Morgunblaðið - 09.02.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 09.02.2002, Síða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ SAMKOMULAG hefur tekist um að Þengill Oddsson, trúnaðarlæknir Flugmálastjórnar, komi aftur til starfa. Í yfirlýsingu frá Flug- málastjórn kemur fram að Þengill beri fullt traust yfirstjórnar hennar. Við endurkomuna hafi flugmálastjóri áminnt hann og lögmann stofnunarinnar. Sömuleiðis gerði flugmálastjóri athugasemdir við aðra þá starfsmenn stofnunarinnar, sem komu að hin- um umdeildu ákvörðunum sem urðu til þess að Þengill vék tímabundið frá störfum. Brýndi hann fyrir þeim að gæta sérstaklega að réttri stjórnsýsluframkvæmd í störfum sínum. Var í því sambandi vísað til skýrslu úttektarnefndar þeirrar sem samgönguráðherra skipaði til að fjalla um málið. Flugmálastjóri lagði fyrir hlut- aðeigandi að fylgja niðurstöðum nefndarinnar í hvívetna. Þá hefur flugmálastjóri skipað vinnu- hóp, sem á að fara yfir verkferli og verklags- reglur í skírteinadeild stofnunarinnar, þ.m.t. heilbrigðisskor, til að tryggja framgang fyrr- greindra fyrirmæla og vandaða stjórnsýslu- hætti. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, sagði aðspurður að um væri að ræða bréflega áminningu til Þengils og lög- manns Flugmálastjórnar. Heimir sagði að Flugmálastjórn áformaði að ráða annan fluglækni við hlið Þengils. Hann sagði að það ástand sem skapast hefði á síðustu vikum sýndi að Flugmálastjórn gæti ekki verið læknislaus ef læknir forfallaðist af einhverjum orsökum. Eins hefði flugmönnum fjölgað og þjónusta við þá hefði verið að aukast. Það væri því þörf á að ráða annan trúnaðarlækni við hlið Þengils. Sjö vikur eru síðan Þengli var vikið tíma- bundið frá störfum. Heimir sagði að nokkur mál biðu afgreiðslu hjá Flugmálastjórn af þess- um sökum. Aðallega væri um að ræða flugmenn sem væru að fá skírteini í fyrsta skipti, en ein- ungis trúnaðarlæknir má afgreiða mál þeirra. A.m.k. einu máli sem ekki þoldi bið var vísað til Flugmálastjórnar Danmerkur til afgreiðslu. Kaus að líta á nefndarálitið sem leiðbeiningar Helgi Jóhannesson, lögmaður Þengils Odds- sonar, sagði að Þengill væri búinn að vera að byggja upp þetta JAA-kerfi á Íslandi sl. fimm ár og honum væri umhugað að halda þessari uppbyggingu áfram. Hann hefði unnið eftir þessu kerfi og myndi gera það áfram. Þengill hefði tekið þá afstöðu að líta á nefndarálit út- tektarnefndarinnar sem leiðbeiningar um það sem betur mætti fara. Það væri kominn tími til að binda enda á deilur sem staðið hefðu um þetta mál. Hann vildi nota tækifærið, sem nefndarálitið gæfi, til að sníða af þá agnúa sem kynnu að vera á verklagi sem viðhaft hefði ver- ið. Helgi sagði að Þengill hefði að sjálfsögðu átt þann kost að fara í hart vegna þessa máls. Það hefðu mörg stór orð fallið í málinu sem sum hver hefðu gefið tilefni til viðbragða af hans hálfu. „Þengill hefur ávallt í sínum störfum unnið af heiðarleika og ábyrgðartilfinningu gagnvart sínu starfi og þessi niðurstaða núna er unnin á þeim forsendum,“ sagði Helgi. Kemur á óvart segir formaður FÍA Franz Ploder, formaður Félags íslenskra at- vinnuflugmanna, sagði að þessi niðurstaða, að Þengill kæmi aftur til starfa, kæmi sér veru- lega á óvart. Hann sagðist hins vegar ekki vilja tjá sig frekar um málið á þessu stigi. Þetta mál yrði rætt í stjórn FÍA í næstu viku og eins ætti hann eftir að eiga fund með lögmanni FÍA og Árna G. Sigurðssyni flugmanni um málið. Stjórn FÍA krafðist þess bréflega í desember sl. að Þengli Oddssyni yrði vikið úr starfi. Atli Gíslason, lögmaður Árna G. Sigurðs- sonar flugmanns, sagðist harma það að flug- málastjóri hefði ekki samhliða leyst mál Árna. Hann sagðist vera búinn að koma með tillögu um lausn á því máli en flugmálastjóri hefði ekki sýnt neinn samstarfsvilja. „Miðað við þessa lausn í dag er enn ríkjandi fullur trúnaðar- brestur milli flugmanna og Flugmálastjórnar. Ég hefði kosið að flugmálastjóri hefði leyst málið í heild sinni. Þengill er búinn að senda af- sökunarbeiðni til ráðherra og ég hefði kosið að flugmálastjóri hefði um leið sæst við umbjóð- anda minn og Félag íslenskra atvinnuflug- manna. Hann beitir hann enn sérmeðferð án tilefnis,“ sagði Atli. Flugmálastjóri fól Jóni Þór Sverrissyni flug- lækni að meta heilbrigði Árna G. Sigurðssonar. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er talið líklegt að skoðun hans á málinu ljúki í næstu viku. Samgönguráðherra vildi ekkert tjá sig um þá niðurstöðu sem fengin er þegar Morgunblaðið leitaði eftir áliti hans í gær. Þengill Odds- son tekur aftur við starfi trún- aðarlæknis Morgunblaðið/Árni Sæberg Þengill Oddsson, trúnaðarlæknir Flugmálastjórnar Íslands. ÞENGILL Oddsson átti fund með Sturla Böðvarssyni samgönguráðherra í gær þar sem Þengill afhenti honum bréf, en þar segir: „Háttvirti samgönguráðherra. Í niðurstöðu úttektarnefndar, sem þér skipuðuð vegna útgáfu flugskírteina og heilbrigðisvottorða Flugmálastjórnar Ís- lands, kemur m.a. fram „að aðkoma sam- gönguráðuneytisins að málinu hafi ein- göngu falið í sér fyrirmæli um stjórnsýslulega meðferð á beiðni flug- mannsins um útgáfu heilbrigðisvottorðs“. Af þessum sökum dreg ég til baka yf- irlýsingar sem vitnað hefur verið til í fjölmiðlum í þá veru að þér sem sam- gönguráðherra hafið beitt pólitísku valdi yðar við útgáfu heilbrigðisvottorðs í mál- inu og með því hafi flugöryggi skerst. Vænti ég þess að þau ummæli verði ekki erfð við mig af yðar hálfu. Ég sem áhugamaður um flugöryggi hér á landi harma þá miklu og óvægnu um- fjöllun sem orðið hefur um mál þetta í fjölmiðlum. Ég lýsi því yfir að ég hverf aftur til starfa sem trúnaðarlæknir Flug- málastjórnar sáttur og reiðubúinn að tak- ast á hendur þau störf sem þar bíða úr- lausnar. Ég vænti þess að við getum átt gott samstarf á sviði flugmála í framtíð- inni og að atburðir síðustu vikna varpi ekki skugga þar á.“ Bréf Þengils til ráðherra INFLÚENSAN sem nú hefur skotið rótum hér á landi er af hefð- bundnum A-stofni og hefur borist frá suðurhveli jarðar á norðlægar slóðir, að sögn Haraldar Briem, sóttvarnarlæknis hjá Landlæknis- embættinu. Nægt bóluefni er til staðar sem virkar á þennan stofn en sami faraldur herjar nú á marga Evrópubúa, einkum í Frakklandi. Haraldur sagði í samtali við Morgunblaðið að starfsbræður hans víða um heim óttuðust vax- andi líkur á að nýr stofn inflúensu skyti upp kollinum og þá án þess að nægt bóluefni væri til við hon- um. „Við köllum það mótefnarek þeg- ar faraldur kemur upp sem gengur árum og áratugum saman. Síðan á sér stað uppstokkun á þessum mót- efnum og ný tegund kemur fram sem enginn hefur mótefni gegn. Þá verður faraldurinn yfirleitt skæð- ari. Menn hafa alltaf verið að búast við nýrri uppstokkun og hún gæti komið hvenær sem er, þess vegna á morgun eða eftir tíu ár, og ekkert endilega að vetri til hér á landi. Við erum í svipaðri stöðu og jarðvís- indamenn sem eru alltaf að bíða eftir stóra jarðskjálftanum,“ sagði Haraldur og minnti á skelfilegar afleiðingar spænsku veikinnar sem gekk yfir hér á landi árið 1918. Síð- an þá hefðu komið upp svipaðir far- aldrar en ekki eins skeinuhættir, s.s. inflúensur sem kenndar hafa verið við Asíu og Hong Kong. Aðspurður hvort læknavísindin væru ekki betur í stakk búin nú en árið 1918 til að berjast við nýjan stofn sagði Haraldur það vera bæði og. „Að því leyti erum við betur sett nú að lyf eru til gegn þessu og bóluefni. Vandamálið núna er að marga mánuði, jafnvel hálft ár, getur tekið að búa til nýtt bóluefni. Einnig eru ferðalög fólks svo mikil að veirur berast hratt á milli landa. Ef til dæmis meira en helmingur Reykvíkinga myndi sýkjast af nýj- um stofni inflúensu þá ættum við aldrei til lyf eða bóluefni fyrir alla,“ sagði Haraldur. Veirunni haldið við í fuglaríkinu Inflúensa er þeirrar gerðar, að sögn Haraldar, að hún gengur í hringrás um heiminn. Þegar sumar er hér á landi gengur hún á suð- urhveli jarðar og þegar vetur gengur í garð á norðurhvelinu hef- ur þessi veirusjúkdómur gjarnan komið upp á þeim slóðum. Veirunni er jafnan haldið við í fuglaríkinu og þá hjá vaðfuglum sem bera hana frá norður- og suðurslóðum í átt að miðbaug. Haraldur sagði að þetta árið væri inflúensan óvenju seint á ferðinni. „Inflúensuveiran lifir í vötnum í kaldara loftslagi og fuglarnir flytja hana í þörmunum. Svo geta svín sýkst af veirunni og önnur spendýr og upp frá þessu eiga uppstokkanir sér stað. Yfirleitt hafa upptökin verið í Asíu en það er fyrst og fremst vegna tölfræðinnar sem segir okkur að þar sé mestur fólks- fjöldi auk mikillar nálægðar við fugla og önnur dýr.“ Sóttvarnarlæknir segist bíða líkt og jarðvísindamenn eftir stórum jarðskjálfta Nýr inflúensustofn gæti komið upp fyrirvaralaust BISKUP Íslands, Karl Sigur- björnsson, fór til Bandaríkjanna í byrjun vikunnar í þriggja vikna námsleyfi, að því er fram kemur á vef Þjóðkirkj- unnar. Dvelst hann á Luther Seminary sem er prestaskóli í St. Paul í Minnesota. Þangað hafa margir íslenskir prestar farið til náms. Daniel Si- mundsson, pró- fessor við skól- ann, hefur verið biskupi innan handar um skipu- lag dvalarinnar. Daniel, sem er af íslensku bergi brotinn, hefur að sögn Þorvaldar Karls Helgason- ar biskupsritara greitt götu margra guðfræðinga sem til skól- ans hafa leitað og var hann sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við guðfræðideild Háskóla Ís- lands fyrir tveimur árum. Ásamt námsdvalar mun biskup flytja fyrirlestur við skólann, sitja fyrir svörum um íslensku kirkj- una og predika í guðsþjónustu. Hann mun einnig fara til Chicago að heimsækja höfuðstöðvar hinn- ar Evangelísku lúthersku kirkju í Bandaríkjunum. Ef með þarf mun Sigurður Sig- urðarson, vígslubiskup í Skál- holti, gegna biskupsstörfum í fjarveru Karls Sigurbjörnssonar. Biskup nemur í bandarísk- um presta- skóla Hr. Karl Sig- urbjörnsson biskup. ♦ ♦ ♦ TVEIR voru fluttir með sjúkrabif- reið á sjúkrahúsið á Sauðárkróki eft- ir þriggja bíla árekstur við Hofs- árbrú á Siglufjarðarvegi síðdegis í gær. Meiðsli þeirra voru þó ekki tal- in alvarleg. Bifreiðirnar rákust á við annan brúarendann, með því að tvær þeirra rákust á þá þriðju sem kom úr gagn- stæðri átt. Tvær bifreiðanna voru fólksbifreiðir, sem skemmdust mik- ið, en þriðja bifreiðin var jeppi sem skemmdist minna. Þriggja bíla árekstur við brú NÆR ALLAR heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hækkuðu gjaldskrár sínar í fyrra. Mest var hækkunin á Kjósarsvæði, 33,3%, 20% á Norður- landi vestra og 10% í Reykjavík. Þetta kemur fram í nýjasta frétta- bréfi Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að tíu svæðisbundnar heilbrigðisnefndir hafi með höndum lögbundið heilbrigðis- og mengun- arvarnaeftirlit og nær allar hafi þær hækkað gjaldskrár sínar í fyrra, þar af fjórar í desember og eina í nóvember. Í Kópavogi og Hafnarfirði var gjaldskráin hækkuð um 5,7% en á Suðurlandi var gjald- skrá ekki hækkuð en þar mun hækkun nú vera í burðarliðnum. Þá var gjaldskráin lækkuð um 0,5% á Suðurnesjum en þar er tímagjaldið þó hæst. Allt að þriðjungs- hækkun á gjaldskrám Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.