Morgunblaðið - 03.11.2001, Síða 39
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2001 39
Þau voru ljós á leiðum okkar
Á
allra heilagra messu,
sunnudaginn 4. nóvember,
er látinna minnst
Vitjum leiða ástvina okkar
með hlýhug og þakklæti.
Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma
verður til leiðsagnar í Fossvogskirkjugarði,
Gufuneskirkjugarði og garðinum við Suðurgötu frá
kl. 14-17. Skrifstofa kirkjugarðanna er opin frá kl. 14-18.
Á sama tíma bjóða organistar, kórar og prestar upp á
samfellda dagskrá í Fossvogskirkju. Eru gestir garðsins
hvattir til að ganga í kirkju og eiga helga stund við kerta-
ljós og kórsöng, orgelleik, bæn og ritningarlestur.
14.00 -14.20 Kórsöngur: Kammerkór Digraneskirkju
Organisti: Kjartan Sigurjónsson
Ritning og bæn: Sr. María Ágústsdóttir
14.30 -15.00 Söngur: Páll Rósinkrans
Undirleikur: Óskar Einarsson
Ritning og bæn: Sr. Hreinn Hákonarson
15.10 - 15.30 Kórsöngur: Hljómkórinn
Ritning og bæn
15.40 -16.00 Kórsöngur: Tónakórinn
Organisti: Jóhann Baldvinson
Ritning og bæn
16.10 - 16.30 Kórsöngur: Kór Bústaðakirkju
Organistar: Sigrún Steingrímsdóttir
og Helgi Bragason
Ritning og bæn
Friðarkerti Hjálparstarfs kirkjunnar verða til sölu
í Fossvogs- og Gufuneskirkjugarði.
Reykjavíkurprófastsdæmi og
Kirkjugarðar prófastsdæmanna
DRENGJAKÓR Neskirkju syngur
sína fyrstu messu í kirkjunni nk.
sunnudag kl. 11. Kórinn, sem hefur
starfað um árabil í Laugarnes-
kirkju, hefur nú flutt sig um set,
breytt um nafn og öðlast nýtt heimili
í Neskirkju. Friðrik S. Kristinsson,
kórstjóri, hefur leitt starf kórsins sl.
8 ár en stofnandi hans var Ronald
Turner, f.v. organisti í Laugarnes-
kirkju.
Foreldrafélag kórsins er öflugt og
heldur vel um starfið ásamt stjórn-
andanum, styður við æfingar, sem
eru tvisvar í viku hverri yfir vetr-
armánuðina, annast fjáröflun og
fleira til eflingar söng drengjanna.
Kórinn hefur á liðnum árum farið í
söngferðalög innan- og utanlands og
glatt áheyrendur með góðum söng.
Nú í haust hefur orðið mikil end-
urnýjun í kórnum og margir nýir
drengir bæst í hópinn, en hann er
opinn drengjum úr hvaða sókn sem
er. Í kórnum eru nú 36 drengir. Það
var drengjunum í senn mikil upp-
lifun og áskorun að hitta félaga úr
Vínardrengjakórnum sem var hér í
heimsókn nýlega, en hann hefur
starfað í u.þ.b. 6 aldir og er án efa
fyrirmynd margra ef ekki flestra
drengjakóra.
Drengjakór Neskirkju mun að
jafnaði syngja í messu einu sinni í
mánuði í vetur og halda síðan tón-
leika í vor. Sóknarnefnd, prestar og
starfsfólk fagna þessari nýju starf-
semi sem eykur enn á fjölbreytni
þess öfluga safnaðarstarfs sem fyrir
er. Við messuna þjóna báðir prestar
kirkjunnar, sr. Frank M. Hall-
dórsson og sr. Örn Bárður Jónsson,
en drengjakórinn leiðir messusöng
við undirleik organistans, Reynis
Jónassonar.
Kátur sunnudagur
HÁTEIGSKIRKJA er opin fyrir alla
aldurshópa á morgun, sunnudag og
þar ættu allir að finna eitthvað við
sitt hæfi. Klukkan ellefu á sunnu-
dagsmorgun er barnaguðsþjónusta í
umsjón Péturs Björgvins Þorsteins-
sonar og Guðrúnar Helgu Harðar-
dóttur. Barnaguðsþjónusturnar eru
fyrir yngri börnin og fjölskyldur
þeirra. Þar er sungið, sögð saga og
brúðurnar Kalli og Soffa koma í
heimsókn. Þá munu barnakórar Há-
teigskirkju syngja fyrir kirkjugesti
undir stjórn Birnu Björnsdóttur,
barnakórstjóra.
Fullorðna fólkið og sérstaklega
eldri borgarar eru velkomnir í
messu klukkan tvö. Það er sr. Tóm-
as Sveinsson sóknarprestur sem
messar en Pétur Björgvin Þor-
steinsson, fræðslufulltrúi Háteigs-
kirkju, flytur predikun. Kór Há-
teigskirkju syngur undir stjórn
Douglasar A. Brotchie organista
Háteigskirkju. Að messu lokinni eru
allir velkomnir í samveru eldriborg-
arastarfs Háteigssafnaðar í safn-
aðarheimili Háteigskirkju. Þar er
ekki bara heitt á könnunni og með-
læti á borðum heldur mun stúlkna-
kór Háteigskirkju selja vöfflur með
rjóma. Allur ágóði af sölunni rennur
í ferðasjóð stúlknakórsins. Það ætti
engum að leiðast á þessari eldri-
borgarasamveru því Þjóðdansafélag
Reykjavíkur kemur í heimsókn og
tónlistin verður í umsjón Þorvaldar
Halldórssonar.
Klukkan átta á sunnudagskvöld-
inu býður Háteigskirkja alla ung-
linga velkomna í æskulýðsguðsþjón-
ustu undir yfirskriftinni: „snúum
bökum saman – tökum höndum sam-
an“. Þar munu félagar úr æskulýðs-
félaginu MeMe sýna dans, flytja lít-
inn leikþátt og fleira til þess að gera
þessa æskulýðsguðsþjónustu að eft-
irminnilegu kvöldi. Tónlistin verður
í umsjón Þorvaldar Halldórssonar
og Margrétar Ólafar Magnúsdóttur.
Pétur Björgvin Þorsteinsson leiðir
þessari 45 mínútna guðsþjónustu.
Að guðsþjónustunni lokinni er boðið
upp á smá hressingu.
Tónlistardagskrá í
Fossvogskirkju
FYRSTU dagarnir í nóvember hafa
um aldir verið tileinkaðir öllum heil-
ögum, píslarvottum trúarinnar, og
öllum sálum, þeim sem látist hafa á
liðnu ári.
Á sunnudaginn, 4. nóvember,
verða messur víða helgaðar þessu
umfjöllunarefni. Í Fossvogskirkju
verður vönduð tónlistardagskrá frá
kl. 14–17. Þar gefst fólki kostur á að
koma og hlýða á tónlistarflutning,
ritningarlestur og bæn og njóta
kyrrðar kirkjunnar. Fram koma:
Kammerkór Digraneskirkju, Hljóm-
kórinn, Tónakórinn og Kór Bústaða-
kirkju, ásamt organistunum Kjart-
ani Sigurjónssyni, Jóhanni
Baldvinssyni, Sigrúnu Steingríms-
dóttur og Helga Bragasyni og prest-
unum sr. Hreini Hákonarsyni og sr.
Maríu Ágústsdóttur. Einnig mun
Páll Rósenkrans syngja við undir-
leik Óskars Einarssonar.
Þá verður skrifstofa Kirkjugarð-
anna opin frá kl. 14–18, starfsfólk
vísar veg í görðunum og Hjálpar-
starf kirkjunar selur friðarkerti,
bæði í Fossvogskirkjugarði og í
Gufunesi. Verið velkomin í Foss-
vogskirkju á sunnudaginn.
Ljósamessa í
Hafnarfjarðarkirkju
VIÐ Ljósamessu sem hefst kl. 17 í
Hafnarfjarðarkirkju á sunnudaginn
sem er allra heilagra messa verður
látinna minnst í fyrirbæn, einkum
þeirra, sem látist hafa síðustu miss-
erin og nöfn þeirra nefnd, sem jarð-
sungnir hafa verið í Hafnarfjarð-
arkirkju. Kirkjukórinn syngur valin
tónverk og sálma. Prestur er sr.
Þórhildur Ólafs og orgnisti Natalia
Chow. Boðið verður til helgrar
kvöldmáltíðar og kveikt á bæna-
kertum.
Með því að næra líf og sálu af
þeim mætti við altari hans bindumst
við ekki aðeins honum heldur öllum
þeim, sem héðan eru horfnir úr
heimi og við höfum unnað og hafa
verið faldir honum í von og trú. Vel
fer á því að sækja ljósamessuna eftir
að hafa vitjað leiða ástvina. Prestar
Hafnarfjarðarkirkju.
Minning látinna í
Dómkirkjunni
NÚ um helgina er allra sálna messa.
Það er í kirkjulegri hefð minning-
ardagur allra þeirra sem við okkur
hafa skilist og haldið heim til Guðs.
Einkum er þeirra minnst sem andast
hafa á umliðnu ári. Í Dómkirkjunni
hefur skapast venja fyrir því að
bjóða þeim sem hafa leitað til henn-
ar árinu til að gera útför ástvina að
koma nú aftur í þann aldna og fagra
helgidóm og heyra huggunarorð og
tónlist og jafnframt eiga sam-
verustund á eftir.
Nú bjóðum við til messu kl. 11 þar
sem sr. Hjálmar Jónsson prédikar
og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
þjónar fyrir altari. Laufey Sigurð-
ardóttir, Marteinn H. Friðriksson og
Dómkórinn flytja fagra tónlist. Við
minnumst hinna látnu með því að
tendra ljós þeirra vegna.
Á eftir verður boðið upp á sam-
veru í Safnaðarheimilinu. Þar mun
sr. Jakob flytja erindi um sálma og
sorgarviðbrögð. Á borðum verður
súpa og brauð.
Listsýning í
Langholtskirkju
EFTIR messugjörð á allra heilagra
messu, 4. nóv., verður opnuð sýning
í Langholtskirkju með myndum eft-
ir Leif Breiðfjörð. Dr. Pétur Pét-
ursson, prófessor, flytur stutt erindi
við opnunina og segir frá verkunum,
sem eru unnin við texta úr Opinber-
unarbók Jóhannesar, en gler-
listaverk með þessum myndum
prýðir nú Hallgrímskirkju.
Síðar um daginn, kl. 17, heldur
Kammerkór Suðurlands tónleika í
kirkjunni, en laugardaginn 10. nóv-
ember verða tónleikar kl. 16 er
tengjast myndverkum Leifs Breið-
fjörð, en texti tónverksins er tekinn
úr Opinberunarbók Jóhannesar og
heimfærður við tónverkið af sr.
Árelíusi Níelssyni, fyrrum sókn-
arpresti Langholtskirkju. Verða
þeir tónleikar sérstaklega helgaðir
minningu hans.
Allra heilagra messa í
Grafarvogskirkju
NK. SUNNUDAG 4. nóvember er
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta í
Grafarvogskirkju kl. 11 Barnaguðs-
þjónusta í Engjaskóla kl. 13 Hátíðar-
guðsþjónusta er kl. 14 ath. breyttan
messutíma. Séra Bjarni Þór Bjarna-
son prédikar og séra Vigfús Þór
Árnason sóknarprestur þjónar fyrir
altari. Kór Grafarvogskirkju,
Barna- og unglingakórar kirkj-
unnar syngja, stjórnandi: Oddný
Þorsteinsdóttir, organisti: Bjarni
Þór Jónatansson. Einsöngvari: Sig-
urður Skagfjörð.
Eftir guðsþjónustuna verður svo
nefnt „líknarkaffi“, en framlög
renna til Líknarsjóðs Grafarvogs-
kirkju. Prestar, sóknarnefnd og
safnaðarfélag Grafarvogskirkju
Allra heilagra messa í
Hallgrímskirkju
Á ALLRA heilagra messu er þeirra
minnst sem látnir eru. Í Hallgríms-
kirkju hefst dagurinn kl. 10 á
fræðsluerindi séra Sigurðar Páls-
sonar um sorgina sem aldrei tekur
enda.
Á liðnum hálfum öðrum áratug
hefur mikil umræða farið fram um
sorg og sorgarferli og margvíslegar
rannsóknir verið gerðar á þessu
sviði. Þetta hefur leitt til endurskoð-
unar á ýmsum fyrri hugmyndum um
hvað sé eðlileg framvinda sorg-
arinnar og hve lengi hún varir. Í fyr-
irlestrinum mun séra Sigurður
kynna nokkrar þessara nýrri hug-
mynda.
Kl. 11 hefst síðan barnastarf í
umsjá Magmeu Sverrisdóttur og
guðsþjónusta þar sem séra Sigurður
mun prédika og þjóna fyrir altari
ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni
og félagar úr Mótettukórnum
syngja undir stjórn Harðar Áskels-
sonar. Kl. 20 hefst síðan kvöldmessa
við kertaljós í umsjá séra Jóns
Dalbú, sérstaklega helguð minningu
látinna. Séra Jón Bjarman fyrrv.
sjúkrahúsprestur flytur hugleiðingu
og Schola cantorum syngur undir
stjórn Harðar.
Minningartónleikar í
Hjallakirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 4. nóv.,
er allra heilagra messa í kirkjum
landsins. Sá dagur er helgaður
minningu látinna og verður af því
tilefni tónlistarmessa í Hjallakirkju í
Kópavogi kl. 11. Kór kirkjunnar
syngur sálma og verk sem fjalla m.a.
um lífið, eilífðina og huggunina í
Jesú Kristi. Einsöngvarar í mess-
unni eru Erla Björg Káradóttir,
María Guðmundsdóttir og Gunnar
Jónsson. Látinna verður minnst og
kveikt á kertum til minningar um
þá.
Síðar um daginn, kl. 17, verða
minningartónleikar í kirkjunni. Þar
verður látinna einnig minnst og
kveikt á kertum. Tónleikarnir eru
sérstaklega helgaðir minnngu sr.
Kristjáns Einars Þorvarðarsonar,
fyrrum sóknarprests í Hjalla-
prestakalli. Á tónleikunum verður
flutt verkið Requiem eða sálumessa,
op. 48 eftir franska organistann og
tónskáldið Gabriel Fauré, sem hann
samdi í áföngum frá 1887 til 1893.
Þetta er afar fallegt og hugljúft
verk. Flytjendur eru Kór Hjalla-
kirkju, Margrét Bóasdóttir, sópran,
Loftur Erlingsson, baríton og Lenka
Mátéová, orgelleikari. Stjórnandi er
Jón Ólafur Sigurðsson.
Allir eru að sjálfsögðu hjart-
anlega velkomnir og er aðgangur
ókeypis.
KK og Ellen í létt-
messu í Árbæjarkirkju
LÉTTMESSURNAR sem slógu svo
eftirminnilega í gegn í vor halda að
sjálfsögðu áfram fyrsta sunnudags-
kvöld hvers mánaðar í vetur kl. 20.
Sá háttur er hafður á að margir af
þekktustu tónlistarmönnum og
söngvurum þjóðarinnar koma fram.
Fjölbreytt tónlistarform fá að njóta
sín, eins og djass, gospel, popp,
rokk, sígild og tónlist frá Afríku.
Í léttmessunum brjótum við upp
formið á hinni hefðbundnu messu.
Leikin er létt tónlist, allir liðir mess-
unnar halda sér. Sr. Sigrún Ósk-
arsdóttir prédikar í messunni á
sunnudag. Fermingarbörn flytja
bænir um betri og kærleiksríkari
heim. Systkinin Kristján Krist-
jánsson (KK) og Ellen Kristjáns-
dóttir heiðra okkur með nærveru
sinni á sunnud. 4. nóv. kl. 20.
Opið hús í Kirkju
heyrnarlausra
KIRKJA heyrnarlausra hefur opið
hús fyrir allar fjölskyldur í safn-
aðarheimili Grensákirkju laug-
ardaginn 3. nóv. kl. 14–16.
Hugmyndin að baki þessu eru
„endurfundir“ þ.e. að bæði eldri
heyrnarlausir og yngri og fjöl-
skyldur þeirra geti hist og átt góða
stund saman. Boðið verður upp á
kaffi og vöfflur. Vonumst til að sjá
sem flesta.
Kirkjunefndin.
Drengjakór Nes-
kirkju í messu
Morgunblaðið/Jim Smart
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl. 14.
Umsjón sr. Frank M. Halldórsson.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11.
Safnaðarstarf