í Mosfellssveit með Ferðafélagi Ís- lands verður farin sunnudaginn 4. Gönguferð á Grímannsfell nóvember. Áætlaður göngutími er 3,5–5 klst. Fararstjóri er Eiríkur Þormóðsson. Þátttökugjald 1.500/ 1.800 kr. Brottför er frá BSÍ kl. 10.30 og komið við í Mörkinni 6. Í DAG er langur laugardagur á Laugaveginum og mikið um að vera. Töframaður og trúður skemmta börnum jafnt sem fullorðnum og léttir tónar verða fluttir af tónlist- arfólki. Mikið er um tilboð í versl- unum sem eru með lengri opnunar- tíma – til kl. 17 – í tilefni dagsins. Á Laugaveginum er einnig listasýn- ingin SÍE og fer hún fram í glugg- um 29 verslana við Laugaveginn. Þetta er samstarfsverkefni list- nema á Íslandi, í Eistlandi og Finn- landi, segir í fréttatilkynningu. Langur laugardagur á Laugaveginum ÍÞRÓTTAFÉLAG Reykjavík- ur eða ÍR hefur stofnað sér- staka dansdeild og er því fyrsta íþróttafélagið á landinu sem stofnar slíka deild. Innan dans- deildarinnar er kenndur og iðk- aður almennur samkvæmis- dans fyrir alla aldurshópa undir stjórn Hólmfríðar Þorvalds- dóttur danskennara og keppn- isdans undir stjórn Árna Þórs Eyþórssonar, Loga Vígþórs- sonar danskennara og Víðis Stefánssonar. „Æfingar fara fram í sal á efri hæð ÍR-hússins við Skógarsel,“ segir í fréttatil- kynningu. ÍR stofnar dansdeild 60 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag- inn 4. nóvember, er sextug- ur Sigurður Ingvarsson, rafverktaki og oddviti Gerðahrepps. Eiginkona hans er Kristín Guðmunds- dóttir. Hjónin verða að heiman á afmælisdaginn. GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 3. nóvember, eiga 50 ára hjúskaparaf- mæli hjónin Guð- ríður Þórðardóttir og Njáll Þorgeirs- son, Fannborg 8, Kópavogi, áður bú- sett í Stykkishólmi. Þau verða að heim- an í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.