Morgunblaðið - 03.11.2001, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 03.11.2001, Qupperneq 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 11 Er þetta í fyrsta skipti sem sam- keppnisyfirvöld beita samrunaákvæði samkeppnislaga til að ógilda samruna eftir að þeim var breytt á síðasta ári. Búnaðarbanki Íslands og eignar- haldsfélag bankans, Grænibær ehf., seldu Mjólkurfélagi Reykjavíkur og Lýsi alla eignarhluti í Fóðurblönd- unni í júní síðastliðnum. Eignaðist Mjólkurfélagið 75% af hlutafé í Fóð- urblöndunni, en eignarhlutur Lýsis var 25%. Með kaupunum öðlaðist Mjólkurfélagið því yfirráð yfir Fóð- urblöndunni. Guðmundur Guðmundsson, for- stöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Búnaðarbankans, segir að niðurstaða samkeppnisráðs komi á óvart, því Mjólkurfélagið hafi átt í viðræðum við Samkeppnisstofnun um ýmis skilyrði til að ná samrunanum fram, sem bankanum hafi skilist að hafi gengið nokkuð vel. Málið verði hins vegar skoðað á næstunni og þá kannað hvaða valkostir séu í þeirri stöðu sem upp sé komin. Katrín Pétursdóttir, framkvæmda- stjóri Lýsis hf., vildi í gær ekki tjá sig um niðurstöðu samkeppnisráðs á þessu stigi. Í tilkynningu sem Mjólkurfélag Reykjavíkur sendi frá sér í gær segir m.a. að það sé til athugunar að kæra til áfrýjunarnefndar samkeppnismála þá ákvörðun samkeppnisráðs að ógilda samruna félagsins og Fóður- blöndunnar hf. Segir stjórn félagsins að þessi ákvörðun komi mjög á óvart og valdi vonbrigðum. Ljóst hafi verið frá upphafi að ákveðin samkeppnisleg vandkvæði fylgdu samruna fyrirtækj- anna. Fulltrúar félagsins og Lýsis hefðu því lagt fram margþættar til- lögur að skilyrðum í viðræðum við samkeppnisyfirvöld og verið tilbúnir að ganga mjög langt í þeim efnum til að draga úr skaðlegum áhrifum sam- runans á samkeppni. Þrátt fyrir það hafi samkeppnisráð kosið að ógilda samrunann. Miklir yfirburðir yfir keppinauta Í tilkynningu samkeppnisráðs seg- ir að meginstarfsemi Mjólkurfélags- ins og Fóðurblöndunnar sé áþekk. Ráðið telji að sá markaður sem mál þetta taki í höfuðdráttum til sé mark- aðurinn fyrir innflutning fóðurgerð- arefna, framleiðslu og sölu á alifugla-, svína- og jórturdýrafóðri. Á þessum markaði hefðu Mjólkurfélagið og Fóðurblandan samanlagt um 75% markaðshlutdeild á árinu 2000. Telur samkeppnisráð að þessir miklu yfir- burðir samrunafélaganna í markaðs- hlutdeild gefi einir og sér mjög sterka vísbendingu um að samruninn hafi skaðleg áhrif á samkeppni. Þrír aðrir keppinautar eru á mark- aðnum, en markaðshlutdeild þeirra er mun lægri, eða á bilinu 2–17%. Starf- semi þessara keppinauta er auk þess að mestu staðbundin og nær ekki til stærsta markaðssvæðisins á Suðvest- urlandi. Samkeppnisráð segir að auk þess hafi Mjólkurfélagið og Fóður- blandan að flestu leyti mikla yfirburði yfir aðra keppinauta á fóðurmarkaðn- um þegar litið sé til efnahagslegs styrkleika. Telur samkeppnisráð að staða keppinauta samrunafyrirtækj- anna eða aðrar aðstæður nái ekki að vinna gegn þeim samkeppnishöml- um sem stafi af samrunanum. Samkeppnisráð segir að umrædd- ur markaður sé lokaður og verndað- ur. Að honum séu verulegar að- gangshindranir m.a. vegna tollverndar. Þá liggi fyrir að nánast engin nýliðun hafi átt sér stað á þess- um markaði lengi. Telur samkeppn- isráð því að ekki sé líklegt að nýir keppinautar muni eyða þeim sam- keppnishömlum sem munu stafa af yfirtöku Mjólkurfélagsins og Lýsis á Fóðurblöndunni. Þá telur ráðið að viðskiptavinir hins sameinaða fyrir- tækis búi ekki yfir nægjanlegum kaupendastyrk til að vinna gegn skaðlegum áhrifum samrunans. „Í ljósi þessa telur samkeppnisráð að yfirtaka Mjólkurfélagsins og Lýs- is á Fóðurblöndunni leiði til mynd- unar markaðsráðandi stöðu og hafi mjög skaðleg áhrif á samkeppni. Muni samrunafyrirtækin hafa stór- fellda samkeppnislega yfirburði yfir keppinauta sína og geti hagað verð- lagningu sinni og viðskiptaskilmál- um að verulegu leyti án tillits til keppinauta eða viðskiptamanna sinna. Að óbreyttu gæti samruninn gert fyrirtækjunum kleift að hækka verð sem gæti leitt til þess að verð á afurðum alifugla, svína og nautgripa myndi hækka til neytenda,“ segir í tilkynningu samkeppnisráðs. Skilyrði tryggja ekki samkeppni Breytingar á samkeppnislögum tóku gildi í desember 2000. Í breyt- ingunum fólst m.a. að samruna- ákvæði samkeppnislaga voru styrkt í því skyni að koma í veg fyrir að aukin samþjöppun og fákeppni á markaði komi veg fyrir að neytendur fari á mis við þann ávinning sem hlýst af virkri samkeppni. Samkeppnisráð segir að í þessu máli sé hinu nýja samrunaákvæði beitt í fyrsta sinn til að ógilda samruna. Í tilkynningu samkeppnisráðs kemur fram að samrunaaðilar hafi gert tillögu um að samrunanum yrðu sett skilyrði, m.a. um að eignarhlutur Mjólkurfélagsins í Fóðurblöndunni yrði lækkaður í 35% og að stjórnar- áhrif Mjólkurfélagsins í Fóðurblönd- unni yrðu takmörkuð, í því skyni að tryggja að samruninn gæti sam- rýmst ákvæðum samkeppnislaga. Niðurstaða samkeppnisráðs varð á hinn bóginn sú að setning slíkra skil- yrða nægði ekki til að tryggja virka samkeppni milli fyrirtækjanna. „Vegna m.a. fákeppni á markaðn- um og eignar Mjólkurfélagsins í Fóð- urblöndunni myndu fyrirtækin ekki, þrátt fyrir skilyrðin, starfa sem sjálf- stæðir keppinautar, heldur taka gagnkvæmt tillit hvort til annars og verða fær um samræmda markaðs- hegðun, um t.d. að hækka verð. Mjólkurfélagið og Fóðurblandan myndu því öðlast sk. sameiginlega markaðsráðandi stöðu, en umræddar breytingar á samkeppnislögum fólu m.a. í sér að samkeppnisyfirvöldum er heimilt að vinna gegn slíkri mark- aðsþróun,“ segir að lokum í tilkynn- ingu samkeppnisráðs. Yfirtaka á Fóðurblönd- unni ógilt SAMKEPPNISRÁÐ hefur ógilt yfirtöku Mjólkurfélags Reykjavíkur svf. og Lýsis hf. á Fóðurblöndunni hf. Í tilkynn- ingu frá samkeppnisráði í gær segir að ráðið telji að samrun- inn sem felst í yfirtökunni raski samkeppni og leiði til mark- aðsráðandi stöðu Mjólkurfélagsins á fóðurmarkaði, en samanlagt hafi fyrirtækin tvö um 75% markaðshlutdeild. Samkeppnisráð beitir samruna- ákvæðum samkeppnislaga RÁÐSTEFNA í tilefni af alþjóð- legu ári sjálfboðaliðans fór fram á Hótel Loftleiðum í gær að frum- kvæði utanríkisráðuneytisins og í samstarfi við Rauða kross Íslands, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Bandalag íslenskra skáta. Áður en ráðstefnan hófst var þingmönnum boðið að gerast sjálf- boðaliðar í nokkrar mínútur. Fé- lögin þrjú höfðu nokkurn viðbúnað á Austurvelli þannig að þingmenn gátu sett sig í störf sjálfboðaliða á vettvangi eftir ímyndaða neyð. Björgunarsveitir voru með rústa- björgunartæki, skátarnir með sjúkratjöld og Rauði krossinn opn- aði fjöldahjálparstöð. Hátt í 10 þingmenn af 63 sáu sér fært að kynnast þessum málaflokki. Tilgangurinn var að leggja áherslu á mikilvægi sjálfboðastarfs á Íslandi. Kannanir hafa sýnt að um 35% þjóðarinnar hafa unnið í sjálfboðaliðavinnu í þágu mannúð- armála einhvern tímann á ævinni og þeir sem ekki hafa gert það segjast flestir hafa áhuga á mál- efninu, einkum að starfa sem sjálf- boðaliði með börnum og ungling- um í vanda. Málþing um sjálfboðaliðastörf fer fram á Hótel Loftleiðum í dag þar sem félagasamtök sem byggj- ast á sjálfboðnu starfi eru boðuð, auk þess sem fólk er hvatt til að mæta sem áhuga hefur á mann- úðar- og björgunarmálum. Að sögn Þóris Guðmundssonar, upplýsingafulltrúa RKÍ, settu þeir þingmenn sem mættu sig vel inn í hlutverkin og unnu meðal annars við að skrá fólk inn í fjöldahjálp- arstöðvar og leita að fólki í rúst- um. Þórir sagði sjálfboðaliðastarf í almannavörnum á Íslandi í raun einstakt, víðast annars staðar væri fagfólk afgerandi í þeim störfum. „Fjölbreytni í sjálfboðaliðastarfi á Íslandi er mikil en það sem upp á vantar er almenn viðurkenning, að þjóðfélagið geri sér grein fyrir því að þetta starf fari fram sem mikilvægur þáttur af velferðar- kerfinu,“ sagði Þórir. Meðal fyrirlesarara á ráðstefn- unni í gær var dr. Katharine Gask- in, sem starfar við miðstöð sjálf- boðaliðastarfs í Bretlandi. Hún fjallaði um fjárhagslegan ávinning samfélaga af sjálfboðaliðastarfi og vitnaði í rannsóknir sínar þar að lútandi í nokkrum löndum. Þær hafa m.a. sýnt í Danmörku að hver ein króna sem sett væri í umbun til sjálfboðaliða eða þjálfun þeirra skilaði sér áttfalt til baka í störfum fyrir samfélagið. Rauði krossinn hefur bent á þann möguleika að fyrirtæki hér á landi fengju skat- taívilnanir fyrir að gefa fé til sjálf- boðasamtaka. Ráðstefna og málþing á alþjóðlegu ári sjálfboðaliðastarfs Þingmenn settu sig í spor sjálfboðaliða Morgunblaðið/Ásdís Ögmundur Jónasson og Þórunn Sveinbjarnardóttir voru meðal þeirra um tíu þingmanna sem kynntu sér sjálfboðaliðastörf í almannavörnum á Austurvelli í gær þar sem fjöldahjálparstöð var komið upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.