Morgunblaðið - 09.02.2002, Side 11

Morgunblaðið - 09.02.2002, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 11 liður á þessum árum. Því var ekki breytt fyrr en við fjárlagagerð árs- ins 1998. Í öðru lagi þarf að gæta þess þegar bornar eru saman tölur milli ára að það sé gert á sama verð- lagsgrundvelli til að samanburður verði raunhæfur. Sé það gert er heildarkostnaður embættisins árið 1995 81.5 milljónir króna miðað við verðlag ársins 2001. Í þriðja lagi sveiflast kostnaður við embætti forseta Íslands frá einu ári til annars af ýmsum ástæðum. Þannig var kostnaður embættisins til dæmis 121,5 millj- ónir króna árið 1994, ári áður en tilgreint var í samanburði fyrr- nefndrar greinar, 98,5 milljónir ár- ið 1998 eða heldur lægri en hann var átta árum fyrr, árið 1990 þeg- ar hann nam 104 milljónum króna. Allar þessar tölur eru á sam- bærilegu verðlagi, miðaðar við árið 2001. Í fjórða lagi hafa útgjöld aukist um nærri 20 milljónir króna á um- VEGNA greinar í Morgunblaðinu föstudaginn 8. febrúar eftir Hann- es Hólmstein Gissurarson vill embætti forseta Íslands koma á framfæri eftirfarandi upplýsing- um: Meginefni greinarinnar er byggt á fyrirlestri sem höfundur flutti nýlega á málstofu lagadeildar og í lok hennar endurtekur hann full- yrðingu sem hann varpaði þar fram og segir: „kostnaður af for- setaembættinu hefur tvöfaldast á fimm árum, frá 1995 til 2000, úr 50 milljónum króna 1995 í 131 milljón króna 2000“. Þessi tölulegi samanburður er því miður bæði rangur og villandi af eftirfarandi ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess að talan árið 2000 tekur bæði til útgjalda embættisins og kostnaðar við op- inberar heimsóknir en talan sem vitnað er til fyrir árið 1995 tekur aðeins til útgjalda embættisins þar sem kostnaður vegna opinberra heimsókna var sérstakur fjárlaga- liðnum árum vegna ákvarðana sem embættið hefur ekki haft áhrif á. Þar ber þetta hæst: 1. Húsnæðiskostnaður forseta- embættisins hefur vaxið þar sem ríkisstjórnin ákvað árið 1996 að færa skrifstofu for- seta úr Stjórnarráðshúsinu í Staðastað á Sóleyjargötu 1, en áður hafði rekstrarkostn- aður skrifstofunnar verið hluti af rekstri Stjórnarráðs- hússins, og fasteignagjöld hafa hækkað verulega í kjöl- far endurbóta og uppbygg- ingar á Bessastöðum. 2. Alþingi breytti árið 2000 lög- um um launakjör forseta og handhafa forsetavalds en sú ákvörðun hafði í för með sér umtalsverða hækkun á þess- um liðum. Þegar kostnaður við emb- ætti forseta Íslands á um- liðnum áratug er metinn verð- ur að hafa framangreind at- riði í huga. Rangar og villandi tölur um kostnað við forsetaembættið BORGARSTJÓRI hefur sent Vetur- liða Gunnarssyni listmálara afsökun- arbréf vegna þess að myndskreyting hans á vegg í Árbæjarskóla var brot- in niður þegar skólinn var stækkað- ur. Bréf Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur borgarstjóra er svohljóðandi: „Ágæti Veturliði. Erindi þessa bréf er að biðjast fyr- ir hönd Reykjavíkurborgar afsökun- ar á þeim slæmu mistökum sem urðu þegar myndskreyting þín á vegg í Árbæjarskóla var brotin niður og eyðilögð í tengslum við nýja viðbygg- ingu skólans. Því miður gerðu emb- ættismenn borgarinnar sér ekki grein fyrir því að þeim bar að gera borgarráði og menningarmálanefnd Reykjavíkur viðvart og kalla eftir áliti þeirra áður en þeir hófu slíkar aðgerðir. Það gerðu þeir ekki og því fór sem fór. Get ég ekki annað en fyrir þeirra hönd beðið þig og að- standendur þína innilega afsökunar á þessum leiða atburði. Atburðir eins og þessir eiga ekki að geta gerst og hafa mér vitanlega aldrei áður gerst hjá Reykjavíkurborg. Ég mun sjá til þess að farið verði yfir vinnulag borgarinnar í málum sem þessum til að hindra að mistök af þessu tagi geti endurtekið sig. Það tekur auðvitað ekki aftur þann skaða sem hlotist hefur, en ég vil að lokum fullvissa þig um að enginn sem að þessu máli kom hafði í hyggju að sýna þér og verki þínu nokkra vansæmd. Með vinsemd og virðingu.“ Undir bréfið skrifar Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri og afrit þess sendi hún Benedikt Gunnars- syni listmálara, Guðmundi Pálma Kristinssyni, hjá byggingadeild borgarverkfræðings, og Eiríki Þor- lákssyni, forstöðumanni Listasafns Reykjavíkur. Veturliða Gunnarssyni send afsök- unarbeiðni BÆJARSTJÓRN Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að falla frá hækkun á dagvistargjöldum á leikskóla og halda gjöldunum óbreyttum út árið. Þá verður daggjald á gæsluvöllum lækk- að um 5%, gjald fyrir heimaþjónustu og félagsstarf aldraðra lækkar um 5% sem og gjaldskrá vegna dægradvalar í heilsdagsskóla, íþróttahúsa, sund- lauga og skíðasvæðis. Lækkanirnar taka gildi frá og með 1. mars en með þessu vill Ísafjarð- arbær leggja sitt af mörkum til þess að tryggja stöðugt verðlag. Lækkun á gjaldskrá Ísa- fjarðarbæjar TALSVERÐAR skemmdir urðu af völdum elds og reyks í timbur- húsi á Laugavegi 64 í gær. Eldur kviknaði í geymslu í kjallara og barst reykurinn upp á næstu hæðir. Slökkvilið höfuðborgarsvæð- isins fékk tilkynningu um eldinn kl. 12.35 og var komið á staðinn fimm mínútum síðar. Slökkvi- starfi var að mestu lokið klukkan eitt. Gunnar Jónsson, stöðvar- stjóri í Skógarhlíð, segir að tölu- verðar skemmdar hafi orðið í verslun á jarðhæð af völdum reyks. Þá hafi gólf og milliveggir skemmst af völdum elds og einnig hafi þurft að rífa klæðningu frá til að gæta að glóðum. Lögreglan í Reykjavík rann- sakar eldsupptök. Reyk- skemmdir í verslun við Laugaveg Morgunblaðið/Þorkell Slökkviliðsmenn á vettvangi á Laugavegi í hádeginu í gær að loknu slökkvistarfi. Í BYRJUN næsta mánaðar hefst rannsóknarverkefni í nokkrum Evrópulöndum á vegum aðila sem starfa að geðheilbrigðismálum. Snýst það um rannsóknir á kvíða og þunglyndi og um mat á því til hvaða forvarna má grípa til að koma í veg fyrir slíka sjúkdóma. Lönd innan Evrópusambands- ins og Evrópska efnahagssvæð- isins geta tekið þátt í verkefninu. Evrópsku geðheilbrigðissamtökin Mental Health Europe skipu- leggja verkefnið í samvinnu við aðra aðila. ESB fjármagnar það að miklu leyti með sem svarar ríf- lega 60 milljóna króna framlagi. Verða rannsakaðir mismunandi aldurshópar, börn og ungmenni, fólk á aldrinum 24 til 60 ára og síðan 61 árs og eldra fólk, og ráða þátttökulöndin því hvaða hóp þau leggja einkum áherslu á að vinna með. John Henderson, skoskur geðlæknir og verkefnisstjóri, seg- ir verkefnið snúast um rannsókn- ir og upplýsingasöfnun um al- gengi kvíða og þunglyndis í Evrópulöndum. Jafnframt verður gaumgæft með hvaða hætti hægt er að auka forvarnir á þessu sviði. Meta þekkingu og semja leiðbeiningar „Við þurfum ekki síst að auka forvarnir meðal ungs fólks sem við vitum að fær þessa sjúkdóma ekkert síður en fullorðið fólk,“ segir hann. „Við viljum reyna að finna leiðir til að forðast þessa sjúkdóma til að geta bætt þannig geðheilbrigði með því að safna saman reynslu og þekkingu í þessum löndum. Hún er auðvitað mjög misjöfn því heilbrigðisþjón- ustan er mismikið þróuð frá einu landi til annars.“ Í framhaldinu segir John Henderson síðan ráð- gert að semja eins konar leiðbein- ingar eða ábendingar um forvarn- ir. Gert er ráð fyrir að verkefnið taki um 18 mánuði. Í gær og í dag hefur staðið yfir fundur í Brussel þar sem verkefnið er kynnt fulltrúum þátttökulanda. Frá Ísandi situr fundinn ásamt fleirum Héðinn Unnsteinsson, framkvæmdastjóri Geðræktar, sem er samstarfsvettvangur um geðheilbrigðismál. Héðinn segir að Geðrækt, Vinnueftirlitið og Landspítalinn muni annast verk- efnið hérlendis. Segir hann að safna þurfi saman upplýsingum hérlendis um verkefni á þessu sviði og að nauðsynlegt sé að stjórnvöld marki skýra heildar- stefnu í geðheilbrigðismálum. Evrópuverkefni í for- vörnum geðsjúkdóma ♦ ♦ ♦ OPNAÐUR hefur verið vef- urinn www.spilafikn.is, sem er ítarlegur vefur um spilafíkn. Honum er ætlað að veita þeim sem vilja fræðast um spilafíkn sem bestar upplýsingar um fíknina, en samkvæmt rann- sókn IMG Gallup í fyrra eru 0,6% Íslendinga á aldrinum 16-80 ára spilasjúkir, eða um 1.200 til 1.500 manns. Aðstandendur vefjarins eru Gullnáma HHÍ og Íslenskir söfnunarkassar. Vonast forvíg- ismenn fyrirtækjanna til að vefurinn verði spilafíklum hvatning til að leita sér með- ferðar og verði einnig öðrum upplýsingalind. Geta tekið sjálfspróf „Umræðan um spilafíkn hefur undanfarin misseri beinst mikið að happdrættis- fyrirtækjum og við vildum bregðast við umræðunni með því að kynna landsmönnum á Netinu ýmis meðferðarúr- ræði,“ segir Magnús Snæ- björnsson, framkvæmdastjóri Íslenskra söfnunarkassa. „Á vefnum geta notendur tekið sjálfspróf, bæði þeir sem telja sig haldna spilafíkn og þeir sem telja ástvini sína haldna fíkninni. Ennfremur er hægt að fá upplýsingar um hvar hjálp er að finna. Við gerum síðan ráð fyrir að notendur geti síðar sent sérfræðingi fyr- irspurn á vefnum og fengið svör við spurningum sem kunna að vakna í tengslum við spilafíkn. En nú þegar er hægt að finna svör við algeng- ustu spurningunum um spila- fíkn um leið og spilafíklum og aðstandendum þeirra eru gef- in góð ráð.“ Þess má geta að nú um helgina, 8.-9. febrúar, heldur SÁÁ námskeið fyrir spilafíkla og aðstandendur þeirra. Á vefnum er að finna ítarlegar upplýsingar um námskeiðið. Www.spilafikn.is Spilafíkl- um og að- standend- um gefin góð ráð OPIÐ hús verður hjá Háskólan- um á Akureyri í laugardaginn 9. febrúar, frá kl. 11 til 16.30. Þar verður kynnt nýtt náms- framboð við Háskólann á Akur- eyri við auðlindadeild, en það byggist að nokkru á námi sem áður var í sjávarútvegsdeild. Þá kynna heilbrigðisdeild, kenn- aradeild, rekstrardeild og upp- lýsingatæknideild einnig starf- semi sína, sem og samstarfs- stofnanir og bókasafn háskól- ans. Þorsteinn Gunnarsson, rekt- or, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, munu opna nýjan vef Háskólans á Ak- ureyri, en hann er samstarfs- verkefni háskólans og Akureyr- arbæjar. Vefurinn hefur það hlutverk að kynna Akureyri sem háskólabæ. Hljómsveitin Hrafnaspark leikur fyrir gesti og þá syngur Kór Háskólans á Akureyri nokkur lög. Opið hús Háskólans á Akureyri Nýr vefur um há- skólabæinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.