Morgunblaðið - 09.02.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 09.02.2002, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. BANDARÍKIN OG PALESTÍNUMENN Bush Bandaríkjaforseti tilkynntiAriel Sharon, forsætisráðherraÍsraels, á fundi þeirra í Wash- ington í fyrradag að Bandaríkjamenn mundu ekki slíta öll tengsl við heima- stjórn Palestínumanna eins og Ísraels- menn hafa hvatt þá til. Fyrir skömmu leit út fyrir að Bandaríkjamenn hefðu slíkt í huga og tónninn í Washington var á þann veg. Þessi yfirlýsing Bush er fagnaðar- efni. Bandaríkin gegna veigameira hlutverki í Miðausturlöndum en nokk- urt annað ríki utan þeirra sem eiga beina aðild að átökunum þar. Banda- ríkjamenn eru eina þjóðin í heiminum sem hefur afl til þess að stilla til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs. Yfirburðir Bandaríkjanna sem stór- veldis hafa aldrei verið meiri en nú. Raunar fullyrða fræðimenn að aldrei í þekktri sögu mannsins hafi nokkurt eitt ríki haft þá yfirburðastöðu sem Bandaríkin hafa nú. Nú er bara eitt stórveldi í heiminum. Rússland er miðlungsríki þegar um er að ræða efnahagslegan styrk eða hern- aðarmátt. Kína hefur möguleika á að verða stórveldi á næstu áratugum, sem veitt getur Bandaríkjunum samkeppni, en er það ekki í dag. Um önnur ríki er ekki ástæða til að ræða í þessu sam- hengi. Þessi óvenjulega staða Bandaríkj- anna hefur orðið mönnum ljós vegna átakanna í Afganistan. Þar hafa tækni- legir yfirburðir Bandaríkjamanna í hernaði orðið skýrir. Þar hefur greini- lega komið fram hversu miklar fram- farir hafa orðið í hernaðartækni Bandaríkjamanna frá því Persaflóa- stríðið var háð. Af þessum sökum og vegna þessara óumdeilanlegu yfirburða hafa gamlir bandamenn Bandaríkjanna haft áhyggjur af því að þeir muni ekki kunna sér hóf. En yfirlýsing Bush varðandi Palestínumenn er til marks um að bandarísk stjórnvöld hafa ekki tapað áttum. Bandaríkjamenn hafa hernaðarlegt afl til þess að setja bæði Ísraelsmönn- um og Palestínumönnum stólinn fyrir dyrnar og knýja þá til friðarsamninga. Þeir hafa líka fjárhagslega burði til þess að veita þessum þjóðum þann fjárhagslega stuðning sem þarf til þess að koma á friði. Sagt er að hagkerfi Bandaríkjamanna eitt sé stærra en samanlögð hagkerfi næstu níu ríkja sem á eftir þeim koma. Þessari yfirburðastöðu eiga Banda- ríkjamenn að beita til þess að koma á friði í Miðausturlöndum. Clinton var kominn mjög nálægt því að koma á friðarsamningum. Það sem út af stóð var spurningin um Palestínumennina sem dveljast landflótta víða um heim og hafa á undanförnum áratugum misst heimili sín og eignir í átökunum. Það var skiljanlegt að Bush héldi að sér höndum á fyrstu mánuðum valda- tíma síns. En nú er tími til komin að ríkisstjórn repúblikana beiti sér. Hún er að mörgu leyti í sterkari stöðu til þess en ríkisstjórn Clintons m.a. vegna þess að repúblikanar eru ekki jafn háð- ir pólitískum stuðningi gyðinga í Bandaríkjunum og demókratar eru. Þjóðir heims hafa fyllst viðbjóði við að fylgjast með manndrápunum í Mið- austurlöndum. Það er tími kominn til að stöðva þessi ósköp. Bandaríkja- menn einir hafa vald til þess. ÚTSENDINGAR FRÁ HM Í KNATTSPYRNU Það hefur valdið knattspyrnuáhuga-mönnum verulegum áhyggjum undanfarnar vikur að Ríkisútvarpið taldi sig ekki geta tryggt sér sýning- arrétt á Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu sem fram fer á vormánuð- um í Japan og Suður-Kóreu vegna fjár- skorts stofnunarinnar. Enn stóðu þó yf- ir samningaviðræður milli RÚV og erlendra söluaðila þegar einkafyrirtæk- ið Norðurljós kom til sögunnar og tryggði sér sýningarrétt frá mótinu. Tilkynnt var um samningana á mið- vikudag og víst er að knattspyrnu- áhugamenn önduðu léttar, þrátt fyrir að flestir leikir mótsins verði sýndir í læstri dagskrá. Fjórir leikir – opnunar- leikurinn, undanúrslitaleikirnir tveir og úrslitaleikurinn – verða þó sýndir í op- inni dagskrá en viðamikilli dagskrá mótsins verður sjónvarpað í beinni út- sendingu, ýmist á stöðinni Sýn eða á Stöð 2. Það fyrirkomulag er að því leyti mjög hentugt að efninu verður að verulegu leyti sjónvarpað á sérstakri íþróttarás. Dagskrá mótsins mun því ekki raska dagskrá Stöðvar 2 líkt og vaninn er þeg- ar slíku efni er sjónvarpað á einu sjón- varpsrás RÚV. Ríkissjónvarpið hefur ávallt glímt við árekstra íþróttaefnis sem þessa og fréttaflutnings í hefð- bundinni dagskrá og þurft að færa til dagskrárliði, þegar leikir og útsending- ar á stórmótum skarast við fréttatíma, og hafa lesendadálkar ávallt fyllst af bréfum reiðra áhorfenda, sem ekki vilja láta hringla með dagskrána. Ástæðan fyrir þeirri óvissu, sem ríkt hefur um útsendingar frá Heimsmeist- arakeppninni hér á landi, er sú að fjöl- miðlafyrirtækið Kirch keypti réttinn til sýninga frá keppninni í ár og að fjórum árum liðnum af Alþjóðaknattspyrnu- sambandinu, FIFA, og setti upp mun hærra verð fyrir útsendingarréttinn en áður þekktist. Sjónvarpsstöðvarnar kvörtuðu undan okri, en talsmenn Kirch svöruðu því til að þær hefðu greitt allt of lítið áður og rakað síðan inn fé með auglýsingum. Nú yrði þessi slagsíða rétt af. Einnig hefur þetta vakið upp deilur um það hvort útsendingar frá íþróttamóti á borð við Heimsmeistara- keppnina ætti að vera í beinni útsend- ingu og hefur þar verið borið við þjóð- arhag. Reglur um slíkt er að finna í Evrópu og kannski ekki að furða að sú krafa komi upp hjá þjóðum, sem oftar en ekki eiga lið í Heimsmeistarakeppn- inni, að þær fái að fylgjast með viður- eignum þeirra í opinni dagskrá en ekki læstri. Engar reglur eru um það hér á landi að sýnt skuli frá HM í opinni dag- skrá og ekki hefur það gerst enn að ís- lenska landsliðið hafi unnið sér þátt- tökurétt í Heimsmeistarakeppninni. Norðurljós sömdu ekki aðeins um réttinn til að sýna frá HM í Japan og Suður-Kóreu, heldur einnig Heims- meistarakeppninni, sem haldin verður í Þýskalandi árið 2006. Fyrirtækið hefur með þessum samningum sýnt Ríkis- sjónvarpinu fram á að raunveruleg sam- keppni ríkir á markaðnum. Samkeppni sem stjórnendur Ríkissjónvarpsins virðast ekki hafa gert ráð fyrir, þótt svipað hafi verið uppi á teningnum þeg- ar enska knattspyrnan færðist frá Rík- issjónvarpinu til Stöðvar 2 og Sýnar. FIMM manna nefnd ávegum umhverfisráð-herra hefur komist aðsamhljóða niðurstöðu um tillögur um breytingar á lög- um um verndun Mývatns og Lax- ár. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær taka núgildandi lög til Skútustaðahrepps alls en í tillögunum er gert ráð fyrir að gildissvið verndarákvæðis lag- anna verði þrengt. Það taki áfram til árinnar allrar ásamt 200 metra breiðum bakka báðum megin og vatnsins alls ásamt 200 m breiðum bakka umhverfis það. Auk þess verði tilgreind votlend- issvæði sem liggi við bakka vatnsins og árinnar og eru mjög mikilvægur hluti af lífkeðju vatnsins. Ennfremur er lagt til að sérstakt ákvæði verði sett inn í frumvarpið varðandi verndun vatnasviðs árinnar en hvað önn- ur svæði við Mývatn varðar er lagt til að farið verði í þá vinnu að friðlýsa þau á grundvelli ákvæða náttúruverndarlaga og því lokið fyrir árslok 2005. Ekkert stríð í gangi út af þessu Kári Þorgrímsson, í Garði í Mývatnssveit, sem á sæti í stjórn Landeigendafélags Mývatns og Laxár, segist ekki hafa séð end- anlegar tillögur nefndarinnar en hugmyndir nefndarinnar um breytingar hafi verið kynntar stjórn Landeigendafélagsins á fyrri stigum. ,,Við gerðum engar athugasemdir eins og þetta leit út þá. Við settum ekki fram neina beina andstöðu við breytingarn- ar eins og þær litu út en auðvitað er maður alltaf hræddur við það þegar farið er að káfast í þessum lögum vegna þess að það eru nógir sem vilja afnema þau,“ seg- ir Kári. ,,Formaður nefndarinnar og starfsmaður komu á fund stjórn- ar Landeigendafélagsins og þær hugmyndir sem þeir kynntu fyrir okkur voru svo sem bæði slæmar og góðar. Það er að mínu mati þörf á þessum lögum og maður vill ekki missa þau,“ segir Kári. Hann bendir á að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem lögunum er breytt. ,,En það er ekkert stríð í gangi út af þessu,“ segir hann. Lögin sett í kjölfar Laxárdeilu Lögin um verndun Laxár og Mývatns voru sett 1974 í kjölfar hinnar hörðu Laxárdeilu sem stóð yfir frá 1969 til 1973. Deilan snerist um áætlanir um stækkun Laxárvirkjunar með byggingu hárrar stíflu í Laxárgljúfrum sem hefði m.a. haft í för með sér breytingar á vatnakerfi Mývatns og að hluti Laxárdals færi undir vatn. Þessar áætlanir og fram- kvæmdir mættu mikilli mótspyrnu og háværum mótmælum Þingey- inga og í ágúst 1970 tóku á annað hundrað heimamenn sig til og sprengdu burt stíflu Laxárvirkj- unar í Miðkvísl. Í kjölfarið var gef- in út ákæra á hendur 65 manns úr Mývatnssveit og nágrenni. Lang- vinnum og hatrömmum deilum um Laxárvirkjunarmálið lauk ekki fyrr en í maí 1973 er ríkisstjórnin, stjórn Laxárvirkjunar og Land- eigendafélag Laxár og Mývatns gengust að samkomulagi um að ekki verði virkjað frekar í Laxá. Landeigendafélag Laxár og Mývatns var stofnað 1970 og hefur síðan haft að markmiði að vinna að vernd svæðisins. Fékk það sett lögbann á heimild virkunarinnar til vatnstöku í Laxá. 1970 fól iðn- aðarráðuneytið hópi sérfræðinga það verkefni að gera áætlun um heildarrannsókn á lífríki Laxár og Mývatns. Laxármálið þoldi enga bið og skiluðu sérfræðingarnir skýrslu árið 1972 þar sem þeir á grundvelli vistfræðirannsókna rökstuddu algjöra verndun Mý- vatnssvæðisins og mæltu gegn fyrirhugaðri vatnsborðshækkun á Laxá. Sáttagjörðin, sem undirrituð var af deiluaðilum Laxárdeilunnar í Stórutjarnarskóla 19. maí 1973, fól m.a. í sér að ríkisstjórnin myndi láta semja frumvarp um verndun Laxár- og Mývatnssvæð- isins. Lögin um verndun Mývatns og Laxár tóku svo gildi í maí 1974. Hafa þau verið talin marka þátta- skil í umhverfis- og náttúruvernd- armálum á Íslandi. Það friðlýsta svæði sem lögin taka til er mjög stórt en ákvæði laganna um verndun taka til Skútustaða- hrepps og Laxár með hólmum og kvíslum, allt að ósi árinnar við Skjálfanda, ásamt 200 metra breiðum bakka meðfram ánni báð- um megin. Tilgangur laganna er að stuðla að verndun Mývatns- og Laxár- svæðisins og er meginreglan sú að hvers konar mannvirkjagerð og jarðrask er bannað nema að fengnu leyfi Náttúruverndar rík- isins. Óheimilt er skv. lögunum að gera breytingar á hæð vatnsborðs stöðuvatna og rennsli straum- vatna nema til verndunar og rækt- unar þeirra, enda komi til sérstakt leyfi Náttúruverndar ríkisins, en skv. lögunum hafa þó verið heim- ilaðar framkvæmdir, sem nauð- synlegar og eðlilegar teljast til bú- skapar á lögbýlum, nema spjöllum valdi á náttúruverðmætum að dómi Náttúruverndar ríkisins. Einnig hafa verið heimilar án sér- staks leyfis Náttúruverndar ingar samkvæmt staðfestu lagi, enda hafi stofnunin fa skipulagsáætlun þá sem um ræða. Niðurstaða nefndar innar samhljóða Árni Bragason, forstjóri úruverndar, átti sæti í nefn hverfisráðherra sem nú hefu að tillögum sínum. Að han komst nefndin að samhljóð urstöðu. Árni og Gísli Már son, prófessor og stjórnarfo ur Náttúrurannsóknarstöðv ar við Mývatn, sem einnig nefndinni, höfðu þó einn fyr á samþykki sínu. Lögðu þei bókun þar sem þeir leggja t meðan á friðlýsingarferlinu ur þurfi að leita leyfis Ná verndar ríkisins fyrir kvæmdum. ,,Þetta var eina sem menn voru ekki sa um,“ segir Árni. Talsmenn Náttúruverndar ríkisins og tillögum um breytingar á lögum um v Ekkert verð úr verndun Forsvarsmenn Náttúruverndar ríkisins, Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Mý- vatn og Landeigendafélags Mývatns og Laxár leggjast ekki gegn fyrirhuguðum breytingum á lögum um verndun Mývatns og Laxár en hafa þó uppi ákveðinn fyrir- vara. Ómar Friðriksson ræddi við þá og rifjar upp tilurð laganna um friðlýsingu Mývatnssvæðisins, sem mörkuðu þátta- skil í náttúruvernd á Íslandi.                        !"#$%  *  ’ Framkvæmdirháðar leyfi Náttú verndar á meðan er að friðlýsingu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.