Morgunblaðið - 03.11.2001, Side 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 47
MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beð-
ið að birta eftirfarandi athugasemd
frá Tryggingastofnun ríkisins:
„Í staðtölum Tryggingastofnunar
fyrir árið 2000 er m.a. fjallað um lyfja-
mál og gerð grein fyrir kostnaði við
nokkra lyfjaflokka.
Í texta er notað orðið „gleðipilla“
sem er bein þýðing á orðinu „lykke-
pillen“ sem er mikið notað í Dan-
mörku.
Tryggingastofnun fellst á að þessi
orðanotkun er óheppileg og hefur
sært marga þá er þurfa að nota þessi
lyf til hjálpar gegn erfiðum sjúkdóm-
um. Tryggingastofnun telur afar
brýnt að koma fram við skjólstæðinga
af fullri virðingu og vill stuðla á virkan
hátt að því að geðsjúkir geti lifað og
starfað í þjóðfélaginu af fullri reisn.“
Athugasemd
LISTA- og handverksdagur ásamt
kaffisölu verður á Sólvangi, Hafn-
arfirði, laugardaginn 3. nóvember
kl. 14. Allur ágóði rennur til
starfsemi vinnustofunnar.
Gler- og myndlistakonan Re-
bekka Gunnarsdóttir opnar sýn-
ingu á verkum sínum í anddyri
Sólvangs sama dag, segir í frétta-
tilkynningu.
Lista- og handverks-
dagur Sólvangs
LANDSSAMTÖK hjartasjúklinga
hafa um árabil verið með jólakorta-
sölu fyrir jólin til tekjuöflunar. Jóla-
kortin eru með misjöfnum myndum
frá ári til árs og pökkuð inn í 5 korta
pakka, sem kosta 400 kr. Jólakortin
fást á skrifstofu LHS á Suðurgötu 10
í Reykjavík og hjá aðildarfélögunum
úti á landi.
Næstu helgar verða félagar í
Landssamtökum hjartasjúklinga í
Kolaportinu að selja jólakort eins og
undanfarin ár.
Jólakortasala Landssamtakanna
hefur verið ein besta fjáröflunarleið
samtakanna til þessa, segir í frétta-
tilkynningu.
Jólakorta-
sala LHS
BLESSUN verður haldin á vegum
Karuna, samfélags Kadampa-búdd-
ista, í Háskólabíói á sunnudag. At-
höfnin verður í sal 4 og hefst klukkan
11, en skráning byrjar klukkan
10.15. Skráningargjald er 4.000
krónur með hádegisverði og kennslu
síðdegis.
Kennarinn Venerable Kelsang
Lodrö veitir hina sérstöku blessun.
Um 100 manns koma hingað til lands
og verða viðstaddir, þar af 30 munk-
ar og nunnur, segir í tilkynningu frá
Karuna-samfélaginu á Íslandi
Blessun á vegum
Karuna á Íslandi
HÚSMÆÐRAFÉLAG Reykjavíkur
heldur sinn árlega basar á Hallveig-
arstöðum við Túngötu, sunnudaginn
4. nóvember kl. 14. Þar verða einnig
á boðstólum lukkupakkar fyrir börn.
Allur ágóði rennur til líknarmála.
Húsmæðrafélagið
með basar
HÚNVETNINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík verður með sinn árlega
kirkju- og kaffisöludag sunnudaginn
4. nóvember.
Messa verður í Kópavogskirkju kl.
14 og þar mun Húnakórinn syngja
undir stjórn Elínar Ó. Óskarsdóttur.
Kl. 14.30 verður kaffisala í Húnabúð,
Skeifunni 11. Kaffi og veitingar
kosta kr. 1.000 fyrir fullorðna og kr.
500 fyrir börn.
Kaffisöludagur
hjá Húnvetninga-
félaginu
ÍSLENSKA karlalandsliðið í hand-
knattleik bregður á leik með gestum
Smáralindar í Vetrargarðinum,
sunnudaginn 4. nóvember kl. 14.30–
16.
Liðsmenn landsliðsins munu árita
veggspjöld sem gefin verða og einnig
verður brugðið á leik og hitað upp
fyrir leikinn við Norðmenn sem
verður seinna um kvöldið.
Gestum og gangandi verður boðið
að spreyta sig í handknattleik en
haldin verður vítakeppni þar sem
þátttakendur munu reyna að koma
boltanum í netið fram hjá markvörð-
um landsliðsins. „Einnig verður efnt
til skotkeppni en í verðlaun verða
miðar á leikinn við Norðmenn sem
hefst kl. 20 á sunnudagskvöldið,“
segir í fréttatilkynningu.
Íslenska karla-
landsliðið
í Smáralind
Sýningarstaðir í Chelsea
Meðfylgjandi kort átti að fylgja
grein Huldu Stefánsdóttur um list-
galleríin í Chelsea-hverfinu í New
York í Lesbók um liðna helgi en féll
niður. Sýnir það staðsetningu gall-
eríanna sem fjallað er um í greininni.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Rangt nafn í Velvakanda
Í Velvakanda föstudaginn 2. nóv-
ember var rangt höfundarnafn undir
pistlinum Lögreglu þakkað. Höfund-
ur er Ómar F. Dabney og er beðist
velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
WARIS Dirie mun árita bók sína,
Eyðimerkurblómið, í Eymundsson
íAusturstræti í dag, laugardag, kl.
14-15.
Í bókinni segir Dirie frá storma-
sömu lífi sínu sem hófst í eyðimörk í
Sómalíu þar sem hún mátti þola
grimmilega meðferð þegar hún var
umskorin þriggja ára.
Hún er nú stödd á Íslandi og í til-
efni af heimsókninni verður bókin
seld með 15% afslætti í öllum Ey-
mundsson-verslunum til 10. nóvem-
ber.
Waris Dirie
áritar bók sína
JÓLAKORT Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna, SKB,
eru komin út og eru til sölu hjá
skrifstofu félagsins í Hlíðasmára
14 í Kópavogi. Sala á jólakortum
er ein helsta fjáröflunarleið félags-
ins. Fyrirtæki geta pantað inn-
áprentanir að eigin ósk og hefur
skrifstofa SKB milligöngu þar um.
Hægt er að panta jólakort SKB á
heimasíðu félagsins, www.skb.is.
Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna styður fjárhagslega
og félagslega við bakið á fjölskyld-
um krabbameinssjúkra barna og
gætir hagsmuna þeirra innan
sjúkrahúss sem utan, segir í
fréttatilkynningu.
Jólakort til
styrktar SKB