Morgunblaðið - 03.11.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra, sem staddur
er í opinberri heimsókn í
Rússlandi, átti í gær fundi
með ýmsum ráðamönnum í
landinu. Halldór hitti Alexei
Kudrin, varaforsætisráð-
herra og fjármálaráðherra
Rússlands, á fundi í gær-
morgun og ræddu ráðherr-
arnir tvíhliða viðskiptamál,
einkum um möguleika á að
auka viðskipti landanna.
Áhersla á lækkun tolla
á fiskafurðum
Halldór sagði í samtali við
Morgunblaðið að tvíhliða mál
landanna hefðu mest verið til
umræðu í gær, einkum sjáv-
arútvegs- og jarðhitamál og
aukin verslun á milli land-
anna. „Við höfum mikinn
áhuga á því að tollur á fiskafurðum
verði lækkaður og höfum sagt að
við munum leggja á það mikla
áherslu í sambandi við inngöngu
Rússlands í Alþjóðaviðskiptastofn-
unina,“ sagði Halldór.
Halldór og Kudrin ræddu einnig
samvinnu ríkja, um hvernig upp-
ræta megi alþjóðleg hryðjuverka-
samtök og um leiðir til að koma í
veg fyrir fjármögnun slíkra sam-
taka á fundi sínum. Halldór lagði
áherslu á mikilvægt hlutverk
Rússlands í þeirri baráttu og við
að tryggja órofa samstöðu ríkja
heims um framhald aðgerða til að
uppræta alþjóðlega hryðjuverka-
starfsemi.
Utanríkisráðherra átti einnig
fund í gær með Igor Yusufov,
orkumálaráðherra Rússlands, þar
sem ræddir voru möguleikar á
aukinni samvinnu ríkjanna á sviði
orkumála, einkum á sviði jarð-
varmanýtingar, og var ákveðið að
koma á fót sameiginlegum vinnu-
hópi, sem á að móta tillögur um
aukna samvinnu í þessum málum.
Þá átti Halldór fund með Dmitri
Rogozin, formanni utanríkisnefnd-
ar rússneska þingsins. Lagði Hall-
dór áherslu á mikilvægi þess að
viðskipti landanna yrðu efld og í
því samhengi væri brýnt að tví-
sköttunarsamningur ríkjanna, sem
þegar hefur verið fullgiltur af Ís-
lands hálfu, fengi sem fyrst
afgreiðslu í rússneska
þinginu, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá ut-
anríkisráðuneytinu.
Halldór átti einnig hádeg-
isverðarfund í gær með Ev-
geni Nazdratenko, formanni
sjávarútvegsráðs Rússlands,
um möguleika á frekari sam-
starfsverkefnum í sjávarút-
vegsmálum.
Íslensk fyrirtæki
komi meira inn í rúss-
neskan sjávarútveg
„Þetta hefur verið ágætur
dagur og ég tel að það sé
mikill áhugi fyrir því hér að
efla þessi samskipti. Samn-
ingarnir um Smuguna og
síldina á sínum tíma vörðuðu
veginn til frekara samstarfs
á þessu sviði. Það hefði mátt
ganga hraðar en ég tel að smátt og
smátt muni samstarf á milli þjóð-
anna á sviði þessara mála aukast
með því að íslensk fyrirtæki komi
meira inn í rússneskan sjávarút-
veg með ýmsum hætti,“ sagði
Halldór að loknum fundunum í
gær.
Hittir Igor Ivanov
utanríkisráðherra í dag
Síðdegis í gær flutti Halldór er-
indi um utanríkisstefnu Íslands í
akademíu utanríkisráðuneytis
Rússlands. Í dag mun Halldór eiga
fund með Igor Ivanov, utanrík-
isráðherra Rússlands.
Halldór átti fund með varaforsætisráðherra Rússlands
Itar-Tass/Konstantin Kyjel
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra átti
fund með Alexei Kudrin, varaforsætisráð-
herra og fjármálaráðherra Rússlands, í gær.
Ræddu möguleika á
auknum viðskiptum
ALLIR starfsmenn þvottahússins á Hrafnistu í
Reykjavík komu saman í hádeginu í gær til að
fagna tuttugu ára starfsafmæli starfssystur
sinnar Kristínar Jónsdóttur. Í tilefni dagsins
bauð Kristín til veislu í kaffistofu þvottahúss-
ins þar sem gestir gæddu sér á dýrindis
rjómatertu og sötruðu afmæliskaffi með.
Undirbúningur veislunnar hefur að sögn
Kristínar staðið yfir í rúm tvö ár en á þeim
tíma hefur Kristín reglulega minnt samstarfs-
fólk sitt á að 3. nóvember 2001 ætti hún stór-
afmæli á vinnustaðnum og myndi þá koma í
vinnuna með „stóra, stóra tertu“.
Kristín stóð við sitt enda ríkti mikil kátína
með hátíðina meðal hinna fjölmörgu gesta af-
mælisbarnsins því auk samstarfsfólks litu
margir gamlir og góðir kunningjar Kristínar
og vinir inn í heimsókn í tilefni dagsins. Með-
al gestanna var meðal annarra fyrsti verk-
stjóri Kristínar, Anna Guðlaugsdóttir, og urðu
miklir fagnaðarfundir með vinkonunum en
dágóður tími er liðinn síðan þær hittust síð-
ast.
Kristín hóf störf á Hrafnistu 3. nóvember
1981 og var því í raun tekið dags forskot á
hátíðarhöldin í gær. „Það var rosalega gaman
í veislunni og það kom fullt fullt af fólki,“
segir Kristín og kveðst hafa hlakkað lengi til
dagsins. Spurð hvernig henni líki starfið seg-
ist hún hafa gaman af vinnunni sinni og hún
vonist til að vinna mörg ár í viðbót í þvotta-
húsinu.
Að sögn Kolbrúnar Kjartansdóttur, verk-
stjóra í þvottahúsinu, eru mannabreytingar
tíðar í þvottahúsinu og þó tuttugu ára starfs-
aldur þyki ef til vill ekkert tiltökumál á
mörgum öðrum vinnustöðum gildi annað um
starfsmenn þvottahússins þar sem Kristín hef-
ur unnið allra manna lengst. „Það er reyndar
ein hérna sem á ekki langt í að ná Kristínu í
starfsaldri en það er töggur í stelpunni og
hún á líklega seint eftir að afsala sér titl-
inum,“ segir Kolbrún viss í sinni sök.
Kristín er spastísk og mikið hreyfihömluð
en hún lætur fötlun sína ekki aftra sér frá því
að skila góðu dagsverki með bros á vör en
hún vinnur í fjóra tíma á dag fimm daga vik-
unnar. „Hún Kristín er alveg sérstaklega dug-
leg, það er aðdáunarvert að sjá hana vinna og
þeir eru líklega fáir sem brjóta handklæðin
betur saman en hún,“ sagði Kolbrún.
Morgunblaðið/Ásdís
Fjölmargir gestir fögnuðu 20 ára starfsafmæli Kristínar Jónsdóttur í þvottahúsi Hrafnistu í gær en afmælisbarnið situr fyrir miðri mynd.
„Rosalega gaman í veislunni“
STÓR dráttarbifreið með tengivagni
fauk á hliðina í miklu hvassviðri á
Útnesvegi við Ólafsvíkurenni um
klukkan 23 á fimmtudagskvöld. Öku-
maður var í bílbelti og sakaði hann
ekki. Lögreglan á Ólafsvík kom öku-
manni til bjargar og náði honum út
um þaklúgu bifreiðarinnar og flutti
til Ólafsvíkur. Farmurinn samanstóð
af fiski og hluta af búslóð, samtals
um 4 tonn. Vegna stormsins reyndist
ógerlegt að ná bifreiðinni upp á veg-
inn aftur og var beðið með það fram
til næsta dags. Björgunarstarfið
gekk vel og var bifreiðin komin á
réttan kjöl seinnipartinn í gær. Hún
var óökufær og flutt á bifreið til
Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Alfons
Fauk út af í stormi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur dæmdi í gær 21 árs mann í
14 mánaða fangelsi fyrir að
stinga mann í bakið með hníf í
febrúar á þessu ári. Ákærði var
ennfremur dæmdur til að
greiða fórnarlambinu rúmar
270 þúsund krónur í skaðabæt-
ur auk alls sakarkostnaðar.
Ákærði játaði brot sitt en
mikil átök höfðu átt sér stað á
milli hans og fórnarlambsins
áður en ákærði lagði til atlögu
með hnífnum. Segir í niður-
stöðu dómsins að svo virðist
sem fórnarlambið hafi átt upp-
tökin að átökunum. Áverkinn
sem hlaust af hnífstungunni var
lífshættulegur og virðist tilvilj-
un hafa ráðið því að ekki hlut-
ust af meiri meiðsl, að því er
segir í niðurstöðu dómsins.
Hnífurinn gekk inn í vöðva-
massa á lendahryggsvæðinu og
niður í átt að safnkerfi hægra
nýrans án þess að nýrnaskaði
hlytist af.
Við ákvörðun refsingar var
litið til játningar ákærða en til
refsiþyngingar kom töluverður
brotaferill ákærða. M.a. hefur
hann gerst sekur um líkams-
árás, fíkniefnabrot, þjófnað og
skjalafals.
Dóminn kvað upp Valtýr Sig-
urðsson héraðsdómari. Skipað-
ur verjandi ákærða var Hilmar
Ingimundarson hrl en saksókn-
ari var Guðrún Sesselja Arnar-
dóttir fulltrúi ríkissaksóknara.
Dæmdur í
14 mánaða
fangelsi
fyrir lífs-
hættulega
hnífstungu
MJÖG annasamt var hjá Lögregl-
unni í Reykjavík í gær þar sem 21
umferðaróhapp varð yfir daginn og
á annað hundrað bókanir skráðar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni hafði slæmt skyggni, rok
og rigning áhrif á aksturlag öku-
manna og spilaði vont veður inn í
árekstrahrinuna en engin hálka var
á götum borgarinnar í gær.
Harður árekstur varð á gatna-
mótum Miklubrautar og Bústaða-
vegar á tíunda tímanum í gærkvöld.
Tveir bílar lentu saman með þeim
afleiðingum að ökumaður og far-
þegi annars bílsins voru fluttir á
slysadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss með minni háttar
áverka. Báðir bílarnir eru mikið
skemmdir og voru fluttir af vett-
vangi með kranabíl.
Árekstrahrina í gær-
kvöldi í Reykjavík
SENDIFERÐABIFREIÐ valt út af
veginum skammt frá Hveradölum
laust fyrir kl. 18 í gærkvöldi. Engin
slys urðu á fólki en bíllinn skemmd-
ist töluvert. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar á Selfossi er talið
að hann hafi runnið til í hálku.
Bílvelta við
Hveradali
♦ ♦ ♦