Morgunblaðið - 09.02.2002, Side 52

Morgunblaðið - 09.02.2002, Side 52
DAGBÓK 52 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Víkverji skrifar... VÍKVERJI dagsins er ekki hag-fræðimenntaður, en engu að síður hefur hann gaman af því að lesa sér til um nýjustu kenningar í þeim fræðum, þar sem þær tengjast gjarnan álitamálum í stjórnmálum og þjóðmálum almennt jafnt á inn- lendum vettvangi sem erlendum. Frægur maður lét þess eitt sinn get- ið að hagfræði væri vísindagrein þar sem menn gætu náð mikilli frægð og frama með kenningum sínum án þess að hafa nokkru sinni rétt fyrir sér. Þetta er semsé ekki síst fræðigrein kenninganna og álitaefnin eru mörg. x x x ÞETTA rifjaðist upp fyrir Vík-verja í vikunni þegar Hagfræði- stofnun Háskóla Íslands kynnti nýja skýrslu sína um áhrif auðlindagjalds í sjávarútvegi. Höfundur skýrslunn- ar, Ragnar Árnason prófessor, komst að þeirri niðurstöðu að tekju- aukning ríkisins af álagningu auð- lindagjalds væri nánast örugglega miklu minni en sem nemur upphæð gjaldsins. Álagning gjaldsins gæti jafnvel leitt til tekjuminnkunar. Í gær birtist svo í Morgunblaðinu skoðanir tveggja dósenta við sömu vísindastofnun Háskóla Íslands, þar sem þessari kenningu var alfarið hafnað. Þeir Gylfi Magnússon og Þórólfur G. Matthíasson sögðust báðir vera þeirrar skoðunar að álagning auðlindagjalds að gefnum tilteknum forsendum væri frekar til þess fallin að auka landsframleiðslu en draga úr henni. Næstu daga munu eflaust birtast fleiri greinar með viðbrögðum lærðra manna á sviði hagfræðinnar um þessi álitaefni og vísast verða skoðanir áfram skipt- ar. Hér skal á engan hátt tekin af- staða til þess hver hefur rétt fyrir sér í þessu máli, enda vandséð hvort unnt sé að meta slíkt. En leikmenn eru ekki miklu nær eftir umræðu undanfarinna daga, í besta falli er hægt að mynda sér skoðun á því hvaða hagfræðingur setur fram sjón- armið sín og röksemdir af mestri sannfæringu. x x x VARLA er hægt að fara inn íhelgina án þess að hrósa for- ráðamönnum Norðurljósa, þ.e. Stöðvar 2 og Sýnar, fyrir að hafa tryggt íslenskum sjónvarpsáhorf- endum beinar útsendingar frá heimsmeistarakeppninni í knatt- spyrnu sem fram fer í Japan og Suð- ur-Kóreu snemmsumars. Alls verða 64 leikir sýndir á stöðv- unum tveimur í beinni útsendingu og í samningi Norðurljósa við fjölmiðla- samsteypuna Kirsch felst einnig réttur frá útsendingum HM í Þýska- landi árið 2006. Margir telja að sú keppni verði sú allra stærsta frá upp- hafi. Að mati Víkverja er þessi samn- ingagerð eitthvað það besta dæmi um jákvæð áhrif einkaframtaksins sem lengi hefur komið fram hér á landi og svo sannarlega dæmi um það sem einstaklingarnir fá áorkað þegar hið opinbera hefur þrotið örendið. Hávær krafa í þjóðfélaginu um beinar útsendingar frá stærsta íþróttaviðburði ársins varð forráða- mönnum Stöðvar 2 og Sýnar hvatn- ing til góðra verka og fyrir það eru ekki aðeins knattspyrnuáhugamenn, heldur sjónvarpsáhorfendur al- mennt, ævinlega þakklátir. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Frábær þjónusta ÉG vil koma á framfæri þakklæti mínu fyrir góða þjónustu starfsfólks í versl- uninni CM á Laugavegi 66. Stúlkurnar þar eru alveg sérstakar. Ég keypti hjá þeim skó fyrir mörgum mánuðum síðan. Fyrir stuttu tók ég eftir því að saumarnir á sól- anum voru farnir að losna og fór með skóna til skó- smiðs. Þar fékk ég að vita að ekki væri hægt að gera við skóna. Ég fór með skóna í búð- ina og var mér þá strax boðið að fá mér nýja skó. Hélt ég að ég þyrfti eitt- hvað að borga í þeim þar sem hinir skórnir voru jú notaðir í nokkra mánuði. En ég fékk ekkert að borga og gekk ég út í nýum skóm. Finnst mér þetta einstök þjónusta og þakka fyrir mig. Ánægður viðskiptavinur. Klippum hrossin GREIN sem birtist í Morg- unblaðinu 22. janúar sl. vakti athygli mína en þar er fjallað um aukna ábyrgð hestaeigenda. Með grein- inni fylgdi mynd af hrossi með óklipptan topp og velti ég því fyrir mér hvort það geti verið ástæða þess að hestar hlaupi fyrir bíl, þ.e. að þeir sjái ekki út úr aug- um. Þetta þykir víst fínt en mér finnst þetta misþyrm- ing á dýrunum. Sigríður. Vantar pláss í frysti ÉG þarf að koma fatnaði, sem kominn er mölur í, í djúpfrysti í nokkra daga. Ég hef heyrt af fyrirtæki sem hafi gert þetta fyrir fólk en hef ekki tekist að hafa upp á því. Þeir sem gætu gefið mér uppl. hafið samband í síma 552 4690 eða 698 6774. Tapað/fundið Úr í óskilum ÚR fannst á göngustíg á milli Flataskóla og Garða- skóla í Garðabæ sl. mánu- dag. Uppl. í síma 565 6113. Týnd númeraplata SÁ sem fann númeraplöt- una YL 356 er vinsamleg- ast beðinn að hafa samband við Guðmundu í síma 554 6502 eða 564 2677. Dýrahald Stjáni er týndur STJÁNI er grábröndóttur/ gráflekkóttur högni sem hvarf frá Helgubraut í Kópavogi aðfaranótt 30. janúar. Stjáni er eyrna- merktur og á að vera með ól. Hafi einhver orðið hans var þá er viðkomandi vin- samlega beðinn að hafa samband við Svandísi í síma 863 9901 eða 554 2953. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT: 1 þröng hola, 4 gerir við, 7 svikult, 8 hnakkakerrt, 9 greinir, 11 umtalað, 13 sprota, 14 á jakka, 15 poka, 17 skordýr, 20 drýsill, 22 árnar, 23 lag- armál, 24 sníkjudýrið, 25 geta neytt. LÓÐRÉTT: 1 spakur, 2 missætti, 3 sigaði, 4 niðji, 5 fleinn, 6 nagdýr, 10 lærir, 12 gríp, 13 erfðafé, 15 sæti, 16 matreiðslumanns, 18 sér, 19 byggja, 20 tímabilin, 21 vont. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 sannprófa, 8 suddi, 9 yfrið, 10 tin, 11 auðga, 13 agnið, 15 gusts, 18 hlass, 21 kol, 22 tafla, 23 ýmist, 24 rakalaust. Lóðrétt: 2 andúð, 3 neita, 4 reyna, 5 förin, 6 usla, 7 iðið, 12 get, 14 gúl, 15 gáta, 16 safna, 17 skata, 18 hlýða, 19 arins, 20 sáta. K r o s s g á t a ÉG VIL vekja athygli á málefnum ungmenna sem lent hafa í ógöngum í lífi sínu. Ég er móðir 17 ára stúlku sem er á hraðri nið- urleið og virðist hún hvergi eiga heima í kerfinu. 15 ára gömul leitaði hún sér að- stoðar í Rauða kross húsinu vegna vanlíðunar og þar var mér sagt að eitthvað væri að hjá henni og henni boðið að dvelja þar meðan unnið væri í hennar máli. Ég gaf samþykki mitt fyrir því. Þar var hún í 3 vikur, sótti fundi og viðtöl hjá sál- fræðingi án þess að nokkuð kæmi út úr því nema það helst, að stúlkan væri að brjótast undan for- eldravaldi. Nú er rúmt ár liðið og stúlkan er komin í neyslu, týnist iðulega og ég þarf að láta leita að henni. Þegar hún finnst er hún bú- in að týna öllu sem hún var með og veit ekkert hvar hún hefur verið. Eina úrræðið virðist vera að koma henni inn á Stuðla þar sem hún hefur dvalist áður – en þar er biðlisti. Ég hef leitað til allra aðila sem hugsanlega gætu veitt aðstoð, félags- málaráðherra, umboðs- manns barna, Barna- verndarstofu, og verið í viðtölum hjá ráðgjöfum og sálfræðingum. Ég hélt að verið væri að vinna í hennar málum en það virðist engin lausn finn- ast. Hjá Barnavernd- arstofu er málið í biðstöðu því þar er beðið eftir skýrslu um hennar mál og ekkert hægt að gera fyrr en umrædd skýrsla berst. Um síðustu helgi hvarf hún enn á ný og þegar hún fannst var eina lausn- in að koma með hana heim, þar sem ég tók við henni. Daginn eftir lét hún sig hverfa aftur. – Í dag er hún skráð týnd. Þessi stúlka fær enga greiningu í kerfinu og sama rútínan heldur áfram og það eina sem hún hefur lært á þesu rúma ári er að hún getur haldið þessu líferni áfram. Hvað gerist á næsta ári þegar hún verður 18 ára og fær sjálfræði? Hvernig á maður að geta unnið barninu sínu til góðs í öllum þessum glundroða sem virðist ríkja í þessum málum? Hvað skyldu margir foreldrar vera í sömu að- stöðu og ég? Örvæntingarfull móðir. Ungmenni í ógöngum Skipin Reykjavíkurhöfn: Irena Arctica kemur í dag. Mannamót Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudög- um kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstu- dögum kl. 11. Kóræf- ingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ á Hlað- hömrum fimmtudaga kl. 17–19. Púttkennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014, kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrt- ingu, hárgreiðslu og fótanudd, s. 566-8060 kl. 8–16. Félag eldri borgara Kópavogi boðar til al- menns fundar í Gjá- bakka, laugardaginn 9. febrúar. Fundarefni: Kjara- og framboðsmál. Óskað hefur verið eftir að fulltrúar stjórn- málaflokkanna mæti og ræði málin og svari fyr- irspurnum. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Á mánudag pútt í Bæj- arútgerð kl. 10–11.30 og félagsvist kl. 13.30. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Spilakvöld á Álftanesi 14. febr. kl. 19. 30 á vegum Lions- klúbbs Bessa- staðahrepps. Akstur samkvæmt venju. Mánud. 11. feb. kl. 9 leir, kl. 9.45 boccia, kl. 11.15 kl. 12.15 og kl. 13.05 leikfimi, kl. 13 gler/bræðsla, kl. 15.30 tölvunámskeið, þrið. 12. feb. kl. 9 vinnuhópur gler, kl. 13 málun, kl. 13.30 tréskurður kl. 13.30 spilað í Kirkju- hvoli, kl. 16 bútasaum- ur. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi – blöðin og matur í hádeginu. Í dag, laugardaginn 9. febrúar, kl. 13.30, heilsa og hamingja á efri ár- um. Ath. breyting hefur orðið. 1: Krabbamein í brjóstum eldri kvenna. Helgi Sigurðsson, yf- irlæknir Landspítala – háskólasjúkrahúss v. Hringbraut. 2. Íslensk- ar lækningajurtir. Sig- mundur Guðbjarnason prófessor skýrir frá sín- um vísindalegum rann- sóknum og hans manna í Háskóla Íslands. Á eftir hverju erindi gefst tækifæri til spurninga og umræðna. Fræðslu- fundirnir verða haldnir í Ásgarði, Glæsibæ, fé- lagsheimili Félags eldri borgara og hefjast kl. 13.30. Allir eru vel- komnir. Sunnudagur: Félagsvist kl. 13.30. Dansleikur kl. 20 Caprý-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Dans- kennsla Sigvalda fram- hald kl. 19 og byrj- endur kl. 20.30. Þriðjudagur: Skák kl. 13 og alkort spilað kl. 13.30. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði kl. 10. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ, fé- lagsheimili Félags eldri borgara Söng og gam- anleikinn „Í lífsins ólgu- sjó“ minningar frá ár- um síldarævintýranna. Og „Fugl í búri“, dramatískan gamanleik. Sýningar: Miðvikudaga kl. 14 föstudaga kl. 14 og sunnudaga kl. 16. Miðapantanir í síma: 588-2111, 568-8092 og 551-2203. Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, verður haldinn í Ás- garði, Glæsibæ, sunnudaginn 24. febr- úar kl. 13.30. Farin verður ferð til Krítar með Úrvali- Útsýn 29. apríl, 24ra daga ferð. Skemmt- anastjóri Sigvaldi Þor- gilsson. Skráning fyrir 15. febrúar á skrifstofu FEB. Hagstætt verð. Gerðuberg, félagsstarf, Í dag kl. 13–16 mynd- listasýning Braga Þórs Guðjónssonar. Veitingar í veitingabúð. Miðvikud 13. feb. Öskudagur, íþróttahátíð á vegum FÁÍA í íþróttahúsinu við Austurberg kl. 14– 16. Fjölbreytt dagskrá nánar kynnt síðar. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9 Krummakaffi, kl. 10 Hana-nú ganga. Kirkjustarf aldraðra Digraneskirkju. Opið hús á þriðjudag kl. 11. Leikfimi, sprengidags- matur, helgistund og fleira. Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur í kvöld kl. 21 í Konna- koti, Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. Kl. 14 bingó. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigs- veg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12, Reykjavík. Stuðst er við 12 spora kerfi AA- samtakanna. Kvenfélag Breiðholts, aðalfundurinn verður haldinn þriðjudaginn 12. feb kl. 20 í safn- aðarheimili Breiðholts- kirkju. Venjuleg aðal- fundarstörf. Þorramatur. Knattspyrnudeild Hauka. Aðalfundurinn verður haldinn fimmtu- daginn 14. feb. kl. 20 í hátíðarsal félagsins að Ásvöllum. Venjuleg að- alfundarstörf, kosning nýrrar stjórnar, önnur mál. Minningarkort Styrktarfélags krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrif- stofutíma. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrif- stofu félagsins í Suð- urgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552-2154. Skrif- stofan er opin miðvikud. og föstud. kl. 16–18 en utan skrifstofutíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586-1088. Gíró- og kred- itkortaþjónusta. Minningarkort MS fé- lags Íslands eru seld á skrifstofu félagsins, Sléttuvegi 5, 103 Rvk. Skrifstofan er opin mán.–fim. kl.10–15. Sími 568-8620. Bréfs. 568-8621. Tölvupóstur ms@msfelag.is. FAAS, Félag aðstand- enda Alzheimer- sjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eft- irtöldum stöðum: í síma 588-9220 (gíró) Holts- apóteki, Vesturbæj- arapóteki, Hafnar- fjarðarapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elíasdótt- ur, Ísafirði. Parkinson-samtökin. Minningarkort Park- inson-samtakanna á Ís- landi eru afgreidd í síma 552-4440 frá kl. 13–17. Eftir kl. 17, s. 698-4426 Jón, 552-2862 Óskar eða 563-5304 Nína. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562-5605, bréfsími 562- 5715. Minningarkort Krabba- meinsfélags Hafn- arfjarðar (K.H.), er hægt að fá í Bóka- búð Böðvars, Reykja- víkurvegi 64, 220 Hafn- arfirði s. 565-1630 og á skrifstofu K.H., Suðurgötu 44, II. hæð, sími á skrifstofu 544- 5959. Í dag er laugardagur, 9. febrúar, 40. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Vingjarnleg orð eru hunangs- seimur, sæt fyrir sálina, lækning fyrir beinin. (Orðskv. 16, 24.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.