Morgunblaðið - 03.11.2001, Síða 16
AKUREYRI
16 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Lið-a-mót
FRÁ
Apótekin
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
FRÍHÖFNIN
Tvöfalt sterkara
með gæðaöryggi
SNÚNINGASAMT og rysjótt veður
er framundan, allt fram undir
miðjan nóvember að því er fram
kemur í veðurspá félaga í Veð-
urklúbbnum á Dalbæ á Dalvík.
Spá þeir að á köflum verði leið-
indaskakstur og spörfuglasperr-
ingur, en engin vonska og snjór
verði ekki mikill. Þá þurfi menn
ekki að óttast mikinn snjó allt fram
til áramóta gangi spá þeirra eftir.
Marteinsmessa er 11. nóvember
næstkomandi, en fjúk og dimm-
viðri þann dag veit á íhlaupasaman
og kaldan snjóavetur. Heiðríkt loft
boðar aftur á móti staðviðri. Vitna
klúbbfélagar á eftirfarandi vísu:
Á Marteinsmessu ef mundi loft
meður regni, eg segi
veðradimmur verður oft
vetur frá þeim degi.
Veðurklúbburinn
á Dalbæ
Snúningasöm
og rysjótt tíð
ÖLLU starfsfólki á saumastofu Sjó-
klæðagerðarinnar hf. 66° norður á
Akureyri, alls 15 manns, hefur verið
sagt upp störfum. Að sögn Jóns
Stefánssonar forstjóra fyrirtækisins
verður rekstri saumastofunnar hætt
í núverandi mynd en ekki verður
um neina breytingu að ræða á versl-
unarrekstri fyrirtækisins í bænum.
Jón sagði að þótt allir á sauma-
stofunni hafi fengið uppsagnarbréf
væri stefnt að því að halda úti þjón-
ustustarfsemi á Akureyri með
þremur til fimm starfsmönnum. Jón
sagði að þessar aðgerðir væru liður
í hagræðingu innan fyrirtækisins
sem staðið hafi yfir undanfarin ár.
Saumastofa Sjóklæðagerðarinnar
sameinaðist starfsemi Foldu á sín-
um tíma og er starfsemin til húsa á
Gleráreyrum. Jón sagði að í kjölfar
þessara breytinga yrðu húsnæðis-
málin einnig tekin til endurskoðun-
ar.
Sjóklæðagerðin hf. 66° norður
Starfsfólki á sauma-
stofu sagt upp
MEIRIHLUTI sveitarstjórnar
Hríseyjarhrepps lagði fram bókun á
aukafundi sveitarstjórnar á fimmtu-
dag, þar sem hörmuð eru viðskipti
Péturs Bolla Jóhannessonar sveitar-
stjóra og Þorgeirs Jónssonar
slökkviliðsstjóra á brunastað þegar
gamla verbúðin brann hinn 27. októ-
ber sl. „Það er alveg ljóst að meiri-
hlutinn lýsir yfir stuðningi við sveit-
arstjóra og óskar eftir
áframhaldandi góðu samstarfi við
hann þar sem hann hefur unnið sín
störf af bestu samvisku fyrir Hrís-
eyjarhrepp en oft og tíðum mátt þola
ósanngjarna gagnrýni sem oftar en
ekki hefur komið frá títtnefndum
slökkviliðsstjóra,“ segir ennfremur í
bókun meirihlutans.
Slökkviliðsstjóri hefur sakað sveit-
arstjóra um að skipta sér af slökkvi-
starfi umrædda nótt og hefur kært
málið til lögreglu. Meirihlutinn átel-
ur slökkviliðsstjóra fyrir að kæra
málið til lögreglu og blása það út í
fjölmiðlum, í stað þess að reyna
sáttaleið innan sveitar. Telur meiri-
hlutinn að um trúnaðarbrest sé að
ræða þar sem sveitarstjórnarmaður
eigi í hlut og að sú umræða sem fylgt
hafi í kjölfarið sé eynni lítt til fram-
dráttar.
Á fundinum voru einnig lagðar
fram bókanir frá minnihluta hrepps-
nefndar og sveitarstjóranum. Í bók-
un minnihlutans kemur m.a. fram að
sveitarstjórinn hafi enga heimild haft
til að skipta sér af slökkvistarfi að-
faranótt laugardagsins 27. október
sl. Ennfremur að sveitarstjóri hafi
reynt að skipta sér af slökkvistarfi í
frekar annarlegu ástandi og með
fremur óviðeigandi athugasemdum
út í slökkviliðsstjórann. Slökkviliðs-
stjóri hafi beðið sveitarstjóra góðfús-
lega að yfirgefa svæðið í tvígang en
hann hafi ekki látið sér segjast og
veist að slökkviliðsstjóra þar sem
hann var að sinna skyldustörfum.
Hafi þurft tvo slökkviliðsmenn til að
fjarlægja sveitarstjóra af vettvangi.
Svona atvik verði að líta alvarlegum
augum, enda hæfi slík hegðun ekki
sveitarstjóra.
Sveitarstjóri vísar í bókun sinni á
bug ásökunum um að hann hafi reynt
að hindra slökkviliðsstörf, ásakanir
þessar séu tilhæfulausar með öllu og
hafi ekkert haft með málsatvik að
gera. Ennfremur að hann sé meðvit-
aður um að slökkviliðsstjóri stjórni
aðgerðum á vettvangi þegar elds-
voða beri að höndum. Þess vegna séu
ásakanir sem fram komi í kæru
óskiljanlegar og tilhæfulausar þar
sem sveitarstjóri hafi ekki þetta vald.
Orðastaður sem átti sér stað á vett-
vangi milli sín og slökkviliðsstjórans
eigi sér lengri aðdraganda eins og
gerðarbækur sveitarstjórnar vitni
um. Einnig kemur fram í bókun
sveitarstjóra að það sé umhugsunar-
vert að Þorgeir Jónsson skyldi ekki
sýna þá samfélagslegu ábyrgð að láta
reyna á lausn málsins með því að
ræða við oddvita hreppsins áður en
rokið var í kæru og fjölmiðla. Sveit-
arstjóri telur að framganga Þorgeirs
virðist til þess ætluð að koma óorði á
sig og sína persónu, auk þess að
klekkja á meirihluta sveitarstjórnar.
Þá kemur fram í bókun meirihlut-
ans að verði staðið við kæruna verði
ekki annað séð en allur samstarfs-
grundvöllur sé brostinn milli viðkom-
andi aðila þar sem samskipti þeirra á
milli þurfi að vera mikil starfa þeirra
vegna og óhjákvæmilegt annað en að
sveitarfélagið beri skaða af.
Aukafundur í sveitarstjórn Hríseyjarhrepps
Meirihlutinn lýsir yfir
stuðningi við sveitarstjóra
STOFNFUNDUR Samtaka fyrir-
tækja á Norðurlandi var haldinn á
Hótel KEA á fimmtudag, en mark-
mið þeirra er að vinna að uppbygg-
ingu og samvinnu fyrirtækja í fjórð-
ungnum.
Rósa Guðmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri Ásprents-POB sagði
þar að horfa þurfi til annarra Evr-
ópulanda þar sem stjórnvöld styðja
við og styrkja landsbyggðina á ýms-
an hátt. Menn hljóti að bera saman
rekstrarumhverfi fyrirtækja og lífs-
kjör fólks á landsbyggðinni í Evrópu
við landsbyggðina á Íslandi.
„Þegar raddir heyrast frá fyrir-
tækjum og fólki á landsbyggðinni,
um ójafna samkeppnisstöðu, er
gjarnan brugðist við með einfaldleik-
anum og sagt að þeir hæfustu lifi –
allir hafi frelsi til að keppa. Þetta sé
bara spurning um að reka fyrirtækin
vel. Staðreyndirnar tala hins vegar
sínu máli. Þær segja okkur að þegar
hinn gífurlegi flutningskostnaður er
kominn á vöruverðið, þá er varan orð-
in 6% dýrari á Akureyri en í Reykja-
vík og 14% dýrari á Þórshöfn svo
dæmi sé tekið. Þar af leiðandi borgar
landsbyggðin hærri virðisaukaskatt
til ríkisins,“ sagði Rósa.
Hún sagði aðflutt hráefni ævinlega
fara fyrst um innflutningshöfnina í
Reykjavík og þar þurfi að borga upp-
skipunar- og vörugjald. Þar bíði hún
gjarnan í viku, eftir skipi sem fari á
ströndina. Þá þurfi aftur að borga
vörugjald og síðan strandflutninga-
gjald, sem nýlega hafi verið ákveðið
að fyrirtæki á landsbyggðinni skyldu
greiða. Fyrirtækin á landsbyggðinni
þyrftu svo að flytja fullunna vöru frítt
til Reykjavíkur, því viðskiptavinur-
inn vildi eðlilega ekki borga meira
fyrir að láta vinna verkin úti á landi,
en á höfuðborgarsvæðinu.
Á fundinum var samþykkt að vinna
að því að fá endurgreiðslu á flug-, sjó-
og landflutningum til og frá höfuð-
borgarsvæðinu, niðurfellingu trygg-
ingagjalds á landsbyggðinni, hækk-
aðan persónuafslátt fyrir íbúa
landsbyggðar sem og afslátt á endur-
greiðslu námslána.
Gjaldtakan hefur neikvæð áhrif
Stjórn Samtaka iðnaðarins sendi
kveðju á fundinn með þeirri ósk að
viðunandi lausn fyndist á þeim vanda
sem nýtt gjald vegna framhaldsflutn-
inga skapaði fyrir iðnfyrirtæki á
landsbyggðinni. Ljóst væri að gjald-
takan myndi hafa neikvæð áhrif á
rekstur fyrirtækjanna.
Samtök iðnaðarins telja að lausn
verði ekki fundin á málinu nema með
samvinnu stjórnvalda, flutningafyrir-
tækja, hagsmunasamtaka og fyrir-
tækjanna á landsbyggðinni.
Í stjórn Samtaka fyrirtækja á
Norðurlandi voru kjörin þau Rósa
Guðmundsdóttir, Ásprenti-POB,
Þórarinn Kristjánsson, Gúmmí-
vinnslunni, Valgerður Kristjánsdótt-
ir, Fóðurverksmiðjunni Laxá, Elín
Gunnarsdóttir, Dekkjahöllinni, og
Gunnar Örn Gunnarsson, Kísiliðj-
unni.
Stofnfundur Samtaka fyrirtækja á Norðurlandi
Landsbyggðin borgar
hærri virðisaukaskatt
ÞRÍR fóru á slysadeild eftir harðan
árekstur tveggja fólksbifreiða á
Þingvallastræti nokkru eftir hádegi í
gær. Áreksturinn varð á móts við
innakstur að verslun Úrvals og
Kristjánsbakarís.
Bíl sem ekið var vestur Þingvall-
astræti var beygt til vinstri og að
innakstrinum í veg fyrir bíl sem ekið
var niður götuna. Lenti sá bíll í
hægri hlið hins. Báðir bílarnir eru
ónýtir.
Morgunblaðið/Kristján
Beita þurfti klippum til að losa fólkið úr annarri bifreiðinni.
Á slysadeild eftir
harðan árekstur