Morgunblaðið - 03.11.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.11.2001, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í MORGUNBLAÐINU í gær, 1. nóv., var grein frá Sigurði B. Stef- ánssyni og skrifar hann um Ford Focus og búnað hans. Því miður er fátt í grein Sigurðar rétt með farið og því vill Brimborg fá að koma eftirfarandi á framfæri. Ford Focus er margverðlaun- aður bíll eins og Sigurður bendir réttilega á og tekur sérstaklega fram að Focus sé vel að þeim verð- launum kominn. Þar má helst nefna Bíll ársins í Evrópu og í Bandaríkjunum og ekki síst frá- bæra einkunn í Euro NCAP árekstraprófinu þar sem Focus fékk fjórar stjörnur. Sigurður heldur því fram að um- boðin komi ekki búnaði bílanna nægjanlega vel á framfæri en hann hlýtur þá að eiga við einhverja aðra en Brimborg því hvergi er hægt að finna nákvæmari verðlista en hjá Brimborg þar sem ná- kvæmlega er talinn upp sá bún- aður og tækni sem innifalinn er í verði bílanna og er þetta mjög löng upptalning. Einnig má finna sömu og fleiri upplýsingar á heimasíðu Brimborgar sem er brimborg.is og því er það Brim- borg fullkomin ráðgáta hvað Sig- urður meinar. Einnig fullyrðir hann að ýmis- legt komi ekki heim og saman við það sem umboðið hérlendis hefur haldið fram. Þar sem hann kýs að nefna ekki þetta „ýmislegt“ er því miður ekki hægt að svara því. Sigurður talar mikið um öryggi Focus og er það vel enda einn öruggasti bíllinn í sínum flokki og hefur fengið frábæra einkunn í árekstraprófi. Hann nefnir það að Focus hafi einungis tvo öryggis- púða hér á landi en að í Evrópu séu þeir allir með fjóra púða og gefur í skyn að sú útgáfa hafi farið í gegnum árekstrapróf en ekki tveggja púða útgáfan. Þetta er rangt hjá Sigurði. Ford býður Focus ekki með hliðarpúðum sem staðalbúnað frá verksmiðju heldur er það undir hverjum markaði komið hvaða búnað hann bætir í bílinn umfram verksmiðjustaðalbúnað. Þess vegna var Focus 1.6 prófaður ÁN hliðarpúða í prófi EURO NCAP vegna þess að þessi stofnun prófar bílana m.v. þann búnað sem fram- leiðandinn skilgreinir sem staðal- búnað frá verksmiðju. Samt fékk Focus mjög góða einkunn í árekstraprófinu eða 83 stig af 100 mögulegum. Þess má geta að helsti keppinautur Focus í Evrópu, VW Golf, fékk nákvæmlega sömu einkunn og Focus en var prófaður með hliðarpúðum. Niðurstöðuna í árekstraprófinu er hægt að skoða á heimasíðu EURO NCAP sem er http://www.euroncap.com/re- sults.htm en í grófum dráttum eru niðurstöðurnar þannig fyrir Ford Focus og VW Golf. Einkunn fyrir árekstur að fram- an, á hlið og í heild. Teg. árekstrar Focus Golf Framan 69 63 Hlið 83 83 Í heild 74 74 Sigurður ræðir um hemlabúnað Ford Focus og gefur í skyn að hann sé verri hér á landi en ann- ars staðar í Evrópu. Ford Focus er búinn sama hemlabúnaði hér eins og annars staðar og er stað- albúnaður frá verksmiðju og er sá búnaður ABS hemlar með EBD hemlajöfnun. Skv. tækniupplýsing- um frá Ford er staðalbúnaður í öll- um 1.6 lítra Focus bílum skála- hemlar en aðeins Þýskaland er með diskahemla sem staðalbúnað skv. þeim bókum. Einnig er í boði fyrir alla markaði diskahemlar ef vélar eru 1.8 eða 2.0 og einnig ef keypt er ESP stöðugleikastýri- kerfi sem aukabúnaður. Hvort Focus er framleiddur í Þýskalandi eða Spáni hefur ekkert með gæðin að gera og þeir bílar sem Brimborg hefur selt hér á landi hafa komið frábærlega vel út. Íhlutir bílsins koma víðsvegar að úr heiminum en mest frá Evr- ópu, þ.m.t. Þýskalandi, en síðan eru bílarnir settir saman á mis- munandi stöðum. Það mætti miklu frekar kalla Focus evrópskan bíl og í raun eru bílar í dag mjög al- þjóðlegir og það sem skiptir mestu máli er hvar þeir eru hannaðir og kröfurnar sem gerðar eru til hönn- unarinnar. Það hefur tekist frá- bærlega vel með Focus enda er hann söluhæsti bíll heims, bíll árs- ins í tveimur heimsálfum og nýtur hann mikilla vinsælda á Íslandi. Sigurði finnst verðlagningin á Ford Focus skrítin en við skiljum ekki hvernig hann getur verið ósáttur við að Ford Focus sé veru- lega ódýrari en helsti keppinaut- urinn sem er VW Golf en sá bíll kostar 1.850.000 á meðan Focus kostar kr. 1.778.000 og ef hann vill bæta tveimur loftpúðum við þá kostar það aukalega kr. 20.000 en þá fær hann að auki upphituð sæti, sportsæti, leðurstýri, Trend grill og Titanium útlit á innréttingu og þrátt fyrir þetta er Ford Focus verulega ódýrari. Þetta er okkur mikil ráðgáta en gæti auðvitað skýrst af því að honum finnist að verðlaunabíll eins og Focus eigi auðvitað að vera dýrari en helsti keppinauturinn en það finnst okk- ur ekki ef við mögulega getum. Stefna Brimborgar er að bjóða viðskiptavinum sínum alltaf bestu vöruna á besta verðinu með fag- legri og persónulegri þjónustu. Sigurður er velkominn til Brim- borgar til að fá allar ofangreindar upplýsingar staðfestar enn frekar og ræða málin yfir kaffi. EGILL JÓHANNSSON framkvæmdastjóri. Ford Focus stenst allar kröfur Frá Agli Jóhannssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.