Morgunblaðið - 16.12.2001, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 16. DESEMBER 2001
289. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Stór stund í lífi margra rennur upp á næstu dögum þegar
Föruneyti hringsins, fyrsti hluti kvikmyndagerðarinnar á
Hringadróttinssögu J.R.R. Tolkiens, verður opinberaður.
Skarphéðinn Guðmundsson fór í ferðalag til Miðgarðs og ræddi
við skaparana og leikara sem gæddu sögupersónurnar lífi. /2
Hringadróttinssaga
erðalögFerðaráðgjöf í tölvu bílarVW Sharan börnGrýla er ekki dauð bíóBen Stiller
Fjölskyldumálin
Sálarlífið á fullorðinsárum
Veisluréttir úr
gómsætum
saltfiski og
umfjöllun um
jólavínin
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
16. desember 2001
B
1,2 milljónir gesta á
tveimur mánuðum
10
Dínamít í þágu
heimsfriðarins
12
Stefnir á
Ólympíuleikana
18
FJÓRIR Palestínumenn, þar af einn
unglingur, féllu og að minnsta kosti
75 særðust í mikilli skothríð ísr-
aelskra hermanna í bænum Beit Han-
un í gær.
Ísraelskar F-16-herþotur réðust
gegn bækistöðvum palestínsku ör-
yggislögreglunnar í fyrrinótt, þriðju
nóttina í röð, en í gærmorgun lögðu
Ísraelar undir sig Gaza-borg. Kom til
mikilla átaka með þeim og hundruð-
um palestínskra unglinga, sem réðust
gegn skriðdrekunum með grjótkasti í
bænum Beit Hanun.
Bandaríkjamenn beittu í gær neit-
unarvaldi í öryggisráðinu gegn álykt-
un þar sem fordæmd voru hryðjuverk
gegn Ísraelum og Palestínumönnum
og hvatt til, að alþjóðlegt gæslulið
yrði sent til Miðausturlanda. 12 ríki
studdu ályktunina en Bretar og Norð-
menn sátu hjá.
„Óskiljanleg“ afstaða
John Negroponte, sendiherra
Bandaríkjanna hjá SÞ, sagði, að með
ályktuninni hefði verið stefnt að því
að einangra Ísrael og ekki minnst á
hryðjuverkin gegn þeim. Hubert
Vedrine, utanríkisráðherra Frakk-
lands, sagði aftur á móti, að afstaða
Bandaríkjamanna væri „óskiljanleg“.
Mannfall
og átök
á Gaza
Reuters
Palestínskur drengur beinir leikfangabyssunni sinni að ísraelskum skriðdreka í bænum Beit Hanun á Gaza-svæðinu. Ísraelar skutu í gær fjóra Palest-
ínumenn, þar af einn ungling, og særðu tugi manna. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, hefur boðað mikilvægt ávarp í dag.
Gaza. AP, AFP.
Leikfangabyssa gegn skriðdrekum
UM 50 liðsmenn al-Qaeda, hryðju-
verkasamtaka Osama bin Ladens,
hafa gefist upp fyrir afgönsku her-
liði sem sækir gegn þeim í fjall-
lendinu við Tora Bora í Austur-
Afganistan. Said Mohammad Pal-
awan, einn afgönsku foringjanna,
sagði, að 300 aðrir hefðu heitið
uppgjöf og hefðu þeir ætlað að
gefa sig fram fyrir miðjan dag í
gær. Sá frestur leið þó án þess til
þeirra sæist.
„Al-Qaeda er búið að vera, síð-
ustu vígi þeirra eru að falla,“ sagði
Hazarat Ali, yfirmaður afganska
herliðsins, en hann og talsmenn
Bandaríkjahers segja að allt að
1.000 al-Qaeda-liðar, aðallega
arabar og Tsjetsjenar, séu innikró-
aðir í dal, í hellum uppi í hlíðunum
og uppi á fjallsöxl.
Bandaríkjamenn hafa haldið
uppi látlausum sprengjuárásum á
þá og meðal annars beitt mörgum
AC-130-fallbyssuþyrlum. Sagði
Ali, að lík 33 al-Qaeda-manna
hefðu fundist í gær og í fyrradag
og fjórir náðst lifandi.
Komið hefur fram í fjarskiptum
milli al-Qaeda-liða, að 60 Tsjetsj-
enar hafi flúið burt og einn foringi
Afgananna, Mohammed Khan,
hafði eftir þremur arabískum
föngum, að 50 al-Qaeda-foringjar,
ekki þó þeir æðstu, hefðu flúið
snemma í gær á múlösnum í átt að
pakistönsku landamærunum, sem
eru aðeins í nokkurra kílómetra
fjarlægð. Þar er pakistanski her-
inn með mikla gæslu.
Barist um helli bin Ladens?
Ekkert er enn vitað um verustað
bin Ladens en afgönsku sveitirnar
hafa átt í hörðum bardögum við
nokkur hundruð al-Qaeda-menn
við ákveðinn helli, sem Khan segir
hafa verið bækistöð bin Ladens.
Sumir telja þó líklegast að hann sé
í felum annars staðar í Afganistan,
hugsanlega nálægt Kandahar, eða
jafnvel, að hann sé farinn úr landi.
Bandarískir sérsveitamenn hafa
tekið virkan þátt í bardögunum
síðustu daga og kannað þá hella
sem liðsmenn al-Qaeda notuðu
sem bækistöðvar.
Mikið hefur fundist þar af skjöl-
um, tölvudiskum, myndböndum og
listar með símanúmerum al-
Qaeda-liða í öðrum löndum. Er
það haft eftir bandarískum leyni-
þjónustumönnum að þessar upp-
lýsingar séu mjög mikilvægar og
hafi þegar leitt til handtöku ým-
issa liðsmanna hryðjuverkasam-
takanna.
Þjóðverjar varaðir
við hryðjuverkum
Bandaríska leyniþjónustan hefur
varað yfirvöld í Þýskalandi við
hættu á hryðjuverkum í landinu á
næstunni. Kemur það fram í
mánudagsútgáfu þýska vikuritsins
Focus, sem segir að þrír hryðju-
verkamenn hafi fengið skipun um
að fremja hryðjuverk í Þýskalandi
einhvern tíma á næstu fjórum
mánuðum.
Afganar segja að síðustu
vígi al-Qaeda séu að falla
Eru innikróaðir í fjöllunum, á flótta
og sumir hafa gefist upp
Tora Bora, Washington. AP, AFP.
RÁÐAMENN Evrópusam-
bandsins, ESB, samþykktu í
gær svokallaða „Laeken-yfir-
lýsingu“ á fundi sínum við
Brussel en hún varðar ýmsar
umbætur og framtíð sam-
runaferilsins í Evrópu.
„Sambandið stendur á
krossgötum. Almenningur
vill, að ákvarðanir þess verði
opnari og lýðræðislegri og
það kallar á ýmsar umbætur
innan hinna evrópsku stofn-
ana,“ segir í yfirlýsingunni en
hún verður síðan meginverk-
efni ráðstefnu, sem haldin
verður í mars. Eiga umbæt-
urnar m.a. að ná til fram-
kvæmdastjórnarinnar, ráð-
herraráðsins og Evrópuþings-
ins.
Hvatt til
umbóta
í ESB
Laeken. AFP.