Morgunblaðið - 06.02.2002, Síða 35

Morgunblaðið - 06.02.2002, Síða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002 35 ✝ Þorgerður UnaBogadóttir fæddist á Skaga- strönd 25. júlí 1931. Hún lést í Keflavík 29. janúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Bogi Theo- dór Björnsson, f. 3.9. 1903, d. 29.1. 1968, og Sigrún Jónsdóttir f. 16.4. 1896, d. 4.3. 1970. Systkini Þor- gerðar eru: Birna Sólveig, f. 8.8. 1926, d. 15.9. 1946; Jóhann Örn, f. 17.5. 1928, d. 28.3. 1996; Óli Jón, f. 17.4. 1930; og Guðríður, f. 10.12. 1935. Árið 1958 giftist Þorgerður Þórarni Guðlaugssyni, f. 3.8. 1931. Börn þeirra eru: Sæbjörg Brynja, f. 8.8. 1958, maki Pétur S. Stefáns- son; Sigrún, f. 29.5. 1963, maki Ólafur Þorri Gunnarsson; og Guðlaugur Valgarð, f. 5.6. 1965, maki Kristín Elfa Ingólfsdóttir. Þorgerður átti tvö börn fyrir, þau eru: Birna Sól- veig Lúkasdóttir, f. 27.12. 1949, maki Ellert Karl Guð- mundsson; og Bogi Ingvar Traustason, f. 8.2. 1952, maki Gerður Guðnadótt- ir. Foreldrar Þor- gerðar fluttu til Skagastrandar vor- ið 1930 þar sem Þorgerður ólst upp. Fljótlega eftir að Þorgerður og Þór- arinn giftust fluttu þau til Grindavíkur þar sem þau bjuggu flest sín hjúskaparár. Undanfarinn áratug bjuggu þau í Keflavík. Þorgerður var lærð ljósmóðir og starfaði hún á árum áður sem ljósmóðir og hjúkrun- arkona á Skagaströnd og í Grindavík. Útför Þorgerðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Hún Gerða, tengdamóðir mín, er látin. Hún kvaddi um stjörnubjarta nótt, eina þá fallegustu sem komið hefur í vetur. Tunglið skein skært og glitraði á sjónum. Það var henni líkt að velja svona fallega nótt. Það er undarleg tilviljun að hún lést sama mánaðardag og faðir hennar lést, 34 árum áður. Það hafa eflaust orðið fagnaðarfundir þegar þau hittust aftur á betri og hlýrri stað. Mig langar með nokkrum orðum að fá að þakka henni Gerðu fyrir að hafa orðið hluti af mínu lífi. Ég man vel eftir okkar fyrstu kynnum fyrir 18 árum. Þá voru liðin nokkur ár frá því að hún fékk heilablóðfall og einnig var gigtin farin að segja til sín. Það fyrsta sem ég skynjaði var hversu dugleg hún var. Hún vildi alla hluti gera sjálf, þótt það tæki hana aðeins lengri tíma en aðra. Og þegar verkinu var lokið var hún ánægð með sjálfa sig og hrósaði sér fyrir. Það getur stundum verið nauðsynlegt að hrósa sjálfum sér. Hún var mikið ein heima á daginn, og því reyndi mikið á hana að finna sér eitthvað að gera og sjaldan féll henni verk úr hendi. Hún var glett- in og stríðin kona, og alltaf stutt í hláturinn. Þorgerður var lærð ljósmóðir. Sögurnar sem hún sagði okkur af störfum sínum lístu oft erfiðum að- stæðum sem ljósmæður þurftu að starfa við á þeim árum. Þessi lífs- reynsla hefur eflaust haft sitt að segja varðandi þá seiglu og dugnað sem Gerða bjó yfir. Það þarf mikinn kraft og lífsvilja til að rífa sig upp eftir áfall eins og heilablóðfall. En það gerði hún, og ef endurhæfing og sjúkraþjálfun í þá daga hefðu verið eins og nú er, þá hefði hún ef- laust getað náð sér betur. Ekki hefði hún Gerða getað eign- ast betri mann en hann Þórarin. Hann var einstaklega góður við hana og núna síðustu árin stjanaði hann við hana og sá að auki um öll þeirra mál. Í hjónabandi reynir mikið á þann einstakling sem heil- brigður er þegar makinn veikist. Ekki kvartaði Þórarinn, heldur hélt ótrauður áfram. Hann á hrós skilið. Mikið vorum við ánægð þegar Gerða treysti sér til að koma og vera viðstödd skírnina á yngsta barninu okkar nú í janúar. Hún heitir Berglind Una, Una eins og amma. Eitt verð ég nú að minnast á og það eru fiskibollurnar hennar Gerðu. Hún bjó til þær bestu fiski- bollur sem börnin gátu hugsað sér. Gerða var dugleg að færa okkur fiskibollur sem hún hafði gert og pakkað í hæfilega skammta fyrir fjölskylduna. Alltaf vinsælt að hafa fiskibollurnar hennar ömmu í mat- inn. Elsku Gerða, ég vil þakka þér fyrir góð kynni. Þakka þér fyrir að vera amma barnanna okkar, fyrir að kenna okkur að gefast ekki upp, og fyrir að vera bara þú sjálf. Síð- ustu árin hafa eflaust verið þér erf- ið, þar sem þrekið var farið að þverra. Það er trú mín að nú hafir þú öðlast heilbrigði og orku á ný. Ef ég þekki þig rétt, þá ertu farin að taka til hendinni á öðrum og betri stað. Sjöfn, Albert, Agnes og Berglind Una biðja kærlega að heilsa ömmu sinni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem.) Kristín Elfa. ÞORGERÐUR UNA BOGADÓTTIR Séra Grímur Gríms- son, fyrrverandi sókn- arprestur í Sauðlauks- dal, er fallinn frá eftir erfitt sjúkdómsstríð. Hann átti að baki lang- an æviferil og drjúgan starfsdag, kominn nær níræðu þeg- ar kallið kom. Ekki ætla ég að tíunda starfsferil hans eða lífshlaup hér, aðrir kunna þar betur til verka. Leiðir okkar lágu saman aðeins einn vetur, en á þeim vetri aflaði ég mér meiri þekkingar og þroska en á nokkrum vetri öðrum fyrr eða síðar. Bæði var Grímur sem lærifaðir ákaf- lega veitandi á ýmsa speki, sem lá fyrir utan skruddur þær, sem ég átti að tileinka mér undir hans leiðsögn, en ekki síður var heimilisbragur á heimili þeirra Guðrúnar afar við- kunnanlegur og hafði í senn róandi og uppbyggileg áhrif á ungan læri- svein. Grímur var mikið ljúfmenni og góður kennimaður. Það vildi til þennan vetur að einn gamall sam- ferðamaður úr Rauðasandshreppi féll frá, hafði sá verið einstæðingur alla ævi og ekki mikils metinn af samtíðinni. Ég hafði aldrei upplifað jarðarför fyrr og einsetti mér að mæta til kirkju, þó ekki væri nema mér til fróðleiks, en af hinum látna hafði ég haft sáralítil kynni. Velti ég því fyrir mér hvað prestur skyldi segja í líkræðu í þessu tilfelli, afrek GRÍMUR GRÍMSSON ✝ Grímur Gríms-son fæddist í Reykjavík 21. apríl 1912. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eiri 24. janúar síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Ás- kirkju 1. febrúar. hins látna voru smá og lífshlaupið hversdags- legt. „Það verður nú ekki mikill vandi að semja góða ræðu yfir honum Jóa,“ heyrði ég að Grímur sagði daginn fyrir jarðarförina áður en hann gekk til skrif- stofu sinnar. Í kirkj- unni daginn eftir sá ég að hann hafði haft rétt fyrir sér. Ræðuna man ég að sjálfsögðu ekki, en hún hefði eins getað verið flutt yfir ein- hverjum dánumanni, sem mikið hafði látið eftir sig af frægð og fögrum athöfnum. Þannig varð hið smáa mikilsvert í huga og munni Gríms og manngildið var ekki metið eftir völdum eða auði. Þó var Grímur aristókrat og „kons- ervatívur“ í betra lagi. Til dæmis átti hið sovéska stórveldi ekki upp á pall- borðið hjá honum, enda lifði hann það um rúm tíu ár og hefur sjálfsagt ekki þótt verra. Aldrei heyrði ég hann þó ræða stjórnmál af neinum þunga, enda forðaðist hann jafnan að misvirða tilfinningar viðmæland- ans. Fyrir fáum árum sótti ég nokkra fundi í Rótarýklúbbi hans í Reykja- vík og endurnýjuðum við þá kynni okkar að nokkru. Hann var þá kom- inn hátt á níræðisaldur en virtist með öllu ótruflaður af aldurdómi sín- um, skrafhreifinn og áhugasamur um hvaðeina, hvort sem það féll und- ir dægurmál eða hina eilífu lífsgátu. Einhver fundarmanna ávarpaði mig, spurði hvaðan ég væri og svaraði ég sem svo að ég væri að austan, þar sem ég hefi búið á Egilsstöðum um áratugaskeið. „Hvaða vitleysa er þetta í þér Sigurjón,“ sagði þá Grím- ur, „þú ert ekkert að austan, þú ert að vestan.“ Ég átti fá svör við þessu, því vissulega var ég þaðan upprunn- inn. En þarna minnti Grímur á það hversu mikilsvert er að rekja upp- runann alla leið og hafa í heiðri þá rót sem hver og einn er sprottinn af. Að sjálfsögðu vildi hann einnig með þessu minna á nærveru sína og koma á framfæri hvernig kunnings- skapur okkar var tilkominn. Já, þau voru góð árin Guðrúnar og Gríms í Sauðlauksdal, alténd fyrir sóknar- börnin, sem mátu þau mikils. Óhætt er að segja að þau prests- hjónin hafi átt hug og hjarta sveit- unga sinna, enda ávallt reiðubúin að taka þátt í gleði þeirra og sorgum, svo og að efla það félagslíf sem hægt var að starfrækja í fámennum sókn- um. Hygg ég að vingjarnleiki og fé- lagslyndi þeirra hjóna séu enn ógleymd þeim sóknarbarna þeirra, sem enn eru ofar foldu. Það var mik- ill missir þegar þau Guðrún og Grímur fluttu suður, en síðan hefur prestur ekki setið að staðaldri í Sauðlauksdal, sem nú hefur staðið í eyði um árabil. „Nú er hún Snorra- búð stekkur“ stendur einhvers stað- ar. Grímur þjónaði lengi síðan Ásprestakalli í Reykjavík og enn síð- ar sinnti hann öðrum preststörfum, eftir að eftirlaunaaldri hafði verið náð. Þökk sé almættinu fyrir að hafa mátt dvelja með þeim hjónum þenn- an eina vetur og nema af þeim manngæsku og jákvæða afstöðu til lífsins auk fræðanna, sem fleyttu mér langt fram á veg. Megi algóður himnafaðirinn styðja Guðrúnu frá Sauðlauksdal og börn þeirra hjóna við fráfall hins ást- kæra fjölskylduföður. Þau hafa misst mikið, en löng hérvist séra Gríms hefur líka óefað gefið þeim mikið sem næst honum stóðu og nutu góðs af kærleika hans. Megi þau öll lengi lifa í friði og hamingju. Sigurjón Bjarnason frá Hænuvík. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.                    !"#                         ! $  %  &' (' )'' ' *  '' +%  &' (' '' %  &' *  !(,! +% ( - . %  &' ('  /% 0 *  !')0 $%  &' ('  * '' (' ',1, # *  ,#0 '' *   !2&'  ,#- (' (, '1'% "#    $  %   3 .% . 4$ !'' /,)5 - 67 !"#   &  $         '       (           ! /1' % )''! (' / /1' ('  #' /1' *  '' /1' * % "#    *   839 :3;< 32!', = !"#   +   $  ,    - ,     (   ,  .      ! ,5' ' " 2*   5'  #' ! ,*  (, 0 '*!'*% /0  $     . 4$    +    (    1    .(0 (' ,!, ,0*  (22# ' * % 2%   $ +<44$ 2&  -#   3  $ 40 $ ,    1  /1' )'' & '% ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minn- ingargreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.