Morgunblaðið - 09.02.2002, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÍR og Víkingur skildu jöfn
í Austurbergi/B3
Tranmere sýnir Ólafi
Gottskálkssyni áhuga/B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM
Morgunblaðinu í
dag fylgir aug-
lýsingablaðið
FAGRA VERÖLD
2002–2003
frá Heimsklúbbi
Ingólfs.
Blaðinu verður
dreift um allt land.
SAMNINGAFUNDUR í deilu Fé-
lags íslenskra flugumferðarstjóra og
samninganefndar ríkisins er boðað-
ur kl. 9.30 í dag hjá ríkissáttasemj-
ara. Í gær funduðu deilendur frá há-
degi og stóð fundur fram á tíunda
tímann í gærkvöldi. Loftur Jóhanns-
son, formaður félagsins, tjáði Morg-
unblaðinu að jákvætt væri að fundur
skyldi hafa verið boðaður á ný en
vildi ekki tjá sig um gang viðræðna.
Ríkisstjórnin hafði fyrr í gær
fjallað um málefni flugumferðar-
stjóra og fyrirhugaða lagasetningu á
yfirvinnubann þeirra.
Fjórir flugumferðarstjórar til-
kynntu veikindi í gær, sem áttu að
koma á vakt í flugturninum í Reykja-
vík, en það olli engri röskun á flug-
umferð. Ekki kom til tafa í flugi á
Akureyri þar sem flugturninn þar
var fullmannaður.
Flugumferðarstjórar hafa verið
samningslausir frá því um miðjan
nóvember síðastliðinn, þegar rann út
skammtímasamningur sem gerður
var við ríkið fyrir ári. Þá gripu flug-
umferðarstjórar til verkfallsaðgerða
eftir að hafa verið samningslausir frá
nóvember árið 2000.
FÍ óskar eftir
niðurfellingu gjalda
Flugfélag Íslands sendi Flug-
málastjórn bréf í gær þar sem óskað
er eftir niðurfellingu þjónustugjalda
vegna yfirvinnubannsins. Félagið
hefur þurft að fella niður nokkrar
ferðir til Akureyrar frá því að yfir-
vinnubannið tók gildi 14. janúar sl.
og er áætlað að tekjutap og beinn
kostnaður nemi rúmum 10 milljón-
um króna. Jón Karl Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands,
sagði að tilgangur bréfsins væri
fyrst og fremst sá að kanna mögu-
lega bótaskyldu. Félagið væri látið
greiða fyrir ákveðna þjónustu sem
það hefði ekki fengið að fullu síðustu
vikur.
Engin röskun á flugi í gær vegna veikinda flugumferðarstjóra
Samningafund-
ur aftur í dag
Morgunblaðið/Sverrir
Samninganefnd flugumferðarstjóra á fundi í húsakynnum ríkissátta-
semjara í gær, skömmu áður en samninganefnd ríkisins kom á svæðið.
Loftur Jóhannsson, formaður félagsins, er fremstur á myndinni.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Norð-
urlandanna munu á reglulegum
fundi sínum í Ósló í næstu viku
ræða ástandið í Palestínu, samn-
ingana um Evrópumál og stöðu og
horfur varðandi samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið. Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra segir
það lengi hafa verið til athugunar
að Yasser Arafat, leiðtogi Palest-
ínumanna, kæmi í heimsókn hingað
til lands en af því hefði ekki getað
orðið ennþá.
Halldór Ásgrímsson segir utan-
ríkisráðherra Norðurlandanna jafn-
an ræða á fundum sínum mál sem
efst eru á baugi hverju sinni. Evr-
ópumálin séu ávallt á dagskrá og
ekki síst nú verði m.a. fjallað um
stöðu Evrópska efnahagssvæðisins
og þróun og horfur samningsins.
Þá sagði hann verða rætt um
ástandið í Palestínu en það hafi
mikið verið á dagskrá Evrópusam-
bandsins síðustu mánuði. Sagði
hann það merkilegt að nú hefðu
lönd ESB náð saman um pólitíska
afstöðu til Palestínu en áður hefðu
þau verið mjög sundruð í afstöðu
sinni. Utanríkisráðherra sagði
áreiðanlega verða komið inn á þær
skemmdir sem unnar hafa verið á
mannvirkjum sem Norðurlöndin
hafa m.a. fjármagnað í uppbygging-
arstarfi sínu í landinu, ekki síst
Norðmenn. Sagði hann að menn
hlytu að horfa til framtíðar en hins
vegar ríkti mikið vonleysi um þróun
mála. Þó mætti kannski eygja von
um að Ísraelsmenn myndu breyta
um afstöðu og reyna fyrir sér með
samningum í kjölfar fundar Ariels
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
með Bush Bandaríkjaforseta.
Halldór Ásgrímsson sagði því oft
hafa verið komið á framfæri við
Yasser Arafat að hann kæmi í
heimsókn til Íslands en ekki hefði
enn tekist að láta verða af því.
Helst hefði það verið reynt í
tengslum við heimsóknir hans til
annarra Norðurlanda. Nú væri
staða hans nokkuð óljós bæði heima
fyrir og í alþjóðasamfélaginu og
kvað hann því óljóst hvort eða hve-
nær af þeirri heimsókn gæti orðið.
Utanríkisráðherrar Norðurlanda hittast í Ósló í næstu viku
Ræða ástandið í Pal-
estínu og Evrópumál
FJÖLDI fólks var í Hlíðarfjalli við
Akureyri í gærdag, en þar var
glampandi sól fram eftir degi og
10° frost. „Þetta er eins og best
verður á kosið,“ sagði Guðmundur
Karl Jónsson, forstöðumaður í
Hlíðarfjalli.
Hann sagði að strax um hádegi
hefði fólk tekið að streyma í fjall-
ið og áberandi mest væri þar um
að ræða fólk af höfuðborgarsvæð-
inu. „Það hefur verið stanslaus
straumur bíla hingað upp eftir og
mikið fjör,“ sagði Guðmundur.
Um síðustu helgi snjóaði mikið og
er nú nægur og góður skíðasnjór í
Hlíðarfjalli, að sögn Guðmundar.
„Það hefur gengið ljómandi vel
hérna, fólk er spennt að prófa
nýju lyftuna.“
Straumur
að sunnan
Flugfélag Íslands áætlaði að
fljúga alls sjö ferðir milli Reykja-
víkur og Akureyrar í gær, föstu-
dag, og var fullt í þær allar.
Margir koma einnig landleiðina
að sunnan til að bregða sér á skíði
norðan heiða. Á Hótel KEA feng-
ust þær upplýsingar að ekki væri
fullbókað á hótelið um helgina, en
þar væri nokkuð um skíðafólk.
Þá væri ekki óalgengt að gestir
sem ættu annað erindi til Akur-
eyri gripu skíðin með.
Nýja fjögurra sæta stólalyftan í
Hlíðarfjalli verður formlega tekin
í notkun í dag, laugardag, og
verður Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra viðstaddur athöfn
af því tilefni.
Stöðugur
straumur
skíðafólks
til Akur-
eyrar
STEFNT er að fjölgun útgáfu-
daga Morgunblaðsins með það
fyrir augum að bæta þjónustu
þess við áskrifendur og auglýs-
endur.
Fyrsta skrefið í þeirri við-
leitni er fjölgun útgáfudaga nú
um páskana. Morgunblaðið
kemur þá út á páskadag, 31.
mars (sem dreift verður á laug-
ardagseftirmiðdegi) og þriðju-
daginn eftir páska, 2. apríl.
Útgáfudög-
um fjölgað
ÁHÖFN TF-SIF, þyrlu Landhelg-
isgæslunnar, flutti slasaðan mann
á Landspítalann í Fossvogi síðdeg-
is í gær eftir að naut réðst á hann
inni í gripahúsi í Miðfirði í Húna-
þingi. Samkvæmt upplýsingum
vakthafandi læknis á slysadeild
Landspítala var maðurinn mikið
marinn á útlimum, brjóstkassa og
kviði.
Hann virtist þó hafa sloppið við
beinbrot og innvortis meiðsl.
Naut réðst
á mann
LANGAR raðir bíla hafa verið
síðustu daga við flestar bíla-
þvottastöðvar höfuðborgarsvæð-
isins. Milli 500 og 600 bílar renna
gegnum Bón- og þvottastöðina í
Sóltúni á annadegi þar sem þessi
mynd var tekin í vikunni.
Biðraðir í
bílaþvott
Morgunblaðið/Ásdís
Þyrla send í sjúkraflug